Hvað þarf ég þegar ég kaupi Raspberry Pi?

Höfundur
capteinninn
Of mikill frítími
Póstar: 1725
Skráði sig: Sun 12. Sep 2004 16:02
Reputation: 20
Staða: Ótengdur

Hvað þarf ég þegar ég kaupi Raspberry Pi?

Pósturaf capteinninn » Þri 27. Nóv 2012 13:51

Er að spá að kaupa Raspberry Pi til að henda XBMC inná en ég er að spá hvað ég þarf að kaupa með til að nota það, þarf ég ekki að kaupa líka hleðslutæki og minniskort?

Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3760
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hvað þarf ég þegar ég kaupi Raspberry Pi?

Pósturaf Pandemic » Þri 27. Nóv 2012 14:13

Þarft helst að kaupa gott SD kort. Hraðinn hefur áhrif á I/O performance. Svo þarftu að kaupa hýsingu ef þetta á ekki að vera bert hjá þér.
Svo geturu notað hvaða micro USB hleðslutæki sem er. Hinsvegar mæli með góðu hleðslutæki.

Höfundur
capteinninn
Of mikill frítími
Póstar: 1725
Skráði sig: Sun 12. Sep 2004 16:02
Reputation: 20
Staða: Ótengdur

Re: Hvað þarf ég þegar ég kaupi Raspberry Pi?

Pósturaf capteinninn » Þri 27. Nóv 2012 14:18

Hvað er gott SD kort að kosta?
Sama með hleðslutæki, ég á fullt af micro-usb snúrum og tvö usb charger af gömlum símum, geta þau ekki virkað ?

Annars ætlaði ég bara að búa til hýsingu úr Lego því það er frábært.

Er þessi XBMC uppsetning samt ekki að virka fínt, ræður þetta ekki alveg við að stream-a HD efni úr annari tölvu tengdri með Ethernet snúru eða spila HD efni af minniskubb eða NTFS flakkara?

Get ég líka ekki notað eitthvað annað en HDMI fyrir video, er með myndvarpa sem er bara með gamla kerfinu (RCA minnir mig að það heiti, gula, hvíta og rauða)

Og áður en þið spyrjið þá veit ég að varpinn ræður ekki við HD efni en ég er með slatta af því til að horfa á í borðtölvunni og ég nenni ekki að þurfa að ná aftur í myndir því græjan ræður ekki við það, er líka með gott sjónvarp sem er HD ready sem er fínt að nota með þessari græju líka
Síðast breytt af capteinninn á Þri 27. Nóv 2012 14:35, breytt samtals 1 sinni.

Skjámynd

tlord
Tölvutryllir
Póstar: 601
Skráði sig: Mið 30. Nóv 2011 17:28
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Hvað þarf ég þegar ég kaupi Raspberry Pi?

Pósturaf tlord » Þri 27. Nóv 2012 14:30

rakst á mjög fín verð á SD kortum í Hagkaup fyrir nokkrum vikum, virtist vera besti díllinn á Klakanum.

(í Smáralind)

þarft væntanlega 3.5mm st > RCA

Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3122
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 454
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Hvað þarf ég þegar ég kaupi Raspberry Pi?

Pósturaf hagur » Þri 27. Nóv 2012 15:10

hannesstef skrifaði:Hvað er gott SD kort að kosta?
Sama með hleðslutæki, ég á fullt af micro-usb snúrum og tvö usb charger af gömlum símum, geta þau ekki virkað ?

2-4þús kall c.a, fer eftir stærð. Jú, hvaða micro-usb hleðslutæki sem er ætti að virka.

hannesstef skrifaði:Er þessi XBMC uppsetning samt ekki að virka fínt, ræður þetta ekki alveg við að stream-a HD efni úr annari tölvu tengdri með Ethernet snúru eða spila HD efni af minniskubb eða NTFS flakkara?

