Gróft dæmi um álagningu á Íslandi. Rafhlaða í fartölvu.

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
lukkuláki
Besserwisser
Póstar: 3089
Skráði sig: Fös 30. Nóv 2007 19:06
Reputation: 65
Staða: Ótengdur

Gróft dæmi um álagningu á Íslandi. Rafhlaða í fartölvu.

Pósturaf lukkuláki » Mið 18. Apr 2012 13:16

Advania.
Þar kostar 9 cellu rafhlaða 27.850 kr. Sem er tilboðsverð -- Verð áður 37.750 kr.

Pantaði mér sömu rafhlöðu hjá viðurkenndum aðila í bretlandi sem lætur svo greinilega senda rafhlöðuna beint frá Hong Kong.
Ég skoðaði síðuna vel og vandlega áður en ég lét til skarar skríða þar sem ég hef oft heyrt um svikin battery á ebay og svoleiðis stöðum.

Borgaði 8173 kr. með korti þegar ég pantaði.
Sótti rafhlöðuna og borgaði 2645 kr. (Tollur+VSK+Kílóagjald og XC Gjöld)

Samtals 10.818.- Krónur.

Mismunur mv. "Tilboðsverð" Advania 17.032 kr.

Ég hefði verið til í að borga svona 15.000 fyrir rafhlöðuna hér á landi mv. að fá ábyrgð og svona en ekki 28.000 hvað þá 38.000 !


Rafhlaðan virkar 100% í hleðslu og afhleðslu.


If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.

Skjámynd

Frost
Besserwisser
Póstar: 3206
Skráði sig: Sun 16. Ágú 2009 02:30
Reputation: 61
Staða: Ótengdur

Re: Gróft dæmi um álagningu á Íslandi. Rafhlaða í fartölvu.

Pósturaf Frost » Mið 18. Apr 2012 13:28

Það hefur bara alltaf veriða staðreynd að tölvuhlutir eru rándýrir hér á landi :dissed


Tölva, 2 skjáir, Alltof mörg lyklaborð, þráðlaus mús og næs heyrnatól

Skjámynd

ponzer
Kerfisstjóri
Póstar: 1270
Skráði sig: Þri 07. Sep 2004 18:18
Reputation: 13
Staðsetning: Router(config)#
Staða: Ótengdur

Re: Gróft dæmi um álagningu á Íslandi. Rafhlaða í fartölvu.

Pósturaf ponzer » Mið 18. Apr 2012 13:37

Þú ert líka að borga Advania fyrir Genuine Dell batterý, það er ekki það sama og eitthvað "Blah certified" batterý frá UK/Kína :)


Specs: Tölva, skjár, lyklaborð, mús og internet.

Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3606
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Gróft dæmi um álagningu á Íslandi. Rafhlaða í fartölvu.

Pósturaf dori » Mið 18. Apr 2012 13:39

ponzer skrifaði:Þú ert líka að borga Advania fyrir Genuine Dell batterý, það er ekki það sama og eitthvað "Blah certified" batterý frá UK/Kína :)

Ég hélt alltaf að það væri svoleiðis líka en einhverntíma keypti ég batterý í IBM vél frá Nýherja og þá var það eitthvað "aftermarket" dót sem ég hefði örugglega getað fengið talsvert ódýrara annarsstaðar frá (kostaði reyndar "bara" ~20 þúsund).

Þessir aðilar eru ekkert alltaf með genuine hluti eða allavega láta það ekki stoppa sig í að verðleggja þá grimmt að þeir séu ekki genuine.




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4192
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1323
Staða: Ótengdur

Re: Gróft dæmi um álagningu á Íslandi. Rafhlaða í fartölvu.

Pósturaf Klemmi » Mið 18. Apr 2012 13:41

Frost skrifaði:Það hefur bara alltaf veriða staðreynd að tölvuhlutir eru rándýrir hér á landi :dissed


Nei, það er bara einfaldlega ekki satt :s

Álagning á tölvuvörur er (ef við horfum ekki á verðin hjá Advania, Opnum Kerfum og Nýherja) er talsvert lægri heldur en á flestum öðrum vörum hér heima.




AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6352
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 160
Staða: Ótengdur

Re: Gróft dæmi um álagningu á Íslandi. Rafhlaða í fartölvu.

Pósturaf AntiTrust » Mið 18. Apr 2012 13:41

Já, þetta er blöskrandi. Ég tók saman einfalt dæmi til frekari samanburðar.

Rafhlaðan í 3500-3700 Vostro vélina hjá EJS án tilboðs - 37.850kr (27.950 á tilboði)
Sama rafhlaða tekin heim frá Dell USA Shop m.v. sömu gjöld - 22.330kr

Mismunur: 15.520 (eða 5.620kr m.v. tilboðsverð)

Sambærileg rafhlaða í ThinkPad T420 hjá Nýherja - 22.900kr
Sama rafhlaða tekin heim frá Lenovo Shop í USA - 25.557

Mismunur: -2.657kr, viðskiptavin í hag.



Skjámynd

Tiger
Besserwisser
Póstar: 3846
Skráði sig: Sun 16. Mar 2003 13:22
Reputation: 265
Staða: Ótengdur

Re: Gróft dæmi um álagningu á Íslandi. Rafhlaða í fartölvu.

Pósturaf Tiger » Mið 18. Apr 2012 14:02

Fleirri svona dæmi. Skjár sem kostar 1.200$ úti kostar "aðeins" 586.000 hjá Opnum Kerfum :)




AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6352
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 160
Staða: Ótengdur

Re: Gróft dæmi um álagningu á Íslandi. Rafhlaða í fartölvu.

Pósturaf AntiTrust » Mið 18. Apr 2012 14:05

Svo skánar ekki álitið á þessum fyrirtækjum þegar maður kemst í vefverslanirnar þeirra í gegnum e-rskonar partner login, þá fyrst fær maður að sjá hversu mikil álagningin er til óbreyttra.



Skjámynd

tlord
Tölvutryllir
Póstar: 601
Skráði sig: Mið 30. Nóv 2011 17:28
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Gróft dæmi um álagningu á Íslandi. Rafhlaða í fartölvu.

Pósturaf tlord » Mið 18. Apr 2012 14:35

markhópurinn er íslensk fyrirtæki, þau láta bjóða sér svona verð, fá etv 10-20% afsl sem þau halda að sé rosadíll



Skjámynd

mundivalur
Vaktari
Póstar: 2327
Skráði sig: Fim 02. Apr 2009 13:16
Reputation: 82
Staðsetning: South side
Staða: Ótengdur

Re: Gróft dæmi um álagningu á Íslandi. Rafhlaða í fartölvu.

Pósturaf mundivalur » Mið 18. Apr 2012 15:08

tlord skrifaði:markhópurinn er íslensk fyrirtæki, þau láta bjóða sér svona verð, fá etv 10-20% afsl sem þau halda að sé rosadíll

Sammala þessu !




AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6352
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 160
Staða: Ótengdur

Re: Gróft dæmi um álagningu á Íslandi. Rafhlaða í fartölvu.

Pósturaf AntiTrust » Mið 18. Apr 2012 15:19

tlord skrifaði:markhópurinn er íslensk fyrirtæki, þau láta bjóða sér svona verð, fá etv 10-20% afsl sem þau halda að sé rosadíll


Ég hef orðið vitni að talsvert stærri afsláttarprósentum, og það ekki hjá stórfyrirtækjum.



Skjámynd

Höfundur
lukkuláki
Besserwisser
Póstar: 3089
Skráði sig: Fös 30. Nóv 2007 19:06
Reputation: 65
Staða: Ótengdur

Re: Gróft dæmi um álagningu á Íslandi. Rafhlaða í fartölvu.

