Rafmagnsvespur

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
Yawnk
Vaktari
Póstar: 2038
Skráði sig: Mán 26. Mar 2012 21:26
Reputation: 11
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Rafmagnsvespur

Pósturaf Yawnk » Þri 03. Júl 2012 00:06

Sælir, er í hugleiðingum með rafmagnsvespur, á einhver svoleiðis hérna á Vaktinni?
Er þetta bara drasl sem maður ætti ekki að spandera í?
Væri flott ef einhver gæti sagt mér frá kílómetra fjölda sem þetta drífur á hleðslunni miðað við eðlilegan akstur, treysti ekki þessu sem stendur á Suzuki heimasíðu ;) Kemst þetta hraðar heldur en 25km, ef maður fer niður brekku, bremsar þetta sjálft ef það fer yfir 25?

Heyrði líka að maður þyrfti próf á þetta bráðum + tryggingar, þá verður þetta ábyggilega rándýrt eins og skellinöðrupróf.. 50.000+

+ Hvar er þetta ódýrast? Sá þetta í Byko á 125 þúsund en hjá Suzuki kostar það 150 þús, er einhver munur á þessum tveimur? fyrir utan tegund.
http://www.suzuki.is/2010/ELGO/ELGO.pdf
https://www.byko.is/arstidavara/reidhjo ... /vnr/21963




Aimar
/dev/null
Póstar: 1415
Skráði sig: Mið 01. Sep 2004 09:43
Reputation: 33
Staðsetning: 201
Staða: Ótengdur

Re: Rafmagnsvespur

Pósturaf Aimar » Þri 03. Júl 2012 00:10

getur náð 50-60km á rafmagnshjóli.

það er eitthvað í setningu að láta vespurnar vera tryggðar.... það þýðir gjöld á hverju ári.


GPU: AMD Radeon™ RX 7900 XT - GA z590 gaming X - Intel Core i7 11700k - Corsair Rm750x - Noctua-U12S - iCUE 465X RGB Mid-Tower- AORUS RGB Memory DDR4 16GB x4 3733MHz - Samsung 970 EVO 1TB M.2 2280 SSD - Win 10 Pro 64bit - ASUS ROG Swift Curved PG348Q @ 100mhz

Skjámynd

Höfundur
Yawnk
Vaktari
Póstar: 2038
Skráði sig: Mán 26. Mar 2012 21:26
Reputation: 11
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Rafmagnsvespur

Pósturaf Yawnk » Þri 03. Júl 2012 00:21

Aimar skrifaði:getur náð 50-60km á rafmagnshjóli.

það er eitthvað í setningu að láta vespurnar vera tryggðar.... það þýðir gjöld á hverju ári.


Ég vissi það, ég var að tala um ökuprófið.

http://rafhjol.is/t%C3%A6knin/
Löglegur hámarkshraði á farartækjum sem þessum eru 25 km/klst annars þarf að skrá og tryggja farartækið

50-60km?



Skjámynd

jonbk
Fiktari
Póstar: 91
Skráði sig: Fös 30. Sep 2011 21:52
Reputation: 0
Staðsetning: ég er týndur
Staða: Ótengdur

Re: Rafmagnsvespur

Pósturaf jonbk » Þri 03. Júl 2012 07:19

Yawnk skrifaði:Sælir, er í hugleiðingum með rafmagnsvespur, á einhver svoleiðis hérna á Vaktinni?
Er þetta bara drasl sem maður ætti ekki að spandera í?
Væri flott ef einhver gæti sagt mér frá kílómetra fjölda sem þetta drífur á hleðslunni miðað við eðlilegan akstur, treysti ekki þessu sem stendur á Suzuki heimasíðu ;) Kemst þetta hraðar heldur en 25km, ef maður fer niður brekku, bremsar þetta sjálft ef það fer yfir 25?

Heyrði líka að maður þyrfti próf á þetta bráðum + tryggingar, þá verður þetta ábyggilega rándýrt eins og skellinöðrupróf.. 50.000+

+ Hvar er þetta ódýrast? Sá þetta í Byko á 125 þúsund en hjá Suzuki kostar það 150 þús, er einhver munur á þessum tveimur? fyrir utan tegund.
http://www.suzuki.is/2010/ELGO/ELGO.pdf
https://www.byko.is/arstidavara/reidhjo ... /vnr/21963


nei, þetta bremsar ekki ef þú ferð niður brekku, annars veit ég ekkert mikið um þetta



Skjámynd

Kobbmeister
Tölvutryllir
Póstar: 659
Skráði sig: Sun 24. Feb 2008 00:02
Reputation: 0
Staðsetning: Í himnaríki kobbans
Staða: Ótengdur

Re: Rafmagnsvespur

Pósturaf Kobbmeister » Þri 03. Júl 2012 08:17

Fáðu þér frekar rafmagnsmótor á reiðhjól heldur en rafmagnsvespu.
Kemst mikið hraðar og það er minna af fólki sem langar að henda þér niður af hjólinu á ferð ;)

Bróðir minn á hjól með svona rafmagns mótor og ég hef nokkrum sinnum fengið það lánað til að fara í vinnuna og ég er jafnt fljótur á því og að keyra.


