Umræðan "Að kála fartölvu..."

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
lukkuláki
Besserwisser
Póstar: 3089
Skráði sig: Fös 30. Nóv 2007 19:06
Reputation: 65
Staða: Ótengdur

Umræðan "Að kála fartölvu..."

Pósturaf lukkuláki » Þri 29. Mar 2011 09:51

Hvaða stjórnandi eyddi umræðunni Að kála fartölvu
og hvers vegna ?
Ég vil fá útskýringar á þessu takk fyrir stjórnendur.

If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.

Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2850
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 217
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Ótengdur

Re: Umræðan "Að kála fartölvu..."

Pósturaf CendenZ » Þri 29. Mar 2011 10:41

Ég kom ekki nálægt þessu en þetta er þráður með amk 3 brotum á reglunum okkar, inniheldur vafasamt efni, þráðahöfundurinn breytti svo innihaldi upphafsinnleggjar og eitthvað fleira leiðindastöff.

En svo nafnbirtir þú hann á þræðinum, það er totally not cool skiluru :thumbsd

Ef einhverjum stjórnanda fannst ástæða til að læsa og eyða þessum þræði þá styð ég hann. Þessi þráður hefði alveg getað verið innan rammana, en hann var það ekki.

Godriel
spjallið.is
Póstar: 400
Skráði sig: Mið 03. Jún 2009 22:16
Reputation: 0
Staðsetning: Reyðarfjörður
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Umræðan "Að kála fartölvu..."

Pósturaf Godriel » Þri 29. Mar 2011 11:22

CendenZ skrifaði:En svo nafnbirtir þú hann á þræðinum, það er totally not cool skiluru :thumbsd

x2

Godriel has spoken

Skjámynd

Höfundur
lukkuláki
Besserwisser
Póstar: 3089
Skráði sig: Fös 30. Nóv 2007 19:06
Reputation: 65
Staða: Ótengdur

Re: Umræðan "Að kála fartölvu..."

Pósturaf lukkuláki » Þri 29. Mar 2011 12:00

CendenZ skrifaði:Ég kom ekki nálægt þessu en þetta er þráður með amk 3 brotum á reglunum okkar, inniheldur vafasamt efni, þráðahöfundurinn breytti svo innihaldi upphafsinnleggjar og eitthvað fleira leiðindastöff.

En svo nafnbirtir þú hann á þræðinum, það er totally not cool skiluru :thumbsd

Ef einhverjum stjórnanda fannst ástæða til að læsa og eyða þessum þræði þá styð ég hann. Þessi þráður hefði alveg getað verið innan rammana, en hann var það ekki.

Nafnið hans var hverjum manni aðgengilegt þar sem hann gaf upp símanúmerið sitt á öðrum þræði og maðurinn er á ja.is
Mér finnst óeðlilegt að þræðinun hafi verið eytt !
það hefði mátt læsa honum jafnvel taka út nafnið hans en að fjarlægja hann er ekkert annað en gróf ritskoðun eins og á sér stað í kommúnistaríkjum. :pjuke :thumbsd

If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.

Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2850
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 217
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Ótengdur

Re: Umræðan "Að kála fartölvu..."

Pósturaf CendenZ » Þri 29. Mar 2011 12:46

lukkuláki skrifaði:
CendenZ skrifaði:Ég kom ekki nálægt þessu en þetta er þráður með amk 3 brotum á reglunum okkar, inniheldur vafasamt efni, þráðahöfundurinn breytti svo innihaldi upphafsinnleggjar og eitthvað fleira leiðindastöff.

En svo nafnbirtir þú hann á þræðinum, það er totally not cool skiluru :thumbsd

Ef einhverjum stjórnanda fannst ástæða til að læsa og eyða þessum þræði þá styð ég hann. Þessi þráður hefði alveg getað verið innan rammana, en hann var það ekki.

