Íran stríð eða taco?

Hér gilda almennar reglur, og virðing er skilyrði. Þræðir birtast ekki í Virkum umræðum.
Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 6001
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1095
Staða: Ótengdur

Íran stríð eða taco?

Pósturaf appel » Fös 27. Feb 2026 21:28

Samningaviðræður virðast ekki vera að ganga.

Tíminn sem Trump gaf fyrir viðræður lýkur núna um helgina eða er jafnvel liðinn.

Erum við að sjá meiriháttar gerast þarna á næstu dögum?

Veit ekki hvort BNA hafi metnað eða getu til að ná fram sínum markmiðum í Íran, ekki frekar en Rússland í Úkraínu. Jú, þeir geta ráðist á einhver mannvirki og svona, en það eru bara svo margir í Íran sem styðja klerkastjórnina, held menn séu að vanmeta það.... allt gamla fólkið og miðaldra fólkið þarna styður klerkastjórnina.

Jafnvel þó bandaríski herinn sé öflugur og geti valdið miklu tjóni, þá er enginn vilji til að fara inn í landið. Loftárásir hafa aldrei náð fram breytingum á stefnu landa, ekki sem ég man eftir, heldur bara gert lönd ákveðnari í að berjast.

Þetta er heljarinnar stórt land, 2.5x stærra en Úkraína. Flugtími árásarþota er gríðarlegur fyrir eina ferð fram og til baka. Þetta er mjög fjalllent land og ómögulegt fyrir landher að hertaka. Þetta er ekki Gaza ströndin sem liggur "vel við höggi".

Held það væri auðveldara fyrir bandaríska herinn að taka yfir Rússland heldur en Íran.

Önnur leiðin er að stía landinu í sundur eftir ethnískum línum
Mynd


Annars held ég að miklar líkur séu á því að þeir komi sér upp kjarnorkuvopnum á endanum. Heimurinn á eftir að gjörbreytast á næstu árum. Mjög mörg lönd eiga líklega eftir að koma sér upp kjarnorkuvopnum á næstu 20 árum. Allar tilraunir til að koma í veg fyrir slíkt eru í raun að mistakast. Kína og Rússland styður Íran í því að koma sér upp kjarnorkuvopnum, og auðvitað verður svarið við því að lönd sem eru nágrannar Kína og Rússlands munu koma sér upp kjarnorkuvopnum, einsog Japan, S-Kórea, jafnvel Tævan, og Svíþjóð/Norðurlönd, Pólland kannski, kannski Þýskaland á endanum, kannski mun Úkraína nauðbeygjast til þess.

Stefnir allt í að við tortímum okkur, mun mannkynið lifa af 21. öldina? Ekki bjartsýnn.


*-*

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17255
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2378
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Íran stríð eða taco?

Pósturaf GuðjónR » Lau 28. Feb 2026 14:39

IMG_0620.jpeg
IMG_0620.jpeg (136.93 KiB) Skoðað 465 sinnum



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8819
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1417
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Íran stríð eða taco?

Pósturaf rapport » Lau 28. Feb 2026 15:20

USA að fara í annað Írak/Afganistan (stríð, stjórnarskipti og herseta) dæmi eða annað Sýrland/Lybía (bara stríð og stjórnarskipti )



Skjámynd

Henjo
</Snillingur>
Póstar: 1087
Skráði sig: Mán 15. Júl 2013 03:44
Reputation: 406
Staða: Ótengdur

Re: Íran stríð eða taco?

Pósturaf Henjo » Lau 28. Feb 2026 15:29

Úff, fyrst Venesúela, síðan hóta að hertaka Grænland, síðan hóta að með Kúbu og núna þetta?

Hvað varð um forseti friðar, og einbeta sér að innanlandsmálum og hætta öllum stríðsbruðli?



Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 6001
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1095
Staða: Ótengdur

Re: Íran stríð eða taco?