Jújú ... getur spilað en allt annað í XBMC er sluggish og leiðinlegt, t.d bara að navigate-a valmyndir ofl.

hannesstef skrifaði:Get ég líka ekki notað eitthvað annað en HDMI fyrir video, er með myndvarpa sem er bara með gamla kerfinu (RCA minnir mig að það heiti, gula, hvíta og rauða)

Jú, Raspberry PI er með composite video útgang líka (þessi guli hringlótti).

Höfundur
capteinninn
Of mikill frítími
Póstar: 1725
Skráði sig: Sun 12. Sep 2004 16:02
Reputation: 20
Staða: Ótengdur

Re: Hvað þarf ég þegar ég kaupi Raspberry Pi?

Pósturaf capteinninn » Þri 27. Nóv 2012 15:27

hagur skrifaði:

Er eitthvað annað líkt XBMC sem er hægt að nota til að horfa á video í?
Jafnvel bara eitthvað skin sem gengur hraðar en annað?

Skjámynd

Yawnk
Vaktari
Póstar: 2038
Skráði sig: Mán 26. Mar 2012 21:26
Reputation: 11
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hvað þarf ég þegar ég kaupi Raspberry Pi?

Pósturaf Yawnk » Þri 27. Nóv 2012 15:35

http://www.hopkaup.is/32gb-sd-flash-minniskort Sá hérna að Hópkaup er að bjóða upp á 32GB SD kort á 3800 kall, gerist ekki betra :)

Höfundur
capteinninn
Of mikill frítími
Póstar: 1725
Skráði sig: Sun 12. Sep 2004 16:02
Reputation: 20
Staða: Ótengdur

Re: Hvað þarf ég þegar ég kaupi Raspberry Pi?

Pósturaf capteinninn » Þri 27. Nóv 2012 15:37

Yawnk skrifaði:http://www.hopkaup.is/32gb-sd-flash-minniskort Sá hérna að Hópkaup er að bjóða upp á 32GB SD kort á 3800 kall, gerist ekki betra :)

Var að finna hérna 512 mb Sandisk og 2gb Panasonic minniskort heima sem ég ætla að checka á fyrst. Nú þarf ég bara að finna græju til að lesa og skrifa á minniskortin til að láta þetta virka

Gislinn
FanBoy
Póstar: 769
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 01:07
Reputation: 50
Staða: Ótengdur

Re: Hvað þarf ég þegar ég kaupi Raspberry Pi?

Pósturaf Gislinn » Þri 27. Nóv 2012 15:38

Yawnk skrifaði:http://www.hopkaup.is/32gb-sd-flash-minniskort Sá hérna að Hópkaup er að bjóða upp á 32GB SD kort á 3800 kall, gerist ekki betra :)

Myndi ekki kaupa class 4 SD kort til að setja í Raspberry Pi. Ég er með class 10 kort í minni RPi.

common sense is not so common.

Höfundur
capteinninn
Of mikill frítími
Póstar: 1725
Skráði sig: Sun 12. Sep 2004 16:02
Reputation: 20
Staða: Ótengdur

Re: Hvað þarf ég þegar ég kaupi Raspberry Pi?

Pósturaf capteinninn » Þri 27. Nóv 2012 15:41

Gislinn skrifaði:
Yawnk skrifaði:http://www.hopkaup.is/32gb-sd-flash-minniskort Sá hérna að Hópkaup er að bjóða upp á 32GB SD kort á 3800 kall, gerist ekki betra :)

Myndi ekki kaupa class 4 SD kort til að setja í Raspberry Pi. Ég er með class 10 kort í minni RPi.

Hvurnig sé ég hvaða class SD kort maður er með?
Stendur ekkert á mínu, nema Panasonic kortið er með 4 með hring utan um, er það skilgreiningin ?

Skjámynd

tlord
Tölvutryllir
Póstar: 601
Skráði sig: Mið 30. Nóv 2011 17:28
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Hvað þarf ég þegar ég kaupi Raspberry Pi?

Pósturaf tlord » Þri 27. Nóv 2012 15:45

4 er PoS, 10 er málið

Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3760
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hvað þarf ég þegar ég kaupi Raspberry Pi?

