Bandwith vandamál


Höfundur
Selurinn
Kerfisstjóri
Póstar: 1228
Skráði sig: Fös 24. Feb 2006 15:51
Reputation: 2
Staðsetning: Mhz
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Bandwith vandamál

Pósturaf Selurinn » Lau 20. Sep 2008 18:16

Sup,

Ég er núna að setja upp netkerfi í húsnæði þar sem eru 20 tölvur.
Málið er að netið er búið að vera drullu slow, allar tölvur á netinu á sama tíma og þetta er þessi Zyxel Router frá Vodafone.
Núna ætla ég að setja upp N-staðlaðan Linksys router í staðinn og setja þetta upp eins og sést á myndinni.
Spurningin er.......
Græðir maður eitthvað á því að hafa svona margar greinar milli switch og routers eins og þið sjáið á myndinni eða kemur það til með að rugla þetta eitthvað eða hvað, og þá jafnvel kannski breytir það engu!?1
Ég vil fá fróðleik um þetta, allavega in theory finnst mér þetta brilliant að hafa fjórar greinar frá router í switch til að mynda ekki of mikla traffík á einni grein :S

Endilega kommentið og fræðið mig :)

P.S.
Ég veit að þessi gigabit switch þarna er tilgangslaus, en ekki hugsa um hann. Ég er einungis að leita eftir svarinu með að hafa svona margar greinar á milli
Viðhengi
lol.jpg
lol.jpg (48.82 KiB) Skoðað 1468 sinnum



Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Bandwith vandamál

Pósturaf Gúrú » Lau 20. Sep 2008 19:01

Hversu margra MB ADSL tenging er þetta?

1 ADSL tenging fyrir 20 tölvur?


Modus ponens

Skjámynd

emmi
Of mikill frítími
Póstar: 1903
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 10:15
Reputation: 64
Staðsetning: Reykjanesbær
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Bandwith vandamál

Pósturaf emmi » Lau 20. Sep 2008 19:17

Þú tengir einn kapal úr routernum í þennan gigabit switch, og síðan úr gigabit switchinum í þennan 24porta? Ef þú ætlar að reyna það þá þarf þessi gigabit switch að öllum likindum að vera með svokallað "uplink" port sem tengist í 24porta switchinn.




axyne
Of mikill frítími
Póstar: 1794
Skráði sig: Fim 12. Jún 2003 17:16
Reputation: 82
Staðsetning: DK
Staða: Ótengdur

Re: Bandwith vandamál

Pósturaf axyne » Lau 20. Sep 2008 19:42

Tengja 1 kapall frá router í 8 porta giabit Switch og 1 kapal frá router í 24 porta Switch.
samtals 30 notendur sem deila ADSL tenginunni. þar af 7 með Gigabit tengingu á milli sín.

eða jafnvel sleppa gígabit switchinum þar sem 10/100 switchinn er alveg nóg fyrir hvaða ADSL tengingun sem er.

Græðir ekkert á þessari útfærslu sem þú er að pæla í með myndinni og skapar öruglega bara vandamál þó ég þekki það ekki fyrir víst.


Electronic and Computer Engineer


ÓmarSmith
Vaktari
Póstar: 2542
Skráði sig: Fim 13. Júl 2006 19:30
Reputation: 43
Staðsetning: Kópavogur
Staða: Ótengdur

Re: Bandwith vandamál

Pósturaf ÓmarSmith » Lau 20. Sep 2008 23:34

Ef þetta eru 20 vélar þá þarftu lágmark 12Mb tengingu nema þú viljir vera í korter að opna mbl.is

Þ.e ef þú ert að miða við að allir séu á netinu á sama tíma... helst myndi ég vilja nota ljósleiðara á svona stað með svona 50mb link .... en


Gigabyte Aorus Elite V2 * Ryzen 5 5600x * Nvidia RTX3080 * 16Gb Corsair LPX CL16 3600 * Corsair RM850x * Acer Predator X34 34" 100hz * Corsair Carbite 400D * Sennheiser HD560s


dorg
has spoken...
Póstar: 171
Skráði sig: Lau 24. Jún 2006 10:19
Reputation: 2
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Bandwith vandamál

