Síða 1 af 1
Hamborgarar
Sent: Þri 18. Feb 2025 20:30
af falcon1
Annar léttur þráður.
Hvernig er ykkar uppáhaldshamborgari? Hvernig eldaður og þá hversu mikið, hvað er á honum o.s.frv.
Hvaða meðlæti er svo ómissandi t.d. franskar, hrásalat eða eitthvað allt annað?

Ég skal byrja:
120-140gr hamborgari
eldaður svona medium rare en samt næstum medium
slatti af piparost bræddur á hann
stökkt beikon
smá grænt
1 sneið af tómat
slatti af hamborgarasósu
Meðlæti: franskar kartöflur með kokteilsósu, stundum hrásalat
Ég steiki yfirleitt borgarann en hann er samt bestur grillaður.

Re: Hamborgarar
Sent: Þri 18. Feb 2025 21:07
af einarhr
Ég var með matvagn með hamborgurum sem seldi allt að 1000 borgar á dag á Secret Solstice, vorum bara með eina tegund, 150gr 12% fitu borgara sem voru með káli, rauðlauk, hamborgarasósu oooooogggg Berneais sósu og bræddum Piparosti. Mokaði þessum borgurum út í mörg ár á tónleikum, hátíðum eða í einkasamkvæmum.
Mæli með að steikja borgar í Medium Well, það er svo mikið yfirborð á hakki að það er töluvert meiri möguleiki á matareitrun á hakki sem er m/r - M en heilum steikum
Re: Hamborgarar
Sent: Þri 18. Feb 2025 23:50
af J1nX
Hamborgarar úr B.Jensen, reyni að elda þá í gegn en allt í lagi þó það sé smá roði í þeim.
hvítlaukssmjörsteiktir sveppir
pikklaður rauðlaukur
rifinn mexíkóostur
Ostur
Beikon
Egg
Gúrka, Tómatur, Paprika
Chilimajó á botninn og smá BBQ á toppinn
hendi svo fröllum í airfryerinn og hef með
Re: Hamborgarar
Sent: Mið 19. Feb 2025 06:55
af Climbatiz
alltof mikil fyrirhöfn hérna hjá Vökturum
hef þetta bara einfalt:
hvaða borgari sem er, + ostur settur ofaná
týpísk hamborgarasósa
beikon + létt steikt egg
ekkert annað
Re: Hamborgarar
Sent: Mið 19. Feb 2025 09:06
af Moldvarpan
Grillaður hamborgari (t.d. Jumpin Jack á Olsen Olsen)
Tvöfaldur ostborgari amerískur stíll (tómatsósa,laukur,pickles,sinnep,ostur)
Smass borgari
Finnst þessir bestir.
Re: Hamborgarar
Sent: Mið 19. Feb 2025 09:28
af GuðjónR
Hamborgari með sósu, osti, ananas og frönskum á milli.
Helst grillaður á kolum. Skalli var einu sinni með borgara sem hann kallaði Akureyring, en hann var í raun bara hálfgerður Akureyringur, þar sem hann var með rauða papriku en ekki ananas.
P.S. Hakk á alltaf að elda í gegn vegna sýkingahættu!
Re: Hamborgarar
Sent: Mið 19. Feb 2025 09:36
af Hausinn
Fyrir einfalda helgarborgara finnst mér persónulega best að kaupa frosna þunna borgara, spreya smá olíu á hann, nudda slatta af hamborgarakryddi á hann og steikja svo á med-high í þrjár mínútur hverja hlið. Ég legg einnig ofan á hann krukku fulla af vatni til þess að pressa hann aðeins niður svo að yfirborðið steikist jafnt. Á meðan borgarinn steikist set ég ofninn á grillstillingu og þegar borgarinn er tilbúinn set ég hamborgarabrauð í ofninn og rista innri hliðarnar þar til fullkomið, tek það út, smyr sósu strax á það svo að hún hitni aðeins og set síðan restina af borgaranum saman. Persónulega finnst mér tómatur, súrar gúrkur, kál og fínskorinn laukur best.
Re: Hamborgarar
Sent: Mið 19. Feb 2025 09:38
af Dr3dinn
Finnst kjötið skipta öllu máli, ekki að einfaldir smass í bónus dugi alveg við þannig tilefni.
Allt medium á að vera bannað eftir ákveðið leikskóla atvik í borginni..... núna er allt meira en medium hjá mér.
Kartöflubrauðið, salat, gúrkur, rauðlaukur, chilli majo, sinnepsósa (uppseld á klakanum), paprika og tómatur...bacon/steiktir sveppir/egg sem lúxus
sidenote:
Ekki að krakkarnir eru orðnir meira fyrir grænmetis borgara með mikið af áleggi og sósum... sem er hagræði fyrir foreldra (töluvert ódýrara)
-líklegast skólinn/leikskólinn að ýta undir það.
Re: Hamborgarar
Sent: Mið 19. Feb 2025 10:16
af worghal
GuðjónR skrifaði:Hamborgari með sósu, osti, ananas og frönskum á milli.
Helst grillaður á kolum. Skalli var einu sinni með borgara sem hann kallaði Akureyring, en hann var í raun bara hálfgerður Akureyringur, þar sem hann var með rauða papriku en ekki ananas.
P.S. Hakk á alltaf að elda í gegn vegna sýkingahættu!
franskar á milli er alger snilld en ég hef aðeins einusinni fengið ananas á hamborgara og það var á systrakaffi á kirkjubæjarklaustri ca 2011 en á honum var líka grilluð skinka sem paraðist vel við ananasinn