Nafnið hans var hverjum manni aðgengilegt þar sem hann gaf upp símanúmerið sitt á öðrum þræði og maðurinn er á ja.is
Mér finnst óeðlilegt að þræðinun hafi verið eytt !
það hefði mátt læsa honum jafnvel taka út nafnið hans en að fjarlægja hann er ekkert annað en gróf ritskoðun eins og á sér stað í kommúnistaríkjum. :pjuke :thumbsd

Það voru engar skoðanir eða ályktanir sem komu til tals, heldur bara ólöllet shit og þú veist alveg að nafnbirtingin var ttly not cool. Þetta var ekki gróf ritskoðun.

Að sama skapi er bannað að tala óbeint um warez, gróft klám, barnaníð etc. Jafnvel bönnum við hotlinkin á einhvern húmor eða myndir, þetta er ekki 9gag, 4chan eða b2 skiluru. Það hlýtur þá að vera agalega mikil ritskoðun að þínu mati.

Þú veist alveg að þetta var algjörlega útí hött hjá ykkur, auk þess hafa þræðir verið eyddir af minni tilefni.
Tek það fram að þráðurinn var ekki eyddur út af því sem þú sagðir, heldur innihaldi hans.

Prags9
Nörd
Póstar: 136
Skráði sig: Fim 09. Ágú 2007 18:58
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Umræðan "Að kála fartölvu..."

Pósturaf Prags9 » Þri 29. Mar 2011 13:20

Það eina sem skiptir máli er að þessum gaur leið örruglega mjög kjánalega. Menn ættu að vita betur en að reyna tryggingarsvik, og hvað þá um að leita sér ráða til þess hérna.

coldcut
Vaktari
Póstar: 2192
Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 02:25
Reputation: 0
Staðsetning: /dev/random
Staða: Ótengdur

Re: Umræðan "Að kála fartölvu..."

Pósturaf coldcut » Þri 29. Mar 2011 15:14

Ég "eyddi" þessum þræði út og bannaði notandann í viku vegna hans innleggs. Kemur þér og þínu innleggi ekkert við Lukkuláki, samt alveg óþarfi að vera að nafngreina hann, senda bara nafnið á tryggingafélögin.

Skjámynd

BjarniTS
Vaktari
Póstar: 2266
Skráði sig: Fim 06. Ágú 2009 01:51
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Umræðan "Að kála fartölvu..."

Pósturaf BjarniTS » Þri 29. Mar 2011 15:16

Er séns að fá að vita hvað um var að vera ?

Einhver sem var að byðja um ráð hvernig maður gæti skemmt fartölvu og fengið það svo út úr tryggingum ?

Nörd

Skjámynd

GullMoli
Vaktari
Póstar: 2484
Skráði sig: Lau 20. Maí 2006 22:05
Reputation: 235
Staðsetning: NGC 3314.
Staða: Ótengdur

Re: Umræðan "Að kála fartölvu..."

Pósturaf GullMoli » Þri 29. Mar 2011 15:17

BjarniTS skrifaði:Er séns að fá að vita hvað um var að vera ?

Einhver sem var að byðja um ráð hvernig maður gæti skemmt fartölvu og fengið það svo út úr tryggingum ?

Gæjinn var víst í basli með ömurlega fartölvu og fyrirtækið sem hann verslaði tölvuna af var með endalaust vesen (samkvæmt honum) og honum langaði að eyðileggja tölvuna þannig að tryggingarnar myndu dæma hana ónýta (mætti samt ekki líta út eins og það hafi verið viljandi gert auðvitað).

Main -> || Windows 11 || Ryzen 5600x || Asus ROG B550i || 32GB DDR4 3600 || RTX 3070 || CM 750W SFX || Lian Li TU-150 || 34" IPS 3440x1440 180Hz ||

NAS -> || Truenas Scale || i7 8700 || 64GB DDR4 2666 || 2x 12 TB ||

"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"

Skjámynd

BjarniTS
Vaktari
Póstar: 2266
Skráði sig: Fim 06. Ágú 2009 01:51
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Umræðan "Að kála fartölvu..."

Pósturaf BjarniTS » Þri 29. Mar 2011 15:24

Guð minn góður , ég er ekki hissa á því að þessi maður hafi átt í basli með ábyrgðarmál , örugglega bara eitt af mörgu sem hann hefur átt í basli með í lífinu.

