Hraðamyndavél á Hringbraut hjá BSÍ

Allt utan efnis
Skjámynd

GullMoli
Vaktari
Póstar: 2484
Skráði sig: Lau 20. Maí 2006 22:05
Reputation: 235
Staðsetning: NGC 3314.
Staða: Ótengdur

Re: Hraðamyndavél á Hringbraut hjá BSÍ

Pósturaf GullMoli » Sun 03. Apr 2011 02:24

Var einmitt að sjá einn bruuuuuna yfir ljósin til að ná gula :face

Það komu 2 flöss, veit ekki hvort það sé eitt fyrir 100+ sem hann var á og svo eitt fyrir rauða sem hann lenti á.


Main -> || Windows 11 || Ryzen 5600x || Asus ROG B550i || 32GB DDR4 3600 || RTX 3070 || CM 750W SFX || Lian Li TU-150 || 34" IPS 3440x1440 180Hz ||

NAS -> || Truenas Scale || i7 8700 || 64GB DDR4 2666 || 2x 12 TB ||

"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"

Skjámynd

Höfundur
ManiO
Besserwisser
Póstar: 3963
Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
Reputation: 0
Staðsetning: Seltjarnarnes
Staða: Ótengdur

Re: Hraðamyndavél á Hringbraut hjá BSÍ

Pósturaf ManiO » Sun 03. Apr 2011 02:38

GullMoli skrifaði:Var einmitt að sjá einn bruuuuuna yfir ljósin til að ná gula :face

Það komu 2 flöss, veit ekki hvort það sé eitt fyrir 100+ sem hann var á og svo eitt fyrir rauða sem hann lenti á.



Ouch...

En það koma alltaf 2 flöss. Þurfa að taka tvær mælingar til að þetta sé gilt.

Veit samt einhver hvort að tíminn sem líður á milli sé fasti eða hvort að hann sé breytilegur? Ef hann er ekki breytilegur þá grunar mig að 160+ sé nóg til að sleppa í gegn.


"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7497
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1162
Staða: Ótengdur

Re: Hraðamyndavél á Hringbraut hjá BSÍ

Pósturaf rapport » Sun 03. Apr 2011 02:48

biturk skrifaði:en það er heldur ekki ökumanninum að kenna reindar, það er alfarið á ábyrgð þess sem fer í veg fyrir bílinn.
það vill nefnielga svo skemmtilega til að það er banna með lögum að labba yfir götu nema þú sért á gangbraut :roll:


http://www.althingi.is/lagas/nuna/1987050.html

11.gr og 12gr. = Umferðarreglur fyrir gangandi vegfarendur.

11. gr. Gangandi vegfarandi skal nota gangstétt, gangstíg eða þann hluta vegar, sem liggur utan akbrautar (vegaröxl). Ef ekki er gangstétt, gangstígur eða vegaröxl meðfram vegi má nota akbraut. Skal þá að jafnaði gengið við vinstri vegarbrún í gönguátt og ekki fleiri en tveir samhliða. Ef gangandi vegfarandi leiðir reiðhjól eða létt bifhjól skal hann ganga við hægri vegarbrún. Gangandi vegfarandi má þó nota gagnstæða vegarbrún, ef hann væri annars í hættu eða sérstakar aðstæður mæla með því.

-Á gangstétt, gangstíg eða vegaröxl má gangandi vegfarandi hvorki leiða reiðhjól eða létt bifhjól né flytja með sér fyrirferðarmikla hluti, ef það er til verulegra óþæginda fyrir aðra.

12. gr. Gangandi vegfarandi, sem ætlar yfir akbraut, skal hafa sérstaka aðgát gagnvart ökutækjum, sem nálgast. Hann skal fara yfir akbrautina án óþarfrar tafar.

-Þegar farið er yfir akbraut skal nota gangbraut, ef hún er nálæg. Sama á við um göng og brú fyrir gangandi vegfarendur. Að öðrum kosti skal ganga þvert yfir akbraut og að jafnaði sem næst vegamótum.

-Þar sem umferð er stjórnað af lögreglu eða með umferðarljósum má einungis ganga yfir akbraut þegar grænt ljós er fyrir umferð gangandi vegfarenda eða lögreglan gefur til kynna með merkjagjöf að umferð gangandi sé heimil.

26.gr = Sérstakar skyldur gagnvart gangandi vegfarendum.

