Matvælaöryggi ábótavant á sushi-stað

Hér gilda almennar reglur, og virðing er skilyrði. Þræðir birtast ekki í Virkum umræðum.
Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 5818
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1084
Staða: Tengdur

Matvælaöryggi ábótavant á sushi-stað

Pósturaf appel » Mán 15. Sep 2025 21:41

Matvælaöryggi ábótavant á sushi-stað
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025 ... ushi_stad/


Ég hef alltaf verið hugsi yfir svona, að ómögulegt virðist að stöðva starfssemi sem uppfyllir ekki heilbrigða skynsemi um heilbrigði.

Annað dæmi:

Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættu­legt leik­svæði og hús­næðið „veru­lega vanþrifið“
https://www.visir.is/g/20252762118d/svo ... anthrifid-

Alltaf fá þessir aðilar sénsa, tækifæri til að gera úrbót, en svo veit maður ekkert hvort það sé bara yfirborðskennd lagfæring og svo fer allt í sama farið.

Það er eitthvað stórkostlega mikið að þegar veitingastaðir fái að starfa og selja mat til fólks, sem gæti jafnvel verið hættulegur fólki, sérstaklega á svona sushi stað þar sem þú ert að borða hráan mat einsog lax.



En svo virðist á sama tíma vera ómögulegt fyrir nýja staði að opna, dæmi:

Keyptu Brauðhúsið til að fara ekki á hausinn
https://www.visir.is/g/20252737199d/key ... -a-hausinn


Ég spyr bara þegar maður horfir á þetta svona, að staðir sem eru í fullkomlegu ástandi fái ekki að opna, en staðir með allt niður um sig fái að starfa áfram. Um leið og leyfið er fengið megi rekstraraðilinn vera með allt niður um sig, er það svo?

Ómögulegt að opna, ómögulegt að loka?


Ég held að það eigi að loka stöðum sem eru svona slæmir, það eigi ekkert að bíða í 3 mánuði, svo aðra 3-6 mánuði, o.s.frv. ég meina fólk er að borða á stað sem er opinn og með allt niður um sig. Ætlar heilbrigðiseftirlitið að bera ábyrgð á heilsutjóni fólks veikist það alvarlega?


*-*

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8442
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1350
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Matvælaöryggi ábótavant á sushi-stað

Pósturaf rapport » Þri 16. Sep 2025 22:30

Er þetta stjórnmálaspjall?

Eða vildir þú bara fá að spjalla við mig í næði :guy



Skjámynd

Henjo
vélbúnaðarpervert
Póstar: 923
Skráði sig: Mán 15. Júl 2013 03:44
Reputation: 342
Staða: Ótengdur

Re: Matvælaöryggi ábótavant á sushi-stað

Pósturaf Henjo » Mið 17. Sep 2025 16:46

Ég er bara pirraður að matvörubúðir fá að komast up með að vera fokking ógeðslegar. Maður horfir á þetta á hverjum degi og veltir fyrir sér hvort allir séu blindir. Það tekur enga stunda að þrífa hillurnar. Hægt að gera þetta nokkrum sinnum á ári. Hafa þetta bara pínkupons nice.

Og þetta er bara mynd sem ég greip einn tveir og bingó í símanum, nenni ekki að fletta upp mun grófari tilvikum.

Mynd