Síða 1 af 1

Uppfærsla daglega

Sent: Mið 05. Mar 2025 10:57
af emil40
Jæja nú var ég að uppfæra ljósleiðaratenginguna í dag í 2.5 gb verður maður ekki að uppfæra daglega haha

Re: Uppfærsla daglega

Sent: Mið 05. Mar 2025 11:10
af GuðjónR
Talandi um hraða á ljósleiðara, styður þetta box meiri hraða en 1 Gb/s?

Re: Uppfærsla daglega

Sent: Mið 05. Mar 2025 11:14
af Vaktari
GuðjónR skrifaði:Talandi um hraða á ljósleiðara, styður þetta box meiri hraða en 1 Gb/s?



Nei myndir fá nýtt box sem heitir Fibertwist sem styður 2,5gbps eða þá 10gbps

Re: Uppfærsla daglega

Sent: Mið 05. Mar 2025 12:10
af emil40
ég var að fá box sem styður 10 gbps þarf bara router sem styður þann hraða er með 2,5 gbps núna

Re: Uppfærsla daglega

Sent: Mið 05. Mar 2025 13:49
af GuðjónR
Búinn að skoða þetta betur.
Ég þyrfti nýtt ljósleiðarabox sem gagnaveitan myndi væntanlega sjá um, auk nýs router, þar sem sá gamli styður bara 1 Gb/s.
Einnig eru Cat5 lagnir í húsinu sem þyrfti að skipta út fyrir Cat6a eða Cat7. Þannig að þetta er smá vesen.

Re: Uppfærsla daglega

Sent: Mið 05. Mar 2025 15:06
af TheAdder
GuðjónR skrifaði:Búinn að skoða þetta betur.
Ég þyrfti nýtt ljósleiðarabox sem gagnaveitan myndi væntanlega sjá um, auk nýs router, þar sem sá gamli styður bara 1 Gb/s.
Einnig eru Cat5 lagnir í húsinu sem þyrfti að skipta út fyrir Cat6a eða Cat7. Þannig að þetta er smá vesen.

Ef lagnirnar eru ekki lengri en 30m, þá er Cat 6 alveg nóg, það er svipaður kapall og Cat 5e, á meðan Cat 6A er slatta sverari og stífari og dýrari.

Re: Uppfærsla daglega

Sent: Mið 05. Mar 2025 16:09
af T-bone
GuðjónR skrifaði:Búinn að skoða þetta betur.
Ég þyrfti nýtt ljósleiðarabox sem gagnaveitan myndi væntanlega sjá um, auk nýs router, þar sem sá gamli styður bara 1 Gb/s.
Einnig eru Cat5 lagnir í húsinu sem þyrfti að skipta út fyrir Cat6a eða Cat7. Þannig að þetta er smá vesen.


Ef þú pantar 2.5gíg net hjá þínum ISP þá þarf gagnaveitan (ljósleiðarinn í dag) að sjá um að skipta út boxinu þér að kostnaðarlausu.

Ef þú ert með Cat 5e þá myndi ég alveg prófa þetta án þess að skipta og sjá hvaða hraða þú nærð.
Það voru mjög margir í kringum mig sem sögðu mér að leggja bara 5e þó ég stefndi á 2.5g því að 5e ber mun meiri hraða en bara þetta 1gb sem hann er gefinn upp fyrir.

Kostnaðurinn við að fara í 2.5g úr 1g er sirka 3k á mánuði hjá hringdu og enginn annar kostnaður ef að lagnirnar bera ásættanlegan hraða hjá þér.

Annars er bara að skipta út strengnum ef út í það er farið. Sömu molar og allt á Cat6.

Re: Uppfærsla daglega

Sent: Mið 05. Mar 2025 16:16
af vesley
TheAdder skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Búinn að skoða þetta betur.
Ég þyrfti nýtt ljósleiðarabox sem gagnaveitan myndi væntanlega sjá um, auk nýs router, þar sem sá gamli styður bara 1 Gb/s.
Einnig eru Cat5 lagnir í húsinu sem þyrfti að skipta út fyrir Cat6a eða Cat7. Þannig að þetta er smá vesen.

Ef lagnirnar eru ekki lengri en 30m, þá er Cat 6 alveg nóg, það er svipaður kapall og Cat 5e, á meðan Cat 6A er slatta sverari og stífari og dýrari.



