Kannski á þetta ekkert heima hér en ætla samt að prufa
Ég á 20 ára afmæli í vikunni 4 - 10 júní og og ég er í vinnu tímabundið á Akureyri og bý þar í foreldrahúsum á meðan og unnustan mín er heima í Keflavík og okkur langar til að vera saman þessa viku, útaf fyrir okkur og ég var að pæla í því hvort einhver hér inná er sjálfur eða þekkir einhvern sem er að leigja íbúð í skammtímaleigu á Akureyri, Þá væri það frá mánudeginum 4 júní - föstudagsins 8 júní. Íbúðin þarf alls ekki að vera stór enda verðum við 2 bara þar. Við göngum vel um eigur annara og það verður ekkert partý eða neitt svoleiðis, ætlum bara að njóta þess að vera 2 ein og hafa það notarlegt Við höfum ekkert það mikið á milli handanna svo ég taki það fram þannig að það væri ekki verra ef leiguverðið væri eftir því Það er frekar erfitt að vera í fjarbúð en auðvitað verður maður að grípa tækifærið ef manni býðst vinna..... En auðvitað vill maður njóta 20 ára afmælisdagsins síns með sínum nánustu
Með von um góð svör.
Krissi.
Vantar íbúð á Akureyri frá 4 - 8 júní
Re: Vantar íbúð á Akureyri frá 4 - 8 júní
Sniðug hugmynd En ég mæli frekar með helgi í tjaldi, frekar en í íbúð. Þú þarft ekki að þrífa tjaldi eins og íbúðina á sunnudeginum og getur því notið samvistarinnar með kæró ennþá betur. Tjöld eru líka merkilega rómantísk!
-
Höfundur - 1+1=10
- Póstar: 1122
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 21:19
- Reputation: 1
- Staðsetning: RNB
- Staða: Ótengdur
Re: Vantar íbúð á Akureyri frá 4 - 8 júní
tdog skrifaði:Sniðug hugmynd En ég mæli frekar með helgi í tjaldi, frekar en í íbúð. Þú þarft ekki að þrífa tjaldi eins og íbúðina á sunnudeginum og getur því notið samvistarinnar með kæró ennþá betur. Tjöld eru líka merkilega rómantísk!
Tja.... Við erum nú ekkert mikið fyrir útilegur hehe, svo myndum við bara vera fram á föstudag Munum ekkert rusla það mikið til hehe, plús það að það er bara ákveðin stemming í að þrífa leiguhúsnæði eftir að leigutíma lýkur..... Líka gaman að skila því sem maður fær lánað í góðu standi Höfum oft leigt bústað í Ölfusborgum og aldrei hefur verið kvartað undan sóðaskap eða lélegri hreingerningu við brottför
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1725
- Skráði sig: Sun 12. Sep 2004 16:02
- Reputation: 20
- Staða: Ótengdur
Re: Vantar íbúð á Akureyri frá 4 - 8 júní
Athugaðu endilega hjá stéttarfélaginu þínu hvort þeir eigi íbúðir til leigu.
Veit að VR er með mjög fínar íbúðir og Efling skilst mér líka og þeir rukka ekki of mikið fyrir þær, getur líka notað einhverja stéttapunkta hjá VR til að koma til móts við kostnaðinum af íbúðinni.
Er ekki viss hvort þeir eigi eitthvað laust svona nálægt dagsetningunni en það getur verið að eitthvað hefur losnað eða eitthvað álíka, hringdu allavega í þá
Veit að VR er með mjög fínar íbúðir og Efling skilst mér líka og þeir rukka ekki of mikið fyrir þær, getur líka notað einhverja stéttapunkta hjá VR til að koma til móts við kostnaðinum af íbúðinni.
Er ekki viss hvort þeir eigi eitthvað laust svona nálægt dagsetningunni en það getur verið að eitthvað hefur losnað eða eitthvað álíka, hringdu allavega í þá
-
Höfundur - 1+1=10
- Póstar: 1122
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 21:19
- Reputation: 1
- Staðsetning: RNB
- Staða: Ótengdur
Re: Vantar íbúð á Akureyri frá 4 - 8 júní
hannesstef skrifaði:Athugaðu endilega hjá stéttarfélaginu þínu hvort þeir eigi íbúðir til leigu.
Veit að VR er með mjög fínar íbúðir og Efling skilst mér líka og þeir rukka ekki of mikið fyrir þær, getur líka notað einhverja stéttapunkta hjá VR til að koma til móts við kostnaðinum af íbúðinni.