Coolermaster HAFX + Nexus RX-8500 850W , EVGA P67 FTW, I7-2600K@4.6GHz HT on, Gigabyte AMD RADEON HD7950OC 3GB, Gskil sniper 8GB, 2xMushkin Chronos 120GB SSD, 500GB,1TB,Windows 7 64-bita
Starfsmaður @ Tölvutek

Skjámynd

Bassi6
Ofur-Nörd
Póstar: 261
Skráði sig: Sun 16. Jan 2005 17:36
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Rafmagnsvespur

Pósturaf Bassi6 » Þri 03. Júl 2012 08:33

Ekki spurning fáðu þér rafmagnshjól frekar því ef það bilar hjólarðu bara heim annars þarftu að teyma eða sækja á bíl.


Gates Free

Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3120
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 454
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Rafmagnsvespur

Pósturaf hagur » Þri 03. Júl 2012 08:59

Já, myndi frekar fá mér rafmagnskitt á reiðhjólið mitt. Ég veit ekki, en mér finnst líka eitthvað einstaklega hallærislegt við þessar litlu rafmagnsvespur. Sjá fólk silast áfram á þessu á gangstéttum.

Ef þú átt ágætis reiðhjól, þá kostar svona rafmagnskitt á það ekki mikið meira en svona rafmagnsvespa.



Skjámynd

Höfundur
Yawnk
Vaktari
Póstar: 2038
Skráði sig: Mán 26. Mar 2012 21:26
Reputation: 11
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Rafmagnsvespur

Pósturaf Yawnk » Þri 03. Júl 2012 12:54

Takk fyrir hugmyndirnar, en ég á ekki hjól sem passar fyrir rafmagnskitt, og þá væri þetta yfir 200 þús ef ég ætlaði að fara þá leið.
Á enginn á Vaktinni rafmagnsvespu sem gæti sagt mér um þetta, eða er það of hallærislegt? ;p



Skjámynd

coldone
has spoken...
Póstar: 170
Skráði sig: Fös 12. Okt 2007 19:15
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Rafmagnsvespur

Pósturaf coldone » Þri 03. Júl 2012 14:29

Suzuki.is er með tilbúið rafmagnsreiðhjól sem er miklu flottara en þessi kitt sem er verið að setja á reiðhjól hérna heima.
Verðið er líka svipað, en þó er kittið frá rafhjól.is mun kraftmeiri. En þú ert að fá reiðhjól í kaupbæti frá Suzuki.

http://www.suzuki.is/indexMC.html (klikkar síðan á El-GO)

http://rafhjol.is/



Skjámynd

Höfundur
Yawnk
Vaktari
Póstar: 2038
Skráði sig: Mán 26. Mar 2012 21:26
Reputation: 11
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Rafmagnsvespur

Pósturaf Yawnk » Þri 03. Júl 2012 14:56

coldone skrifaði:Suzuki.is er með tilbúið rafmagnsreiðhjól sem er miklu flottara en þessi kitt sem er verið að setja á reiðhjól hérna heima.
Verðið er líka svipað, en þó er kittið frá rafhjól.is mun kraftmeiri. En þú ert að fá reiðhjól í kaupbæti frá Suzuki.

http://www.suzuki.is/indexMC.html (klikkar síðan á El-GO)

http://rafhjol.is/


:-k Takk fyrir ábendinguna.
Það er rétt hjá þér að kittið hjá Rafhjól er mun kraftmeira, það er líka skemmtilegra að nota.. s.s þá er inngjöf í handfangi eða takka, en hjá Suzuki þá er það í pedulum.. ''Pedal assisted throttle'' þá hjálpar það manni að hjóla, Where's the fun in that? ;p




Bjosep
Geek
Póstar: 880
Skráði sig: Þri 16. Maí 2006 17:48
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Rafmagnsvespur

Pósturaf Bjosep » Þri 03. Júl 2012 15:00

coldone skrifaði:Suzuki.is er með tilbúið rafmagnsreiðhjól sem er miklu flottara en þessi kitt sem er verið að setja á reiðhjól hérna heima.
Verðið er líka svipað, en þó er kittið frá rafhjól.is mun kraftmeiri. En þú ert að fá reiðhjól í kaupbæti frá Suzuki.

http://www.suzuki.is/indexMC.html (klikkar síðan á El-GO)

http://rafhjol.is/


Hefurðu reynslu af þessum hjólum frá suzuki?

