Er að reyna að panta drasl og dót fyrir jólin af Amazon (fátt sem kemur mér í jafn gott jólaskap og að fá stórann kassa af algerlega ónauðsynlegu drasli ). Amazon aftur á móti hafna kortinu mínu (eða segja að bankinn minn hafni kortinu) , sem er leitt. Hefur einhver verslað nýlega af Amazon vandræðalaust (með Mastercard korti) ?
Ég er alveg dauðhræddur um að ég sé að slá eitthvað inn vitlaust, búinn að segja inn shipping og invoice address oft, kreditkortanúmerið mjög oft. Hef notað þetta kort oft áður til að versla á Amazon en þurfti að slá inn nýjar upplýsingar núna...
Vandamál: Versla á Amazon.co.uk
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1794
- Skráði sig: Fim 12. Jún 2003 17:16
- Reputation: 82
- Staðsetning: DK
- Staða: Ótengdur
Re: Vandamál: Versla á Amazon.co.uk
Veit ekki hvort þetta hjálpar þér en ég lendi svipuðu með vísa kortið mitt þegar ég var að reyna að panta af einni síðu, fékk alltaf höfnun og einga ástæðu. Var ekki fyrren ég hringdi í bankann þar sem mér var tjáð afhverju kortinu var hafnað. Vottun vísa
Electronic and Computer Engineer
-
Höfundur - Besserwisser
- Póstar: 3835
- Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
- Reputation: 157
- Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
- Staða: Ótengdur
Re: Vandamál: Versla á Amazon.co.uk
axyne skrifaði:Veit ekki hvort þetta hjálpar þér en ég lendi svipuðu með vísa kortið mitt þegar ég var að reyna að panta af einni síðu, fékk alltaf höfnun og einga ástæðu. Var ekki fyrren ég hringdi í bankann þar sem mér var tjáð afhverju kortinu var hafnað. Vottun vísa
Takk fyrir þetta, Mastercard er með eitthvað svipað skema, Securecode. Það er því miður ekki ástæðan, Amazon styður hvorugt (ég fletti því upp). Þetta er frekar kjánalegt, ég var að versla mér Humble bundle í dag og af Steam útsölunni, bara Amazon sem neita að taka af mér peninga.
Síðast breytt af Daz á Mið 23. Nóv 2011 21:20, breytt samtals 1 sinni.
Re: Vandamál: Versla á Amazon.co.uk
Ég verslaði af amazon.com fyrir tæpum 2 vikum með mastercard korti vandræðalaust.
-
Höfundur - Besserwisser
- Póstar: 3835
- Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
- Reputation: 157
- Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
- Staða: Ótengdur
Re: Vandamál: Versla á Amazon.co.uk
FriðrikH skrifaði:Ég verslaði af amazon.com fyrir tæpum 2 vikum með mastercard korti vandræðalaust.
Ég notaði kortið frá konunni í staðinni (breytti upphaflegu pöntuninni) og það gekk strax í gegn. Hef ekki enþá fengið neinn botn í hvað klikkaði. Veit að kortið virkar hjá Steam líka.
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1771
- Skráði sig: Þri 22. Jan 2008 13:36
- Reputation: 140
- Staða: Ótengdur
Re: Vandamál: Versla á Amazon.co.uk
Ertu búinn að hringja í Borgun og spyrja hversvegna færslunni er hafnað? Þau geta séð það.
PS4
-
- Stjórnandi
- Póstar: 2350
- Skráði sig: Mán 28. Des 2009 04:44
- Reputation: 54
- Staðsetning: Hafnarfjörður
- Staða: Ótengdur
Re: Vandamál: Versla á Amazon.co.uk
Gætir þurft að láta hækka heimildina til útlanda.
Lenti í þessu, það er sjálfkrafa alveg fáránlega lágt hámark útaf gjaldeyrishöftum.
Ég hafði samband við Valitor (Er með fyrirframgreitt Visa frá Arion) og þeir redduðu þessu á nokkrum sekúndum.
Lenti í þessu, það er sjálfkrafa alveg fáránlega lágt hámark útaf gjaldeyrishöftum.
Ég hafði samband við Valitor (Er með fyrirframgreitt Visa frá Arion) og þeir redduðu þessu á nokkrum sekúndum.
-
Höfundur - Besserwisser
- Póstar: 3835
- Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
- Reputation: 157
- Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
- Staða: Ótengdur
Re: Vandamál: Versla á Amazon.co.uk
blitz skrifaði:Ertu búinn að hringja í Borgun og spyrja hversvegna færslunni er hafnað? Þau geta séð það.
Hefði líklega gert það ef þetta væri enþá vandamál. Ég hafði samband við bankann, þeir höfðu samband við Borgun og ég fékk frekar furðulega skilaboð til baka. Í það minnsta sagði það mér frekar lítið, eitthvað varðandi "security code". Mögulega. Kannski.
Klaufi skrifaði:Gætir þurft að láta hækka heimildina til útlanda.
Lenti í þessu, það er sjálfkrafa alveg fáránlega lágt hámark útaf gjaldeyrishöftum.
Ég hafði samband við Valitor (Er með fyrirframgreitt Visa frá Arion) og þeir redduðu þessu á nokkrum sekúndum.
Það gæti verið, en miðað við skilaboðin sem ég fékk frá Borgun þá var þetta vandamál í upplýsingum sem Amazon sendi en ekki heimdilarvandamál. Kortið hjá konunni ætti ekki að hafa hærri heimild, en þar rann þetta í gegn (það er reyndar VISA en ekki Mastercard, þessvegna prófaði ég það nú).