Algeng málfarsvilla í spjalli um tölvur

Allt utan efnis

Höfundur
oon
Græningi
Póstar: 47
Skráði sig: Mið 19. Jan 2011 15:52
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

Algeng málfarsvilla í spjalli um tölvur

Pósturaf oon » Fös 28. Jan 2011 00:24

Sælir vaktarar,

smá nöldur um málfar ;)

Í spjalli um tölvur er nokkuð algengt að talað sé um gæði á rangan hátt.

Gæði geta ekki verið góð. Gæði og góð eru í raun sama orðið. Gæði eru mikil eða lítil.



Skjámynd

Glazier
BMW
Póstar: 2511
Skráði sig: Fös 30. Jan 2009 22:20
Reputation: 14
Staðsetning: Mosó
Staða: Ótengdur

Re: Algeng málfarsvilla í spjalli um tölvur

Pósturaf Glazier » Fös 28. Jan 2011 00:27

Öööööm.. ha? #-o


Tölvan mín er ekki lengur töff.

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7496
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1161
Staða: Tengdur

Re: Algeng málfarsvilla í spjalli um tölvur

Pósturaf rapport » Fös 28. Jan 2011 00:46

oon skrifaði:Sælir vaktarar,

smá nöldur um málfar ;)

Í spjalli um tölvur er nokkuð algengt að talað sé um gæði á rangan hátt.

Gæði geta ekki verið góð. Gæði og góð eru í raun sama orðið. Gæði eru mikil eða lítil.



Þegar ég spjalla um tölvur þá tala ég ekki um gæði á rangan hátt.

Ég nota orðið kannski vitlaust en tala rétt um það.

En fyrir mér eru gæði góð þó þú segir að þau geti ekki verið það, einfaldlega vegna þessi tvö orð eru í raun sama orðið.



Skjámynd

BjarniTS
Vaktari
Póstar: 2266
Skráði sig: Fim 06. Ágú 2009 01:51
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Algeng málfarsvilla í spjalli um tölvur

Pósturaf BjarniTS » Fös 28. Jan 2011 01:02

Átt mörg rifrildi við Axel um þetta.


Nörd


Höfundur
oon
Græningi
Póstar: 47
Skráði sig: Mið 19. Jan 2011 15:52
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

Re: Algeng málfarsvilla í spjalli um tölvur

Pósturaf oon » Fös 28. Jan 2011 01:05

Algeng málfarsvilla: „Er kvikmyndin í góðum gæðum?“
Rétt er að segja: „Er kvikmyndin í miklum gæðum?“

Algeng málfarsvilla: „Hljómgæðin eru léleg“
Rétt er að segja: „Hlómgæðin eru lítil“



Skjámynd

Glazier
BMW
Póstar: 2511
Skráði sig: Fös 30. Jan 2009 22:20
Reputation: 14
Staðsetning: Mosó
Staða: Ótengdur

Re: Algeng málfarsvilla í spjalli um tölvur

Pósturaf Glazier » Fös 28. Jan 2011 01:13

oon skrifaði:Algeng málfarsvilla: „Hljómgæðin eru léleg“

Hvað er svona svakalega vitlaust við þetta ?
Get ekki með nokkru móti séð að þetta sé villa..

Ef ég sæki mynd á netinu og félagi minn spyr mig hvernig hljóðið sé þá segi ég ef mér finnst það ekki nógu gott að hljóðið sé frekar lélegt á myndinni, eitthvað vitlaust við það ? #-o


Edit: Nice, póstur nr. 1666 hjá mér :D


Tölvan mín er ekki lengur töff.

Skjámynd

Eiiki
/dev/null
Póstar: 1408
Skráði sig: Þri 09. Nóv 2010 14:23
Reputation: 2
Staðsetning: 1101101
Staða: Ótengdur

Re: Algeng málfarsvilla í spjalli um tölvur

Pósturaf Eiiki » Fös 28. Jan 2011 01:19

hahahahaha flottur titill


Asrock Z68 Pro3-M | i7 2600k | Intel 520 Series 120 GB | GTX 560-Ti | 8GB 1866Mhz | Home made Mahogany case |Custom Water Cooling
Build log: http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=1&t=47846

Skjámynd

Haxdal
Tölvutryllir
Póstar: 640
Skráði sig: Lau 14. Apr 2007 18:58
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Algeng málfarsvilla í spjalli um tölvur

Pósturaf Haxdal » Fös 28. Jan 2011 01:26

Hvernig eru gæðin á myndinni?
Viltu þá meina að þetta væri málfarslega rétt sem "Eru gæðin mikil á myndinni?" eða "eru mikil gæði á myndinni?"

