Hive - Tæknileg mistök!?

Skjámynd

Sidious
Ofur-Nörd
Póstar: 241
Skráði sig: Mið 30. Júl 2003 03:01
Reputation: 14
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Sidious » Mið 20. Des 2006 00:05

Æ þetta er ömurlegt að lenda í þessu, man eftir því hérna í gamla daga þegar ég var með tengingu hjá mmedia og þeir gerðu aldrei neitt í því þótt maður sótti yfir 1 gíg. Svo einn daginn sendu þeir í tölvupósti til notanda að þeir væru komnir með svona mæli búnað og fólk gæti núna séð hvað það væri að sækja mikið. (svona eins og var/er hjá símanum)

Ég las auðvita ekkert bréfin frá þeim, enda aldrei neitt merkilegt í þeim og sótti einn mánuð um 20 GB og var komin uppí 10 GB hin mánuðinn þegar ég fékk reikningin, hljómaði uppá litlar 50 þúsund krónur, þurfti síðan í heildina að borga næstum 80 þúsund kall :cry: Eyddi öllu orlofinu mínu í það, bad times...




Superdós
Nýliði
Póstar: 2
Skráði sig: Þri 19. Apr 2005 09:36
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Gekk ekki vel hjá Hive

Pósturaf Superdós » Mið 20. Des 2006 02:32

Ég sótti um hjá Hive
Fékk Router 7 dögum seinna
Tenging kominn 10 dögum seinna
Router var fyrir ISDN línu
14 dögum seinna átti einhver að koma og skipta við mig um router
20 dögum seinna gafst ég upp, skilaði router og sagði: Nei takk
1 mán seinna: Reikningur fyrir ADSL í mánuð

31 dagur... Kominn til símans :!:




gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf gumol » Mið 20. Des 2006 12:02

Getur klárlega ekki staðist ef þú varst ekki látinn vita. Spurning þótt þetta geti staðist hvort Skýrr sé ekki til í að sleppa því að rukka yfir 40 GB í þetta skiptið þarsem þú vissir ekki af því að það væri hætt að vera ótakmarkað.

En svakalega hefurðu náð í mikið af efni til að njóta yfir jólin.

Edit: Þeir segja að hámarks niðurhal sé 40 Gb sem er 5 GB ef þú reiknar með að þetta sem þeir segja sé rétt. Fyrir mér er það ekki afsökun hjá internetþjónustufyrirtæki að kunna ekki muninn á b og B. Það væri svona álíka eins og bankinn þinn væri með vitlaust gjaldeyrismerki í heimabankanum. Þetta er fólk sem _á_ að vita hvað það er að gera.

Capitalization is the difference between "I had to help my uncle Jack off a horse.." and "I had to help my uncle jack off a horse.."



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6494
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 313
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mið 20. Des 2006 13:27

aaahahah!! Takk fyrir nýju undirskrifina Gummi :D


"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

daremo
spjallið.is
Póstar: 465
Skráði sig: Mið 27. Okt 2004 00:39
Reputation: 73
Staða: Ótengdur

Pósturaf daremo » Mið 20. Des 2006 14:41

Ég lenti í svipuðu hjá Línunet fyrir uþb 5 árum.
Allt niðurhal hafði verið frítt þangað til ég fékk bréf frá þeim sem tilkynnti það að þeir væru farnir að rukka fyrir niðurhal frá og með dagsetningunni sem þeir tóku fram í bréfinu.

Eina vandamálið var að þessi dagsetning var uþb 30 dögum áður en bréfið barst.

Ég fékk 50þús kr reikning, neitaði að borga hann, og þeir neituðu að leiðrétta þetta.
Endaði með því að þetta fór í lögfræðing og að lokum á vanskilalista, komið upp í 120þús kr.

Þessi skuld er fyrnd núna, en ég var með þetta á bakinu í 4 ár á vanskilalista :/



Skjámynd

ManiO
Besserwisser
Póstar: 3963
Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
Reputation: 0
Staðsetning: Seltjarnarnes
Staða: Ótengdur

Pósturaf ManiO » Mið 20. Des 2006 17:02

daremo skrifaði:Ég lenti í svipuðu hjá Línunet fyrir uþb 5 árum.
Allt niðurhal hafði verið frítt þangað til ég fékk bréf frá þeim sem tilkynnti það að þeir væru farnir að rukka fyrir niðurhal frá og með dagsetningunni sem þeir tóku fram í bréfinu.

Eina vandamálið var að þessi dagsetning var uþb 30 dögum áður en bréfið barst.

Ég fékk 50þús kr reikning, neitaði að borga hann, og þeir neituðu að leiðrétta þetta.
Endaði með því að þetta fór í lögfræðing og að lokum á vanskilalista, komið upp í 120þús kr.

Þessi skuld er fyrnd núna, en ég var með þetta á bakinu í 4 ár á vanskilalista :/


Já, kannast við svipað, maður sem ég þekki (mjög vel), fékk einmitt sent bréf upp á það að verið væri að fara að senda reikning til lögfræðings, bréfið var stílað upp á einhverja viku áður en það átti að gerast, nema hvað, bréfið var ekki sent fyrr en daginn eftir að það átti gerast.


"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."


Blackened
vélbúnaðarpervert
Póstar: 956
Skráði sig: Mið 29. Sep 2004 17:36
Reputation: 14
Staðsetning: Babýlon norðursins
Staða: Ótengdur

Pósturaf Blackened » Mið 20. Des 2006 19:07

gumol skrifaði:Getur klárlega ekki staðist ef þú varst ekki látinn vita. Spurning þótt þetta geti staðist hvort Skýrr sé ekki til í að sleppa því að rukka yfir 40 GB í þetta skiptið þarsem þú vissir ekki af því að það væri hætt að vera ótakmarkað.

En svakalega hefurðu náð í mikið af efni til að njóta yfir jólin.

Edit: Þeir segja að hámarks niðurhal sé 40 Gb sem er 5 GB ef þú reiknar með að þetta sem þeir segja sé rétt. Fyrir mér er það ekki afsökun hjá internetþjónustufyrirtæki að kunna ekki muninn á b og B. Það væri svona álíka eins og bankinn þinn væri með vitlaust gjaldeyrismerki í heimabankanum. Þetta er fólk sem _á_ að vita hvað það er að gera.

Capitalization is the difference between "I had to help my uncle Jack off a horse.." and "I had to help my uncle jack off a horse.."


Já.. Mikið efni og ekki mikið efni :P sótti helling af því í HD fyrir sjónvarpið inní stofu.. þetta eru bara nokkrar heilar seríur af þáttum

Komst ekki í skýrr í dag útaf þessu veseni sem að gerðist inní firði.. féll aurskriða á bæinn hjá bróðir hans pabba og var upptekinn í allan dag

...Og síðan sá ég að eindagi á reikningnum er á morgun! svei.. homsar