krat skrifaði:hefur ekkert með þessa tannkrems þvælu að gera, það er verið að skrifa fullt af upplýsingum um fíkniefni og hvaða efni nákvæmlega skal nota til að komast í vímu.
Salvía, töflur osfv.
það eru unglingar hér inn á 12-16 ára sem eru áhrigagjarnir og heyra menn sem eru virki hér inn á tala fyrir vímuefnum.
Bara svo allir viti þá er Amsterdam að skoða að láta taka út lögleiðingu á kannabis.
Ef þú horfir á staðreyndir málsins þá er áfengi mun skaðlegra en langflestir telja, og þeir læknar sem benda réttilega á það eru oftar en ekki brennimerktir, rétt eins og þú brennimerkir þessa umræðu, 'að hvetja ungt fólk til að prufa DÓP'.
Þessi rök um að Hollendingar ætli að taka lögleiðinguna eru búin að koma á hverju ári. Þeir eru að íhuga að banna túristum að kaupa gras, svo þú verðir að vera með Hollensk skilríki til þess að geta keypt það.
Það nákvæmlega sama gerðist fyrir nokkrum árum. Þeir ákváðu að banna 'coffee shops'(sem selja pot) nálægt skólum. Þá var þessu líka blandað í umræðuna með þessum rökum 'SJÁÐU BARA HOLLAND, ALLT AÐ FARA TIL FJANDANS'.
Þeir, eins og Portúgalar, eru á undan sinni samtíð í sinni stefnu.
Ef þetta væri ekki að virka þá væri þessi stefna að sjálfsögðu ekki við líði.
Auðvitað má endurskoða lögleiðinguna, eins og að banna þetta nálægt skólum og takmarka aðgengi túrista að þessu svo þetta verði ekki aðal ferðamannastraumurinn, en grunn pælingin er góð, enda halda þeir í hana.
Drug-related crimes t.d. í Portúgal hefur hríðlækkað, og tíðni vandamála vegna sprautufíkla(heróin, læknadóp) lækkað í takt.
krat skrifaði:Ætla stjórnendur vaktarinar virkilega að leyfa svona umræðu um hvernig á að komast í vímu "löglega" að halda áfram ?
Væri þá í lagi að ég fari að pósta hvernig skal búa til amfetamín og gras ?
væri fínt að eyða þessum þræði
Þeir sem prufa þetta eru líklegir til að prufa allt, því þetta tannkrems-dót er djók. Ef fólk vill virkilega upplýsingar um það hvernig má komast í vímu þá finna þeir leið, börn sem fullorðnir, því Google veit allt. Held það sé ekki að gera neinum gott að loka fyrir umræðu um þetta, því mér finnst umræðan hér á mjög háu plani og flestum til framdráttar.
krat skrifaði:AciD_RaiN skrifaði:Ef einhver ætlar að vera með prik í rassinum yfir einhverju svona smáræði þá bendi ég ykkur sem viljið halda áfram þessari umræðu á gamla spjallborðið sem ég stundaði áður en ég fór að hanga hérna inná
http://www.drugs-forum.com/forum/Enginn beðinn um skilríki til að skrá sig þarna
Þú seigist vera fyrrverandi dópisti, heldurðu að þessi umræða geti ekki leitt 12-16 ára ungling til að prufa að reykja 1 sinni bara útaf því það voru 5 manns sem gerðu það og fannst það í lagi. Þesssi unglingur getur verið sá sem endaði ílla.
Ekkert prik upp í rassgatinu á mér, var bara að tala við foreldra rétt í þessu sem eru að reyna ná unglingum sínum út úr þessum heimi.
Þú verður að átta þig á því að internetið er opið, og verður það alltaf. Það að 12-16 ára unglingur leiðist út í vímuefnaneyslu útfrá smá umræðu á Vaktinni sannar bara óábyrgt uppeldi eða óstjórnlega hvatvísi hjá þessum unglingi. Það væri með öllu fáránlegt að kenna AciD_RaiN um það. Endilega farðu í átak og skikkaðu foreldra til að loka aðgangi að internetinu fyrir alla 0-16 ára, og gangi þér vel.
krat skrifaði:AciD_RaiN skrifaði:Það skiptir ENGU máli hvað aðilinn les eða hvort hann heyri að þetta sé allt stórhættulegt eða bara í góðu lagi. Ef hann er í áhættuhópi og er með þetta "gen" þá mun sá aðili fara að nota fyrr eða síðar. Forvarnir virka bara fyrir þá sem eru safe nú þegar. Þegar ég tók mína fyrstu ecstacy þá hugsaði ég á meðan ég tók hana úr pokanum og á leiðinni upp í mig "ég gæti dáið ég gæti dáið ég gæti dáið ég gæti dáið ég gæti dáið"
Fíkniefnaneysla endar mjög sjaldan vel
já en fólkið sem er ekki í áhættu hópi er líklegra til að prufa ef fleiri segja að þetta sé í "lagi"
Opin umræða verður ekki stöðvuð, afhverju ekki að tala um staðreyndir sem staðreyndir og hætta að ljúga að fólki.
