Tengja vefverslun við Borgun


Höfundur
andrifr
Nýliði
Póstar: 16
Skráði sig: Þri 24. Apr 2012 22:26
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Tengja vefverslun við Borgun

Pósturaf andrifr » Þri 24. Apr 2012 22:29

Ég er að hugsa um að opna Wordpress vefsíðu með ákveðinni viðbót, sem er bara ein tegund af sölukerfi, sem ég veit að einhverjir eru að nota hér á Íslandi.

Þeir tengja vefsíðuna við greiðslugáttina hjá Borgun.

Mig vantar þessa tengingu við Borgun. Ég hringdi í Borgun og þeir bjóða ekki upp á hjálp með þessa tengingu.

Kann einhver hér að forrita þetta? Eða veit einhver hvar ég gæti hugsanlega nálgast einhverjar svona tengingar. Ég geri ráð fyrir að það þurfti sérstaka tengingu við þessa tilteknu viðbót, þ.e.a.s. að ég geti ekki bara notað eitthvað plugin sem var gert fyrir einhverja vefverslunarviðbót.



Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3606
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Tengja vefverslun við Borgun

Pósturaf dori » Þri 24. Apr 2012 22:44

Þeir eru að nota svokallaða "greiðslusíðu". Það felst í því að þú sendir kaupandann áfram á vefsíðu hjá Borgun, Valitor eða öðrum og segir þeim hvað þeir eiga að rukka fyrir og hversu mikið. Þeir senda svo kaupandann í gegnum greiðsluferli og svo beinir greiðsluþjónustan honum aftur á þína vefsíðu.

Þetta er ekki jafn fullkomin og einsleit upplifun og ef þú útfærir greiðslugátt inní þína vefverslun en þetta er frábært því að þá berð þú enga ábyrgð á því að geyma kortaupplýsingar og slíkt.

Skoðaðu hér:
https://www.borgun.is/vefgreidslur/greidslusida/
eða hjá Valitor:
http://valitor.is/fyrirtaekjalausnir/se ... idslusida/

Valitor eru líka með demo hérna: http://demo.valitor.is/verslun/

Það er mjög einfalt að gera þetta en augljóslega kostar þetta smá pening. Fyrir utan það sem þú þarft að gera ef þú þarft aðstoð frá einhverjum öðrum við að breyta síðunni þinni til að virka með þessu.




Höfundur
andrifr
Nýliði
Póstar: 16
Skráði sig: Þri 24. Apr 2012 22:26
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Tengja vefverslun við Borgun

Pósturaf andrifr » Þri 24. Apr 2012 22:50

Takk fyrir þetta.

Ég var reyndar svosem nokkurnveginn með þetta á hreinu. Það sem ég er að velta fyrir mér er kannski helst:

Er einhversstaðar hægt að finna samansafn af plugin-um fyrir mismunandi kerfi?

eða

Tekur þú (eða einhver annar) þetta að sér og hvað kostar það?



Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3606
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Tengja vefverslun við Borgun

Pósturaf dori » Þri 24. Apr 2012 22:54

Hvað heitir þetta plugin?




Höfundur
andrifr
Nýliði
Póstar: 16
Skráði sig: Þri 24. Apr 2012 22:26
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Tengja vefverslun við Borgun

Pósturaf andrifr » Þri 24. Apr 2012 22:59

ég var að senda þér skilaboð með upplýsingum...



Skjámynd

gardar
Besserwisser
Póstar: 3111
Skráði sig: Mán 11. Ágú 2008 02:49
Reputation: 12
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Tengja vefverslun við Borgun

Pósturaf gardar » Mið 25. Apr 2012 01:27

Ertu alveg haðrákveðinn í að nota borgun? Ef ekki þá eru dalpay mjög friendly varðandi svona hluti.



Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3606
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Tengja vefverslun við Borgun

Pósturaf dori » Mið 25. Apr 2012 10:18

Já, btw, ég hef engan tíma í að gera svona fyrir þig :)

Það er samt fullt af vefsjoppum sem gera þetta fyrir mismikinn pening. Og örugglega 20 manns sem eru virkir á vaktinni sem gætu gert þetta.




Höfundur
andrifr
Nýliði
Póstar: 16
Skráði sig: Þri 24. Apr 2012 22:26
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Tengja vefverslun við Borgun

Pósturaf andrifr » Mið 25. Apr 2012 11:50

Er einhver sem getur gefið mér eitthvað gróft verðmat á svona? Ég geri ráð fyrir að þetta sé engin svakaleg vinna, bara láta senda upplýsingar um hvað er verið að kaupa á hvaða verði (og nafn og persónuupplýsingar) og svo taka á móti gögnum um hvort þetta hafi gengið í gegn.