Alveg séns að cat5 myndi bera meiri hraða hjá GuðjónR

Svo keyrir Cat6a alveg upp í 100 metra 10 Gb/s.

Re: Uppfærsla daglega

Sent: Mið 05. Mar 2025 16:20
af Oddy
Ég er með yfir 4Gb/s á Cat5e strengjum, eina sem ég á eftir að skipta út eru Cat5e.

Re: Uppfærsla daglega

Sent: Mið 05. Mar 2025 16:22
af Climbatiz
hver er svosem tilgangurinn að fara í meiri hraða en 1gbit? ég er að nota um.þ.bl 10% af 1gbit 24/7 samkvæmt mánaðar tölum í Windows Network, er það bara uppá það að geta náð í á enn meiri hraða en nota svo tenginguna ekkert sem mikið?

Re: Uppfærsla daglega

Sent: Mið 05. Mar 2025 17:17
af emil40
t.d. náð í á enn meiri hraða og ef það eru margir í heimili þá getur það skipti máli líka. Fyrir mig er þetta til að nota í leiki og þegar ég er að sækja eitthvað. Þegar ég byrjaði þá var ég með 14.4 baud módem, hlutirnir hafa víst aðeins breyst á 31 ári ...

Re: Uppfærsla daglega

Sent: Mið 05. Mar 2025 17:38
af Climbatiz
emil40 skrifaði:t.d. náð í á enn meiri hraða og ef það eru margir í heimili þá getur það skipti máli líka. Fyrir mig er þetta til að nota í leiki og þegar ég er að sækja eitthvað. Þegar ég byrjaði þá var ég með 14.4 baud módem, hlutirnir hafa víst aðeins breyst á 31 ári ...


samt... like "margir á sama heimili"... veit ekki hvort bottleneck er hjá þér varðar CAT tengingar (þ.e.a.s ekki WiFi), en allavega. er heimilið að nota stundum meira en 100MB/s við hin og þessi stream eða fps online leiki? ég er sjálfur að nota 10% af 1gbit 24/7 (og það samsvarar 20TB á mánuði), ef einhver annar væri á netinu er hann varla að fara nota hin 90%

Re: Uppfærsla daglega

Sent: Mið 05. Mar 2025 17:51
af Vaktari
Þetta er svona aðeins meira en að skipta bara um ljósleiðarabox og fá 2,5gbps eða 10gbps.
Þarft auðvitað að hafa dót sem styður þetta allt saman.

Re: Uppfærsla daglega

Sent: Mið 05. Mar 2025 22:13
af emil40
Mig vantar bara 10 gb netkortið allt annað komið

Re: Uppfærsla daglega

Sent: Mið 05. Mar 2025 22:28
af russi
GuðjónR skrifaði:Búinn að skoða þetta betur.
Ég þyrfti nýtt ljósleiðarabox sem gagnaveitan myndi væntanlega sjá um, auk nýs router, þar sem sá gamli styður bara 1 Gb/s.
Einnig eru Cat5 lagnir í húsinu sem þyrfti að skipta út fyrir Cat6a eða Cat7. Þannig að þetta er smá vesen.


Það er ekkert víst að þess þurfi. Sjálfur ég með um 25-30 metra Cat5e lögn niður í kjallara, fæ 10GBit á hana samkvæmt mælingum.
Er svo með aðra sem 15 mtr af sama streng sem nær 5Gbit.
Afhverju nær styttri lögn minni hraða myndi einhver spyrja, jú það eru fleiri beygjur á honum og þar af nokkrar 90°, meðan sú lengri er meira í aflíðandi beygjum.

Spurning um að fá einhvern til mæla þetta eða bara fara af stað í þessa vegferð

Re: Uppfærsla daglega

Sent: Mið 05. Mar 2025 22:41
af svanur08
Ætli emil40 sé ekki með bestu tölvuna hér á vaktinni?

Re: Uppfærsla daglega

Sent: Fim 06. Mar 2025 11:24
af emil40
svanur08 skrifaði:Ætli emil40 sé ekki með bestu tölvuna hér á vaktinni?


Það er ekki alveg víst @Templar leynir alltaf á einhverju .... Hvernig mynduð þið segja að ég gæti bætt hana enn frekar ... Takk samt fyrir hrósið :happy