Ég get allavega ekki séð (og ímyndað) mér annað en að þetta sé ruslreiðhjól miðað við það litla sem verður séð af síðunni.



Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3120
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 454
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Rafmagnsvespur

Pósturaf hagur » Þri 03. Júl 2012 20:28

Sammála því.

Mikið betra að vera með almennilegt hjól með svona rafmagnskitti á. Þarf ekki að vera ljótt, stærsti parturinn er auðvitað rafhlaðan og það má fá smekklega hlíf til að setja yfir hana.

Ég hef prófað svona kitt frá rafhjol.is og þetta kemur skemmtilega á óvart. Rífur alveg ágætlega í og kemur manni vel áfram. Það er 500w á móti 250w í þessu "tilbúna" rafhjóli frá Suzuki umboðinu. Það munar um minna.



Skjámynd

FriðrikH
Geek
Póstar: 895
Skráði sig: Lau 22. Sep 2007 20:25
Reputation: 28
Staða: Ótengdur

Re: Rafmagnsvespur

Pósturaf FriðrikH » Þri 03. Júl 2012 21:05

1. rafmagnsvespur eru óheyrilega hallærislegar
2. Það liggur fyrir frumvarp að nýjum umferðalögum þar sem gert er ráð fyrir að það þurfi að skrá og tryggja þessar rafmagnsvespur með tilheyrandi kostnaði (og taka próf).
3. Þær fara ógeðslega hægt (flýg fram úr þessu dóti á hjóli)

Notaðu frekar tækifærið og bættu heilsuna með því að fá þér bara gott hjól og stíga það áfram.



Skjámynd

Höfundur
Yawnk
Vaktari
Póstar: 2038
Skráði sig: Mán 26. Mar 2012 21:26
Reputation: 11
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Rafmagnsvespur

Pósturaf Yawnk » Þri 03. Júl 2012 21:21

FriðrikH skrifaði:1. rafmagnsvespur eru óheyrilega hallærislegar
2. Það liggur fyrir frumvarp að nýjum umferðalögum þar sem gert er ráð fyrir að það þurfi að skrá og tryggja þessar rafmagnsvespur með tilheyrandi kostnaði (og taka próf).
3. Þær fara ógeðslega hægt (flýg fram úr þessu dóti á hjóli)

Notaðu frekar tækifærið og bættu heilsuna með því að fá þér bara gott hjól og stíga það áfram.


Heheh ;P
1. Skiptir mig engu máli hvort þær séu hallærislegar eða ei, þetta er bara til að komast á milli staða.
2. http://mbl.is/frettir/innlent/2012/03/1 ... t_bifhjol/ Lestu þetta, og skoðaðu neðstu setninguna ''Ákvæðum um rafmagnshjól verður einnig breytt.'' Hvað ætli þetta þýði? að rafmagnshjól verði líka flokkuð sem létt bifhjól?
3. 25km er nú ekkert ógeðslega hægt! ;)

Ég á ágætis hjól núþegar, en það virðist bara vera of lítið.. 24'' fjallahjól
Fór með það í Rafhjól og þeir sögðu að það væri of lítið, en það væri mögulega hægt að STYTTA batteríið með tilheyrandi kostnaði, svo er þetta margfalt dýrari en vespan, Rafhjól sögðu 190.000, vespan er undir 150.000, og ég er ekki búinn til úr peningum á þessum aldri endilega, þannig ég hugsa mikið um kostnaðinn.



Skjámynd

FriðrikH
Geek
Póstar: 895
Skráði sig: Lau 22. Sep 2007 20:25
Reputation: 28
Staða: Ótengdur

Re: Rafmagnsvespur

Pósturaf FriðrikH » Þri 03. Júl 2012 21:39

Ég mundi halda að það væri svolítið gamble að eyða 150 þúsund í þetta þegar reglurnar varðandi þetta eru að breytast. Mér finnst mjög líklegt að þetta verði einmitt skilgreint sem létt bifhjól, og þá er þetta farið að verða dýrara, sérstaklega ef það þarf að tryggja sig.
Svo mundi ég líka velta fyrir mér endingunni og viðhaldi á svona grip sem kostar 150 þúsund, geri ekki ráð fyrir að það séu mjög mikil gæði í þessu? Það þekki það þó e.t.v. einhver betur en ég.
Ég segi þó eins og aðrir, ég held að hjól með rafmagnskitti sé mun betri fjárfesting. Ef það er dýrt, kaupa þá frekar bara ágætt hjól, ef þú ert ekki að fara meira en 15-20km á dag þá þarftu engan rafmagnsmótor til að hjálpa þér með það. Ert farinn að hjóla þá vegaleng án þess að blása úr nös eftir smá tíma.
*edit* Sá að þú átt hjól, en fjallahjól eru nú ekki hentugustu gripirnir til að skutlast á innanbæjar.