26. gr. Ökumaður, sem mætir eða ekur fram hjá gangandi vegfaranda, skal gefa honum tíma til að víkja til hliðar og veita honum nægilegt rými á veginum.

-Ökumaður, sem ætlar að aka yfir gangstétt eða gangstíg eða að aka út á akbraut frá lóð eða svæði við veginn, skal bíða meðan gangandi vegfarandi fer fram hjá. Sama á við um akstur inn á eða yfir göngugötu.

-Við akstur á göngugötu skal ökumaður hafa sérstaka aðgát og tillitssemi gagnvart gangandi vegfaranda.

-Við beygju á vegamótum má ökumaður ekki valda gangandi vegfaranda, sem fer yfir akbraut þá, sem beygt er inn á, hættu eða óþægindum. Sama á við um akstur yfir akbraut eða af henni, þar sem ekki eru vegamót.

-Við gangbraut, þar sem umferð er stjórnað af lögreglu eða með umferðarljósum, skal ökumaður bíða eftir gangandi vegfaranda, sem er á gangbrautinni á leið yfir akbrautina, þótt umferð sé að öðru leyti heimil í akstursstefnu ökumannsins. Ef gangbrautin er við vegamót og ökumaður kemur að henni úr beygju á vegamótunum, skal hann aka hægt og bíða meðan gangandi vegfarandi, sem er á gangbrautinni eða á leið út á hana, kemst fram hjá.

-Ökumaður, sem nálgast gangbraut, þar sem umferð er ekki stjórnað af lögreglu eða með umferðarljósum, skal aka þannig að ekki valdi gangandi vegfaranda á gangbrautinni eða á leið út á hana hættu eða óþægindum. Skal ökumaður nema staðar, ef nauðsynlegt er, til að veita hinum gangandi færi á að komast yfir akbrautina.

-Ökumaður skal forðast, svo sem unnt er, að stöðva ökutæki á gangbraut.



Skjámynd

Klaufi
Stjórnandi
Póstar: 2350
Skráði sig: Mán 28. Des 2009 04:44
Reputation: 54
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Hraðamyndavél á Hringbraut hjá BSÍ

Pósturaf Klaufi » Sun 03. Apr 2011 07:16

ManiO skrifaði:
GullMoli skrifaði:Var einmitt að sjá einn bruuuuuna yfir ljósin til að ná gula :face

Það komu 2 flöss, veit ekki hvort það sé eitt fyrir 100+ sem hann var á og svo eitt fyrir rauða sem hann lenti á.



Ouch...

En það koma alltaf 2 flöss. Þurfa að taka tvær mælingar til að þetta sé gilt.

Veit samt einhver hvort að tíminn sem líður á milli sé fasti eða hvort að hann sé breytilegur? Ef hann er ekki breytilegur þá grunar mig að 160+ sé nóg til að sleppa í gegn.



Var einmitt að horfa á fyrstu seríu af top gear í gær..
Þar kom fram að allt yfir 170 Mílum fari framhjá vélinni, en þá að hún taki enga mynd.

Gæti samt passað hjá þér til þess að þeir nái bara einni mælingu, er einhver hérna nógu vitlaus til að bjóða sig fram sem tilraunadýr?


Mynd


Blackened
vélbúnaðarpervert
Póstar: 956
Skráði sig: Mið 29. Sep 2004 17:36
Reputation: 14
Staðsetning: Babýlon norðursins
Staða: Ótengdur

Re: Hraðamyndavél á Hringbraut hjá BSÍ

Pósturaf Blackened » Sun 03. Apr 2011 08:05

þetta er rétt rúmlega 270.. það er ekki stórmál að ná því á almennilegu hjóli.. en það er afturámóti spurning hvort að þessar myndavélar taki hjólin yfir höfuð.. þetta er alveg spurning um að reyna einn daginn ;)



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16490
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2105
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hraðamyndavél á Hringbraut hjá BSÍ

Pósturaf GuðjónR » Sun 03. Apr 2011 08:35

Blackened skrifaði:þetta er rétt rúmlega 270.. það er ekki stórmál að ná því á almennilegu hjóli.. en það er afturámóti spurning hvort að þessar myndavélar taki hjólin yfir höfuð.. þetta er alveg spurning um að reyna einn daginn ;)


össss...neinei ekkert reyna það neitt... :wtf



Skjámynd

bulldog
Besserwisser
Póstar: 3439
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 18:33
Reputation: 0
Staðsetning: 127.0.0.1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hraðamyndavél á Hringbraut hjá BSÍ