Nörd

Frussi
Tölvutryllir
Póstar: 625
Skráði sig: Lau 26. Ágú 2006 19:45
Reputation: 130
Staða: Tengdur

Re: Umræðan "Að kála fartölvu..."

Pósturaf Frussi » Þri 29. Mar 2011 15:39

Ég hef nú lent í því að láta mig dreyma um að síminn minn eða iPodinn hafi skemmst eða verið stolið svo ég gæti fengið nýjan. Ótrúlegt hvað er hægt að fara oft með hlut í viðgerð sem kemur "í lagi" til baka en er svo aftur kominn með sömu bilunina nokkrum dögum seinna ](*,) Ég hef samt aldrei actually reynt að skemma hlutina mína til að fá nýja #-o

Ryzen 9 5900x // X470 Aorus Gaming // RTX4080 Super // 48 GB 3200MHz // 32" G5 165hz

Skjámynd

KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4273
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: Umræðan "Að kála fartölvu..."

Pósturaf KermitTheFrog » Þri 29. Mar 2011 15:48

Frussi skrifaði:Ég hef nú lent í því að láta mig dreyma um að síminn minn eða iPodinn hafi skemmst eða verið stolið svo ég gæti fengið nýjan. Ótrúlegt hvað er hægt að fara oft með hlut í viðgerð sem kemur "í lagi" til baka en er svo aftur kominn með sömu bilunina nokkrum dögum seinna ](*,) Ég hef samt aldrei actually reynt að skemma hlutina mína til að fá nýja #-o

Strákur sem ég þekki setti á svið barsmíðar þar sem hann lét líta út fyrir að hópur drengja hefði lúskrað á sér og stolið símanum sínum til að fá nýjan.

En ég er sammála því að það eigi ekki að eyða umræðum bara sísona. Í mesta lagi læsa þeim fyrst.

zdndz
Gúrú
Póstar: 550
Skráði sig: Sun 13. Apr 2008 14:47
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Umræðan "Að kála fartölvu..."

Pósturaf zdndz » Þri 29. Mar 2011 16:32

9. gr.

Notendum ber að fara eftir lögum þegar þeir skrifa bréf.
Þetta er gert til að tryggja langlífi vaktarinnar. Þessi regla er ekki bara
formsatriði eins og sumstaðar, henni er fylgt eftir eins og öðrum reglum.

Það má segja, að hér hafi verið stjórnandi að dæma um það að ekki var verið að fara eftir lögum, er það þá ekki réttmætt að nafngreina manninn miðað við íslenskar dómshefðir? Þar sem jú stjórnendur setja sig í þá stöðu að vera dómarar hérna, sem er jú fullkomlega eðlilegt.
Ég er samt alveg sammála því að það var pínu ljótt en í staðinn hefði frekar átt að læsa bara þræðinum og þá kannski eyða innlegginu með nafninu hans.

Intel E5200 @ 2.5 GHz | Radeon HD 4850 | Corsair 2x2 GB RAM 1066 MHz | 480 W aflgjafi | Móðurborð Micro-Star P43 NEO | 500GB Samsung | Windows 7 / Ubuntu
Ruddaleg túpuskjátölva!

Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3835
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 157
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Umræðan "Að kála fartölvu..."

Pósturaf Daz » Þri 29. Mar 2011 16:38

zdndz skrifaði:
Það má segja, að hér hafi verið stjórnandi að dæma um það að ekki var verið að fara eftir lögum, er það þá ekki réttmætt að nafngreina manninn miðað við íslenskar dómshefðir? Þar sem jú stjórnendur setja sig í þá stöðu að vera dómarar hérna, sem er jú fullkomlega eðlilegt.
Ég er samt alveg sammála því að það var pínu ljótt en í staðinn hefði frekar átt að læsa bara þræðinum og þá kannski eyða innlegginu með nafninu hans.

Það er ekki málfrelsi á vaktinni, stjórnendum er frjálst að gera það sem þeim sýnist (sem og notendum líklega).

Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3606
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Umræðan "Að kála fartölvu..."

Pósturaf dori » Þri 29. Mar 2011 16:39

zdndz skrifaði:
9. gr.