Pósturaf dorg » Sun 21. Sep 2008 01:56

Getur alveg eins sleppt Gigabit swissinum og það er aðeins ein tenging virk á hverjum tíma milli swissanna.
Ættir að lesa þér til um fyrirbæri sem heitir spanning tree til að skilja af hverju.
Ef vélarnar eru að hafa mikil samskipti innbyrðis gæti verið ávinningur af að tengja þær við gigabit swissinn og uplinka hann svo
annaðhvort gegnum swissportin á routerum eða stóra svissinn. Það er í góðu lagi að tengja þetta margar tölvur á net svo framarlega sem engir séu að keyra p2p gagnvart internetinu og engin vélin sé vírus/malware smituð, jafnvel á tveggja megabit tengingu.



Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1573
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Reputation: 254
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: Bandwith vandamál

Pósturaf depill » Sun 21. Sep 2008 16:45

Selurinn skrifaði:Núna ætla ég að setja upp N-staðlaðan Linksys router í staðinn og setja þetta upp eins og sést á myndinni.


Úff don't do it ámóti ADSL tengingu frá Vodafone. Ef þú notar Linksys nýju routerana gegn Vodafone til að mynda PPPoE sambandið ( giskandi að þú sért með dial-up ) að þá á þetta eftir að slíta eins og MoFo, sífellt að rofna PPP sambönd milli Linksys nýju routeranna og Vodafone, mög slæmt.

Gætir frekar notað hann bara sem access-punkt og sleppt því að nota hann sem gateway ( ef þú ert þegar búinn að kaupa hann, annars kaupa bara AP ef það er það sem þú ert að sækjast eftir ).

Og já þú græðir ekkert á þessu setupi sem þú ert með þarna, bæði vegna spanning-tree og svo common þú ert með í mesta lagi 24 Mb/s samband ( og að öllum líkindum töluvert minna en það ) en vilt hafa 400 Mb/s uplink til þess að teppa ekki upp 100 Mb/s uplinkin við mest 24 Mb/s uplinkin ( do you see the problem ). Og jamm þessi auka 8 porta sviss er ekki að gera neitt fyrir þig, miklu betra að tengja þetta bara beint í 24p svissin.

Annars þegar þú ert kominn með svona marga notendur á eina tengingu ( ef þær séu að nota tenginguna ) held ég að það væri allt í lagi að splæsa í decent router eins og Cisco 877. Og ennfremur ( þó ég gæti séð að kannski er ekki budget fyrir því ) þá myndi ég pæla í kannski 10 Mb/s ljóstengingu/EyK fyrir þetta netumhverfi, það er að segja ef það sé hófleg Internet notkun þarna, þú verður suprised hvað 10 Mb/s ljós/EyK =! ADSL :)




akarnid
Ofur-Nörd
Póstar: 241
Skráði sig: Lau 04. Nóv 2006 22:35
Reputation: 10
Staða: Ótengdur

Re: Bandwith vandamál

Pósturaf akarnid » Sun 21. Sep 2008 17:16

Tel að depill hafi svarað þessu best með internal kerfið hjá þér. Ég sé annars ekkert að því per se, þrátt fyrir að það sé óþarfi að hafa tvo svissa þarna.

En ef þú ert með venjulega 12 mbit ADSL tengingu fyrir þetta setup hjá þér þá ertu búinn að svara spurningunni um bandvíddina. Þú ert þá alveg að metta uplinkið þitt (sem er einhvers staðar á bilinu 750-800 kbit) með öllum þeim fyrirspurnum sem þessar tölvur eru að senda. Þessi residential router er deff ekki að höndla þetta álag sem á honum er.

Uppfærðu í betri link og endabúnað fyrir svona setup. Ef þú ætlar að vera pro, þá þýðir ekkert að vera með amateur tengingu.


@depill: Ljós væri gott já, en EyK er alveg fokk dýrt. Það geta þó ekki allir fengið ljós auðveldlega.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16554
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2130
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Bandwith vandamál

Pósturaf GuðjónR » Sun 21. Sep 2008 17:19

20 tölvur á einni adsl tengingu er ekki að gera sig PUNKTUR.



Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1573
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Reputation: 254
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: Bandwith vandamál

Pósturaf depill » Sun 21. Sep 2008 17:41

akarnid skrifaði:@depill: Ljós væri gott já, en EyK er alveg fokk dýrt. Það geta þó ekki allir fengið ljós auðveldlega.


EyK ( Ethernet yfir kopar ) og Ljós eru jafn dýr hjá Vodafone og Símanum. Yfirleitt er EyK notuð þar sem það kostar of mikið að setja ljós :) Held að eini staðurinn þar sem þú getir ákveðið hvort að þú viljir EyK fram yfir ljós sé hreinlega hjá Mílu.

En bæði er drulludýrt. 10 Mb/s er að kosta þetta 60 þúsund kall hjá sitthvorum fyrirtækjum

Netsamband 7 - þetta er frekar soldid dæmi fyrir þetta setup hjá þér ( er ekki að vinna fyrir Símann ). Þetta er eithvað aðeins óljósara á heimasíðunni hjá Vodafone, en þar er mánaðargjaldið fyrir 10 Mb/s internet 52.200 kr, giska að það sé án vsk, gagnamagns og endabúnaðar.

Gætir jafnvel reynt þetta http://siminn.is/fyrirtaeki/internet/ne ... tsamband6/ og þá bara uppfært ( 5 Mb/s sem sagt ), en ég held að þú þurfir alveg að fara í 10 Mb/s og já pott þétt betri endabúnað :)

Ef það sé ljós inni hjá þér eða stutt í það verður að öllum líkindum tengt ljós til þín annars EyK, enda alveg nógu lítill munur á performence til að það sé ásættanlegt :)




Höfundur
Selurinn
Kerfisstjóri
Póstar: 1228
Skráði sig: Fös 24. Feb 2006 15:51
Reputation: 2
Staðsetning: Mhz
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Bandwith vandamál

Pósturaf Selurinn » Mán 22. Sep 2008 23:44

Hringdi í Vodafone og þeir töluðu um að hægt væri að nota þennan router PPPoA. Hver er gallinn við það?


depill.is skrifaði:
Selurinn skrifaði:Núna ætla ég að setja upp N-staðlaðan Linksys router í staðinn og setja þetta upp eins og sést á myndinni.


Úff don't do it ámóti ADSL tengingu frá Vodafone. Ef þú notar Linksys nýju routerana gegn Vodafone til að mynda PPPoE sambandið ( giskandi að þú sért með dial-up ) að þá á þetta eftir að slíta eins og MoFo, sífellt að rofna PPP sambönd milli Linksys nýju routeranna og Vodafone, mög slæmt.

Gætir frekar notað hann bara sem access-punkt og sleppt því að nota hann sem gateway ( ef þú ert þegar búinn að kaupa hann, annars kaupa bara AP ef það er það sem þú ert að sækjast eftir ).

Og já þú græðir ekkert á þessu setupi sem þú ert með þarna, bæði vegna spanning-tree og svo common þú ert með í mesta lagi 24 Mb/s samband ( og að öllum líkindum töluvert minna en það ) en vilt hafa 400 Mb/s uplink til þess að teppa ekki upp 100 Mb/s uplinkin við mest 24 Mb/s uplinkin ( do you see the problem ). Og jamm þessi auka 8 porta sviss er ekki að gera neitt fyrir þig, miklu betra að tengja þetta bara beint í 24p svissin.