Pósturaf bulldog » Sun 03. Apr 2011 11:50

það yrði ansi feit sekt ef það myndi nást á myndavélina :baby



Skjámynd

Höfundur
ManiO
Besserwisser
Póstar: 3963
Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
Reputation: 0
Staðsetning: Seltjarnarnes
Staða: Ótengdur

Re: Hraðamyndavél á Hringbraut hjá BSÍ

Pósturaf ManiO » Sun 03. Apr 2011 12:44

klaufi skrifaði:
ManiO skrifaði:
GullMoli skrifaði:Var einmitt að sjá einn bruuuuuna yfir ljósin til að ná gula :face

Það komu 2 flöss, veit ekki hvort það sé eitt fyrir 100+ sem hann var á og svo eitt fyrir rauða sem hann lenti á.



Ouch...

En það koma alltaf 2 flöss. Þurfa að taka tvær mælingar til að þetta sé gilt.

Veit samt einhver hvort að tíminn sem líður á milli sé fasti eða hvort að hann sé breytilegur? Ef hann er ekki breytilegur þá grunar mig að 160+ sé nóg til að sleppa í gegn.



Var einmitt að horfa á fyrstu seríu af top gear í gær..
Þar kom fram að allt yfir 170 Mílum fari framhjá vélinni, en þá að hún taki enga mynd.

Gæti samt passað hjá þér til þess að þeir nái bara einni mælingu, er einhver hérna nógu vitlaus til að bjóða sig fram sem tilraunadýr?



Gæti náttúrulega verið öðruvísi myndavél, ríkið er jú alltaf að "reyna" að "spara" ;) En það hvarflar ekki að mér að prófa þetta.


"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,

wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."

Skjámynd

beggi90
Gúrú
Póstar: 529
Skráði sig: Mið 15. Okt 2008 21:02
Reputation: 34
Staða: Ótengdur

Re: Hraðamyndavél á Hringbraut hjá BSÍ

Pósturaf beggi90 » Sun 03. Apr 2011 13:58

rapport skrifaði:Ekki sammála, íslensk vegagerð er rusl m.v. erlendis. Kom svo sannarlega í ljós þegar eitthvað evrópubatterý gerði úttekt á vegunum hérna... t.d. að hallinn á beygjunum í kömbunum væri of lítill og þá kom í ljós að einhver hjá vegagerðinni hafði bara ákveðið að spara smá á kostnað öryggis án þess að spurja kóng og prest


Fer eftir hvað "erlendis" er hjá þér...
Er búinn að vera í Rúmeníu núna í nokkra mánuði og íslensk vegagerð er dásemleg miðað við vegina hér, oft holur í vegum borgarinnar ,slæmar merkingar...
Komst líka að því það þykir einstaklega hallærislegt hérna að nota bílbelti afturí.



Skjámynd

jagermeister
spjallið.is
Póstar: 488
Skráði sig: Mán 16. Mar 2009 16:25
Reputation: 5
Staða: Ótengdur

Re: Hraðamyndavél á Hringbraut hjá BSÍ

Pósturaf jagermeister » Sun 03. Apr 2011 14:01

Blackened skrifaði:þetta er rétt rúmlega 270.. það er ekki stórmál að ná því á almennilegu hjóli.. en það er afturámóti spurning hvort að þessar myndavélar taki hjólin yfir höfuð.. þetta er alveg spurning um að reyna einn daginn ;)


Ég efast það að þessar myndavélar taki hjólin, það er ekki númeraplata framaná eða er þetta kannski vitleysa í mér?



Skjámynd

Höfundur
ManiO
Besserwisser
Póstar: 3963
Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
Reputation: 0
Staðsetning: Seltjarnarnes
Staða: Ótengdur

Re: Hraðamyndavél á Hringbraut hjá BSÍ

Pósturaf ManiO » Sun 03. Apr 2011 14:02

beggi90 skrifaði:
rapport skrifaði:Ekki sammála, íslensk vegagerð er rusl m.v. erlendis. Kom svo sannarlega í ljós þegar eitthvað evrópubatterý gerði úttekt á vegunum hérna... t.d. að hallinn á beygjunum í kömbunum væri of lítill og þá kom í ljós að einhver hjá vegagerðinni hafði bara ákveðið að spara smá á kostnað öryggis án þess að spurja kóng og prest


Fer eftir hvað "erlendis" er hjá þér...
Er búinn að vera í Rúmeníu núna í nokkra mánuði og íslensk vegagerð er dásemleg miðað við vegina hér, oft holur í vegum borgarinnar ,slæmar merkingar...
Komst líka að því það þykir einstaklega hallærislegt hérna að nota bílbelti afturí.