Notendum ber að fara eftir lögum þegar þeir skrifa bréf.
Þetta er gert til að tryggja langlífi vaktarinnar. Þessi regla er ekki bara
formsatriði eins og sumstaðar, henni er fylgt eftir eins og öðrum reglum.

Það má segja, að hér hafi verið stjórnandi að dæma um það að ekki var verið að fara eftir lögum, er það þá ekki réttmætt að nafngreina manninn miðað við íslenskar dómshefðir? Þar sem jú stjórnendur setja sig í þá stöðu að vera dómarar hérna, sem er jú fullkomlega eðlilegt.
Ég er samt alveg sammála því að það var pínu ljótt en í staðinn hefði frekar átt að læsa bara þræðinum og þá kannski eyða innlegginu með nafninu hans.

Það var ekki verið að loka þræðinum af því að gæinn var nafngreindur heldur af því að hann var að biðja um ráðleggingar varðandi tryggingarsvik. Það er ekkert rosalega erfitt að sjá hvernig það er ekki í anda þessa spjallborðs.

zdndz
Gúrú
Póstar: 550
Skráði sig: Sun 13. Apr 2008 14:47
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Umræðan "Að kála fartölvu..."

Pósturaf zdndz » Þri 29. Mar 2011 16:48

Daz skrifaði:
zdndz skrifaði:
Það má segja, að hér hafi verið stjórnandi að dæma um það að ekki var verið að fara eftir lögum, er það þá ekki réttmætt að nafngreina manninn miðað við íslenskar dómshefðir? Þar sem jú stjórnendur setja sig í þá stöðu að vera dómarar hérna, sem er jú fullkomlega eðlilegt.
Ég er samt alveg sammála því að það var pínu ljótt en í staðinn hefði frekar átt að læsa bara þræðinum og þá kannski eyða innlegginu með nafninu hans.

Það er ekki málfrelsi á vaktinni, stjórnendum er frjálst að gera það sem þeim sýnist (sem og notendum líklega).

@dori: Geri mér fullkomlega grein fyrir því.

Ef relgur sem notandi hefur samþykkt að fylgja eða lög eru brotin er auðvitað réttmætt að bregðast við því, hægt er að deila um með hvaða hætti það skal gert. Stjórnendum er ekki frjálst að gera hvað sem þeim sýnist. En núna langar mér að fá svar frá GuðjónR:
Ríkir eða ríkir ekki málfrelsi á spjallsíðunni vaktin.is ??

Intel E5200 @ 2.5 GHz | Radeon HD 4850 | Corsair 2x2 GB RAM 1066 MHz | 480 W aflgjafi | Móðurborð Micro-Star P43 NEO | 500GB Samsung | Windows 7 / Ubuntu
Ruddaleg túpuskjátölva!

Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3606
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Umræðan "Að kála fartölvu..."

Pósturaf dori » Þri 29. Mar 2011 16:52

zdndz skrifaði:
Daz skrifaði:
zdndz skrifaði:
Það má segja, að hér hafi verið stjórnandi að dæma um það að ekki var verið að fara eftir lögum, er það þá ekki réttmætt að nafngreina manninn miðað við íslenskar dómshefðir? Þar sem jú stjórnendur setja sig í þá stöðu að vera dómarar hérna, sem er jú fullkomlega eðlilegt.
Ég er samt alveg sammála því að það var pínu ljótt en í staðinn hefði frekar átt að læsa bara þræðinum og þá kannski eyða innlegginu með nafninu hans.

Það er ekki málfrelsi á vaktinni, stjórnendum er frjálst að gera það sem þeim sýnist (sem og notendum líklega).

@dori: Geri mér fullkomlega grein fyrir því.

Ef relgur sem notandi hefur samþykkt að fylgja eða lög eru brotin er auðvitað réttmætt að bregðast við því, hægt er að deila um með hvaða hætti það skal gert. Stjórnendum er ekki frjálst að gera hvað sem þeim sýnist. En núna langar mér að fá svar frá GuðjónR:
Ríkir eða ríkir ekki málfrelsi á spjallsíðunni vaktin.is ??

