Ég er stundum að lenda í því að stýrikerfið frjósi eins og áðan þegar ég hafði tvo vafra upp með um samtals 15 síður. Hafði auk þess orðabók uppi líka.
Ég ýtti á Ctrl+Alt+Delete til að fá upp Task manager til að athuga og sýndi það um 800MB Ram og fáein % af örgjörvakraftinum. Er með 2x1GB DDR2, og Core 2 Duo E6400 2.13 GHz. Það virðist ekki vera neitt hitavandamál á örranum því monitorinn sýndi 35°. Eftir að hafa endurræst tölvuna þá sýndi Event viever ekkert athugavert.
Ég er vanur að nota Disk Cleanup reglulega og annað slagið forritið sem athugar með villur á hörðum diskum og eins að nota CCleaner á um tveggja mánaða fresti. Ég þarf mjög sjaldan að defragmentera og eins var ekki þörf á því núna enda varla neitt rautt að sjá.
Ég var að velta fyrir mér hvort það væri kannski kominn tími á að setja Windows upp á ný þar sem ég setti það upp síðast í maí í fyrra með BIOS update og nýjum driverum. Er vanur að setja það ekki upp oftar en á árfresti enda frekar tímafrekt og leiðinlegt. Ég geri ráð fyrir að þetta gæti hjálpað upp á en er frekar tregur við það, finnst það eitthvað svo asnalegt að þurfa þess of oft.
Er þetta kannski eðlilegt að gera með Windows, að refresha það oftar en ég geri? Ekki er Linux með þetta vandamál er það nokkuð?
ps. Ég vona að frýsing í titili þráðarins sé ásættanlegt hér um slóðir.
Windows XP frýsing - kannski kominn tími á að refresha það?
-
- Besserwisser
- Póstar: 3835
- Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
- Reputation: 157
- Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
- Staða: Ótengdur
Re: Windows XP frýsing - kannski kominn tími á að refresha það?
Windowsið s.s. hætti að bregðast við, en þú komst samt í Task manager? Gastu ekki drepið þau process sem voru í gangi þar/endurræst explorer.exe? Eða fraus windows alveg?
Svona til einhverskonar samanburðar er ég að keyra Windows vista (með SP1 núna), setti það upp fyrir 18 mánuðum, aldrei defraggað. Það krassar einstaka sinnum í ræsingu (einstaka sinnum = 2-3 í mánuði) og ég hef ekki hugmynd um afhverju. Það truflar mig bara ekki neitt svo ég er ekkert að reyna að grafst fyrir um afhverju þetta gerist.
Svona til einhverskonar samanburðar er ég að keyra Windows vista (með SP1 núna), setti það upp fyrir 18 mánuðum, aldrei defraggað. Það krassar einstaka sinnum í ræsingu (einstaka sinnum = 2-3 í mánuði) og ég hef ekki hugmynd um afhverju. Það truflar mig bara ekki neitt svo ég er ekkert að reyna að grafst fyrir um afhverju þetta gerist.
-
Höfundur - FanBoy
- Póstar: 706
- Skráði sig: Fös 11. Nóv 2005 11:33
- Reputation: 2
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Windows XP frýsing - kannski kominn tími á að refresha það?
Daz skrifaði:Windowsið s.s. hætti að bregðast við, en þú komst samt í Task manager? Gastu ekki drepið þau process sem voru í gangi þar/endurræst explorer.exe? Eða fraus windows alveg?
Windows hætti að bregðast við en ég gat ýtt á Ctrl+Alt+Delete til að fá upp Task manager en það tók tíma. Hafði ekki vit á að endurræsa explorer.exe, það hefði líka tekið langann tíma þar sem Task manager var mjög tregur. Mun reyna það næst ef þetta kemur fyrir aftur.