hvar er hægt að fá leiser?

Allt utan efnis

Höfundur
agust1337
Gúrú
Póstar: 545
Skráði sig: Mán 20. Sep 2010 22:31
Reputation: 56
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

hvar er hægt að fá leiser?

Pósturaf agust1337 » Mán 20. Sep 2010 22:34

ég var að spá í hvar á landinu er hægt að fá leiser?


What ever you do, what ever you think you can do, there'll always be an Asian who's better than you.


Sphinx
1+1=10
Póstar: 1186
Skráði sig: Mán 11. Maí 2009 21:06
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: hvar er hægt að fá leiser?

Pósturaf Sphinx » Mán 20. Sep 2010 22:34

agust1337 skrifaði:ég var að spá í hvar á landinu er hægt að fá leiser?



kolaportinu


MSI GX640 / 15,4" 1680x1050 / Intel Quad I5 2,27GHz / ATI HD5850 1GB / DDR3 2x2GB / seagate 500GB / windows 7 ultimate


steinarorri
Gúrú
Póstar: 565
Skráði sig: Mán 25. Jan 2010 23:54
Reputation: 45
Staða: Ótengdur

Re: hvar er hægt að fá leiser?

Pósturaf steinarorri » Mán 20. Sep 2010 23:07

Keypti á http://www.dealextreme.com um daginn, hann er kominn til landsins en er á pósthúsinu - sæki hann á morgun :D
200mW rauður á tæpa 30$; veit ekki hvort og hversu mikið ég þarf að borga í toll... bæti því við hér á morgun líklegast.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16489
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2105
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: hvar er hægt að fá leiser?

Pósturaf GuðjónR » Mán 20. Sep 2010 23:22

steinarorri skrifaði:Keypti á http://www.dealextreme.com um daginn, hann er kominn til landsins en er á pósthúsinu - sæki hann á morgun :D
200mW rauður á tæpa 30$; veit ekki hvort og hversu mikið ég þarf að borga í toll... bæti því við hér á morgun líklegast.


Og hvað ætlarðu að gera við hann?




steinarorri
Gúrú
Póstar: 565
Skráði sig: Mán 25. Jan 2010 23:54
Reputation: 45
Staða: Ótengdur

Re: hvar er hægt að fá leiser?

Pósturaf steinarorri » Þri 21. Sep 2010 00:03

Brenna hluti og lýsa í augun á fólki :D Nei nei, þetta var aðallega tilraun til að versla á netinu í fyrsta skipti og ákvað að velja leiser, alltaf verið hrifinn af þeim en aldrei átt svona sterkan.




donzo
spjallið.is
Póstar: 426
Skráði sig: Fim 19. Jún 2008 18:17
Reputation: 1
Staðsetning: Rúminu hans Zedro..
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: hvar er hægt að fá leiser?

Pósturaf donzo » Þri 21. Sep 2010 00:05

steinarorri skrifaði:Brenna hluti og lýsa í augun á fólki :D Nei nei, þetta var aðallega tilraun til að versla á netinu í fyrsta skipti og ákvað að velja leiser, alltaf verið hrifinn af þeim en aldrei átt svona sterkan.


Er leyfilegt að panta sér svona um 50mW laser til íslands :/ ?

Annars segðu mér hvað það kostar í heildinni með tollin og allt það sem þú varst að panta á morgum orsome ^.^




steinarorri
Gúrú
Póstar: 565
Skráði sig: Mán 25. Jan 2010 23:54
Reputation: 45
Staða: Ótengdur

Re: hvar er hægt að fá leiser?

Pósturaf steinarorri » Þri 21. Sep 2010 22:17

Fékk leiserinn, borgaði 1650 í skatt og tollafgr.gjöld svo samanlagt voru þetta um 6þúsund krónur, Leiser, 2x CR2 batterý og hleðslutæki fyrir þau.
Leiserinn er snilld, drífur fáranlega langt og brennir dökkt plast, göt á pappamál, kveikir á eldspýtum og sprengir blöðrur :)



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16489
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2105
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: hvar er hægt að fá leiser?

Pósturaf GuðjónR » Þri 21. Sep 2010 22:19

steinarorri skrifaði:Fékk leiserinn, borgaði 1650 í skatt og tollafgr.gjöld svo samanlagt voru þetta um 6þúsund krónur, Leiser, 2x CR2 batterý og hleðslutæki fyrir þau.
Leiserinn er snilld, drífur fáranlega langt og brennir dökkt plast, göt á pappamál, kveikir á eldspýtum og sprengir blöðrur :)


úffff...farðu varlega! það er ekki afturtekið ef þú skýtur geisla í augun á sjálfum þér eða einhverjum öðrum :nerd_been_up_allnight



Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: hvar er hægt að fá leiser?

