LAN vandamál


Höfundur
END
has spoken...
Póstar: 161
Skráði sig: Lau 28. Jún 2003 01:52
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

LAN vandamál

Pósturaf END » Mán 17. Des 2007 20:34

Sælir,

Vandamál mitt felst í því að ég get hvorki fundið mína eigin tölvu né aðrar tölvur í mínu local area networki og aðrar tölvur geta ekki fundið mína. Vandmálið er bundið við nýlega tölvu með Gigabyte P35-DS3L móðurborði.

Vandamálið hefur verið til staðar frá upphafi en þó var mögulegt að sjá aðrar tölvur í kerfinu og komast í skjöl inn á þeim til að byrja með, en aldrei sást þessi tölva í öðrum tölvum. Þetta hefur þó eingöngu verið bundið við netkerfið og netið sjálft hefur verið í fínu lagi sem hefur líka frestað því að ég leiti bóta á þessu máli.

Stýrikerfið sem ég notast við er Windows XP og ég hef reynt að enduruppsetja LAN driverinn, bæði þann sem fylgdi með á geisladisk og nýjasta, án þess að leysa vandann. Ég vona að einhver hér sjái hvar vandinn liggur.



Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6799
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 940
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Viktor » Mán 17. Des 2007 21:32

Klassísk spurning:
Er einhverskonar eldveggur?


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

Revenant
</Snillingur>
Póstar: 1034
Skráði sig: Fim 24. Jún 2004 12:36
Reputation: 132
Staða: Ótengdur

Pósturaf Revenant » Þri 18. Des 2007 11:19

Kemur upp sama vandamál ef þú bootar upp af live cd(t.d. ubuntu) og skoðar staðarnetið þannig?
Getur verið að snúrurnar séu eitthvað lélegar (bognar eða beyglaðar t.d.)?




Höfundur
END
has spoken...
Póstar: 161
Skráði sig: Lau 28. Jún 2003 01:52
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

Pósturaf END » Þri 18. Des 2007 13:19

Viktor skrifaði:Klassísk spurning:
Er einhverskonar eldveggur?


Enginn eldveggur, nema jú Windows Firewall.

Revenant skrifaði:Kemur upp sama vandamál ef þú bootar upp af live cd(t.d. ubuntu) og skoðar staðarnetið þannig?
Getur verið að snúrurnar séu eitthvað lélegar (bognar eða beyglaðar t.d.)?


Á eftir að prófa live cd.
En jú sumar snúrur eru illa farnar en ekki sú sem tengir þessa tölvu við routerinn og auk þess kemst ég á netið í öllum tölvum hússins (sem eru reyndar bara tvær borðtölvur og ein fartölva).




Xyron
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 389
Skráði sig: Sun 09. Okt 2005 23:36
Reputation: 0
Staðsetning: 127.0.0.1
Staða: Ótengdur

Pósturaf Xyron » Þri 18. Des 2007 14:28

Hvað gerist þegar þú disablar firewallinn hjá þér?

Skemmtilegra líka að hafa vélina þína á sama workgroupi og hinar tvær



Skjámynd

zedro
Stjórnandi
Póstar: 2784
Skráði sig: Fös 29. Okt 2004 21:29
Reputation: 128
Staðsetning: FL410
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf zedro » Þri 18. Des 2007 15:41

Er vélin í sama workgroup?

Hérna hja mér finnst vélin mín ekki nema að ég slái inn \\192.168.x.xxx eða \\nafniðáhenni
Held að það gæti verið workgroup issue hef samt ekki tjekkað á því :lol:


Kísildalur.is þar sem nördin versla


Höfundur
END
has spoken...
Póstar: 161
Skráði sig: Lau 28. Jún 2003 01:52
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

Pósturaf END » Þri 18. Des 2007 17:46

Ótrúlegustu hlutir gerast, þetta er komið í lag án þess að ég hafi gert nokkuð! Vandamál sem hefur verið til staðar í marga mánuði er nú alveg horfið. Eina skýringin sem kemur til hugar er að ég hafi gleymt að endurræsa tölvuna eftir að ég setti upp nýja (gamla) lan rekla og þeir hafi í raun lagað þetta. Það hjálpar greinilega að spyrja á vaktinni! ;)



Skjámynd

Halli25
Bara að hanga
Póstar: 1577
Skráði sig: Fim 13. Sep 2007 12:42
Reputation: 67
Staðsetning: Hveragerði
Staða: Ótengdur

Pósturaf Halli25 » Þri 18. Des 2007 17:52

END skrifaði:Ótrúlegustu hlutir gerast, þetta er komið í lag án þess að ég hafi gert nokkuð! Vandamál sem hefur verið til staðar í marga mánuði er nú alveg horfið. Eina skýringin sem kemur til hugar er að ég hafi gleymt að endurræsa tölvuna eftir að ég setti upp nýja (gamla) lan rekla og þeir hafi í raun lagað þetta. Það hjálpar greinilega að spyrja á vaktinni! ;)

svo við getum lært á þessu að ef eitthvað bjátar á við PC vél er að prófa restart áður en nokkuð annað er gert? :)


Starfsmaður @ IOD