Pósturaf appel » Lau 28. Feb 2026 21:03

Henjo skrifaði:Úff, fyrst Venesúela, síðan hóta að hertaka Grænland, síðan hóta að með Kúbu og núna þetta?

Hvað varð um forseti friðar, og einbeta sér að innanlandsmálum og hætta öllum stríðsbruðli?


Auðvitað verður friður þegar búið er að útrýma öllum óvinum

Mynd


*-*

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17255
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2378
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Íran stríð eða taco?

Pósturaf GuðjónR » Lau 28. Feb 2026 21:27

Svo eru allir að fara á límingunum af hræðslu við Rússland :megasmile



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8819
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1417
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Íran stríð eða taco?

Pósturaf rapport » Sun 01. Mar 2026 01:09

GuðjónR skrifaði:Svo eru allir að fara á límingunum af hræðslu við Rússland :megasmile


mínus mínus er ekki plús í raunveruleikanum



Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 6001
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1095
Staða: Ótengdur

Re: Íran stríð eða taco?

Pósturaf appel » Sun 01. Mar 2026 02:29

Æðsti klerkurinn dauður. Enginn á eftir að fella tár yfir því, öfga-nöttari... þessi klerka stjórn er einskonar death cult.

Vonandi nær íranska þjóðin að komast undan þessari theólógísku trúarnöttara ógnarstjórn.

Þeir drápu um 30.000 manns sem voru að mótmæla, á bara 2-3 dögum. Það er helmingur þeirra sem féllu í 2ja ára stríði gegn Gaza sem var kallað þjóðarmorð. Þessa klerkastjórn á að senda beint til helvítis.

Aldrei að vita hvað gerist á næstu dögum, árásum verður haldið áfram í marga daga í viðbót, þeir ætla að fara alla leið með þetta, ganga frá þeim endanlega, sjóhernum, irgc, eldflaugaframleiðslunni þeirra, drepa alla leiðtogana, og knésetja landið, gelda það hernaðarlega þannig að þeir geti ekki projectað neinu valdi.


En hvort þessi klerkastjórn lifi af, veltur allt á fólkinu sjálfu í Íran. Held að aðeins það geti skipt um stjórnvöld. Klerkastjórnin gerir allt til að lifa af, er með fullt af varamönnum til að taka við. BNA og Ísrael geta bara búið til ákveðnar aðstæður, en aðeins fólkið þarna getur komið þeim frá völdum.


*-*

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8819
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1417
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Íran stríð eða taco?

Pósturaf rapport » Sun 01. Mar 2026 10:27

appel skrifaði:Æðsti klerkurinn dauður. Enginn á eftir að fella tár yfir því, öfga-nöttari... þessi klerka stjórn er einskonar death cult.

Vonandi nær íranska þjóðin að komast undan þessari theólógísku trúarnöttara ógnarstjórn.

Þeir drápu um 30.000 manns sem voru að mótmæla, á bara 2-3 dögum. Það er helmingur þeirra sem féllu í 2ja ára stríði gegn Gaza sem var kallað þjóðarmorð. Þessa klerkastjórn á að senda beint til helvítis.

Aldrei að vita hvað gerist á næstu dögum, árásum verður haldið áfram í marga daga í viðbót, þeir ætla að fara alla leið með þetta, ganga frá þeim endanlega, sjóhernum, irgc, eldflaugaframleiðslunni þeirra, drepa alla leiðtogana, og knésetja landið, gelda það hernaðarlega þannig að þeir geti ekki projectað neinu valdi.

En hvort þessi klerkastjórn lifi af, veltur allt á fólkinu sjálfu í Íran. Held að aðeins það geti skipt um stjórnvöld. Klerkastjórnin gerir allt til að lifa af, er með fullt af varamönnum til að taka við. BNA og Ísrael geta bara búið til ákveðnar aðstæður, en aðeins fólkið þarna getur komið þeim frá völdum.