Pósturaf lukkuláki » Mið 18. Apr 2012 15:42

Að fólk skuli láta bjóða sér þetta.
Hvort sem það eru fyrirtæki eða einstaklingar þá er þetta mjög óeðlileg þróun.


If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.


axyne
Of mikill frítími
Póstar: 1794
Skráði sig: Fim 12. Jún 2003 17:16
Reputation: 82
Staðsetning: DK
Staða: Tengdur

Re: Gróft dæmi um álagningu á Íslandi. Rafhlaða í fartölvu.

Pósturaf axyne » Mið 18. Apr 2012 15:56

lukkuláki skrifaði:Að fólk skuli láta bjóða sér þetta.
Hvort sem það eru fyrirtæki eða einstaklingar þá er þetta mjög óeðlileg þróun.


Hefur eitthvað breyst?
Veit ekki hvort mér þykir eitthvað af þessu, þetta eru ekki fyrirtæki (Atvania, nýherji og OK) sem sérhæfa sig í besta útsöluverðinu til einstakra kúnna heldur þjónustu til fyrirtækja.
Þjónustusamningar gefa síðan ákveðinn afslátt á vörur sem getur skipt mörgtugum prósenta.

Hefbundinn kúnni sem er að kaupa fyrir "klink" fær að sjálfsögðu ekki sama verð og fyrirtæki sem eru að kaupa fyrir fleiri milljónir bæði vörur og þjónustu.


Electronic and Computer Engineer

Skjámynd

Höfundur
lukkuláki
Besserwisser
Póstar: 3089
Skráði sig: Fös 30. Nóv 2007 19:06
Reputation: 65
Staða: Ótengdur

Re: Gróft dæmi um álagningu á Íslandi. Rafhlaða í fartölvu.

Pósturaf lukkuláki » Mið 18. Apr 2012 16:01

axyne skrifaði:
lukkuláki skrifaði:Að fólk skuli láta bjóða sér þetta.
Hvort sem það eru fyrirtæki eða einstaklingar þá er þetta mjög óeðlileg þróun.


Hefur eitthvað breyst?
Veit ekki hvort mér þykir eitthvað af þessu, þetta eru ekki fyrirtæki (Atvania, nýherji og OK) sem sérhæfa sig í besta útsöluverðinu til einstakra kúnna heldur þjónustu til fyrirtækja.
Þjónustusamningar gefa síðan ákveðinn afslátt á vörur sem getur skipt mörgtugum prósenta.

Hefbundinn kúnni sem er að kaupa fyrir "klink" fær að sjálfsögðu ekki sama verð og fyrirtæki sem eru að kaupa fyrir fleiri milljónir bæði vörur og þjónustu.



Nei en það er enginn einstaklingur að fara að kaupa rafhlöðu hjá Advania fyrir 30 - 40 þúsund sem hann getur keypt á 10 þúsund annars staðar.
Advania gefur einstaklingum engan afslátt en samt selja þeir nokkur hundruð vélar á ári til einstaklinga og taka þátt í slagnum um fermingar, jól og á öðrum tímum til að selja sem mest til einstaklinga.
Afhverju þessi ofurálagning til einstaklinga ?


If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.


Tbot
/dev/null
Póstar: 1476
Skráði sig: Þri 01. Nóv 2011 13:42
Reputation: 304
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Gróft dæmi um álagningu á Íslandi. Rafhlaða í fartölvu.

Pósturaf Tbot » Mið 18. Apr 2012 16:07

Af því að þau komast upp með það.




AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6352
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 160
Staða: Ótengdur

Re: Gróft dæmi um álagningu á Íslandi. Rafhlaða í fartölvu.

Pósturaf AntiTrust » Mið 18. Apr 2012 16:09

Tbot skrifaði:Af því að þau komast upp með það.


Er það? Kallast það að komast upp með það þegar stór hluti fólks er farinn að versla alla mögulega vara- og aukahluti erlendis frá?