Pósturaf Gúrú » Þri 21. Sep 2010 22:32

Hvaða bull er 50, 100 eða 200mW í höndunum á einhverjum?

Var með grænan 20mW í höndunum um daginn og hann dreif einhverja kílómetra í myrkri... það er bara insane...


Modus ponens


Ulli
Kerfisstjóri
Póstar: 1297
Skráði sig: Fös 21. Ágú 2009 19:39
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: hvar er hægt að fá leiser?

Pósturaf Ulli » Mið 22. Sep 2010 00:03

er að spá í 500mW-1W leiser kostar umþb 35þ :S
http://www.wickedlasers.com/lasers/S3_S ... 05-37.html


I7-950 4.2Ghz1.4VStable! Rampage III Extream Corsair H70 Corsair Dominator 8-8-8-24 3x2Gb DDR3 1600 Asus R9 280x Samsung 470 series 64Gb SSD WD Green 2 TB Raven II Turn Beng Q V2420 Corsair AX850


AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6352
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 160
Staða: Ótengdur

Re: hvar er hægt að fá leiser?

Pósturaf AntiTrust » Mið 22. Sep 2010 00:06

Ulli skrifaði:er að spá í 500mW-1W leiser kostar umþb 35þ :S
http://www.wickedlasers.com/lasers/S3_S ... 05-37.html


Sorry en, hvað í andsk. ætlaru að gera við svona sterkan laser, þegar 20mW er nóg til að brenna gat á hluti?



Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: hvar er hægt að fá leiser?

Pósturaf Gúrú » Mið 22. Sep 2010 00:14

Ulli skrifaði:er að spá í 500mW-1W leiser kostar umþb 35þ :S
http://www.wickedlasers.com/lasers/S3_S ... 05-37.html


Mér líður ekki vel fyrir hönd laseráhugamanna hér á Íslandi þegar að random fólk ætlar að fara að panta sér bláa lasera með einhverju nálægt 1000mW outputi og 1.5mrad...
að láta þennan laser svífa í einhverjar míkrósekúndur yfir retinum á fólki myndi valda óafturkallandi skaða úr tugmetra fjarlægð.


Modus ponens


zdndz
Gúrú
Póstar: 550
Skráði sig: Sun 13. Apr 2008 14:47
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: hvar er hægt að fá leiser?

Pósturaf zdndz » Mið 22. Sep 2010 00:17

Maður verður svona hálf smeikur þegar maður sér einhverja vera leika sér með laser, maður veit ekkert hvað þetta er öflugt, svona ef þetta skyldi fara óvart í agun á manni 8-[


Intel E5200 @ 2.5 GHz | Radeon HD 4850 | Corsair 2x2 GB RAM 1066 MHz | 480 W aflgjafi | Móðurborð Micro-Star P43 NEO | 500GB Samsung | Windows 7 / Ubuntu
Ruddaleg túpuskjátölva!


Ulli
Kerfisstjóri
Póstar: 1297
Skráði sig: Fös 21. Ágú 2009 19:39
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: hvar er hægt að fá leiser?

Pósturaf Ulli » Mið 22. Sep 2010 00:22

AntiTrust skrifaði:
Ulli skrifaði:er að spá í 500mW-1W leiser kostar umþb 35þ :S
http://www.wickedlasers.com/lasers/S3_S ... 05-37.html


Sorry en, hvað í andsk. ætlaru að gera við svona sterkan laser, þegar 20mW er nóg til að brenna gat á hluti?



kemur þér í ands ekkert við.
vist menn eins og þú eru alltaf að koma með eh drullu skítköst.

kanski ætla ég að nota hann í star pointing?
kemur þér í raun ekkert við.
kanski lángar mér bara eiga svona.

gast bara spurt kurteisislega.


I7-950 4.2Ghz1.4VStable! Rampage III Extream Corsair H70 Corsair Dominator 8-8-8-24 3x2Gb DDR3 1600 Asus R9 280x Samsung 470 series 64Gb SSD WD Green 2 TB Raven II Turn Beng Q V2420 Corsair AX850

Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: hvar er hægt að fá leiser?

Pósturaf Gúrú » Mið 22. Sep 2010 00:26

Það ætti að vera alveg á hreinu að ég stend sjaldan með ummælum AntiTrust á þessu spjallborði EN:

Ulli af hverju ertu svona reiður? Hann er bara að spyrja frekar kurteisislega bendandi á það hversu andskoti sterkur þessi laser er. :P

Það er ekki skítkast og það er engin þörf á því að segja "KEMUR ÞÉR EKKI VIÐ". :shock:


Modus ponens


Ulli
Kerfisstjóri
Póstar: 1297
Skráði sig: Fös 21. Ágú 2009 19:39
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: hvar er hægt að fá leiser?

