Ánægður með þetta. Gallarnir eru samt auðvitað að þetta:
- Verður bara hjá Arion banka, a.m.k. til að byrja með,
- Virkar bara sem kreditkort, ekki debetkort,
- Krefst NFC síma, sem eru ekki mjög algengir ennþá (meira að segja SGS2 sem átti að vera með NFC er ekki með það nema á einhverri sér línu sem ég efast um að hafi verið seld hér),
- Líklega dýrari kortafærsla en að strauja kortið (án þess að ég viti það, bara gisk svosem),
- Þarf spes posa sem tekur tíma að breiða út, svipað og örgjörva/PIN posarnir eru alls ekki komnir alls staðar ennþá
Samt, þetta er ágætis byrjun og NFC verður örugglega algengara á næstu árum. Flott að við erum tiltölulega snögg að byrja að taka þetta upp, hlakka bara til að þurfa ekki lengur að ganga með veskið á mér!