Hvað er hægt að skoða í Edinborg?

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
Yawnk
Vaktari
Póstar: 2038
Skráði sig: Mán 26. Mar 2012 21:26
Reputation: 11
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Hvað er hægt að skoða í Edinborg?

Pósturaf Yawnk » Þri 10. Júl 2012 23:08

Titill segir sig sjálfur.. Hefur einhver komið hingað sem gæti sagt mér hvað væri skemmtilegt að skoða :) allar hugmyndir vel þegnar..



Skjámynd

Klaufi
Stjórnandi
Póstar: 2350
Skráði sig: Mán 28. Des 2009 04:44
Reputation: 54
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er hægt að skoða í Edinborg?

Pósturaf Klaufi » Þri 10. Júl 2012 23:09

Ég man bara hvernig innrétting á einum barnum lítur út..


Mynd

Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 474
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er hægt að skoða í Edinborg?

Pósturaf urban » Þri 10. Júl 2012 23:14

Klaufi skrifaði:Ég man bara hvernig innrétting á einum barnum lítur út..


þú mannst það þó :D


Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !


skoffin
Fiktari
Póstar: 74
Skráði sig: Mán 31. Jan 2011 20:21
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er hægt að skoða í Edinborg?

Pósturaf skoffin » Þri 10. Júl 2012 23:38




Skjámynd

Tiger
Besserwisser
Póstar: 3847
Skráði sig: Sun 16. Mar 2003 13:22
Reputation: 265
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er hægt að skoða í Edinborg?

Pósturaf Tiger » Þri 10. Júl 2012 23:42

Óteljandi golfvelli.....eina sem ég myndi gera þarna.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16491
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2105
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er hægt að skoða í Edinborg?

Pósturaf GuðjónR » Þri 10. Júl 2012 23:45

Pöbbana og smakka ölið ...
Kíkja á þessa One o’clock Gun og skoða kastalana.
Fá sér meira öl ...



Skjámynd

Höfundur
Yawnk
Vaktari
Póstar: 2038
Skráði sig: Mán 26. Mar 2012 21:26
Reputation: 11
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er hægt að skoða í Edinborg?

Pósturaf Yawnk » Þri 10. Júl 2012 23:57

Haha, það er ekki skemmtilegt að spila golf í suddaveðri og rigningu, heimamenn segja að þetta sé versta sumar síðan 1840, rignt allt sumarið. Besti tíminn til að heimsækja :thumbsd

Úff, maður hefði nú haldið að það væri einhvað ódýrara að versla hér heldur en heima, fór í PCWorld hérna í Edinborg í dag, sá þar verðlagninguna á þessum tölvuhlutum, fartölvum, símum, IPad, þetta er alveg eins og heima bara! x.x

Kastalinn verður skoðaður, takk fyrir hugmyndina.
Maður smakkar nú ekki ölið eins og margir ykkar vilja, því ekki hef ég aldur til þess ;)

* Gleymdi að nefna fatabúðir eins og H&M eða Urban, sumt af þessu fer ekki undir 5 þús kallinn.




DabbiGj
Gúrú
Póstar: 529
Skráði sig: Mið 10. Mar 2010 16:11
Reputation: 43
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er hægt að skoða í Edinborg?

Pósturaf DabbiGj » Mið 11. Júl 2012 07:39

Taktu þér dag í miðbænum, skoðaðu kastalann og röltu svo niður aðalgötuna, langflottasti hlutinn af kastalanum er minnisvarðinn um föllnu skosku hermennina og það er bannað að taka myndir þar inni og ágætt að virða það. Það er svo hellingur að skoða á Royal mile og svo Scott minnismerkið og svo er þetta alveg snilld http://www.scotchwhiskyexperience.co.uk/




blitz
Of mikill frítími
Póstar: 1771
Skráði sig: Þri 22. Jan 2008 13:36
Reputation: 140
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er hægt að skoða í Edinborg?

