Ég er að spá í að uppfæra ferðavélina. Var að spá í Dell XPS 1330 en er farinn að hallast meira að MacBook Pro, enda gengi dollarans með lægsta móti þessa dagana.
Eitt sem ég var að spá í var hvernig mönnum gengur að keyra xp í virtualvél. Ég get ekki algerlega sagt skilið við Win32 hugbúnað í fyrstu lotu (les. ég nenni því ekki) og því væri fínt að hafa xp virtualvél í bakhöndinni.
Er þetta nokkuð mál?
Eru afköstin ekki alveg dúndurgóð?
Látið nú svörunum rigna inn piltar ..
osx + winxp
þú notar http://www.parallels.com sem er brilljant forrit
það sem þú gerir er að setja upp BootCamp (þannig að þú getir dual bootað) og svo notarðu Parallels sem gerir þér kleift að opna Windows sem virtual vél þegar þú ert í Mac Os umhverfinu
ég er með 2,4GHZ MacBook Pro með 256Mb skjákortinu og 4GB í minni
hún kvartar nákvæmlega ekkert þegar ég er með Windows XP á 23" Dell skjá í vinnunni og Mac OS á fartölvuskjánum