Það er enginn sem skyldar eigendur eða stjórnendur þessarar síðu til eins eða neins. Ef þú hefur skoðað reglur spjallsins ættirðu að vita að með túlkun á reglu #12 er hægt að fá út að stjórnendur "mega" gera það sem þeim sýnist en eru samt innan þess ramma sem þeir hafa sett sér sjálfum.

zdndz
Gúrú
Póstar: 550
Skráði sig: Sun 13. Apr 2008 14:47
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Umræðan "Að kála fartölvu..."

Pósturaf zdndz » Þri 29. Mar 2011 16:58

dori skrifaði:

Ég held að það ætti að setja tvöfaldar gæsalappir um orðið ""mega"" því þessi túlkun er ekki alveg rétt. Stjórnendur verða að fara eftir t.d. landslögum, stjórnarskrá Íslands og ýmsum alþjóðlegum lögum. Þá má nefna Málfrelsi. Ég er ekki að rífast um það að eyðing á tilteknum þræði sé brot á málfrelsi einstaklings (þar sem hann braut relgur spjallborðsins sem hann hafði samþykkt) heldur bara almennt. En ég vil að þetta sé alveg hreint, ríkir eða ríkir ekki málfrelsi á vefsíðunni vaktin.is?

Intel E5200 @ 2.5 GHz | Radeon HD 4850 | Corsair 2x2 GB RAM 1066 MHz | 480 W aflgjafi | Móðurborð Micro-Star P43 NEO | 500GB Samsung | Windows 7 / Ubuntu
Ruddaleg túpuskjátölva!

coldcut
Vaktari
Póstar: 2192
Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 02:25
Reputation: 0
Staðsetning: /dev/random
Staða: Ótengdur

Re: Umræðan "Að kála fartölvu..."

Pósturaf coldcut » Þri 29. Mar 2011 16:59

Ég held að ég geti svarað fyrir Guðjón og aðra stjórnendur þegar ég segi að það ríkir EKKI málfrelsi á þessu spjallborði. Þú þarft ekki annað en að renna í gegnum reglurnar til þess að sjá það.
Þessi þráður og umræðan í honum er bara ekki eitthvað sem á að vera í gangi hérna, tryggingasvik eru ólögleg og ég sé ekkert óeðlilegt við það að eyða þessum þræði. Takið eftir að við eigum ennþá þráðinn og það er okkar ákvörðun hvað við gerum við hann, þið bara sjáið hann ekki.
Þessi þráður braut reglu 9 og jafnvel 10 líka og eins og ég sagði áður þá kom nafngreiningin því ekkert við.

Svo ég segi það líka aftur, Lukkuláki getur bara sent þetta nafn á tryggingafélögin ef hann vill.

Hvað er raunverulegt málfrelsi?
Það er að þú megir segja hvað sem þú vilt og enginn megi gera neitt í því. (Nokkuð augljóst að það er ekki við lýði hér)

zdndz
Gúrú
Póstar: 550
Skráði sig: Sun 13. Apr 2008 14:47
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Umræðan "Að kála fartölvu..."

Pósturaf zdndz » Þri 29. Mar 2011 17:08

coldcut skrifaði:Ég held að ég geti svarað fyrir Guðjón og aðra stjórnendur þegar ég segi að það ríkir EKKI málfrelsi á þessu spjallborði. Þú þarft ekki annað en að renna í gegnum reglurnar til þess að sjá það.
Þessi þráður og umræðan í honum er bara ekki eitthvað sem á að vera í gangi hérna, tryggingasvik eru ólögleg og ég sé ekkert óeðlilegt við það að eyða þessum þræði. Takið eftir að við eigum ennþá þráðinn og það er okkar ákvörðun hvað við gerum við hann, þið bara sjáið hann ekki.
Þessi þráður braut reglu 9 og jafnvel 10 líka og eins og ég sagði áður þá kom nafngreiningin því ekkert við.

Svo ég segi það líka aftur, Lukkuláki getur bara sent þetta nafn á tryggingafélögin ef hann vill.

