Hægt að nota tvö netkort sem eitt?

Skjámynd

Höfundur
DoofuZ
1+1=10
Póstar: 1127
Skráði sig: Lau 30. Okt 2004 16:02
Reputation: 8
Staðsetning: Rivertown
Staða: Ótengdur

Hægt að nota tvö netkort sem eitt?

Pósturaf DoofuZ » Mán 21. Jún 2010 18:48

Er enn að reyna að tengja tölvu í kjallaraherbergi við net á annari hæð í blokk og þó ég sé núna kominn með tvö high-power þráðlaus usb netkort með annað þeirra tengt við tölvu uppi og hitt við tölvu niðri þá er það samt ekki alveg nóg :? Þá datt mér næst í hug hvort ég gæti ekki bara tengt þau bæði við kjallaratölvuna, sett þau saman í bridge og notað þau þannig saman sem eitt netkort, er samt ekki alveg búinn að fá neitt svoleiðis til að virka en er hægt að gera eitthvað svoleiðis?

Einhver hér sérfróður um þráðlaus net? 8-[


Gigabyte GA-MA790FXT-UD5P, AMD Phenom II X4 955 @3.2Ghz, 2 x 4gb Corsair Vengeance DDR3 @1600mhz LP, EVGA Geforce GTX 760, Seagate Barracuda 500gb, 20x Sony DVDRW, TT Big Typhoon og 700W Tagan BZ allt í Cooler Master Stacker kassa með 55" Philips HDTV :]

Skjámynd

KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4273
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: Hægt að nota tvö netkort sem eitt?

Pósturaf KermitTheFrog » Mán 21. Jún 2010 19:26

Afhverju ekki að skella sér bara á eitt almennilegt PCI kort? http://www.computer.is/vorur/6803/ eða sambærilegt.



Skjámynd

Höfundur
DoofuZ
1+1=10
Póstar: 1127
Skráði sig: Lau 30. Okt 2004 16:02
Reputation: 8
Staðsetning: Rivertown
Staða: Ótengdur

Re: Hægt að nota tvö netkort sem eitt?

Pósturaf DoofuZ » Mán 21. Jún 2010 19:53

Tja, veit það nú ekki, held að þessi netkort sem ég er með eigi nú að vera betra en velflest annað á markaðinum svo ef þau eru ekki að duga þá efast ég um að eitthvað svona eigi eftir að duga eitthvað betur :roll: Hefuru kannski einhverja reynslu af svona netkorti? Getur það náð í gegnum nokkra góða veggi og upp um tvær hæðir? :-k

Á í raun bara einn möguleika eftir, að prófa alvöru access point, en þá verður það apparat að hafa mun betri loftnet en routerdraslið sem ég er með, sérstaklega þar sem það yrði líklega sett á sama stað.


Gigabyte GA-MA790FXT-UD5P, AMD Phenom II X4 955 @3.2Ghz, 2 x 4gb Corsair Vengeance DDR3 @1600mhz LP, EVGA Geforce GTX 760, Seagate Barracuda 500gb, 20x Sony DVDRW, TT Big Typhoon og 700W Tagan BZ allt í Cooler Master Stacker kassa með 55" Philips HDTV :]

Skjámynd

KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4273
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: Hægt að nota tvö netkort sem eitt?

Pósturaf KermitTheFrog » Mán 21. Jún 2010 20:08

Ég er með svona kort hjá mér og notaði það fyrir einhverju síðan, áður en ég færði mig um herbergi. Var þá með 1 steyptan og einn gipsvegg á milli tölvunnar og routersins. Veit ekki hvort það sé einhver gríðarlegur munur á þessu. Keypti þetta kort einmitt af því að það átti að vera með meiri drægni en önnur kort.



Skjámynd

Höfundur
DoofuZ
1+1=10
Póstar: 1127
Skráði sig: Lau 30. Okt 2004 16:02
Reputation: 8
Staðsetning: Rivertown
Staða: Ótengdur

Re: Hægt að nota tvö netkort sem eitt?