Finnst frekar að þú ættir að berjast fyrir því að óbeinar áfengisauglýsingar verði fjarlægðar, því ég held að það hafi mun meiri skaðleg áhrif á þennan 12-16 ára áhættuhóp en nokkuð í samanburði við umræðuna hér.
dori skrifaði:AciD_RaiN skrifaði:Ég er ekkert svo viss um það. Samfélagið segir að það sé í lagi að drekka taugaeitur og missa alla stjórn á rökhugsun an það sé stórhættulegt að nota öll önnur efni þannig að "englabörnin" ættu að vera búin að fá þau skilaboð
Mér finnst reyndar skilaboðin sem samfélagið sendir um áfengi vera mjög óljós. Það er reynt að draga úr þessu að vissu leyti. T.d. bannað að fá sér bjór á íþróttaleikjum. Bannað að auglýsa þetta. Skilaboðin eru semi að þetta sé slæmt. En svo hlaupa allir út um kvöldin á helgar og hella þessu í sig í mjög óheilbrigðu magni.
Miklu betra að njóta þess að fá sér einn kaldan í góðum félagsskap á meðan þú horfir á íþróttaleik.
Góður punktur, vandamálið er að fólk hefur frelsi til að gera það sem því sýnist. Fólk á því að fá þetta svart á hvítu, eins og grafið sem ég benti á frá virtasta læknatímariti heims, svo það átti sig virkilega á því hversu skaðleg áhrif áfengi hefur. Ég er nú ekki bindindismaður, en ég reyni að dæma ekki fólk útfrá því hvað því finnst gaman að gera, og reyni frekar að afla mér upplýsinga og líta á staðreyndir málsins.
chaplin skrifaði:Ég trúi ekki að sterar séu skráðir skaðminni en kannabis og hefði ég haldið að áfengi væri hærra á listanum.
Vandamálið með sterana er sú að til þess að nota þá rétt og halda réttum hormónabalance líkamans þarftu að kaupa miklu flóknari og dýrari efni, og það kostar amk. þrefalt meira. Flestir vilja bara buffa sig upp á sem skemmstum tíma, hlusta á fólk sem notar þetta og veit ekki hvað það er að gera. Efast um að einhver 17 ára strákur sem ætlar að pumpa sig upp fari að eyða 150þ. í þetta í stað 50þ., þegar hann verður ekki einusinni fljótar massaður fyrir vikið, þó að honum yrði sagt að eitthvað hormónakerfi færi í keng.
Hér eru tölur frá 1985-1989 frá Bandarísku ríkistjórninni, yfir það hversu margir, hlutfallslega, eru í hættu að deyja, sem voru reyndar ekki birtar víða því þær gáfu ekki rétta mynd af því sem stjórnvöld hafa barist fyrir.
Obesity(offita) er ennþá rísandi vandamál, svo ég get ekki ýmindað mér hvernig þetta væri í dag.
Hér eru svo nýlegar tölur þar sem þið getið séð hlutföll dauða á þessi lyf sem mikið eru rædd. Efst eru lyfin sem flestir deyja af(stórar kúlur), svo raðast þetta niður eftir fjölda dauðsfalla:
Hér er þetta svo sett í samhengi, þegar áfengi og tóbak er komið inn í málið.
Grænt utan um löglegu efnin, bleikt utan um lyfin sem læknar skrifa út ('læknadóp'), grænt utan um það sem er mest í umræðunni. Það sem drepur flesta efst(stærri kúlur) og fæsta neðst(litlar kúlur).
Kom mér á óvart helíum getur gert.
After teen's death, parents warn of helium dangersGröfin eru unnar eftir tölum frá ONS ('Hagstofan í Bretlandi')
http://www.ons.gov.uk/Skemmtilegar staðreyndir um þessar tölur:
http://neurobonkers.com/2011/12/22/the- ... ata-fraud/