Pósturaf blitz » Mið 11. Júl 2012 08:15

Bjó þarna í ár - ef þú ætlar að versla þá eru það helst föt, raftæki eru ekki ódýr á "the high street"

Myndi rölta í kringum prince's street og öll bakhverfin þar, fara upp og niður royal mile, fara upp á arthurs seat, reyna að komast að blackford hill, skoða háskólasvæðið, grilla á Meadows, fara á pubbi (mjög góður þýskur staður hjá Meadows, man ekki nafnið :$, fá sér burger á Wannaburger ofl. ofl.

Getur rölt upp/niður Nicolson Street, nokkrar skemmtilegar búðir þar ásamt því að hún endar á Princes street og þar er ágætis ódýrt-mall.

Myndi jafnvel kíkja á National Museum of Scotland, ef ég man rétt er ókeypis inn (Kindin Dollý er þar :) )

Ef þú ætlar að versla föt þá myndi ég taka lest/rútu til Glasgow og eyða degi þar, mikið af verslunum og "galleríum" á sama svæði.

btw, Edinborg er fallegasta borg í heimi imo


PS4

Skjámynd

Höfundur
Yawnk
Vaktari
Póstar: 2038
Skráði sig: Mán 26. Mar 2012 21:26
Reputation: 11
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er hægt að skoða í Edinborg?

Pósturaf Yawnk » Mið 11. Júl 2012 21:42

blitz skrifaði:Bjó þarna í ár - ef þú ætlar að versla þá eru það helst föt, raftæki eru ekki ódýr á "the high street"

Myndi rölta í kringum prince's street og öll bakhverfin þar, fara upp og niður royal mile, fara upp á arthurs seat, reyna að komast að blackford hill, skoða háskólasvæðið, grilla á Meadows, fara á pubbi (mjög góður þýskur staður hjá Meadows, man ekki nafnið :$, fá sér burger á Wannaburger ofl. ofl.

Getur rölt upp/niður Nicolson Street, nokkrar skemmtilegar búðir þar ásamt því að hún endar á Princes street og þar er ágætis ódýrt-mall.

Myndi jafnvel kíkja á National Museum of Scotland, ef ég man rétt er ókeypis inn (Kindin Dollý er þar :) )

Ef þú ætlar að versla föt þá myndi ég taka lest/rútu til Glasgow og eyða degi þar, mikið af verslunum og "galleríum" á sama svæði.

btw, Edinborg er fallegasta borg í heimi imo


Gekk The Royal Mile í dag, ekkert nema rándýrar gjafavörubúðir! ;)
Heheh, já National Museum of Scotland var æðislega flott, gaman að sjá risaeðlurnar! :baby

Verð að vera sammála þér með síðustu línuna, það er rétt :)

*Og ekki gætiru bent mér á nokkrar ódýrar búðir/götur s.s föt eða raftæki, því ég veit nefnilega ekkert hvar neitt er fyrir utan Princes St :)




blitz
Of mikill frítími
Póstar: 1771
Skráði sig: Þri 22. Jan 2008 13:36
Reputation: 140
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er hægt að skoða í Edinborg?

Pósturaf blitz » Mið 11. Júl 2012 21:57

Færð ekki "ódýr" raftæki þarna, yrðir að panta þau af netinu.

Richer Sounds er með audio/video dót, á ágætis verði:
https://maps.google.com/maps?q=Richer+S ... 0&t=m&z=16

Á sömu götu eru ýmsar verslanir, en ekkert ódýrt þannig lagað séð.. Myndi frekar kíkja í St. James:
https://maps.google.com/maps?q=St+James ... m&t=m&z=16


PS4


littli-Jake
Skrúfari
Póstar: 2397
Skráði sig: Sun 06. Sep 2009 18:19
Reputation: 153
Staðsetning: Árbærinn
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er hægt að skoða í Edinborg?

Pósturaf littli-Jake » Mið 11. Júl 2012 22:59

Skilst að Edinborgarkastali sé glæsilegur.


i5 3570K - Gigabyte z77x - GTX 1070 OC - Crucial M4 128 GB - 16GB DDR3 - Toughpower XT 675W - BenQ GW2450HM - Antec-P180