Annars þegar þú ert kominn með svona marga notendur á eina tengingu ( ef þær séu að nota tenginguna ) held ég að það væri allt í lagi að splæsa í decent router eins og Cisco 877. Og ennfremur ( þó ég gæti séð að kannski er ekki budget fyrir því ) þá myndi ég pæla í kannski 10 Mb/s ljóstengingu/EyK fyrir þetta netumhverfi, það er að segja ef það sé hófleg Internet notkun þarna, þú verður suprised hvað 10 Mb/s ljós/EyK =! ADSL :)



Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3760
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Bandwith vandamál

Pósturaf Pandemic » Þri 23. Sep 2008 00:09

Langar soldið að stela þessum þræði, s.s ég er með Switch og Wi-Fi AP á neti.
tölva tengist switchinum og síðan dettur henni í hug að tengjast líka Wi-Fi AP. Myndast þá loopa? við erum að tala hérna um mjög basic netsetup engir layered switchar.
S.s lenti í vandræðum með svona setup um daginn þar sem netið hrundi af og til, þá er ég að tala um að það var hrunið það lengi stundum að það þurfti að endurræsa switchana.
Datt þetta svona í hug, þar sem ég veit að ef það myndast loopa á milli tveggja switcha þá dettur allt út. Hefur gerst nokkrum sinnum á lani að e-h snillingur hafi tengt tvær snúru á milli switcha.

Bara pælingar.




dorg
has spoken...
Póstar: 171
Skráði sig: Lau 24. Jún 2006 10:19
Reputation: 2
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Bandwith vandamál

Pósturaf dorg » Þri 23. Sep 2008 13:15

Pandemic skrifaði:Langar soldið að stela þessum þræði, s.s ég er með Switch og Wi-Fi AP á neti.
tölva tengist switchinum og síðan dettur henni í hug að tengjast líka Wi-Fi AP. Myndast þá loopa? við erum að tala hérna um mjög basic netsetup engir layered switchar.
S.s lenti í vandræðum með svona setup um daginn þar sem netið hrundi af og til, þá er ég að tala um að það var hrunið það lengi stundum að það þurfti að endurræsa switchana.
Datt þetta svona í hug, þar sem ég veit að ef það myndast loopa á milli tveggja switcha þá dettur allt út. Hefur gerst nokkrum sinnum á lani að e-h snillingur hafi tengt tvær snúru á milli switcha.

Bara pælingar.


Nei sitt hvor mac-addressan sitt hvor ip tala á tölvunni. Hinsvegar gæti rútun frá þér orðið eitthvað skrítin sérstaklega ef þú rútar á milli interfacea.



Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1573
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Reputation: 254
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: Bandwith vandamál

Pósturaf depill » Þri 23. Sep 2008 15:26

Selurinn skrifaði:Hringdi í Vodafone og þeir töluðu um að hægt væri að nota þennan router PPPoA. Hver er gallinn við það?


Hmmm PPPoAoE conversionið hjá Vodafone er shaky @ best, gætir lent í veseni með tengingar inná kerfið þeirra, þegar það er eithvað lítið er að. Þar sem að þú ert líklegast tengdur við IP DSLAM hjá þeim, þýðir að þeir munu reyna þýða PPPoA kallið þitt sem gæti virkað, but could not. Basicly Linksys ADSL nýja serían =! Vodafone ADSL(dial-up), veit ekki með Símann ADSL, hef ekki prófað.

Ennfremur þetta er ekkert sérstaklega betri router en ZyXELinn, ef þú vilt reyna að gera það besta úr þessi ADSLi sambandi og týmir alls ekki í betra netsamband, mæli ég með að minnta kosti að fara uppí Cisco 877-M og fá þér þá Annex. M tengingu með 2 Mb/s upload.



Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1573
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Reputation: 254
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: Bandwith vandamál

Pósturaf depill » Þri 23. Sep 2008 15:29

dorg skrifaði:Nei sitt hvor mac-addressan sitt hvor ip tala á tölvunni. Hinsvegar gæti rútun frá þér orðið eitthvað skrítin sérstaklega ef þú rútar á milli interfacea.


Allt rétt hjá dorg ( skiptir aðalmáli að það er sitt hvor mac-addressan á sitthvoru interfaceinu í tölvunni ), en rútunin verður ekkert skrítin, ef þú ert að nota Windows þá setur Windows metricið lægst á ethernet interface og svo hærra á WiFi Interfaceið, sem þýðir að ef þú ert með 2 interface, WiFi og Ethernet og bæði kveikt, þá mun Windows by default taka ethernet interfaceið. Það er samt hægt að forca hitt behaviourið, hversu sniðugt það er samt ?