Sjitt, best að halda kúlinu. Öryggi er ofmetið :lol:


"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,

wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."

Skjámynd

beggi90
Gúrú
Póstar: 529
Skráði sig: Mið 15. Okt 2008 21:02
Reputation: 34
Staða: Ótengdur

Re: Hraðamyndavél á Hringbraut hjá BSÍ

Pósturaf beggi90 » Sun 03. Apr 2011 15:00

ManiO skrifaði:Sjitt, best að halda kúlinu. Öryggi er ofmetið :lol:


Haha, ég komst að þessu þegar ég var farþegi í bíl og bað eitthvern um að færa sig aðeins til að ég gæti spennt beltið. Allir horfðu á mig eins og ég væri fífl.
Svo fékk ég útskýringu að þetta væri þeirra einstaklega heimskulega aðferð við að halda kúlinu.



Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3760
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hraðamyndavél á Hringbraut hjá BSÍ

Pósturaf Pandemic » Sun 03. Apr 2011 15:08

ManiO skrifaði:
GullMoli skrifaði:Var einmitt að sjá einn bruuuuuna yfir ljósin til að ná gula :face

Það komu 2 flöss, veit ekki hvort það sé eitt fyrir 100+ sem hann var á og svo eitt fyrir rauða sem hann lenti á.



Ouch...

En það koma alltaf 2 flöss. Þurfa að taka tvær mælingar til að þetta sé gilt.

Veit samt einhver hvort að tíminn sem líður á milli sé fasti eða hvort að hann sé breytilegur? Ef hann er ekki breytilegur þá grunar mig að 160+ sé nóg til að sleppa í gegn.


Gæti ekki verið að myndavélin sé að gera einhverskonar flash sync?



Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 474
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hraðamyndavél á Hringbraut hjá BSÍ

Pósturaf urban » Sun 03. Apr 2011 15:25

Blackened skrifaði:þetta er rétt rúmlega 270.. það er ekki stórmál að ná því á almennilegu hjóli.. en það er afturámóti spurning hvort að þessar myndavélar taki hjólin yfir höfuð.. þetta er alveg spurning um að reyna einn daginn ;)



front facing cameras....
ekkert númer framaná hjólum.

veit um einn aðila sem að tók sig til og "rúntaði" 10 sinnum 1 nótt milli selfoss og hveragerðis á 150 - 200

skammast sín fyrir það núna, en þótti það voðalega sniðugt á sínum tíma


Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

Skjámynd

krukkur_dog
has spoken...
Póstar: 164
Skráði sig: Lau 08. Nóv 2008 22:53
Reputation: 4
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hraðamyndavél á Hringbraut hjá BSÍ

Pósturaf krukkur_dog » Sun 03. Apr 2011 15:59

helv. að sjá þetta thred ekki fyrr
mynd af mér á svona 71 í gær :mad


AMD4 Ryzen 7 5800x - M.2 Samsung SSD 980 Gen4 - Corsair 4x8GB DDR4 3200 - Asus TUF B550 - XFX RX Radion 7900 XT 20GB - Fractal Meshify 2 - Corsair RM850x 850W modular - HP 27xq 144Hz

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16490
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2105
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hraðamyndavél á Hringbraut hjá BSÍ

Pósturaf GuðjónR » Sun 03. Apr 2011 16:00

FriðrikH skrifaði:Þannig að allir eiga að aðlaga sig að því að gera umferðina sem þægilegasta fyrir ökumenn?

Málið er nákvæmlega það að slysin gerast, og þegar þau gerast, þá munar miklu að bíll sé á lægri hraða, það getur bjargað mannslífum. Ég gruna það einhvernveginn að bitur sé tiltölulega nýkominn með bílprófið og finnist svaka töff að keyra hratt. MEsi vandinn í umferðinni er nefnilega þegar bílstjórar haga sér eins og þeir séu að leika sér, keyra hratt og glannalega.
Hverjum er slysið að kenna þegar einhver vitleysingur er að keyra á 140 á malarvegi og keyrir á?

Biturk, það sem ég sagði um unglinga getur allt eins átt við um börn, hvort sem það er úti á landi eða í þéttbýli. Eigum við kannski að banna 10 ára börnum að vera úti til að koma alveg í veg fyrir að þau geti þvælst fyrir töffurum sem þurfa að keyra 20km hraðar en allir hinir í umferðinni.

