Rauði Krossinn og spilakassar

Allt utan efnis

Höfundur
Tbot
/dev/null
Póstar: 1476
Skráði sig: Þri 01. Nóv 2011 13:42
Reputation: 304
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Rauði Krossinn og spilakassar

Pósturaf Tbot » Mið 05. Sep 2012 12:58

Sá grein í mogganum í dag, þar sem rætt var við framkvæmdastjóra Rauða Krossinn. Þar "grét" hann yfir minnkandi tekjum af spilakössum og vildi fá þóknun af allri netspilun landsmanna. Væri ekkert mál þar sem hún væri öll greidd með kortum.
Sagði að það hefði þurft að fækka fólki um 25% frá 2009 og nú þyrfti að endurnýja sjúkrabílana.

Því miður er þetta enn eitt dæmið um "svokölluð sjálfboðaliðasamtök". Vilja komast frítt á jötuna.

P.S. Þeir sem nota sjúkrabíla þurfa að borga fyrir notkun.

Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3835
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 157
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Rauði Krossinn og spilakassar

Pósturaf Daz » Mið 05. Sep 2012 13:00

Frekar absúrd, ef reksturinn er mikilvægur þá á hann að vera á framfæri ríkissins, ef ekki, þá verða þeir bara að redda sér sjálfir.

P.s. Heldur þú að gjaldið sem þú borgar fyrir sjúkrabílsferðina borgi allan kostnað af henni?

Skjámynd

bulldog
Besserwisser
Póstar: 3439
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 18:33
Reputation: 0
Staðsetning: 127.0.0.1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Rauði Krossinn og spilakassar

Pósturaf bulldog » Mið 05. Sep 2012 13:00

Það kostar 5800 kr að ferðast sjúkrabíl sama hvort það er 1 meter eða 100 km.

Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6372
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Reputation: 455
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: Rauði Krossinn og spilakassar

Pósturaf worghal » Mið 05. Sep 2012 13:02

og ég sem hélt að minkandi spilakassa notkun væri góður hlutur...
er það ekki eitt af mörgu sem þeir gera, hjálpa fólki að komast yfir spilafíkn?
og fara svo fram og nöldra um minkandi tekjur af þeim ](*,)

CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow

biturk
Kóngur
Póstar: 4431
Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 17:08
Reputation: 6
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Rauði Krossinn og spilakassar

Pósturaf biturk » Mið 05. Sep 2012 13:02

er ég einn um að finnast það rangt að græða á spilafíkn manna og setja það fram eins og það sé lang best að hafa sem flesta sjúklinga sem ráða ekki við sig? :uhh1

setja þetta á framfærslu ríkissins að hafa sjúkrabíla....sem við þurfum samt að borga fyrir ef við notum þá og leifa netspilun, það er fáránlegt að mega ekki veðja á hluti eða spila póker uppá peninga sem maður vann sér inn sjálfur á heiðarlegann hátt

ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!

Skjámynd

Benzmann
Bara að hanga
Póstar: 1568
Skráði sig: Þri 11. Nóv 2008 14:58
Reputation: 41
Staðsetning: Breiðholt
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Rauði Krossinn og spilakassar

Pósturaf Benzmann » Mið 05. Sep 2012 13:05

bulldog skrifaði:Það kostar 5800 kr að ferðast sjúkrabíl sama hvort það er 1 meter eða 100 km.

hvaða bull er það ?

ég var rukkaður um 16800kr fyrir nokkrum árum þegar ég lennti í snjóbrettaslysi, og ég fékk ekki kæruleysislyf :mad :mad :mad

CPU: Intel i9 13900K | MB: Asus ROG Strix Z790-E Gaming| GPU: Asus TUF RTX 3080 OC 10gb | Case: Corsair 7000D| PSU: Corsair RM850x 850W | RAM: Kingston Fury 5600mhz 64gb |Storage: 2x Samsung 980Pro 2Tb| OS: Windows 11 Enterprise E5 64bit

Skjámynd

tlord
Tölvutryllir
Póstar: 601
Skráði sig: Mið 30. Nóv 2011 17:28
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Rauði Krossinn og spilakassar

Pósturaf tlord » Mið 05. Sep 2012 13:42

en að setja upp alvöru casino sem gerir út á mökkríka, skattleggja hagnaðinn 75%, flestir spilararnir eru ferðamenn, sem eru líklegir til að nota mikinn pening annarsstaðar á íslandi. winwin. katsjingg!!!