Pósturaf DoofuZ » Mán 21. Jún 2010 21:35

Já, ég veit nú ekki hvort ég nenni eitthvað að vera að prófa einhver önnur netkort í þetta, held það sé sniðugast bara að finna einn góðann access point og redda þessu þannig, það sakar amk. ekki að reyna það. Herbergið sem tölvan uppi er í er líka eins langt frá kjallaraherberginu og hægt er að vera uppi sem er alveg lengst til vinstri, en með því að setja alvöru access point upp og hafa hann í herberginu sem er alveg lengst til hægri þá væri í raun bara einn veggur á milli í stað þriggja (og svo tvær hæðir niður á ská auðvitað) :)


Gigabyte GA-MA790FXT-UD5P, AMD Phenom II X4 955 @3.2Ghz, 2 x 4gb Corsair Vengeance DDR3 @1600mhz LP, EVGA Geforce GTX 760, Seagate Barracuda 500gb, 20x Sony DVDRW, TT Big Typhoon og 700W Tagan BZ allt í Cooler Master Stacker kassa með 55" Philips HDTV :]

Skjámynd

Blues-
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 397
Skráði sig: Þri 09. Maí 2006 01:16
Reputation: 18
Staðsetning: /usr/local
Staða: Ótengdur

Re: Hægt að nota tvö netkort sem eitt?

Pósturaf Blues- » Mán 21. Jún 2010 23:42

DoofuZ skrifaði:Er enn að reyna að tengja tölvu í kjallaraherbergi við net á annari hæð í blokk og þó ég sé núna kominn með tvö high-power þráðlaus usb netkort með annað þeirra tengt við tölvu uppi og hitt við tölvu niðri þá er það samt ekki alveg nóg :? Þá datt mér næst í hug hvort ég gæti ekki bara tengt þau bæði við kjallaratölvuna, sett þau saman í bridge og notað þau þannig saman sem eitt netkort, er samt ekki alveg búinn að fá neitt svoleiðis til að virka en er hægt að gera eitthvað svoleiðis?

Einhver hér sérfróður um þráðlaus net? 8-[


Það er hægt að tengja saman 2 NIC sem eitt .. kallað bonding . hef notað þetta á linux vél hjá mér á venjulegum netkortum (sjá http://www.howtoforge.com/nic_bonding)
Veit samt ekki hvort þetta gangi með þráðlaus kort, né hvort þetta sé hægt á winblows



Skjámynd

Höfundur
DoofuZ
1+1=10
Póstar: 1127
Skráði sig: Lau 30. Okt 2004 16:02
Reputation: 8
Staðsetning: Rivertown
Staða: Ótengdur

Re: Hægt að nota tvö netkort sem eitt?

Pósturaf DoofuZ » Þri 22. Jún 2010 02:05

Djö, sé ekki að það sé hægt í Windows :? En nú er ég búinn að vera að skoða svoldið access points og er að spá, ef ég fæ mér t.d. svona CNet CWR-854 og stilli hann sem repeater, er það þá ekki bara eins og góð framlenging á þráðlausa netinu? Og virkar það mjög vel? Get ég samt líka notað tækið sem switch fyrir snúrutengdar vélar? Er nefnilega eins og er með tvær tölvur tengdar við switch sem er svo tengdur við router (er með switchinn hjá annari tölvunni og hef því bara eina snúru þaðan yfir í router í staðinn fyrir að hafa tvær snúrur til að tengja báðar tölvur við router) og vil helst halda því þannig, er það hægt?

Var annars að komast að því að routerinn sem ég er með, Zyxel 660HW-61, er bara með 2dBi loftnet! :shock: Djöfulsins drasl! Ekki nema von að það náist engin tenging niður og líka ömurlegt að það sé ekki hægt að skipta um loftnet. TAKK TAL/HIVE/DRASL! :|

Get að vísu prófað á morgun að gera ad hoc network á tölvunni frammi sem er hjá switchinum, hún er mun nær herberginu niðri en tölvan hjá mér og færri veggir á milli, þar myndi líka access point/repeater tækið vera staðsett svo það sakar ekki að sjá hvernig tengingin er þar :-k


Gigabyte GA-MA790FXT-UD5P, AMD Phenom II X4 955 @3.2Ghz, 2 x 4gb Corsair Vengeance DDR3 @1600mhz LP, EVGA Geforce GTX 760, Seagate Barracuda 500gb, 20x Sony DVDRW, TT Big Typhoon og 700W Tagan BZ allt í Cooler Master Stacker kassa með 55" Philips HDTV :]

Skjámynd

Benzmann
Bara að hanga
Póstar: 1570
Skráði sig: Þri 11. Nóv 2008 14:58
Reputation: 44
Staðsetning: Breiðholt
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hægt að nota tvö netkort sem eitt?