Hvað er raunverulegt málfrelsi?
Það er að þú megir segja hvað sem þú vilt og enginn megi gera neitt í því. (Nokkuð augljóst að það er ekki við lýði hér)

Ég ætla að nánast fullyrða núna (er 98 % viss á því sem ég segi núna) að málfrelsi er bundið í íslensku stjórnarskráinnar. Túlkun þín á málfrelsi er ekki rétt miðað við túlkun dómstóla og túlkun á alþjóðlegum lögum. Það má ekki segja hvað sem er ef það brýtur gegn lögum og/eða relgum spjallborðsins því einstaklingur hefur samþykkt þær reglur. En ég vil fá svar frá GuðjónR um hvort það ríkir eða ríkir ekki málfrelsi á þessari vefsíðu, því ef svo er ekki, þá er hér um gífurlega alvarlegt brot að ræða! (tek aftur fram, er 98% viss).

EDIT: til að koma í veg fyrir misskilning, þá er ég alveg sammála um að fyrrnenfdur einstaklingur hafi brotið reglur og það átti að bregðast við því og að það hafi ekki verið brotið á málfrelsi við fjarlægingu á þræði hans þar sem hann braut reglurnar.

Intel E5200 @ 2.5 GHz | Radeon HD 4850 | Corsair 2x2 GB RAM 1066 MHz | 480 W aflgjafi | Móðurborð Micro-Star P43 NEO | 500GB Samsung | Windows 7 / Ubuntu
Ruddaleg túpuskjátölva!

hsm
vélbúnaðarpervert
Póstar: 921
Skráði sig: Sun 05. Jan 2003 23:37
Reputation: 0
Staðsetning: Keflavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Umræðan "Að kála fartölvu..."

Pósturaf hsm » Þri 29. Mar 2011 17:16

Það fylgir ábyrgð að hafa málfrelsi, þá mátt ekki segja hvað sem þér sýnist, hvorki hér né annarstaðar.
Ef þú segir við fréttamann á stöð 2 að Jóhanna Sigurðardóttir hafi nauðgað þér, þá ert þú um leið búinn að gera þig ábyrgan fyrir því sem þú segir.
Og þar sem að það væri ekki satt að Jóhanna hafi nauðgað þér, þá værir þú kærður fyrir að brjóta lög.
Þessi póstur braut bæði landslög og reglur vaktarinnar og ekkert óeðlilegt að honum hafi verið eitt.

**Intel E8400 3.0GHz**Gigabyte EP45-UD3L**GeIL Ultra Plus 4GB 2x2GB**Inno3D iChill GTX275**SAMSUNG SyncMaster 2693HM :D**1x1.5Tb**1x1Tb**1x750GB**1x500GB**Antec 1000W PSU** Með LFC kveðju Gerrard

Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4192
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1323
Staða: Ótengdur

Re: Umræðan "Að kála fartölvu..."

Pósturaf Klemmi » Þri 29. Mar 2011 17:18

zdndz skrifaði:Ég ætla að nánast fullyrða núna (er 98 % viss á því sem ég segi núna) að málfrelsi er bundið í íslensku stjórnarskráinnar. Túlkun þín á málfrelsi er ekki rétt miðað við túlkun dómstóla og túlkun á alþjóðlegum lögum. Það má ekki segja hvað sem er ef það brýtur gegn lögum og/eða relgum spjallborðsins því einstaklingur hefur samþykkt þær reglur. En ég vil fá svar frá GuðjónR um hvort það ríkir eða ríkir ekki málfrelsi á þessari vefsíðu, því ef svo er ekki, þá er hér um gífurlega alvarlegt brot að ræða! (tek aftur fram, er 98% viss).
EDIT: til að koma í veg fyrir misskilning, þá er ég alveg sammála um að fyrrnenfdur einstaklingur hafi brotið reglur og það átti að bregðast við því og að það hafi ekki verið brotið á málfrelsi við fjarlægingu á þræði hans þar sem hann braut reglurnar.

Þetta er ekki flókið. Þetta er vefsíða í eigu fyrirtækis undir stjórn Guðjóns. Hann velur svo stjórnendur sem hann treystir á þessu spjalli og fara þeir með umboð hans. Þeir mega henda og læsa hvaða þræði sem þeir vilja, þurfa EKKERT að spá í málfrelsi einstaklinga, frelsi Guðjóns til að stjórna því hvað fer inn á heimasíðu í hans eigu vegur þyngra en frelsi þitt til að koma skoðunum þínum á framfæri hér. Hann getur ekki bannað þér að fara út og segja skoðanir þínar, en hér, á þessari síðu, þarf ekki að virða málfrelsi.