Skjámynd

bulldog
Besserwisser
Póstar: 3439
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 18:33
Reputation: 0
Staðsetning: 127.0.0.1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Rauði Krossinn og spilakassar

Pósturaf bulldog » Mið 05. Sep 2012 13:42

benzmann : ertu öryrki ?

edit :

ef þú ert ekki sjúkratryggður þá :

4. Sjúkraflutningar.

Fyrir sjúkraflutninga skal sjúklingur greiða gjald til rekstraraðila sjúkraflutninga 35.000 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund auk gjalds til eiganda sjúkrabifreiða 2.000 kr. á hvern ekinn kílómetra þó að lágmarki 15 kílómetra.

Með umsömdu heildarverði í b-lið 2. tölul. og b- og c-liðum 3. tölul. 1. mgr. er átt við það gjald sem samið hefur verið um í samningum Sjúkratrygginga Íslands við sérgreinalækna skv. IV. kafla laga um sjúkratryggingar eða verð sem tilgreint er í fylgiskjali með reglugerð um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu. Með ákveðnu heildarverði í b-lið 2. tölul. og b- og c-liðum 3. tölul. 1. mgr. er átt gjald sem ýmist fer eftir samningum, sbr. 1. málsl., eða gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands skv. 38. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, séu samningar ekki fyrir hendi, eða verð sem tilgreint er í fylgiskjali með reglugerð um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu.

Greiðslur samkvæmt þessari grein veita ekki rétt til afsláttarskírteinis hjá Sjúkratryggingum Íslands.
Síðast breytt af bulldog á Mið 05. Sep 2012 13:52, breytt samtals 1 sinni.

Skjámynd

Haxdal
Tölvutryllir
Póstar: 640
Skráði sig: Lau 14. Apr 2007 18:58
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Rauði Krossinn og spilakassar

Pósturaf Haxdal » Mið 05. Sep 2012 13:45

Allir sjúkrabílar á Íslandi, alls 77 á 40 stöðum á landinu, tilheyra Rauða krossinum sem kaupir þá, útbýr tækjum og rekur.

Ekki vissi ég þetta, ég hélt að Sjúkrabílarnir tilheyrðu Heilbrigðiskerfinu en ekki einkaframtaki.

Og það er voðalega stupid að fara skattleggja netspilun til að fjármagna sjúkraflutninga .. miklu meira vit væri í að ríkið innlimaði rekstur sjúkrabílanna og tryggði rekstur og gang þeirra, þá gæti Rauði Krossinn notað restina af sínum tekjum í að starfrækja restina af sinni vinnu. Ég vil frekar að mínir tekjuskattar fari í rekstur sjúkrabíla en að skattleggja ótengda neyslu/notkun í þeim tilgangi.

Atvinnunörd - Part of the 2%
> FX8350 | Gigabyte 990FXA-UD3 | Nvidia GTX 760 | 8GB Somethingsomething | Corsair Graphite 600T <

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16491
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2105
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Rauði Krossinn og spilakassar

Pósturaf GuðjónR » Mið 05. Sep 2012 13:45

Er ekki eins stærsta tekjulind SSÁ fjárhættuspil?
Á sama tíma eru spilafíklar í meðferð hjá þeim :face

Skjámynd

Benzmann
Bara að hanga
Póstar: 1568
Skráði sig: Þri 11. Nóv 2008 14:58
Reputation: 41
Staðsetning: Breiðholt
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Rauði Krossinn og spilakassar

Pósturaf Benzmann » Mið 05. Sep 2012 13:46

bulldog skrifaði:benzmann : ertu öryrki ?

nei ég er ekki öryrki

CPU: Intel i9 13900K | MB: Asus ROG Strix Z790-E Gaming| GPU: Asus TUF RTX 3080 OC 10gb | Case: Corsair 7000D| PSU: Corsair RM850x 850W | RAM: Kingston Fury 5600mhz 64gb |Storage: 2x Samsung 980Pro 2Tb| OS: Windows 11 Enterprise E5 64bit

Höfundur
Tbot
/dev/null
Póstar: 1476
Skráði sig: Þri 01. Nóv 2011 13:42
Reputation: 304
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Rauði Krossinn og spilakassar