Annars vill ég minn burger frekar klassískann, sósa (hvort sem er cocktail sósa eða hamborgarasósa) og þá heimagerð er best, kál (ferskt lambhagasalat finnst mér best), þunn skorin gúrka, súrar gúrkur, venjulegur laukur (saxaður), rauð paprika, brioch brauð og svo franskar í botninn.
Svo fer það eftir þykkt kjötsins hvort ég geri borgarann tvöfaldann eða einfaldann

og svo má ekki gleyma að para þetta með ÍÍÍÍÍÍS KÖLDU Pepsi Max

Re: Hamborgarar
Sent: Mið 19. Feb 2025 10:24
af Langeygður
Ostaborgari með beikoni og eggi, franskar sem meðlæti.
Re: Hamborgarar
Sent: Mið 19. Feb 2025 11:48
af d0ge
Herra fullkominn buff (möst)
Hamborgaraostur
United Bakeries brioche brauðið í krónunni (möst)
Tómatsósa, mayo, honey mustard
Súrar gúrkur, buff tómatur og salatblöð
Svo geri ég sultaðan rauðlauk sem er algjört möst.
Re: Hamborgarar
Sent: Mið 19. Feb 2025 16:16
af Bengal
Grilla alltaf mína burgers og forhita grillið vel.
B Jensen 120g (medium-medium well)
Hamb.krydd frá íslandsnaut eða mccormick
Hamb.sósa frá íslandsnaut
Cheddar ostur
grillaðar bacon sneiðar
Sultaður rauðlaukur
Kartöflubrauð frá myllunni
Besti burgerinn

Re: Hamborgarar
Sent: Mið 19. Feb 2025 16:34
af oliuntitled
Þegar ég nenni að búa til sjálfur þá kaupi ég hakk frá kjöthöllinni og geri 120gr borgara, ef það liggur vel á mér þá hakka ég beikon og set útí til að hækka fituprósentuna svo þeir verði meira djúsí (geri það bara fyrir grillborgara, ekki ef ég ætla að steikja).
Krydda með salti og pipar, finn mér góðann cheddar ost.
Sósur: Eiki Feiti (aðrar hambó sósur eiga bara ekki séns), sósa númer 2 fer eftir smekk ... konan mín vill bbq, ég vil japanskt mayo sem dæmi.
Toppings fara eftir smekk líka, kál, tómatur, laukur, sveppir (yfirleitt smjörsteiktir), beikon, hvað sem fólk vill í raun.
Hef verið að vinna með kartöflubrauðin frá myllunni en ef ég sé einhver önnur sem lúkka vel þá gríp ég þau.
Ef ég nenni ekki að búa til sjálfur þá hef ég mest verið að vinna með pre-pressed borarana úr kjötborðinu í Fjarðarkaupum, þá sérstaklega ef ég er að steikja.
Aðrir premades eiga ekki séns, númer 2 á listanum eru frá kjöthöllinni og svo eru aðrar kjötverslanir yfirleitt með fína borgara.