Tbot
/dev/null
Póstar: 1476
Skráði sig: Þri 01. Nóv 2011 13:42
Reputation: 304
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Gróft dæmi um álagningu á Íslandi. Rafhlaða í fartölvu.

Pósturaf Tbot » Mið 18. Apr 2012 16:15

Ég er ekki svo viss um að stór hluti sé að versla erlendis frá. Það þýðir ekki að miða bara við fólkið sem er hérna á vaktinni, Hvar heldur þú að amma gamla og afi kaupi hlutinn!?

Þetta er þessi balance um hvort þú vilt fá hlutinn strax eða ekki og síðan ábyrgðarmálin. Það er ansi oft meiri fyrirhöfn að sækja ábyrgðir úti.




Gislinn
FanBoy
Póstar: 769
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 01:07
Reputation: 50
Staða: Ótengdur

Re: Gróft dæmi um álagningu á Íslandi. Rafhlaða í fartölvu.

Pósturaf Gislinn » Mið 18. Apr 2012 16:22

Rafborg í Sundaborg er að selja rafhlöður í tölvur, ég keypti rafhlöðu þar í Dell vél á rétt um 12 þúsund krónur, átti að kosta um 37 þús hjá EJS. Mæli klárlega með Rafborg.


common sense is not so common.

Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3760
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Gróft dæmi um álagningu á Íslandi. Rafhlaða í fartölvu.

Pósturaf Pandemic » Mið 18. Apr 2012 16:26

Gislinn skrifaði:Rafborg í Sundaborg er að selja rafhlöður í tölvur, ég keypti rafhlöðu þar í Dell vél á rétt um 12 þúsund krónur, átti að kosta um 37 þús hjá EJS. Mæli klárlega með Rafborg.

Sé ekkert um þetta á heimasíðunni þeirra.




AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6352
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 160
Staða: Ótengdur

Re: Gróft dæmi um álagningu á Íslandi. Rafhlaða í fartölvu.

Pósturaf AntiTrust » Mið 18. Apr 2012 16:32

Tbot skrifaði:Ég er ekki svo viss um að stór hluti sé að versla erlendis frá. Það þýðir ekki að miða bara við fólkið sem er hérna á vaktinni, Hvar heldur þú að amma gamla og afi kaupi hlutinn!?

Þetta er þessi balance um hvort þú vilt fá hlutinn strax eða ekki og síðan ábyrgðarmálin. Það er ansi oft meiri fyrirhöfn að sækja ábyrgðir úti.


Ég veit það fyrir víst að Nýherji sér um öll ábyrgðarmál hvað varðar Lenovo vörur, burtséð frá því hvar þær eru keyptar. Tölvan mín er versluð frá Newegg en Nýherji tekur ábyrgð á henni þau 3 ár sem hún er í framleiðsluábyrgð. Get vel ímyndað mér að það séu svipaðir ábyrgðarskilmálar á Dell og HP vörum.

Helduru að amma og afi séu stór hluti viðskiptavina sem eru að versla sér 9cell rafhlöður eða aðra aukahluti?



Skjámynd

tlord
Tölvutryllir
Póstar: 601
Skráði sig: Mið 30. Nóv 2011 17:28
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Gróft dæmi um álagningu á Íslandi. Rafhlaða í fartölvu.

Pósturaf tlord » Mið 18. Apr 2012 17:01

hugunarhátturin hjá ca 70% er að það er 'best' að kaupa varahlutinn í 'umboðinu' og borga bara uppsett verð. skæla svo smá í heita pottinum /kaffistofunni næsta morgun




capteinninn
Of mikill frítími
Póstar: 1725
Skráði sig: Sun 12. Sep 2004 16:02
Reputation: 20
Staða: Ótengdur

Re: Gróft dæmi um álagningu á Íslandi. Rafhlaða í fartölvu.

