Vandamál með að uppfæra adsl modem firmware
-
Höfundur - 1+1=10
- Póstar: 1128
- Skráði sig: Lau 30. Okt 2004 16:02
- Reputation: 8
- Staðsetning: Rivertown
- Staða: Ótengdur
Vandamál með að uppfæra adsl modem firmware
Ég er með gamalt Planet ADE-3000 módem sem ég hef verið að fikta svoldið í og var aðallega að athuga hvort þetta væri ekki örugglega enn í lagi og eftir svoldið vesen með að tengjast kvikyndinu þá komst ég að því að firmwareið á því er úrelt (í log kemur dagsetningin 1. jan 1970 mikið fyrir) svo ég náði í nýrra firmware frá Planet og reyndi að setja það inn en fékk einhverja villu um að upload hefði mistekist Svo stuttu seinna kom alltaf bara "Page not found" villa þegar ég ætlaði að prófa upload Og núna eftir að ég prófaði að aftengja tækið og tengja svo aftur (við rafmagn, enginn powertakki sko) að þá er bara engan vegin hægt að ná aftur sambandi við það Er draslið ekki bara ónýtt? Var að vonast eftir að geta selt einhverjum þetta á einhvern smáaur, er svona hægt og rólega að fara í gegnum gamalt drasl og langar meira að finna því nýtt heimili frekar en að henda því
Gigabyte GA-MA790FXT-UD5P, AMD Phenom II X4 955 @3.2Ghz, 2 x 4gb Corsair Vengeance DDR3 @1600mhz LP, EVGA Geforce GTX 760, Seagate Barracuda 500gb, 20x Sony DVDRW, TT Big Typhoon og 700W Tagan BZ allt í Cooler Master Stacker kassa með 55" Philips HDTV :]
Re: Vandamál með að uppfæra adsl modem firmware
ÉG myndi segja ónýtt.
En það gæti verið að web serverinn væri ekki að keyra, en telnet væri uppi. Er hægt að googlea telnet skipanalistann fyrir þetta? Etv er hægt að gera flush á núvernandi firmware og uploada aftur gegnum FTP/telnet. Ekki samt víst að þetta styðji samt slíkt.
Annars er nú Planet óttalegt rusl imo, ef marka má nýlegan búnað sem ég var að prófa. Allt viðmótið var á einhverri pidgin-ensku, greinilega skrifað af mönnum sem voru ekki með ensku sem móðurmál, eða annað mál for that matter.