Er ekki viss hvort þeir eigi eitthvað laust svona nálægt dagsetningunni en það getur verið að eitthvað hefur losnað eða eitthvað álíka, hringdu allavega í þá
Ég borga núna í annað Stéttarfélag og ég held að ég eigi ekki rétt á neinu frá þeim eins og er því ég er ekki búinn að ávinna mér neinn rétt þar, gæti samt verið að ég eigi rétt í fyrra Stéttarfélagi, hætti að greiða í það í byrjun apríl. Plús það að Stéttarfélagið sem ég greiði í núna á engar íbúðir á Akureyri en hitt Stéttarfélagið sem ég greiddi áður í á eina íbúð hér. Ég er búinn að mail-a á þá og vonandi svara þeir mér sem fyrst Þó svo að ég eigi von á því að fá nei, kannski líka vegna þess að ég ætla ekki að vera frá föstudegi til föstudags, bara frá mánudegi - föstudags. Veit ekki hvort Stéttarfélög almennt leyfi svoleiðis leigutíma
-
- Stjórnandi
- Póstar: 3750
- Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
- Reputation: 474
- Staðsetning: Undir hægra megin
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Vantar íbúð á Akureyri frá 4 - 8 júní
úfff í fjarbúð og vill vera einn með konunni á 20. afmælisdeginum...
það þarf ábiggilega að henda rúmunum eftir það
það þarf ábiggilega að henda rúmunum eftir það
Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !
-
Höfundur - 1+1=10
- Póstar: 1122
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 21:19
- Reputation: 1
- Staðsetning: RNB
- Staða: Ótengdur
Re: Vantar íbúð á Akureyri frá 4 - 8 júní
HAHAHA!! það er nú ekkert það langt síðan seinast...... 21. maí..... hehehe!
-
- Besserwisser
- Póstar: 3835
- Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
- Reputation: 157
- Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
- Staða: Ótengdur
Re: Vantar íbúð á Akureyri frá 4 - 8 júní
Ég hef pantað íbúð hjá http://gistingakureyri.is/ einusinni. Gisti í "Amaro húsinu" og fannst það bæði mjög fín staðsetning og flott íbúð. Verðið var ekki bilað miðað við annað sambærilegt. Held ég hafi borgað ca 10 þúsund per nóttina þá, virðist hafa hækkað í lágmark 12 þúsund per nótt núna. Samt ódýrara en hótel
-
Höfundur - 1+1=10
- Póstar: 1122
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 21:19
- Reputation: 1
- Staðsetning: RNB
- Staða: Ótengdur
Re: Vantar íbúð á Akureyri frá 4 - 8 júní
já, Myndi samt vilja helst fá á sambærilegu verði og Stéttarfélögin eru að bjóða
-
- Besserwisser
- Póstar: 3835
- Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
- Reputation: 157
- Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
- Staða: Ótengdur
Re: Vantar íbúð á Akureyri frá 4 - 8 júní
krissi24 skrifaði:já, Myndi samt vilja helst fá á sambærilegu verði og Stéttarfélögin eru að bjóða
Þegar þú ert að tala um gistingu með viku fyrirvara, um háannatíma, á vinsælu ferðamannasvæði, þá er ekki hægt að krefjast þess að fá hana ódýrt líka. Stéttarfélögin niðurgreiða svona gistingar þó nokkuð, svo það er ólíklegt að þú fáir eitthvað á góðu verði. Ekki nema þú þekkir einhvern í réttu stéttarfélagi sem getur leppað fyrir þig (og yfirleitt getur fengið leigt, t.d. er allt upppantað hjá VR næstu 102 árin).
Nei ég vinn ekki við sölu gistinga á Akureyri, eða bara nokkurstaðar. Sé reyndar að þetta fyrirtæki sem ég linkaði á er ekki lengur að leigja út þá íbúð sem ég gisti í, en samt með nokkrar aðrar í boði.
-
- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 391
- Skráði sig: Þri 25. Ágú 2009 23:19
- Reputation: 0
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Vantar íbúð á Akureyri frá 4 - 8 júní
Búinn að prufa að skoða á http://www.dagskrain.is?
Við vorum einmitt að leigja íbúð á 7k per nótt en erum því miður byrjuð að gera hana upp akkurat nuna á næstu dögum, svo ég get ekki reddað þér.
Við vorum einmitt að leigja íbúð á 7k per nótt en erum því miður byrjuð að gera hana upp akkurat nuna á næstu dögum, svo ég get ekki reddað þér.
Intel i9 14900k | Asus TUF 4080 Super OC | 2x 32GB G.Skill Trident Z5 Neo RGB | 2tb Samsung 990 Pro | Asus ROG Strix 1000W | EK-Nucleus (10stk Lian Li Infinity) | Lian Li O11D Evo RGB | Asus ROG Maximus Hero Z790 |