Mér finnst löngu kominn tími til að breyta hugsunarhættinum hérna í umferðinni, það er bara ekki svo mikill tímasparnaður í því að keyra 10-20 km hraðar. Eigum við alltaf að vera að fórna öryggi á kostnað nokkurra mínútna.

Þetta er alveg rétt sem GuðjónR sagði, íslendingar eru alveg með eindæmum ótillitssamir í umferðinni og m.a. þess vegna finnst mér absúrd að fara að hækka hámarkshraðann, hvort sem það er innan eða utanbæjar. Gleymum því ekki að flest dauðaslys gerast úti á landi og oftar en ekki vegna hraðaksturs.

Annnars er ég reyndar líka hlynntur því að hafa lágmarkshraða, enda eru ökumenn sem keyra mikið hægar en aðrir í umferðinni stórhættulegir.


Ég er sammála því sem þú segir nema þetta með hraðann, þó að hámarskraði við bestu aðstæður á bestu vegum landsins (2+2 vegir) yrði hækkað upp í 120 og hart tekið á þeim sem fara yfir þá er það ekki að skapa hættur.
Það er miklu frekar glæfraakstur, ég hef oft þurft að negla niður á Vesturlandsveginum þar sem einhver kálhaus er að taka fram úr bílalest, þar er 90km réttlætanlegur hámarkshraði en svo er eitt og eitt fílf sem keyrir þar á 50-60 og þá koma hin fíflin og fara framúr með tilheyrandi hættu fyrir gagnstæða umferð.



Skjámynd

krukkur_dog
has spoken...
Póstar: 164
Skráði sig: Lau 08. Nóv 2008 22:53
Reputation: 4
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hraðamyndavél á Hringbraut hjá BSÍ

Pósturaf krukkur_dog » Sun 03. Apr 2011 16:07

rapport skrifaði:
biturk skrifaði:
schaferman skrifaði:Þetta er HÁMARKSHRAÐI,, þessvegna á fólk að keyra UNDIR þeim hraða


hámarkshraði á íslandi er líka rosalega lár miðað við aðstæður í flestum tilvikum, til dæmis ætti að vera utan þéttbýlis 120 öllu jafna, bílar í dag eru betur útbúnir og minna mál að stjórna þeim á þessum "hraða" enda keira lang flestir á 100-120 utan bæjar


fynnst svo kjánalegt að uppfæra ekki svona lagað eftir nýjum tímum og hvað þá þegar meirihlutinn keirir á þessum hraða.....þá er þetta orðið miklu meira nýr skattur heldur en sekt #-o


Ekki sammála, íslensk vegagerð er rusl m.v. erlendis. Kom svo sannarlega í ljós þegar eitthvað evrópubatterý gerði úttekt á vegunum hérna... t.d. að hallinn á beygjunum í kömbunum væri of lítill og þá kom í ljós að einhver hjá vegagerðinni hafði bara ákveðið að spara smá á kostnað öryggis án þess að spurja kóng og prest

Á Sikiley stelur mafian bara heilu hraðbrautunum...


AMD4 Ryzen 7 5800x - M.2 Samsung SSD 980 Gen4 - Corsair 4x8GB DDR4 3200 - Asus TUF B550 - XFX RX Radion 7900 XT 20GB - Fractal Meshify 2 - Corsair RM850x 850W modular - HP 27xq 144Hz

Skjámynd

natti
Tölvutryllir
Póstar: 663
Skráði sig: Fös 10. Jan 2003 09:59
Reputation: 61
Staðsetning: 107
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hraðamyndavél á Hringbraut hjá BSÍ

Pósturaf natti » Sun 03. Apr 2011 21:19

GuðjónR skrifaði:
FriðrikH skrifaði:Þetta er alveg rétt sem GuðjónR sagði, íslendingar eru alveg með eindæmum ótillitssamir í umferðinni og m.a. þess vegna finnst mér absúrd að fara að hækka hámarkshraðann, hvort sem það er innan eða utanbæjar. Gleymum því ekki að flest dauðaslys gerast úti á landi og oftar en ekki vegna hraðaksturs.