Vá hvað það er óþjált á að segja það.

Fyrir mér þá er "gæði" bara sama og "quality", hlutur getur verið "good quality" eða "low quality"... þ.e. góð gæði eða léleg/lítil gæði.

Ég held að minnsta kosti áfram að tala um Góð gæði og Léleg gæði.

edit: nvm örugglega rétt hjá þér þar sem talað er "rétt" um high quality og low quality, en það breytir því ekki að fyrir mér þá er þetta nákvæmlega sami hluturinn. Mikið af einhverju er gott, þar af eru þetta góð gæði. Lítið af einhverju er lélegt og þar af eru þetta léleg gæði. Á sama hátt og margur útlendingurinn segir good quality og bad quality :D


Atvinnunörd - Part of the 2%
> FX8350 | Gigabyte 990FXA-UD3 | Nvidia GTX 760 | 8GB Somethingsomething | Corsair Graphite 600T <

Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3606
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Algeng málfarsvilla í spjalli um tölvur

Pósturaf dori » Fös 28. Jan 2011 01:47

Haxdal skrifaði:Hvernig eru gæðin á myndinni?
Viltu þá meina að þetta væri málfarslega rétt sem "Eru gæðin mikil á myndinni?" eða "eru mikil gæði á myndinni?"

Vá hvað það er óþjált á að segja það.

Fyrir mér þá er "gæði" bara sama og "quality", hlutur getur verið "good quality" eða "low quality"... þ.e. góð gæði eða léleg/lítil gæði.

Ég held að minnsta kosti áfram að tala um Góð gæði og Léleg gæði.

edit: nvm örugglega rétt hjá þér þar sem talað er "rétt" um high quality og low quality, en það breytir því ekki að fyrir mér þá er þetta nákvæmlega sami hluturinn. Mikið af einhverju er gott, þar af eru þetta góð gæði. Lítið af einhverju er lélegt og þar af eru þetta léleg gæði. Á sama hátt og margur útlendingurinn segir good quality og bad quality :D

Mér finnst þetta þriðja reyndar ekkert rosalega óþjált TBH. En þetta er bara dæmi um hvernig við erum að taka inn áhrif frá öðrum tungumálum. Það má alltaf deila um réttmæti þess, tungumál er náttúrulega bara það sem fólkið sem talar málið vill að það sé. Hins vegar er alltaf leiðinlegt þegar við tökum inn breytingar sem einfalda (ég vil segja "stupify", man ekki gott íslenskt orð) málfræðina okkar of mikið. *hóst hóst* þágufallssýki *hóst*



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16489
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2105
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Algeng málfarsvilla í spjalli um tölvur

Pósturaf GuðjónR » Fös 28. Jan 2011 08:43

oon skrifaði:Sælir vaktarar,

smá nöldur um málfar ;)

Í spjalli um tölvur er nokkuð algengt að talað sé um gæði á rangan hátt.

Gæði geta ekki verið góð. Gæði og góð eru í raun sama orðið. Gæði eru mikil eða lítil.



hehehe....já það fer líka í taugarnar á mér þegar fyrirtæki auglýsa að þau séu að "gefa frítt" ..
Svo er líka spurning um orðalagið "ég persónulega get" .... er ekki nóg að segja "ég get" ...
Smá nöldur hérna hjá mér í morgunsárið :)



Skjámynd

bulldog
Besserwisser
Póstar: 3439
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 18:33
Reputation: 0
Staðsetning: 127.0.0.1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Algeng málfarsvilla í spjalli um tölvur

Pósturaf bulldog » Fös 28. Jan 2011 10:23

oon skrifaði:Algeng málfarsvilla: „Er kvikmyndin í góðum gæðum?“
Rétt er að segja: „Er kvikmyndin í miklum gæðum?“