Pósturaf Ulli » Mið 22. Sep 2010 00:45

AntiTrust skrifaði:
Ulli skrifaði:er að spá í 500mW-1W leiser kostar umþb 35þ :S
http://www.wickedlasers.com/lasers/S3_S ... 05-37.html


Sorry en, hvað í andsk.



Gæti skrifað Sorry en hvað hefuru að gera með 500mW leiser sem getur skaðað fólk?

svo eru sumir hérna sem eru bara að leita sér af leiðindum.

Ég er þannig gerður að ég er með Vægast sagt stuttan hveiki þráð eins og menn hafa kanski tekið eftir hérna.
Naglabyssa getur líka blindað fólk og Hnifar osfrv.
Það er ekki eins og ég sé að fara að leika mér að fara í kringluna og lísa í andlitin á fólki??
Ekki er ég hreifihamlaður þannig að ég ætti að ráða við hann,svo efast ég um að það séu margir fljótandi um í loftinu sem er áttin sem ég mundi lýsa leiserinum.
ÞAð er að seija ef maður fer út í eh svona kaup.
svo á ég þann slæma Habit að reyna eiga allt það besta sem er í boði ef ég fæ mér eh.


I7-950 4.2Ghz1.4VStable! Rampage III Extream Corsair H70 Corsair Dominator 8-8-8-24 3x2Gb DDR3 1600 Asus R9 280x Samsung 470 series 64Gb SSD WD Green 2 TB Raven II Turn Beng Q V2420 Corsair AX850

Skjámynd

ManiO
Besserwisser
Póstar: 3963
Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
Reputation: 0
Staðsetning: Seltjarnarnes
Staða: Ótengdur

Re: hvar er hægt að fá leiser?

Pósturaf ManiO » Mið 22. Sep 2010 11:11

Það var einmitt eitthvað þroskaheft fífl um daginn sem var með grænan leiser í Hondu Civic 90 og eitthvað árgerð sem var að beina í speglana á bílum sem fóru fram úr honum. Sé frekar mikið eftir því að hafa ekki neglt niður, verið yfir báðum akreinum og hrifsað tækið af þessu viðrini.


"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."


AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6352
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 160
Staða: Ótengdur

Re: hvar er hægt að fá leiser?

Pósturaf AntiTrust » Mið 22. Sep 2010 11:27

Ulli skrifaði:Kemur þér í ands ekkert við.
vist menn eins og þú eru alltaf að koma með eh drullu skítköst.

kanski ætla ég að nota hann í star pointing?
kemur þér í raun ekkert við.
kanski lángar mér bara eiga svona.

gast bara spurt kurteisislega.


Er ég alltaf að koma með e-r drullu skítköst? Ég veit ekki betur til þess en að stór meirihluta minna kommenta á þessu spjalli frá byrjun sé hjálp, leiðbeiningar eða almennt spjall um tölvutengd mál.

Kannski ætlaru að nota hann í "hitt og þetta" já, en mér finnst það koma mér, sem öðrum við þegar menn geta keypt tæki sem geta skaðað aðra alvarlega úr talsverðri fjarlægð. Naglabyssa og hnífar geta vissulega skaðað fólk, en varla úr sömu fjarlægð, og líkurnar á því að skaða e-rn óvart með laser eru talsvert meiri en að skaða e-rn með hníf. Veit ekki hversu oft ég hef lent í því að fólk er að benda laser innum gluggana heima hjá manni eða inn í bíla að kvöldi til.

Hinsvegar get ég ekki annað en velt því fyrir mér hvort það sé á annað borð löglegt fyrir hvern sem er að eiga slíkt tæki.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16489
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2105
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: hvar er hægt að fá leiser?

Pósturaf GuðjónR » Mið 22. Sep 2010 11:37

ManiO skrifaði:Það var einmitt eitthvað þroskaheft fífl um daginn sem var með grænan leiser í Hondu Civic 90 og eitthvað árgerð sem var að beina í speglana á bílum sem fóru fram úr honum. Sé frekar mikið eftir því að hafa ekki neglt niður, verið yfir báðum akreinum og hrifsað tækið af þessu viðrini.


Honum hefur fundist þetta rosa fyndið, hvað ætli hann hafi náð að skaða sjónina hjá mörgum varanlega?
Ég skil ekki af hverju þetta er leyft.

Þú hefðir átt að traðka bremsuna niður úr gólfinu.