Ég er sammála því sem þú segir nema þetta með hraðann, þó að hámarskraði við bestu aðstæður á bestu vegum landsins (2+2 vegir) yrði hækkað upp í 120 og hart tekið á þeim sem fara yfir þá er það ekki að skapa hættur.
Það er miklu frekar glæfraakstur, ég hef oft þurft að negla niður á Vesturlandsveginum þar sem einhver kálhaus er að taka fram úr bílalest, þar er 90km réttlætanlegur hámarkshraði en svo er eitt og eitt fílf sem keyrir þar á 50-60 og þá koma hin fíflin og fara framúr með tilheyrandi hættu fyrir gagnstæða umferð.


Eins og áður hefur verið bent á, þá þó að bílar séu orðnir betri, þá er íslenskt vegakerfi það ekki.
Í rauninni er það meira í þá áttina, að skv þessum stöðlum varðandi gæði vega, þá er hámarkshraði á mörgum stöðum á íslandi of hár fyrir veginn.
Viðhald á vegum er því miður bara allt of lélegt.
Það er nú líka ekki langt síðan að hringvegurinn var malbikaður... eða hvalfjörðurinn.

That being said, þá tel ég að hugarfarið að vera "á móti hærri hámarkshraða" ekki rétt. Hámarkshraði á að taka mið af tegund og gæði vega og aðstæðum. Það sem vantar er bara að endurskoða hámarkshraðann á þeim vegum sem eru orðnir betri.
Það eru dæmi um það erlendis að hækkun hámarkshraða hefur dregið úr slysum.

En svona til að vera on-topic... þá er þessi myndavél búin að vera þarna lengi.
Veit ekki hvort/hvernig þessum hraðamyndavélum er róterað, en myndavélakassinn er amk búinn að vera lengi, og ég náði mér í hraðasekt þarna síðasta sumar, var rétt yfir hámarkshraða.
En svo er þessi myndavél hinsvegar minnsta, ef þú ert að keyra þarna í átt að hringtorginu, þá er lögreglan oft að mæla þarna í fyrstu götunni sem hægt er að beygja til hægri. Oftar en ekki mótorhjólalögreglur sem eru búnar að parkera hjólunum og standa á gangstéttinni með byssuna. Og labba svo út á götu með rauðu handluktina sína til að vefa vegfarendum til sín til sektar. Ég sé oft bílstjóra hægja á sér fyrir ljósin, gefa svo í eftir ljósin, og ná og eru svo stoppaðir nokkuð hundruð metrum seinna. (Ég keyri þarna daglega)


Mkay.

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16490
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2105
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hraðamyndavél á Hringbraut hjá BSÍ

Pósturaf GuðjónR » Sun 03. Apr 2011 21:32

natti skrifaði:
That being said, þá tel ég að hugarfarið að vera "á móti hærri hámarkshraða" ekki rétt. Hámarkshraði á að taka mið af tegund og gæði vega og aðstæðum. Það sem vantar er bara að endurskoða hámarkshraðann á þeim vegum sem eru orðnir betri.
Það eru dæmi um það erlendis að hækkun hámarkshraða hefur dregið úr slysum.

Vel orðað! Nákvæmlega það sem ég var að böglast við að reyna að segja :)

natti skrifaði: Veit ekki hvort/hvernig þessum hraðamyndavélum er róterað

Þeim er róterað, á tímabili var talað um 6 svona kassa og þá var víst bara ein vél sem róteraði á milli þeirra.
Og þú gast aldrei vitað í hvaða kassa hún var, ég veit ekki hver staðan á þessu er í dag, líklega komnar fleiri vélar...og kassar :)



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7497
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1162
Staða: Ótengdur

Re: Hraðamyndavél á Hringbraut hjá BSÍ

Pósturaf rapport » Mið 15. Jún 2011 18:36

Var að fá 3.750 kr. sekt fyrir að keyra á 41km hraða í Suðurgötunni, (sektaður fyrir að vera á 38km hraða því vikmörkin eru dregin frá, 3km/klst)

Ég s.s. beygði í suður eftir að hafa keyrt inn götuna hjá Iðnó og ráðhúsinu og keyrði frekar rólega, greyjin sem keyrðu á undan mér stungu mig af og hljóta að hafa lent í einhverju dýru.

Ég rétt gaf í svo að bíllinn mundi skipta sér niður(sjálfskiptur) svo ég gæti krúsað upp brekkuna án þess að vera að kæfa bílinn.

Ég skil þetta, en finnst þetta eins og að vera mæla í Njarðargötunni, fólk er ekki að fara keyra upp brekkur með helings af þvergötum á 30 km hraða...


ég ég ég...