Pósturaf Pandemic » Þri 27. Nóv 2012 15:53

Yawnk skrifaði:http://www.hopkaup.is/32gb-sd-flash-minniskort Sá hérna að Hópkaup er að bjóða upp á 32GB SD kort á 3800 kall, gerist ekki betra :)

þetta eru fölsuð minniskort. Ef þú googlar þetta smá þá sérðu að þessi Elite Pro kort eru rusl sem eru ekki það sem stendur á þeim.

Skjámynd

Yawnk
Vaktari
Póstar: 2038
Skráði sig: Mán 26. Mar 2012 21:26
Reputation: 11
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hvað þarf ég þegar ég kaupi Raspberry Pi?

Pósturaf Yawnk » Þri 27. Nóv 2012 15:56

Pandemic skrifaði:
Yawnk skrifaði:http://www.hopkaup.is/32gb-sd-flash-minniskort Sá hérna að Hópkaup er að bjóða upp á 32GB SD kort á 3800 kall, gerist ekki betra :)

þetta eru fölsuð minniskort. Ef þú googlar þetta smá þá sérðu að þessi Elite Pro kort eru rusl sem eru ekki það sem stendur á þeim.

Hvað meinarðu með fölsuð? Vantar einmitt ódýrt kort í símann minn, væri flott að fá útskýringu :)

Gúglaði þetta einmitt og fann bara núll og nix um þessi kort, afhverju er það?

Skjámynd

tlord
Tölvutryllir
Póstar: 601
Skráði sig: Mið 30. Nóv 2011 17:28
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Hvað þarf ég þegar ég kaupi Raspberry Pi?

Pósturaf tlord » Þri 27. Nóv 2012 15:57

Hefur einhver skoðað kortin í Hagkaup Smáralind?

Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4195
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1338
Staða: Ótengdur

Re: Hvað þarf ég þegar ég kaupi Raspberry Pi?

Pósturaf Klemmi » Þri 27. Nóv 2012 16:07

Skiptir gífurlegu máli að hafa vandað og hratt SD kort í þessum græjum sem og öðrum tækjum almennt.

Vil ekki vera með mikla sölumennsku en ég held að við séum ódýrastir í alvöru SD kortum, 5990kr.- fyrir 32GB Class 10 (allt að 20MB/s í read&write) með lífstíðarábyrgð :oops:

Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3760
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hvað þarf ég þegar ég kaupi Raspberry Pi?

Pósturaf Pandemic » Þri 27. Nóv 2012 16:08

http://www.amazon.com/32GB-HIGH-SPEED-E ... Descending

Hérna sjáum við nokkur review frá notendum á Amazon. Greinilegt að nokkrir þarna hafa ekki notað kortin nógu mikið til að sjá að oftast eru þessi kort bara 4-8GB kort sem eru að gefa upplýsingar um að þau séu 32Gb. Lélegt throughput á þeim og overall léleg framleiðsla.
Svona kort sjást oft á Ebay og DX, þau eru öll drasl. Gerðu þér sjálfum greiða og keyptu eitthvað alvöru.

Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3760
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hvað þarf ég þegar ég kaupi Raspberry Pi?

Pósturaf Pandemic » Þri 27. Nóv 2012 16:17

Frekari upplýsingar um þessi kort.

http://fightflashfraud.wordpress.com/20 ... b-sd-card/

Elite Pro er Kingston var sem er verið að reyna að herma eftir.

Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3606
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Hvað þarf ég þegar ég kaupi Raspberry Pi?

Pósturaf dori » Þri 27. Nóv 2012 16:26

Ég veit reyndar ekki hvernig RaspPi notar minniskortin en stundum eru SD kort optimizeuð til að vera með flott seq write (class ratingið) sem virkar ótrúlega fínt t.d. á myndavélum á kostnað annarra þátta (lítil random read/write) sem eru kannski meira notaðir af stýrikerfum.

Eitthvað sem er gott að hafa í huga, class 6/8 getur verið alveg jafn gott eða betra í svona en class 10 kort sem er optimizað í drasl til að ná háu rating.