Bjosep
Geek
Póstar: 880
Skráði sig: Þri 16. Maí 2006 17:48
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Rafmagnsvespur

Pósturaf Bjosep » Þri 03. Júl 2012 22:58

Yawnk skrifaði:
FriðrikH skrifaði:1. rafmagnsvespur eru óheyrilega hallærislegar
2. Það liggur fyrir frumvarp að nýjum umferðalögum þar sem gert er ráð fyrir að það þurfi að skrá og tryggja þessar rafmagnsvespur með tilheyrandi kostnaði (og taka próf).
3. Þær fara ógeðslega hægt (flýg fram úr þessu dóti á hjóli)

Notaðu frekar tækifærið og bættu heilsuna með því að fá þér bara gott hjól og stíga það áfram.


Heheh ;P
1. Skiptir mig engu máli hvort þær séu hallærislegar eða ei, þetta er bara til að komast á milli staða.
2. http://mbl.is/frettir/innlent/2012/03/1 ... t_bifhjol/ Lestu þetta, og skoðaðu neðstu setninguna ''Ákvæðum um rafmagnshjól verður einnig breytt.'' Hvað ætli þetta þýði? að rafmagnshjól verði líka flokkuð sem létt bifhjól?
3. 25km er nú ekkert ógeðslega hægt! ;)

Ég á ágætis hjól núþegar, en það virðist bara vera of lítið.. 24'' fjallahjól
Fór með það í Rafhjól og þeir sögðu að það væri of lítið, en það væri mögulega hægt að STYTTA batteríið með tilheyrandi kostnaði, svo er þetta margfalt dýrari en vespan, Rafhjól sögðu 190.000, vespan er undir 150.000, og ég er ekki búinn til úr peningum á þessum aldri endilega, þannig ég hugsa mikið um kostnaðinn.


Spurning fyrir þig bara um að byrja þá á því að fá þér reiðhjól og bæta svo mótornum á það síðar. :snobbylaugh

Hversu langt þarftu samt að komast fyrst þér finnst það góð hugmynd að fá þér svona vespu ?



Skjámynd

Höfundur
Yawnk
Vaktari
Póstar: 2038
Skráði sig: Mán 26. Mar 2012 21:26
Reputation: 11
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Rafmagnsvespur

Pósturaf Yawnk » Mið 04. Júl 2012 16:47

Bjosep skrifaði:
Yawnk skrifaði:
FriðrikH skrifaði:1. rafmagnsvespur eru óheyrilega hallærislegar
2. Það liggur fyrir frumvarp að nýjum umferðalögum þar sem gert er ráð fyrir að það þurfi að skrá og tryggja þessar rafmagnsvespur með tilheyrandi kostnaði (og taka próf).
3. Þær fara ógeðslega hægt (flýg fram úr þessu dóti á hjóli)

Notaðu frekar tækifærið og bættu heilsuna með því að fá þér bara gott hjól og stíga það áfram.


Heheh ;P
1. Skiptir mig engu máli hvort þær séu hallærislegar eða ei, þetta er bara til að komast á milli staða.
2. http://mbl.is/frettir/innlent/2012/03/1 ... t_bifhjol/ Lestu þetta, og skoðaðu neðstu setninguna ''Ákvæðum um rafmagnshjól verður einnig breytt.'' Hvað ætli þetta þýði? að rafmagnshjól verði líka flokkuð sem létt bifhjól?
3. 25km er nú ekkert ógeðslega hægt! ;)

Ég á ágætis hjól núþegar, en það virðist bara vera of lítið.. 24'' fjallahjól
Fór með það í Rafhjól og þeir sögðu að það væri of lítið, en það væri mögulega hægt að STYTTA batteríið með tilheyrandi kostnaði, svo er þetta margfalt dýrari en vespan, Rafhjól sögðu 190.000, vespan er undir 150.000, og ég er ekki búinn til úr peningum á þessum aldri endilega, þannig ég hugsa mikið um kostnaðinn.


Spurning fyrir þig bara um að byrja þá á því að fá þér reiðhjól og bæta svo mótornum á það síðar. :snobbylaugh

Hversu langt þarftu samt að komast fyrst þér finnst það góð hugmynd að fá þér svona vespu ?


Svona 20km+ á dag.