Pósturaf Tbot » Mið 05. Sep 2012 13:49

worghal skrifaði:og ég sem hélt að minkandi spilakassa notkun væri góður hlutur...
er það ekki eitt af mörgu sem þeir gera, hjálpa fólki að komast yfir spilafíkn?
og fara svo fram og nöldra um minkandi tekjur af þeim ](*,)

Það er SÁÁ sem er með spilafíknina. Þeir fá líka hlutfall af innkomu spilakassanna.
Helv flott, gera fólk að spilafíklum til þess síðan að lækna fólkið af henni.
SÁÁ er enn eitt peningadæmið.

Skjámynd

mind
1+1=10
Póstar: 1109
Skráði sig: Fim 12. Des 2002 09:21
Reputation: 29
Staða: Ótengdur

Re: Rauði Krossinn og spilakassar

Pósturaf mind » Mið 05. Sep 2012 13:51

GuðjónR skrifaði:Er ekki eins stærsta tekjulind SSÁ fjárhættuspil?
Á sama tíma eru spilafíklar í meðferð hjá þeim :face

Hvaða hvaða lærðirðu ekkert í skóla, tilgangurinn helgar meðalið, það vita allir það.

:)

Skjámynd

tlord
Tölvutryllir
Póstar: 601
Skráði sig: Mið 30. Nóv 2011 17:28
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Rauði Krossinn og spilakassar

Pósturaf tlord » Mið 05. Sep 2012 13:51

Haxdal skrifaði:
Allir sjúkrabílar á Íslandi, alls 77 á 40 stöðum á landinu, tilheyra Rauða krossinum sem kaupir þá, útbýr tækjum og rekur.

Ekki vissi ég þetta, ég hélt að Sjúkrabílarnir tilheyrðu Heilbrigðiskerfinu en ekki einkaframtaki.

Og það er voðalega stupid að fara skattleggja netspilun til að fjármagna sjúkraflutninga .. miklu meira vit væri í að ríkið innlimaði rekstur sjúkrabílanna og tryggði rekstur og gang þeirra, þá gæti Rauði Krossinn notað restina af sínum tekjum í að starfrækja restina af sinni vinnu. Ég vil frekar að mínir tekjuskattar fari í rekstur sjúkrabíla en að skattleggja ótengda neyslu/notkun í þeim tilgangi.

vandamálið er að Ríkið vantar 'vit' til að stunda rekstur. Svona rekstur myndi fyllast af 'tengdum' sníkjudýrum, ef hann væri undir beinu valdi atvinnustjórnmálamanns. RK er mun skárri kostur.

Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3835
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 157
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Rauði Krossinn og spilakassar

Pósturaf Daz » Mið 05. Sep 2012 13:55

tlord skrifaði:vandamálið er að Ríkið vantar 'vit' til að stunda rekstur. Svona rekstur myndi fyllast af 'tengdum' sníkjudýrum, ef hann væri undir beinu valdi atvinnustjórnmálamanns. RK er mun skárri kostur.

Hefurðu eitthvað fyrir þér í því? Heldurðu að það sé eitthvað minna af sníkjum (eða bara rýrnun á fjármunum ef við horfum á þetta svolítið faglega) í einkarekstri eða svona sjálfboðaliðarekstri?

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16491
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2105
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Rauði Krossinn og spilakassar

Pósturaf GuðjónR » Mið 05. Sep 2012 13:59

mind skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Er ekki eins stærsta tekjulind SSÁ fjárhættuspil?
Á sama tíma eru spilafíklar í meðferð hjá þeim :face

Hvaða hvaða lærðirðu ekkert í skóla, tilgangurinn helgar meðalið, það vita allir það.

:)

hehehe orð að sönnu :)

Páll
/dev/null
Póstar: 1426
Skráði sig: Mán 28. Apr 2008 17:32
Reputation: 0
Staðsetning: Undir töfra regnboganum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Rauði Krossinn og spilakassar

Pósturaf Páll » Mið 05. Sep 2012 14:05

Hvað ætli þeir rukki mann fyrir eitt stk sjúkraflug með þyrlu :crazy

Skjámynd

tlord
Tölvutryllir
Póstar: 601
Skráði sig: Mið 30. Nóv 2011 17:28
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Rauði Krossinn og spilakassar

Pósturaf tlord » Mið 05. Sep 2012 14:06

Daz skrifaði:
tlord skrifaði:vandamálið er að Ríkið vantar 'vit' til að stunda rekstur. Svona rekstur myndi fyllast af 'tengdum' sníkjudýrum, ef hann væri undir beinu valdi atvinnustjórnmálamanns. RK er mun skárri kostur.