Já, ég hef verið með annarskonar vefverslun hjá DalPay (Joomla og OsCommerce) og þeir bjóða upp á mjög góða þjónustu á góðu verði. Þeir eru bara ekki búnir að taka ákvörðun um það hvort þeir vilja taka á móti greiðslum frá svona tegundum af síðum (átta mig ekki alveg á af hverju það er... þetta er ekkert ólöglegt eða neitt slíkt, gæti reyndar fylgt þessu smá álag af því ég er að fara að selja svo brjálæðislega mikið :D eða vonum það allavega :/ ). Ég vil drífa þetta af stað þannig að ég get ekki beðið eftir þeim.

Ef þið hafið forritað svona áður og viljið nánari upplýsingar þá megið þið endilega senda mér skilaboð.



Skjámynd

Frantic
FanBoy
Póstar: 797
Skráði sig: Mið 04. Mar 2009 17:43
Reputation: 6
Staða: Ótengdur

Re: Tengja vefverslun við Borgun

Pósturaf Frantic » Mið 25. Apr 2012 12:00

andrifr skrifaði:Er einhver sem getur gefið mér eitthvað gróft verðmat á svona? Ég geri ráð fyrir að þetta sé engin svakaleg vinna, bara láta senda upplýsingar um hvað er verið að kaupa á hvaða verði (og nafn og persónuupplýsingar) og svo taka á móti gögnum um hvort þetta hafi gengið í gegn.

Já, ég hef verið með annarskonar vefverslun hjá DalPay (Joomla og OsCommerce) og þeir bjóða upp á mjög góða þjónustu á góðu verði. Þeir eru bara ekki búnir að taka ákvörðun um það hvort þeir vilja taka á móti greiðslum frá svona tegundum af síðum (átta mig ekki alveg á af hverju það er... þetta er ekkert ólöglegt eða neitt slíkt, gæti reyndar fylgt þessu smá álag af því ég er að fara að selja svo brjálæðislega mikið :D eða vonum það allavega :/ ). Ég vil drífa þetta af stað þannig að ég get ekki beðið eftir þeim.

Ef þið hafið forritað svona áður og viljið nánari upplýsingar þá megið þið endilega senda mér skilaboð.


Hvað ertu eiginlega að fara að selja?
Finnst skrítið ef dalpay færi að setja útá hvað þú ert að selja.




Höfundur
andrifr
Nýliði
Póstar: 16
Skráði sig: Þri 24. Apr 2012 22:26
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Tengja vefverslun við Borgun

Pósturaf andrifr » Mið 25. Apr 2012 12:14

Það er ekki hvað ég er að selja heldur hvernig ég ætla að selja.

Það er svo ekki það að þeir séu að setja út á það. Kannski vilja þeir bara einbeita sér að hefðbundnum vefverslunum, veit það ekki, veit bara að mér býðst ekki að tengja mína síðu við Dalpay eins og er.




Höfundur
andrifr
Nýliði
Póstar: 16
Skráði sig: Þri 24. Apr 2012 22:26
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Tengja vefverslun við Borgun

Pósturaf andrifr » Mið 25. Apr 2012 14:20

Ef þið vitið af einhverjum notendum á þessari síðu sem gætu gert þetta þá yrði ég þakklátur ef þið gætuð bent mér á þá.



Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3172
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 546
Staðsetning: ::1
Staða: Tengdur

Re: Tengja vefverslun við Borgun

Pósturaf Hjaltiatla » Mið 25. Apr 2012 15:11

Elance eru ágætir https://www.elance.com
Gætir hugsanlega fundið eitthvern Íslending þar.
Hérna er leit á Elance eftir Web dev frá Íslandi.
https://www.elance.com/r/contractors/q-web/cat-it-programming/loc-iceland

Annars gangi þér vel :happy


Just do IT
  √


Höfundur
andrifr
Nýliði
Póstar: 16
Skráði sig: Þri 24. Apr 2012 22:26
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Tengja vefverslun við Borgun

Pósturaf andrifr » Fim 26. Apr 2012 10:45

Takk fyrir þetta.

Gallinn við þetta er að ég get ekki haft samband við neinn án þess að búa til auglýsingu um verk. Það sem ég þarf er tilboð í verkið frá einhverjum sem hefur gert eitthvað svipað áður til þess að ég átti mig á því hvort að ég geti farið út í það að búa til þessa vefsíðu.