Algeng málfarsvilla: „Hljómgæðin eru léleg“
Rétt er að segja: „Hlómgæðin eru lítil“


Hlómgæði hlýtur að vera nýyrði þá ](*,)



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16489
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2105
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Algeng málfarsvilla í spjalli um tölvur

Pósturaf GuðjónR » Fös 28. Jan 2011 10:52

bulldog skrifaði:
oon skrifaði:Algeng málfarsvilla: „Er kvikmyndin í góðum gæðum?“
Rétt er að segja: „Er kvikmyndin í miklum gæðum?“

Algeng málfarsvilla: „Hljómgæðin eru léleg“
Rétt er að segja: „Hlómgæðin eru lítil“


Hlómgæði hlýtur að vera nýyrði þá ](*,)

=D>



Skjámynd

Dagur
Geek
Póstar: 802
Skráði sig: Fös 19. Sep 2003 14:00
Reputation: 65
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Algeng málfarsvilla í spjalli um tölvur

Pósturaf Dagur » Fös 28. Jan 2011 11:28

Haxdal skrifaði:Hvernig eru gæðin á myndinni?
Viltu þá meina að þetta væri málfarslega rétt sem "Eru gæðin mikil á myndinni?" eða "eru mikil gæði á myndinni?"

Vá hvað það er óþjált á að segja það.

Fyrir mér þá er "gæði" bara sama og "quality", hlutur getur verið "good quality" eða "low quality"... þ.e. góð gæði eða léleg/lítil gæði.

Ég held að minnsta kosti áfram að tala um Góð gæði og Léleg gæði.

edit: nvm örugglega rétt hjá þér þar sem talað er "rétt" um high quality og low quality, en það breytir því ekki að fyrir mér þá er þetta nákvæmlega sami hluturinn. Mikið af einhverju er gott, þar af eru þetta góð gæði. Lítið af einhverju er lélegt og þar af eru þetta léleg gæði. Á sama hátt og margur útlendingurinn segir good quality og bad quality :D



Edit: Hér stóð tóm vitleysa :sleezyjoe

Þegar það kemur að málfræði þá skiptir ekki máli hvað mönnum finnst. Þetta er spurning um rétt eða rangt :)
Síðast breytt af Dagur á Fös 28. Jan 2011 14:06, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

Danni V8
Of mikill frítími
Póstar: 1797
Skráði sig: Mán 23. Apr 2007 06:36
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Algeng málfarsvilla í spjalli um tölvur

Pósturaf Danni V8 » Fös 28. Jan 2011 12:21

Opnar þú þá dyr eða hurðar?

Nánast allir í dag tala um að opna hurðar, þrátt fyrir hversu málfræðilega vitlaust það er.

Hurð er hlutur sem er notaður til að opna og loka dyrum, þú getur ekki opna hurð. Ef þú gerir gat á hurðina sjálfa og opnar það, ertu búinn að búa til nýjar dyr í hurðina og er að opna og loka þeim.

En samt virðist það almennt tekið gilt þegar fólk talar um að opna hurðar...

Ég skal viðurkenna það að ég fell oft í þá gryfju að tala um góð eða slæm gæði, en það er eitthvað sem ég þarf þá að passa upp á.


Asus ROG Strix Z390-F Gaming | Intel Core i5 9600K @ 4,7GHz | Crosshair H100i | Corsair Vengance 16GB | Asus ROG Strix RTX2060 | Corsair RM 650x


Manager1
Tölvutryllir
Póstar: 623
Skráði sig: Þri 16. Mar 2004 21:28
Reputation: 91
Staða: Ótengdur

Re: Algeng málfarsvilla í spjalli um tölvur

Pósturaf Manager1 » Fös 28. Jan 2011 12:40

Ég hef alltaf talað um góð og léleg gæði, en vissi þó að það væri rangt. Ég gerði það bara afþví að allir aðrir gerðu það og ég gerði líka ráð fyrir því að flestir aðrir vissu að það væri rangt... en í þessum þræði eru a.m.k. tveir sem þræta fyrir að "góð gæði" sé málfarslega rangt... og þá átta ég mig á því hversu illa stödd íslenska þjóðin er hvað málfræði varðar ](*,)