Mér er jafn vel skapi næst að læsa þessum þræði, fólk að bulla út í loftið og væla út í eitt.

Frussi
Tölvutryllir
Póstar: 625
Skráði sig: Lau 26. Ágú 2006 19:45
Reputation: 130
Staða: Tengdur

Re: Umræðan "Að kála fartölvu..."

Pósturaf Frussi » Þri 29. Mar 2011 17:24

zdndz skrifaði:Ég ætla að nánast fullyrða núna (er 98 % viss á því sem ég segi núna) að málfrelsi er bundið í íslensku stjórnarskráinnar. Túlkun þín á málfrelsi er ekki rétt miðað við túlkun dómstóla og túlkun á alþjóðlegum lögum. Það má ekki segja hvað sem er ef það brýtur gegn lögum og/eða relgum spjallborðsins því einstaklingur hefur samþykkt þær reglur. En ég vil fá svar frá GuðjónR um hvort það ríkir eða ríkir ekki málfrelsi á þessari vefsíðu, því ef svo er ekki, þá er hér um gífurlega alvarlegt brot að ræða! (tek aftur fram, er 98% viss).

EDIT: til að koma í veg fyrir misskilning, þá er ég alveg sammála um að fyrrnenfdur einstaklingur hafi brotið reglur og það átti að bregðast við því og að það hafi ekki verið brotið á málfrelsi við fjarlægingu á þræði hans þar sem hann braut reglurnar.

Ertu þá að tala um brot á landslögum? Ef svo er, ef fólk vill gerast meðlimur að þessu spjalli þá samþykkir það ákveðna skilmála, til dæmis að fylgja reglunum. Ég get til dæmis stofnað spjallsíðu þar sem er bara ein regla, að það megi bara tala um epli. Ef einhver talar um eitthvað annað þá má hann ekki vera á spjallsíðunni minni og hans umræðuþræði er eytt. Mér finnst ólíklegt að það brjóti í bága við lög um tjáningarfrelsi. Öllum er valfrjálst að skrá sig, með þeim skilyrðum að fylgja reglunum :roll:

Talandi um reglur, eignarnám er bannað skv lögum, þ.e. enginn má taka hlut sem þú átt af þér án þíns leyfis. Ef einstaklingur sækir menntaskólaball þar sem tóbak, áfengi og önnur vímuefni eru bönnuð, en smyglar með sér áfengi er öryggisvörðum heimilt að taka það af honum, vegna þess að hann samþykkti ákveðna skilmála.

Ryzen 9 5900x // X470 Aorus Gaming // RTX4080 Super // 48 GB 3200MHz // 32" G5 165hz

Skjámynd

einarhr
Vaktari
Póstar: 2011
Skráði sig: Þri 27. Maí 2008 10:12
Reputation: 276
Staðsetning: 110 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Umræðan "Að kála fartölvu..."

Pósturaf einarhr » Þri 29. Mar 2011 17:25

Klemmi skrifaði:
zdndz skrifaði:Ég ætla að nánast fullyrða núna (er 98 % viss á því sem ég segi núna) að málfrelsi er bundið í íslensku stjórnarskráinnar. Túlkun þín á málfrelsi er ekki rétt miðað við túlkun dómstóla og túlkun á alþjóðlegum lögum. Það má ekki segja hvað sem er ef það brýtur gegn lögum og/eða relgum spjallborðsins því einstaklingur hefur samþykkt þær reglur. En ég vil fá svar frá GuðjónR um hvort það ríkir eða ríkir ekki málfrelsi á þessari vefsíðu, því ef svo er ekki, þá er hér um gífurlega alvarlegt brot að ræða! (tek aftur fram, er 98% viss).
EDIT: til að koma í veg fyrir misskilning, þá er ég alveg sammála um að fyrrnenfdur einstaklingur hafi brotið reglur og það átti að bregðast við því og að það hafi ekki verið brotið á málfrelsi við fjarlægingu á þræði hans þar sem hann braut reglurnar.