Edit: Man ekki hvar ég las um þetta. Held reyndar að það hafi verið um extremely stór kort í micro stærð (32GB fyrir nokkrum árum). Kannski er þetta ekki relevant. En class standardinn er skilgreining á seq write þannig að því ber að taka með fyrirvara og fínt að gera sín eigin hraðapróf á þeim hlutum sem skipta þig máli (boot tími etc.)

Gislinn
FanBoy
Póstar: 769
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 01:07
Reputation: 50
Staða: Ótengdur

Re: Hvað þarf ég þegar ég kaupi Raspberry Pi?

Pósturaf Gislinn » Þri 27. Nóv 2012 17:54

hannesstef skrifaði:
Gislinn skrifaði:
Yawnk skrifaði:http://www.hopkaup.is/32gb-sd-flash-minniskort Sá hérna að Hópkaup er að bjóða upp á 32GB SD kort á 3800 kall, gerist ekki betra :)

Myndi ekki kaupa class 4 SD kort til að setja í Raspberry Pi. Ég er með class 10 kort í minni RPi.

Hvurnig sé ég hvaða class SD kort maður er með?
Stendur ekkert á mínu, nema Panasonic kortið er með 4 með hring utan um, er það skilgreiningin ?

Ef það er 4 ínní hringnum þá er það class 4 kort.

dori skrifaði: fullt af texta

Satt, það er líka fullt af fólki búið að gera test á kortum með Raspberry pi og því hægt að sjá nákvæmlega hvaða kort, frá hvaða framleiðendum og í hvaða stærðum og klösum eru að koma best út fyrir RPi. :happy Ég fann svoleiðis þráð inná RPi foruminu þegar ég fékk RPi-ið mitt fyrst og varð mjög ánægður þegar ég sá að kortið sem ég átti var að koma svakalega vel út á RPi. \:D/

common sense is not so common.

Skjámynd

Klaufi
Stjórnandi
Póstar: 2350
Skráði sig: Mán 28. Des 2009 04:44
Reputation: 54
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Hvað þarf ég þegar ég kaupi Raspberry Pi?

Pósturaf Klaufi » Þri 27. Nóv 2012 22:12

Klemmi skrifaði:Skiptir gífurlegu máli að hafa vandað og hratt SD kort í þessum græjum sem og öðrum tækjum almennt.

Vil ekki vera með mikla sölumennsku en ég held að við séum ódýrastir í alvöru SD kortum, 5990kr.- fyrir 32GB Class 10 (allt að 20MB/s í read&write) með lífstíðarábyrgð :oops:

Get persónulega mælt með þessum kortum :happy

Mynd

Höfundur
capteinninn
Of mikill frítími
Póstar: 1725
Skráði sig: Sun 12. Sep 2004 16:02
Reputation: 20
Staða: Ótengdur

Re: Hvað þarf ég þegar ég kaupi Raspberry Pi?

Pósturaf capteinninn » Þri 27. Nóv 2012 22:25

djö, ég keypti raspberry í dag og ætlaði að setja þetta upp núna en þá virkar ekki card readerinn minn, þarf að redda fartölvu eða eitthvað til að setja upp xbian á sd korti

Skjámynd

Stuffz
ÜberAdmin
Póstar: 1335
Skráði sig: Lau 11. Mar 2006 18:39
Reputation: 100
Staðsetning: 109 Rvk
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hvað þarf ég þegar ég kaupi Raspberry Pi?

Pósturaf Stuffz » Þri 27. Nóv 2012 23:12

Yawnk skrifaði:http://www.hopkaup.is/32gb-sd-flash-minniskort Sá hérna að Hópkaup er að bjóða upp á 32GB SD kort á 3800 kall, gerist ekki betra :)

hmm þetta lítur út fyrir að vera voðalega cheap "Elite Pro" whatever aldrei heyrt það áður :D

keypti 3x 32gb á ebay fyrir nokkrum vikum og þau voru öll fake capacity sendi seljandanum línu og útbjó þessa mynd með http://tinypic.com/r/2gu9lxj/6 og hann endurgreiddi mér einsog skot

svo var ég ekkert að taka neina meiri sénsa og keypti bara authentic SanDisk 64Gb microSD kort á $64 og er mjög ánægður með þau :)

styður rasberry yfir 32gb kort?

