Hreinsa lím úr gluggum á bíl eftir filmur?

Allt utan efnis
Skjámynd

aggibeip
Ofur-Nörd
Póstar: 237
Skráði sig: Sun 23. Maí 2010 23:10
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Hreinsa lím úr gluggum á bíl eftir filmur?

Pósturaf aggibeip » Lau 12. Jan 2013 16:30

Olíuhreinsir...

Ég vann við að þrífa og standsetja bíla á tímabili og stundum fengum við fyrirtækjabíla sem búið var að þekja í límmiðum og þar af leiðandi allir í lími. Við notuðumst við hitabyssur til að ná límmiðunum af og svo úðuðum við bílana með olíuhreinsi og létum standa í ca. 2-5min svo bara nuddað aðeins með svampi og svo skolað af. Síðan þá hef ég alltaf notast við olíuhreinsi til að hreinsa lím. :happy




starionturbo
Gúrú
Póstar: 542
Skráði sig: Mán 24. Des 2007 11:23
Reputation: 8
Staðsetning: localhost
Staða: Ótengdur

Re: Hreinsa lím úr gluggum á bíl eftir filmur?

Pósturaf starionturbo » Mán 14. Jan 2013 11:49

Full seint, en ég hef notað sítrónusafa til þess að ná líminu af, ph gildið gott og skemmir ekki lakk eins og þynnir etc. gerir.


Foobar