Pósturaf jagermeister » Þri 05. Jún 2012 21:45
Er á Náttúrufræðibraut I í MR núna og hef ekkert nema gott að segja um skólann. Vissulega er mikið álag þegar allir kennararnir eru með skyndipróf á sama tíma en það venst mjög fljótt. Félagslífið er það besta á öllu landinu leyfi ég mér að fullyrða. 2 nemendafélög = 2 árshátíðir, fullt af böllum, Tebó (bjórkvöld), endalausir viðburðir, undirfélagastarfsemi, þemavikur ofl. ofl. Svo skemmir ekki fyrir að við komumst næstum alltaf langt í bæði Gettu Betur og MORFÍs.
P.S. ef þú ert alvöru nördi þá mæli ég með því að þú kíkir í Akademíuna ef þú ákveður að koma í MR.