Hefurðu eitthvað fyrir þér í því? Heldurðu að það sé eitthvað minna af sníkjum (eða bara rýrnun á fjármunum ef við horfum á þetta svolítið faglega) í einkarekstri eða svona sjálfboðaliðarekstri?

ég hef mjög sterka tilfinningu fyrir að þetta sé rétt. ég hef unnið bæði hjá ríki og einkaaðilum. Á vini og kunningja sem vinna hjá ríki eða einka. Auðvitað er spilling og rugl til staðar í einkafyrirtækjum (sérstaklega þeim stærri) en virðist vera mun svæsnara hjá ríki eða sveitafélögum.

edit: hef td horft upp á ríkisstarfsmann í stjórnunnarstöðu búa til verkefni í stórum stíl fyrir tengdason sinn sem vann sem verktaki.
Síðast breytt af tlord á Mið 05. Sep 2012 14:15, breytt samtals 1 sinni.

Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3835
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 157
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Rauði Krossinn og spilakassar

Pósturaf Daz » Mið 05. Sep 2012 14:13

tlord skrifaði:
Daz skrifaði:
tlord skrifaði:vandamálið er að Ríkið vantar 'vit' til að stunda rekstur. Svona rekstur myndi fyllast af 'tengdum' sníkjudýrum, ef hann væri undir beinu valdi atvinnustjórnmálamanns. RK er mun skárri kostur.

Hefurðu eitthvað fyrir þér í því? Heldurðu að það sé eitthvað minna af sníkjum (eða bara rýrnun á fjármunum ef við horfum á þetta svolítið faglega) í einkarekstri eða svona sjálfboðaliðarekstri?

ég hef mjög sterka tilfinningu fyrir að þetta sé rétt. ég hef unnið bæði hjá ríki og einkaaðilum. Á vini og kunningja sem vinna hjá ríki eða einka. Auðvitað er spilling og rugl til staðar í einkafyrirtækjum (sérstaklega þeim stærri) en virðist vera mun svæsnara hjá ríki eða sveitafélögum.

Persónuleg tilfinning er einmitt aldrei góð rök þegar maður vill taka stóra ákvörðun, þó hún geti alveg verið sönn (það er bara engin trygging fyrir því). Svo eru líka margir fletir á svona einka vs ríkis rekstri, t.d. var nýlega verið að ræða hér um (eða kvarta yfir) þjónustu og skorti á honum hjá Gagnaveitunni, sem einhverjir vildu tengja við að þetta væri jú einkafyrirtæki sem hugsaði fyrst um gróðann.

Skjámynd

tlord
Tölvutryllir
Póstar: 601
Skráði sig: Mið 30. Nóv 2011 17:28
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Rauði Krossinn og spilakassar

Pósturaf tlord » Mið 05. Sep 2012 14:27

svona hlutir (rekstur, stjórnun pólitik osfv) eru ekki nein nákvæm vísindi, snýst mikið um reynslu, innsæi, mannlegan þátt, líkindi og skynsemi -

sumir telja að ríkið geti verið einskonar mjúkur faðmur sem tryggir að allt sé gott. það eru ca 10 - 20 % , hinir vita betur

hver á Gagnaveituna?

Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3835
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 157
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Rauði Krossinn og spilakassar

Pósturaf Daz » Mið 05. Sep 2012 14:49

tlord skrifaði:
svona hlutir (rekstur, stjórnun pólitik osfv) eru ekki nein nákvæm vísindi, snýst mikið um reynslu, innsæi, mannlegan þátt, líkindi og skynsemi -

sumir telja að ríkið geti verið einskonar mjúkur faðmur sem tryggir að allt sé gott. það eru ca 10 - 20 % , hinir vita betur

hver á Gagnaveituna?

Mikið rétt, þessvegna vildi ég vita hvort þú hefðir eitthvað meira fyrir þér í þessu en bara persónulega tilfinningu. Það á augljóslega að einkavæða allt.