Intel NUC Hades Canyon 8Tb NVME +8Tb SSD +80Tb HDD, Nvidia Shield Android TV, Xbox Series X, Xiaomi 4K Projector
CAMS: Insta360 X3, X4, FLOW, GO, ACE Pro, Skydio 2. Rafskjótar: E-20, KS-16S, KS-S22, EB Commander
Búnaður: Lazyrolling Armored Jacket, Alpha Motorsport-pants, TSG Pass Pro, Fox Proframe
187 KP Wrist Guards, Leatt Dual-Axis, Kinetic DL EUC Shoes, P65 BOBLBEE Backpack

Höfundur
capteinninn
Of mikill frítími
Póstar: 1725
Skráði sig: Sun 12. Sep 2004 16:02
Reputation: 20
Staða: Ótengdur

Re: Hvað þarf ég þegar ég kaupi Raspberry Pi?

Pósturaf capteinninn » Þri 27. Nóv 2012 23:55

Stuffz skrifaði:
Yawnk skrifaði:http://www.hopkaup.is/32gb-sd-flash-minniskort Sá hérna að Hópkaup er að bjóða upp á 32GB SD kort á 3800 kall, gerist ekki betra :)

hmm þetta lítur út fyrir að vera voðalega cheap "Elite Pro" whatever aldrei heyrt það áður :D

keypti 3x 32gb á ebay fyrir nokkrum vikum og þau voru öll fake capacity sendi seljandanum línu og útbjó þessa mynd með http://tinypic.com/r/2gu9lxj/6 og hann endurgreiddi mér einsog skot

svo var ég ekkert að taka neina meiri sénsa og keypti bara authentic SanDisk 64Gb microSD kort á $64 og er mjög ánægður með þau :)

styður rasberry yfir 32gb kort?

Hefur maður eitthvað að gera með 32gb kort fyrir raspberry pi, setur maður ekki bara eitthvað stýrikerfi á sd kubbinn og setur svo usb kubba með gögnum á í usb portið frekar?

Gislinn
FanBoy
Póstar: 769
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 01:07
Reputation: 50
Staða: Ótengdur

Re: Hvað þarf ég þegar ég kaupi Raspberry Pi?

Pósturaf Gislinn » Mið 28. Nóv 2012 08:56

hannesstef skrifaði:Hefur maður eitthvað að gera með 32gb kort fyrir raspberry pi, setur maður ekki bara eitthvað stýrikerfi á sd kubbinn og setur svo usb kubba með gögnum á í usb portið frekar?

Ég er bara með 4 GB í mínu RPi (samt er það alveg í það minnsta), var með 16GB þar á undan en ég er oftast bara með flakkara tengdann. :happy

common sense is not so common.

Höfundur
capteinninn
Of mikill frítími
Póstar: 1725
Skráði sig: Sun 12. Sep 2004 16:02
Reputation: 20
Staða: Ótengdur

Re: Hvað þarf ég þegar ég kaupi Raspberry Pi?

Pósturaf capteinninn » Mið 28. Nóv 2012 17:48

Er búinn að setja upp Xbian á Raspberry Pi og gat vel spilað video af flakkara, er mjög ánægður með þetta og þarf bara að tweak-a hitt og þetta.

Er með 2gb kort sem ég fékk lánað hjá félaga mínum, veit ekki hvort það sé class 4 eða 10 en það virkaði allavega fínt.
Spurning samt með eitt, ef ég stream-a úr annarri tölvu video sem er að senda út með Tversity myndi þá hin tölvan sjá um að encode-a videoið? Get ég látið frekar Raspberry-ið sjá um það með því að gera bara möppu sem ég share-a á networkið og læt Raspberry lesa af því?