Ég náði í þetta frá microsoft síðunni fyrr í dag og líkar alveg útlitið, en þetta er alltaf að crasha hjá mér og bara með helvítis vesen. OK þetta er beta svo ég get því smá séns.
Það sem ég er að ærast yfir er að í WMP 10 og held ég bara öllum þar fyrir neðan frá 8 allavega, var hægt að ýta á "Now Playing" flipann og vera með Playlistann þar til hliðar. Það var þannig hjá mér, en ég asnaðist til að ýta á takka sem tók þennan flipa í burtu úr WMP 11, þegar ég ætlaði að reyna að finna hversu langur video fællinn var sem ég var að spila. Vandamálið er það að ég get með engum hætti fengið þennan lista aftur! Það er ekki gamli góði "show playlist" takkinn þarna einhverstaðar og ekki hægt að gera neitt til að fá helvítis listann aftur.
Svo þið sem hafið prófað þetta forrit segjir mér eitt, er ég bara heimskur og það er auðvelt að fá þennan lista aftur, eða er þetta meingallað forrit?
Ég bara spyr....
Windows Media Player 11 Beta vesen
-
- ÜberAdmin
- Póstar: 1326
- Skráði sig: Fim 13. Okt 2005 15:25
- Reputation: 1
- Staðsetning: Skúrinn
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
ef þú ert að nota stóra playlista þá finnst mér nú bara winamp bestur
nærð í það hér http://www.winamp.com
nærð í það hér http://www.winamp.com
Mazi -
-
Höfundur - Staða: Ótengdur
Mazi! skrifaði:ef þú ert að nota stóra playlista þá finnst mér nú bara winamp bestur
nærð í það hér http://www.winamp.com
Ég nota Winamp í tónlistarhlustun en WMP til að horfa á video. Ég vildi bara sjá hvað videoið var langt þar sem það kom hvergi fram þarna
gnarr skrifaði:Mazi; ekki svara bara eitthvað útí loftið. Þetta er enganvegin svar við spurningunni hanns.
Ps.
ég fann þetta.. þú klikkar á píluna fyrir neðan "Now Playing" og velur þar "Show List Pane".
Grunaði að þetta var þar, þar sem forritið krassar alltaf hjá mér þegar ég ýti á þessa pílu
-
Höfundur - Staða: Ótengdur
urban- skrifaði:Danni Colt skrifaði:Grunaði að þetta var þar, þar sem forritið krassar alltaf hjá mér þegar ég ýti á þessa pílu
hefuru prufað að ýta á píluna án þess að vera með eitthvað á playlistanum ?
Jamm. Líka búinn að prófa að reinnstalla og alveg þurrka WMP úr tölvunni og setja upp aftur... lagast ekki. Spurning hvort þetta er eitthvað bug í nýjastu útgáfunni af Beta testinu? Ég er með version 11.0.5358.4827. Finnst ólíklegt að þetta er einhver bug í tölvunni minni þar sem pílurnar undir öllum hinum flipunum virka vel..