Gagnaveitan er hlutafélag í meirihluta eigu OR eftir því sem ég best veit. Einkafyrirtæki.

Skjámynd

mind
1+1=10
Póstar: 1109
Skráði sig: Fim 12. Des 2002 09:21
Reputation: 29
Staða: Ótengdur

Re: Rauði Krossinn og spilakassar

Pósturaf mind » Mið 05. Sep 2012 15:00

Daz skrifaði:Það á augljóslega að einkavæða allt.

Ég vona innilega þú haldir þetta ekki í alvöru.

Skjámynd

Haxdal
Tölvutryllir
Póstar: 640
Skráði sig: Lau 14. Apr 2007 18:58
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Rauði Krossinn og spilakassar

Pósturaf Haxdal » Mið 05. Sep 2012 15:06

tlord skrifaði:
Haxdal skrifaði:
Allir sjúkrabílar á Íslandi, alls 77 á 40 stöðum á landinu, tilheyra Rauða krossinum sem kaupir þá, útbýr tækjum og rekur.

Ekki vissi ég þetta, ég hélt að Sjúkrabílarnir tilheyrðu Heilbrigðiskerfinu en ekki einkaframtaki.

Og það er voðalega stupid að fara skattleggja netspilun til að fjármagna sjúkraflutninga .. miklu meira vit væri í að ríkið innlimaði rekstur sjúkrabílanna og tryggði rekstur og gang þeirra, þá gæti Rauði Krossinn notað restina af sínum tekjum í að starfrækja restina af sinni vinnu. Ég vil frekar að mínir tekjuskattar fari í rekstur sjúkrabíla en að skattleggja ótengda neyslu/notkun í þeim tilgangi.

vandamálið er að Ríkið vantar 'vit' til að stunda rekstur. Svona rekstur myndi fyllast af 'tengdum' sníkjudýrum, ef hann væri undir beinu valdi atvinnustjórnmálamanns. RK er mun skárri kostur.

Ég er nú venjulega ekki mikið fyrir ríkisrekstur, en mér finnst að vissir hlutir ættu að tilheyra ríkinu og vera fjármagnaðir í gegnum skatta.. Menntakerfið og heilbrigðiskerfið eru þar inni.

Atvinnunörd - Part of the 2%
> FX8350 | Gigabyte 990FXA-UD3 | Nvidia GTX 760 | 8GB Somethingsomething | Corsair Graphite 600T <

Skjámynd

tlord
Tölvutryllir
Póstar: 601
Skráði sig: Mið 30. Nóv 2011 17:28
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Rauði Krossinn og spilakassar

Pósturaf tlord » Mið 05. Sep 2012 15:07

Daz skrifaði:
tlord skrifaði:
svona hlutir (rekstur, stjórnun pólitik osfv) eru ekki nein nákvæm vísindi, snýst mikið um reynslu, innsæi, mannlegan þátt, líkindi og skynsemi -

sumir telja að ríkið geti verið einskonar mjúkur faðmur sem tryggir að allt sé gott. það eru ca 10 - 20 % , hinir vita betur

hver á Gagnaveituna?

Mikið rétt, þessvegna vildi ég vita hvort þú hefðir eitthvað meira fyrir þér í þessu en bara persónulega tilfinningu. Það á augljóslega að einkavæða allt.

Gagnaveitan er hlutafélag í meirihluta eigu OR eftir því sem ég best veit. Einkafyrirtæki.

nei, það á ekkert að einkavæða allt. það er hinsvegar mikilvægt halda meðvitund um ókostina við ríkis/sveitafélagarekstur.

Gagnaveitunni hefur verið stjórnað (beint eða óbeint) af pólitíkusum eða pólitískum sleikipinnum, þótt hún sé skráð sem hf eða ehf. Hún ber þess líka glögg merki...

Skjámynd

bulldog
Besserwisser
Póstar: 3439
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 18:33
Reputation: 0
Staðsetning: 127.0.0.1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Rauði Krossinn og spilakassar

Pósturaf bulldog » Mið 05. Sep 2012 15:26

Páll skrifaði:Hvað ætli þeir rukki mann fyrir eitt stk sjúkraflug með þyrlu :crazy

http://www.sjukra.is/heilbrigdisthjonusta/ferdakostnadur/sjukraflug/