Pósturaf capteinninn » Mið 18. Apr 2012 17:08

Á sínum tíma reyndi ég að kaupa nýtt batterí fyrir fartölvuna mína og fór í EJS (Advania núna) og þeir sögðust þurfa að panta það og það myndi kosta um 40 þúsund. Afgreiðslumaðurinn sagði mér að ég ætti frekar bara að kaupa nýja tölvu og vildi sýna mér einhverjar góða tillögur.

Þetta var fyrir nokkrum árum þannig að kannski er þetta eitthvað betra núna en mér fannst þetta bara svo fyndið þegar þetta gerðist.




vesley
Kóngur
Póstar: 4257
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 192
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Gróft dæmi um álagningu á Íslandi. Rafhlaða í fartölvu.

Pósturaf vesley » Mið 18. Apr 2012 17:12

AntiTrust skrifaði:
tlord skrifaði:markhópurinn er íslensk fyrirtæki, þau láta bjóða sér svona verð, fá etv 10-20% afsl sem þau halda að sé rosadíll


Ég hef orðið vitni að talsvert stærri afsláttarprósentum, og það ekki hjá stórfyrirtækjum.



x2 það er ástæða fyrir því að maður sér stórann hluta af tölvum hjá Mennta/grunn/háskólum merkta EJS/Nýherja, fyrirtæki fá margfalt betri afslátt.



Skjámynd

tlord
Tölvutryllir
Póstar: 601
Skráði sig: Mið 30. Nóv 2011 17:28
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Gróft dæmi um álagningu á Íslandi. Rafhlaða í fartölvu.

Pósturaf tlord » Mið 18. Apr 2012 17:20

vesley skrifaði:
AntiTrust skrifaði:
tlord skrifaði:markhópurinn er íslensk fyrirtæki, þau láta bjóða sér svona verð, fá etv 10-20% afsl sem þau halda að sé rosadíll


Ég hef orðið vitni að talsvert stærri afsláttarprósentum, og það ekki hjá stórfyrirtækjum.



x2 það er ástæða fyrir því að maður sér stórann hluta af tölvum hjá Mennta/grunn/háskólum merkta EJS/Nýherja, fyrirtæki fá margfalt betri afslátt.



jamm, pirrandi þessi okur/afsláttur bransi, afhverju er ekki bara hægt að labba inn og kaupa á sannjgörnu verði (alltilagi að vera með einhvern afslátt fyrir stóra kunna)


það er too much að batterí sem kostar 10-15þ ú útlandinu kosti 40þ




Tbot
/dev/null
Póstar: 1476
Skráði sig: Þri 01. Nóv 2011 13:42
Reputation: 304
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Gróft dæmi um álagningu á Íslandi. Rafhlaða í fartölvu.

Pósturaf Tbot » Mið 18. Apr 2012 17:20

AntiTrust skrifaði:
Tbot skrifaði:Ég er ekki svo viss um að stór hluti sé að versla erlendis frá. Það þýðir ekki að miða bara við fólkið sem er hérna á vaktinni, Hvar heldur þú að amma gamla og afi kaupi hlutinn!?

Þetta er þessi balance um hvort þú vilt fá hlutinn strax eða ekki og síðan ábyrgðarmálin. Það er ansi oft meiri fyrirhöfn að sækja ábyrgðir úti.


Ég veit það fyrir víst að Nýherji sér um öll ábyrgðarmál hvað varðar Lenovo vörur, burtséð frá því hvar þær eru keyptar. Tölvan mín er versluð frá Newegg en Nýherji tekur ábyrgð á henni þau 3 ár sem hún er í framleiðsluábyrgð. Get vel ímyndað mér að það séu svipaðir ábyrgðarskilmálar á Dell og HP vörum.

Helduru að amma og afi séu stór hluti viðskiptavina sem eru að versla sér 9cell rafhlöður eða aðra aukahluti?


ÞAð er aldrei að vita, hvert heldur þú að barnabörnin fari til að fá smá aðstoð, þegar einhvað bilar hjá þeim og þröngt í búi hjá foreldrum. :-"