Er að versla mér vél af ebay, með kreditkort linkað við paypal accountinn. Það er garanterað nóg inná kortinu fyrir vörunni, og kortið er rétt stillt inní accountinum (búinn að láta þá taka af mér 2usd til staðfestingar). Þetta er fyrirframgreitt mastercard ef það breytir e-rju, sem hefur verið notað áður til paypal kaupa, og er stílað á annan aðila.
Villan sem ég fæ upp:
We're sorry, but we can't send your payment right now
Return to merchant and try a different payment method
Inná hjálparsíðunni hjá Paypal sá ég talað um e-r limit á "limits page" sem ég finn ekki með nokkru móti, á að vera á bakvið balance upplýsingar, og þar stendur ekkert. Ég á ennþá eftir að fá confirmation kóðann fyrir kortið sjálft inná yfirlitið, virðist allt taka fleiri klst eða daga þegar kemur að helvítis kreditkortum.
Þessu tilboði lýkur mjög fljótlega og því pínu stress í gangi, og seljandinn getur ekki tekið beint við kreditkortagreiðslu. Ég hef pantað alveg sorglega lítið af netinu í gegnum tíðina, er e-ð sem ég er að gleyma/gera vitlaust?