Sendingarkostnaður

Allt utan efnis

Höfundur
coldcut
Vaktari
Póstar: 2192
Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 02:25
Reputation: 0
Staðsetning: /dev/random
Staða: Ótengdur

Sendingarkostnaður

Pósturaf coldcut » Fim 20. Maí 2010 16:33

Sælir piltar og stúlkur

Ég var að spá hvað þeir sem hafa verið að panta tölvudót eða aðrar vörur frá USA hafa verið að borga í sendingargjöld. Er ekki að leita að einhverr nákvæmri tölu heldur bara svona u.þ.b. sendingarverðinu.
Er nefnilega svo óheppinn að eftir að hafa læknast af Nýjum-Tölvu-Íhlutum þráhyggjunni að þá þjáist ég nú af "Sneaker obsession" og ætla að panta mér 1-2 skópör í netverslun í USA. Tollurinn á skófatnað er 15% en ég var að velta fyrir mér hvað sendingarkostnaðurinn yrði u.þ.b. mikill.
Væri fínt ef að þið munið sendingarkostnaðinn að þið munduð láta fylgja hversu mikið þið voruð að panta.

Með fyrirfram þökk



Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3120
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 454
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Sendingarkostnaður

Pósturaf hagur » Fim 20. Maí 2010 16:55

Það er allur gangur á því.

Algengasti sendingarkostnaðurinn sem ég hef greitt er svona á bilinu 10$ - 40$. Fer eðlilega eftir stærð/þyngd pakkans og svo hvort þetta sé standard eða expedited delivery.

Reyndar hef ég pantað af http://www.dealextreme.com og þar er free delivery út um allan heim.

Þú ættir nú væntanlega að geta séð sendingarkostnaðinn í vefversluninni áður en þú pantar skóna. Ef hann er of hár þá bara hættirðu við að panta.



Skjámynd

Olafst
Ofur-Nörd
Póstar: 285
Skráði sig: Mán 15. Mar 2010 12:29
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Sendingarkostnaður

Pósturaf Olafst » Mán 24. Maí 2010 23:11

Keypti mér snjóbrettabindingar fyrir stuttu af verslun sem var með vörurnar sínar til sölu gegnum ebay.
Borgaði $50 í sendingarkostnað.

edit: btw, hux|coldcut?




hauksinick
ÜberAdmin
Póstar: 1335
Skráði sig: Fim 11. Sep 2008 14:33
Reputation: 0
Staðsetning: Í nafla alheimsins
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Sendingarkostnaður

Pósturaf hauksinick » Mán 24. Maí 2010 23:28

ég keypti mér takkaskó og legghlífar um daginn og tollurinn af því voru heilar 8065 krónur !!!.....en annars var flutningurinn úti um 25$


Mercedes er magnað tól
Mergjuð er ásýnd líka
Það eru bara forhert fól
Sem fíla þá ekki slíka

Skjámynd

GullMoli
Vaktari
Póstar: 2484
Skráði sig: Lau 20. Maí 2006 22:05
Reputation: 235
Staðsetning: NGC 3314.
Staða: Ótengdur

Re: Sendingarkostnaður

Pósturaf GullMoli » Mán 24. Maí 2010 23:33

Ég hef pantað af http://www.wickedlasers.com, man ekki alveg hver sendingarkostnaðurinn var en hann var alls ekki hár, um $20.

Ætla mér að gerast svo djarfur að spurja hvar fólk sé að panta tölvuhluti? Veit að Newegg sendir ekki utan Bandaríkjanna :evil:


Main -> || Windows 11 || Ryzen 5600x || Asus ROG B550i || 32GB DDR4 3600 || RTX 3070 || CM 750W SFX || Lian Li TU-150 || 34" IPS 3440x1440 180Hz ||

NAS -> || Truenas Scale || i7 8700 || 64GB DDR4 2666 || 2x 12 TB ||

"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"

Skjámynd

Gunnar
Vaktari
Póstar: 2346
Skráði sig: Fös 08. Ágú 2008 00:11
Reputation: 59
Staðsetning: 105 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Sendingarkostnaður

Pósturaf Gunnar » Þri 25. Maí 2010 01:23

held að þetta sé akkurat það sem daanielin sé að leita að og ég líka.
http://www.dealextreme.com/details.dx/sku.23450
aðeins 250-260 kr á pakkan. og frí sending worldwide.




Amything
Ofur-Nörd
Póstar: 221
Skráði sig: Fim 26. Sep 2002 11:16
Reputation: 0
Staðsetning: 101
Staða: Ótengdur

Re: Sendingarkostnaður

Pósturaf Amything » Þri 25. Maí 2010 08:29

Keypti strigaskó í síðustu viku, var $35 sendingarkostnaður minnir mig.