Pósturaf Benzmann » Þri 22. Jún 2010 10:54

í þínu tilfelli, myndi ég fá mér svona http://www.computer.is/vorur/7161/ og notar rafmagnið í blokkinni, ekkert þráðlaust drasl, tengir einn við tölvuna og instungu, og hitt við routerinn og innstungu, málið dautt.

vesen að vera með þráðlaust dót, ef fólkið á hæðinni fyrir ofan þig áhveður að færa húsgögn, og þá gæti sambandið minkað enþá meira


CPU: Intel i9 13900K | MB: Asus ROG Strix Z790-E Gaming| GPU: Asus TUF RTX 3080 OC 10gb | Case: Corsair 7000D| PSU: Corsair RM850x 850W | RAM: Kingston Fury 5600mhz 64gb |Storage: 2x Samsung 980Pro 2Tb| OS: Windows 11 Enterprise E5 64bit

Skjámynd

emmi
Of mikill frítími
Póstar: 1903
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 10:15
Reputation: 64
Staðsetning: Reykjanesbær
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hægt að nota tvö netkort sem eitt?

Pósturaf emmi » Þri 22. Jún 2010 12:17

Sum Gigabyte móðurborð bjóða uppá svokallað "NIC Teaming".



Skjámynd

g0tlife
1+1=10
Póstar: 1177
Skráði sig: Mán 05. Nóv 2007 15:57
Reputation: 166
Staðsetning: Sit í fanginu hans Guðjóns
Staða: Ótengdur

Re: Hægt að nota tvö netkort sem eitt?

Pósturaf g0tlife » Þri 22. Jún 2010 13:09

Bara bora snúru niður ! Afi sagði alltaf ''Ef e-h klikkar þá bara bora'' Enda var húsið hjá ömmu og afa allt í holum


Intel i9-10900KF // Nvidia RTX 3080 // 2x 1TB M.2 // 1TB Samsung 860 Evo // G.Skill 32GB Ripjaws V 3600MHz // ASRock Z490 Extreme4 // Samsung Odyssey G7 32''

My CPU's Hot But My Core Runs Cold

Skjámynd

Höfundur
DoofuZ
1+1=10
Póstar: 1127
Skráði sig: Lau 30. Okt 2004 16:02
Reputation: 8
Staðsetning: Rivertown
Staða: Ótengdur

Re: Hægt að nota tvö netkort sem eitt?

Pósturaf DoofuZ » Þri 22. Jún 2010 20:10

benzmann skrifaði:í þínu tilfelli, myndi ég fá mér svona http://www.computer.is/vorur/7161/ og notar rafmagnið í blokkinni, ekkert þráðlaust drasl, tengir einn við tölvuna og instungu, og hitt við routerinn og innstungu, málið dautt.

Nei, það getur því miður ekki gengið, greinin sem herbergið er á er aðskilin íbúðinni uppi, s.s. ef maður tekur rafmagnið af íbúðinni þá er samt ennþá rafmagn á herberginu. Er það ekki annars rétt hjá mér að routerinn þarf að vera á sömu grein?

emmi skrifaði:Sum Gigabyte móðurborð bjóða uppá svokallað "NIC Teaming".

Já, en það er bara fyrir innbyggð kort á móðurborðunum, en þetta eru usb netkort :?

gotlife skrifaði:Bara bora snúru niður ! Afi sagði alltaf ''Ef e-h klikkar þá bara bora'' Enda var húsið hjá ömmu og afa allt í holum

Já, það væri ekki svo galin hugmynd, ef við værum bara ekki í blokk #-o Svo er kjallaraherbergið ekki beint fyrir neðan íbúðina, það er eins og áður sagði tveimur hæðum niður og einni íbuð til hliðar. Vil annars benda þér á að avatarinn hjá þér er eitthvað að ruglast, nafnið er fyrir neðan en ekki fyrir ofan haha :lol:


Gigabyte GA-MA790FXT-UD5P, AMD Phenom II X4 955 @3.2Ghz, 2 x 4gb Corsair Vengeance DDR3 @1600mhz LP, EVGA Geforce GTX 760, Seagate Barracuda 500gb, 20x Sony DVDRW, TT Big Typhoon og 700W Tagan BZ allt í Cooler Master Stacker kassa með 55" Philips HDTV :]


fedora1
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 300
Skráði sig: Sun 20. Jún 2010 23:05
Reputation: 8
Staðsetning: Rvk.
Staða: Ótengdur

Re: Hægt að nota tvö netkort sem eitt?

Pósturaf fedora1 » Þri 22. Jún 2010 21:42

Ertu búinn að prófa "þráðlaust" í gegnum rafmang ?

Ég var að leika mér með svona og gat verið með tengingu á milli íbúða, en virkaði samt ekki í öllum innstungum. Við vorum að giska á að það væri tekið 3ja fasa rafmagn inn í blokkina og hvort þetta virkaði færi meira eftir því hvort greinin væri á sama fasa heldur en hvort instungunar væru á sama rafmagni.
My point það borgar sig að prófa.