Hvenær hefur svona hernaðarbrölt USA gagnast íbúunum í landinu?

https://en.wikipedia.org/wiki/2026_Iran_massacres

En það var kannski akkúrat málið, það voru búin að vera mikil mótmæli í landinu og það lá í loftinu að það yrðu miklar lýuðræðisumbætur.

Maður fær það á tilfinninguna að USA hafi bara verið að reyna handvelja næsta leiðtoga.

Það er smá spooky að sjá hvernig Kína hefur brugðist við - https://asiatimes.com/2026/02/china-clo ... -close-in/

Signalið sem verið er að senda USA er "We are calling your bluff".

Markmiðið er líklegga að triggera enn meiri hernaðaruppbyggingu hjá USA og koma þeim þannig endanlega í þrot efnahagslega.


Ég er svo persónulega á þeirri skoðun að lönd sem eru í kröggum vegna stríðs o.þ.h. ættu alls ekki að vera beytt almennum viðskiptaþvingunum heldur þvert á móti á undanþágur og sporslur sem gera viðskipti auðveldari því að "skortur" er tól sem skapar neyð og það er akkúrrat tólið sem er er notað til að stjórna fólki, fá það í ofstæki, hatur o.þ.h.

Ef ég væri alráður þá væri Ísland og EU stöðugt að reyna að koma vörum og þjónustu til þessara landa á eins hagstæðu verði og mögulegt er.



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8819
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1417
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Íran stríð eða taco?

Pósturaf rapport » Sun 01. Mar 2026 15:10



Held að ÓRG sé orðinn eitthvað elliær, hann er eitthvað búinn að gleyma hvernig EU virkar.

EU er ekki apparat sem á að koma fram fyrir hönd eða skuldbinda lönd í bandalaginu líkt og alríkisstjórnin í USA.

Lýðræði og sjálfstæði allra er virt, ekki bara landanna heldur annarra stofnana eða samtaka sem aðildarlöndin eru aðilar að NATO, UN ofl. ofl.

Af hverju ætti ESB að vera draga til sín athygli og auðlindir á viðkvæmum tímapunkti þegar EU er ekki (orðið) varnarbandalag - https://www.visir.is/g/20262836534d/esb ... -banda-lag

Held að ÓGR ætti að taka sér lúr yfir helgina og muna að taka lyfin sín.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17255
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2378
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Íran stríð eða taco?

Pósturaf GuðjónR » Sun 01. Mar 2026 20:36

appel skrifaði:Æðsti klerkurinn dauður. Enginn á eftir að fella tár yfir því, öfga-nöttari... þessi klerka stjórn er einskonar death cult.

True! ... en að því sögðu, íranska þjóðin telur 92 milljónir og það er gefið mál að það tekur einhver annar "öfga-nöttari" við taumunu, því miður.



Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 6001
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1095
Staða: Ótengdur

Re: Íran stríð eða taco?

Pósturaf appel » Mán 02. Mar 2026 21:46

Veit ekkert hvað "success" þýðir í þessu stríði.

Held að það gæti orðið mun erfiðara að koma á breytingum í Íran en marga grunar, þrátt fyrir mótmæli þar. Það eru svo margir öfganöttarar þar sem styðja klerkastjórnina þarna, og þetta lið er með allar byssurnar. Þú sigrar ekki í byltingu með mótmælendaspjöldum gegn þeim sem eru viljugir að skjóta þig af færi.

Það er heldur enginn innrásarher að fara þarna inn.

Sennilega reyna þeir að tortíma sem mest af getu Írans til að stunda hernað, og einnig framleiða nýjar eldflaugar þannig að allri iðnaðarframleiðslu þeirra verður eytt. Þjóðin þarna, eða sá hluti hennar sem hatar klerkastjórnina, þarf líklega að lifa við hana áfram og enn verri lífsskilyrði og efnahag.

Ekkert land verið sprengt til hlýðni hingað til sem ég man eftir.


*-*