Getur einhver skotið á það fyrir mig hvað svona kostar?
Ég var að fá verðtilboð frá Allra átta og það var stjarnfræðilega hátt, ég get ekki ímyndað mér að það sé eðlilegt verð. Ef svo er þá fær þessi vefsíða að bíða betri tíma, eða ég hreinlega sleppi því að láta taka við kreditkortum nema í gegnum Paypal eða eitthvað álíka.



Skjámynd

tdog
Vaktari
Póstar: 2012
Skráði sig: Mán 06. Des 2010 17:32
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Re: Tengja vefverslun við Borgun

Pósturaf tdog » Fim 26. Apr 2012 10:49

andrifr skrifaði:Takk fyrir þetta.

Gallinn við þetta er að ég get ekki haft samband við neinn án þess að búa til auglýsingu um verk. Það sem ég þarf er tilboð í verkið frá einhverjum sem hefur gert eitthvað svipað áður til þess að ég átti mig á því hvort að ég geti farið út í það að búa til þessa vefsíðu.

Getur einhver skotið á það fyrir mig hvað svona kostar?
Ég var að fá verðtilboð frá Allra átta og það var stjarnfræðilega hátt, ég get ekki ímyndað mér að það sé eðlilegt verð. Ef svo er þá fær þessi vefsíða að bíða betri tíma, eða ég hreinlega sleppi því að láta taka við kreditkortum nema í gegnum Paypal eða eitthvað álíka.


Hvaða verð gaf Allra8 upp?




Höfundur
andrifr
Nýliði
Póstar: 16
Skráði sig: Þri 24. Apr 2012 22:26
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Tengja vefverslun við Borgun

Pósturaf andrifr » Fim 26. Apr 2012 11:01

Þó þeir hafi ekki sett neina klausu um að þetta sé trúnaðarmál þá vil ég nú samt ekki vera að pósta þessu hérna, en ég skal senda þér póst.




Höfundur
andrifr
Nýliði
Póstar: 16
Skráði sig: Þri 24. Apr 2012 22:26
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Tengja vefverslun við Borgun

Pósturaf andrifr » Fim 26. Apr 2012 11:20

Vona að þú hafir fengið þetta, ég sendi þetta tvisvar með PM en það er eins og skilaboðin séu ennþá í Outbox, en fari ekki yfir í Sent messages. Samt stendur að þetta hafi verið sent.



Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3606
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Tengja vefverslun við Borgun

Pósturaf dori » Fim 26. Apr 2012 12:15

andrifr skrifaði:Vona að þú hafir fengið þetta, ég sendi þetta tvisvar með PM en það er eins og skilaboðin séu ennþá í Outbox, en fari ekki yfir í Sent messages. Samt stendur að þetta hafi verið sent.

Það er í "outbox" þangað til hann opnar skilaboðin. Frekar vangefið kerfi en þannig virkar þetta :P



Skjámynd

gardar
Besserwisser
Póstar: 3111
Skráði sig: Mán 11. Ágú 2008 02:49
Reputation: 12
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Tengja vefverslun við Borgun

Pósturaf gardar » Fim 26. Apr 2012 12:26

dori skrifaði:
andrifr skrifaði:Vona að þú hafir fengið þetta, ég sendi þetta tvisvar með PM en það er eins og skilaboðin séu ennþá í Outbox, en fari ekki yfir í Sent messages. Samt stendur að þetta hafi verið sent.

Það er í "outbox" þangað til hann opnar skilaboðin. Frekar vangefið kerfi en þannig virkar þetta :P


neinei þetta er sniðugt ef maður þarf að breyta einhverju eða hætta við að senda skilaboð :)



Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3606
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Tengja vefverslun við Borgun

Pósturaf dori » Fim 26. Apr 2012 12:32

En þá er aðilinn búinn að fá tölvupóstu um að hans bíði einkaskilaboð. Mér finnst spes að gefa upp hvort einhver sé búinn að lesa skilaboðin sín eða ekki. Auðvitað er þetta stundum gagnlegt, en frekar spes.




Golden
Nýliði
Póstar: 1
Skráði sig: Fös 25. Maí 2012 17:08
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Tengja vefverslun við Borgun

Pósturaf Golden » Fös 25. Maí 2012 17:11

Býður greiðsluþjónusta/greiðslusíða Borgunar uppá tengingu við öll eftirfarandi kerfi:

http://www.opensourcecms.com/scripts/sh ... =eCommerce