Tiger skrifaði:paze skrifaði:Tiger skrifaði:Þér finnst þetta dæmi ekki passa vegna þess að þig langar ekki að það passi, þetta passar bara fínt fyrir venjulega hugsandi fólk.
Það eru allskonar variables eins og þukl, líkamstjáning, skilaboð og annað sem geta hafa hljómað allt öðrvísi en 'nei' þegar uppi var staðið
Hjá siðlausu fólki já kannski, hjá normal einstaklingum nei. Þau fóru að sofa og og hann fékk vilja sínum framgengt meðan hún var sofnadi vitandi að hún hafði sagt nei...... þetta er svoooo einfalt.
Þú heldur virkilega að ég sé að réttlæta það að sofa hjá fullkomlega sofandi manneskju, ekki satt? Því þú annaðhvort átt mjög erfitt með að skilja það sem ég og aðrir erum að reyna koma áleiðis eða þá hefurðu ekki annað til borðsins en að ég sé geðveikur og þú sért normal.
Ég ætla að tilvitna aftur það sem Bjosep sagði:
Það kann vel að vera að í áfengismókinu hafi verið einhverjar gælur og að þau hafi orðið nærbuxnalaus saman og hvað eina. Gaurinn veit ekki betur en að hún sé að taka þátt í þessu og hann upplifir þau bara vera að stunda kynlíf saman en ekki að hann sé að brjóta á henni, ekki kannski fyrr en hún "vaknar", hann áttar sig og hættir ..
Það er margt sem bendir til þess að þetta sé lang líklegasta skýringin á þessu öllu saman og þetta er það sem ég tel að hafi átt sér stað.
Það skiptir bara engu máli hversu mikið þau káfuðu á hvor öðru eða hvað (ef það á annað borð gerðist), hún sgaði að það yrði ekki kynlíf, fór að sofa og vaknaði með hann inní sér..... og það er einfaldlega nauðgun, sama hvað hann "hélt" eða vildi túlka.
En þetta er eins og að tala við vegg, þannig að þið bjössi hafði þessa skoðun bara og allir hinir hafa aðra skoðun.
Þú endurtekur bara alltaf sömu svart-hvítu hliðina á þessu máli aftur og aftur. ''Hún sagði nei, fór að sofa og vaknaði meðan það var verið að nauðga henni''.
Það er ekki ég sem er 'veggurinn' í þessu samtali, það ert þú, hvort sem þú gerir þér grein fyrir því eða ekki. Ég er að líta í málið og skoða það frá fleiri en einu sjónarhorni og dreg þannig mínar ályktanir. Þú hinns vegar segir bara að það sé enginn munur á nauðgunum, hver sá sem sefur hjá stelpu án samþykkis, sama hversu vafasamt það sé, er nauðgari. Það gerir mig að nauðgara eftir þinni bók, eða að minsta kosti kynferðisafbrotamanni samkvæmt sögunni sem ég póstaði hérna, en hérna er hún aftur:
http://www.hugi.is/tilveran/korkar/800530/naudgun/Þú gerir þér engann veginn grein fyrir því að við erum í sama liði. Ég hata nauðgara jafn mikið og þú, en mér geðjast ekki við stelpur sem hrópa úlfur heldur og vill koma í veg fyrir þannig misskilning. Ég er með tilraun til manndráps á sakaskrá eftir að ég veittist að þrítugum manni með röratöng á heimili hans fyrir framan konu og barn fyrir 7 árum, með hræðilegum afleiðingum. Ástæðan var sú að sá sami maður veittist að þáverandi kærustu minni meðan hún var ofurölva á almenningsklósetti og notfærði sér ástand hennar. Eftir þessi skrif eru sennilega margir sem vita nákvæmlega hver ég er en með þessari sögu vill ég sýna fram á að ég er ekki maðurinn sem þú heldur að ég sé og mig sárnar að þú málir svona mynd af mér.