Skjámynd

BjarkiB
Of mikill frítími
Póstar: 1947
Skráði sig: Fim 26. Nóv 2009 19:02
Reputation: 15
Staðsetning: C:\Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: hvar er hægt að fá leiser?

Pósturaf BjarkiB » Mið 22. Sep 2010 13:46

GuðjónR skrifaði:
ManiO skrifaði:Það var einmitt eitthvað þroskaheft fífl um daginn sem var með grænan leiser í Hondu Civic 90 og eitthvað árgerð sem var að beina í speglana á bílum sem fóru fram úr honum. Sé frekar mikið eftir því að hafa ekki neglt niður, verið yfir báðum akreinum og hrifsað tækið af þessu viðrini.


Honum hefur fundist þetta rosa fyndið, hvað ætli hann hafi náð að skaða sjónina hjá mörgum varanlega?
Ég skil ekki af hverju þetta er leyft.

Þú hefðir átt að traðka bremsuna niður úr gólfinu.


Óþroskað fólk, kom líka fyrir nokkrum mánuðum í fréttunum þar sem eitthver hafði beint grænum leiser að stjórnklefa í fokker 50 flúgvél þeagr hún var að lenda í rvk.



Skjámynd

Glazier
BMW
Póstar: 2511
Skráði sig: Fös 30. Jan 2009 22:20
Reputation: 14
Staðsetning: Mosó
Staða: Ótengdur

Re: hvar er hægt að fá leiser?

Pósturaf Glazier » Mið 22. Sep 2010 14:29

Hættið að tuða í honum um þetta, get allveg lofað ykkur því að á meðan þetta er ekki ólöglegt þá getið þið ekki haft nein áhrif á það hvort hann kaupi þetta eða ekki með svona tuði.
Gætuð reynt að sannfæra hann um að þetta bili strax eða eitthvað álíka ef þið endilega viljið koma í veg fyrir að hann kaupi þetta.

Held að ef hann er búinn að ákveða að kaupa þetta þá kemur enginn í veg fyrir það nema ná að sannfæra hann um að þetta sé ólöglegt (sem þetta er ekki svo ég viti)


Tölvan mín er ekki lengur töff.

Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: hvar er hægt að fá leiser?

Pósturaf Gúrú » Mið 22. Sep 2010 14:56

Glazier skrifaði:Held að ef hann er búinn að ákveða að kaupa þetta þá kemur enginn í veg fyrir það nema ná að sannfæra hann um að þetta sé ólöglegt (sem þetta er ekki svo ég viti)

Held að enginn hafi verið að tuða í honum og að allir geri sér grein fyrir því að þú ert ekki að fara að líkamlega hindra einhvern yfir internetið.

Fááitarnir sem að plata mig alltaf inná síðuna hjá sér (gr.is) þegar ég ætla að fara inná Gagnaveituna skilgreina 1W laser án nokkurs vafa sem Flokk 4 laser - það er hæsti flokkurinn.

Það er hinsvegar ekkert minnst á það hjá þeim að flokkur 4 sé ólöglegur í einkaeigu svo... go nuts (ekki á aðra samt)


Modus ponens


starionturbo
Gúrú
Póstar: 542
Skráði sig: Mán 24. Des 2007 11:23
Reputation: 8
Staðsetning: localhost
Staða: Ótengdur

Re: hvar er hægt að fá leiser?

Pósturaf starionturbo » Mið 22. Sep 2010 17:22

Mig langar í 10.000W CO2 laser.


Foobar

Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: hvar er hægt að fá leiser?

Pósturaf Gúrú » Mið 22. Sep 2010 17:35

starionturbo skrifaði:Mig langar í 10.000W CO2 laser.


Heppilegt fyrir þig að við fundum upp 150.000W CO2 laser árið 1997 :)

Veit samt ekki hvar maður ætti að geyma hann. :?


Modus ponens


Höfundur
agust1337
Gúrú
Póstar: 545
Skráði sig: Mán 20. Sep 2010 22:31
Reputation: 56
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: hvar er hægt að fá leiser?

Pósturaf agust1337 » Sun 03. Okt 2010 20:05

steinarorri skrifaði:Keypti á http://www.dealextreme.com um daginn, hann er kominn til landsins en er á pósthúsinu - sæki hann á morgun :D
200mW rauður á tæpa 30$; veit ekki hvort og hversu mikið ég þarf að borga í toll... bæti því við hér á morgun líklegast.


Hvernig gastu sent hann til Íslands? Ég finn hvergi Iceland á síðunni :s


What ever you do, what ever you think you can do, there'll always be an Asian who's better than you.