Er að reyna að bæta þráðlausa netsambandið hjá gamla fólkinu. Þau eru með Speedtouch 585 router frá Símanum með 8Mbps áskriftarleið. Mér finnst þráðlausa sambandið vera svo svakalega slakt. Routerinn er staðsettur við sjónvarpið og heimilistölvan (með þráðlausu netkorti, ný tölva) er í ca. 5 metra fjarlægð í öðru herbergi, alls ekki langt frá og nokkurn veginn bein lína yfir í tölvuna ef hurðin er opin inn í herbergið.
Svo virðist sem routerinn sé einnig fremur slakur. Það þarf oft að vera að restarta honum þar sem netið virðist detta út af og til. Það þýðir að ég fæ símtal frá mömmu gömlu í hvert skipti sem hún kemst ekki inn á emailið sitt.
Er eitthvað sem ég get gert til að bæta úr þessu? Snúra yfir í routerinn er ekki í boði og ég veit að þráðlaust netsamband er yfir höfuð slakt þannig að það er óþarfi að minna mig á það. Einnig er ekki hægt að komast inn á youtube, kemur bara hvít síða og ekkert loadast. Er núna í fartölvu og sit beint fyrir framan routerinn, sama sagan.
Mælið þið með að kaupa nýtt loftnet á rouerinn eða splæsa kannski bara í nýjan router handa þeim? Linksys kannski? Er ekki þessi Speedtouch 585 fremur gamall router?
Slakt wireless samband með Speedtouch 585
Re: Slakt wireless samband með Speedtouch 585
Geta þau ekki fengið nýjan router hjá símanum?
Búinn að hringja og spyrja?
Búinn að hringja og spyrja?
-
Höfundur - </Snillingur>
- Póstar: 1069
- Skráði sig: Mið 13. Ágú 2008 02:18
- Reputation: 12
- Staða: Ótengdur
Re: Slakt wireless samband með Speedtouch 585
Jú eflaust er hægt að fá nýjan router hjá Símanum. Ætlaði bara að athuga hvort einhver hefði góða reynslu af router sem maður kaupir í tölvuverslunum. Þeir eru oft misjafnir þessir sem maður fær frá ISP-unum.
-
- Fiktari
- Póstar: 98
- Skráði sig: Mán 26. Okt 2009 19:22
- Reputation: 0
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Slakt wireless samband með Speedtouch 585
Ertu búinn að prófa aðrar tíðnir fyrir þráðlausa?
Er einhver annar þráðlaus búnaður nálægt?
Hversu mikinn styrk virðist vélin vera að fá'
Er einhver annar þráðlaus búnaður nálægt?
Hversu mikinn styrk virðist vélin vera að fá'
Re: Slakt wireless samband með Speedtouch 585
Ég myndi bara fá nýja routerinn frá Símanum, TG585n. Hann hefur verið algjört yndi hjá mér, syncar hærra en gamli 585 og þolir miklu betur stöðuga nettraffík.
Getur svo prófað að setja routerinn á annað wireless channel, geta verið önnur þráðlaus net hjá nágrönnum að rugla router foreldra þinna.
Getur svo prófað að setja routerinn á annað wireless channel, geta verið önnur þráðlaus net hjá nágrönnum að rugla router foreldra þinna.
-
Höfundur - </Snillingur>
- Póstar: 1069
- Skráði sig: Mið 13. Ágú 2008 02:18
- Reputation: 12
- Staða: Ótengdur
Re: Slakt wireless samband með Speedtouch 585
wicket skrifaði:Ég myndi bara fá nýja routerinn frá Símanum, TG585n. Hann hefur verið algjört yndi hjá mér, syncar hærra en gamli 585 og þolir miklu betur stöðuga nettraffík.
Tékka á þessum fyrir þau, takk fyrir.
carc skrifaði:Ertu búinn að prófa aðrar tíðnir fyrir þráðlausa?
Er einhver annar þráðlaus búnaður nálægt?
Hversu mikinn styrk virðist vélin vera að fá'
Já er búinn að prófa annað channel, og nei það er enginn annar þráðlaus búnaður í grennd (ekki nema bara þráðlaus net nágranna). Heimilistölvan hér virðist oft vera að fá um cirka 40-70% strength en stundum hættir allt að virka og þá þarf að restarta routernum. Gerist fremur oft.