Þetta er ekki flókið. Þetta er vefsíða í eigu fyrirtækis undir stjórn Guðjóns. Hann velur svo stjórnendur sem hann treystir á þessu spjalli og fara þeir með umboð hans. Þeir mega henda og læsa hvaða þræði sem þeir vilja, þurfa EKKERT að spá í málfrelsi einstaklinga, frelsi Guðjóns til að stjórna því hvað fer inn á heimasíðu í hans eigu vegur þyngra en frelsi þitt til að koma skoðunum þínum á framfæri hér. Hann getur ekki bannað þér að fara út og segja skoðanir þínar, en hér, á þessari síðu, þarf ekki að virða málfrelsi.

Mér er jafn vel skapi næst að læsa þessum þræði, fólk að bulla út í loftið og væla út í eitt.

=D>

| Ryzen 7 5800X 32GB |RTX 3070Ti| Server i7 6700K 16GB |

Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 474
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Umræðan "Að kála fartölvu..."

Pósturaf urban » Þri 29. Mar 2011 17:34

zdndz skrifaði:
coldcut skrifaði:Ég held að ég geti svarað fyrir Guðjón og aðra stjórnendur þegar ég segi að það ríkir EKKI málfrelsi á þessu spjallborði. Þú þarft ekki annað en að renna í gegnum reglurnar til þess að sjá það.
Þessi þráður og umræðan í honum er bara ekki eitthvað sem á að vera í gangi hérna, tryggingasvik eru ólögleg og ég sé ekkert óeðlilegt við það að eyða þessum þræði. Takið eftir að við eigum ennþá þráðinn og það er okkar ákvörðun hvað við gerum við hann, þið bara sjáið hann ekki.
Þessi þráður braut reglu 9 og jafnvel 10 líka og eins og ég sagði áður þá kom nafngreiningin því ekkert við.

Svo ég segi það líka aftur, Lukkuláki getur bara sent þetta nafn á tryggingafélögin ef hann vill.

Hvað er raunverulegt málfrelsi?
Það er að þú megir segja hvað sem þú vilt og enginn megi gera neitt í því. (Nokkuð augljóst að það er ekki við lýði hér)

Ég ætla að nánast fullyrða núna (er 98 % viss á því sem ég segi núna) að málfrelsi er bundið í íslensku stjórnarskráinnar. Túlkun þín á málfrelsi er ekki rétt miðað við túlkun dómstóla og túlkun á alþjóðlegum lögum. Það má ekki segja hvað sem er ef það brýtur gegn lögum og/eða relgum spjallborðsins því einstaklingur hefur samþykkt þær reglur. En ég vil fá svar frá GuðjónR um hvort það ríkir eða ríkir ekki málfrelsi á þessari vefsíðu, því ef svo er ekki, þá er hér um gífurlega alvarlegt brot að ræða! (tek aftur fram, er 98% viss).

EDIT: til að koma í veg fyrir misskilning, þá er ég alveg sammála um að fyrrnenfdur einstaklingur hafi brotið reglur og það átti að bregðast við því og að það hafi ekki verið brotið á málfrelsi við fjarlægingu á þræði hans þar sem hann braut reglurnar.

98% þín eru bara ekki nóg.
Ég get nú alveg sagt þér það sama og aðrir stjórnendur og notendur síðunnar hafa sagt þér.
það er ekki málfrelsi hérna frekar en á öðrum einkareknum síðum, heimilum, vinnustöðum eða öðru

þú segir að þetta sé ritskoðun, þetta kallast ritstjórn.

þú getur bannað hvaða umræðu efni sem er heima hjá þér sem eigandi heimili þíns, alveg á sama hátt getur GuðjónR bannað hvaða efni sem er hér (og við stjórnendur í hans umboði), þar sem að hann er einn af eigendum síðunnar.

Þetta er alveg á tandurhreinu.
þetta er svo skýrt að ef að Guðjón vildi banna stafinn S þá gæti hann það án vandamáls

þetta er ekki síða á vegum hins opinbera, þetta er í einkaeigu.

Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !