Síða 1 af 1

Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Sent: Fös 14. Feb 2025 20:31
af mikkimás

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Sent: Lau 15. Feb 2025 09:52
af Hjaltiatla
Maður skoðar það , gekk vel seinast.
Keypti fyrir 700.000 kr og hagnaðist um 126.404 kr (18,04%) stuttu seinna þegar ég seldi.

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Sent: Lau 15. Feb 2025 11:07
af GuðjónR
Veltur það ekki á útboðsgenginu hvort svarið er já eða nei?
Ef núverandi markaðsverð verður notað þá er engin ávinningur fyrir okkur að kaupa.

Ef þeir selja undir markaðsverði þá er mögulegur ávinningur fyrir braskara að kaupa en á sama tíma væri skárra fyrir ríkið að eiga bankann.

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Sent: Lau 15. Feb 2025 11:12
af vatr9
Skil ég rétt að minnsti skammtur er 2 millur fyrir einstaklinga. Sem sagt þarf að eiga 2 millur sem þú ætlar ekki að nota á næstunni.

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Sent: Lau 15. Feb 2025 11:20
af Hjaltiatla
vatr9 skrifaði:Skil ég rétt að minnsti skammtur er 2 millur fyrir einstaklinga. Sem sagt þarf að eiga 2 millur sem þú ætlar ekki að nota á næstunni.

Það er undir liðnum Tilboðsbók B þetta lágmark en grunar að flestir einstaklingar notfæri sér Tilboðsbók A fyrir allt að 20 m.kr. Hvert lágmarkið þar verður er ekki enn komið fram en í seinasta útboði var lágmarkið 50 þúsund krónur.

https://www.stjornarradid.is/default.aspx?pageid=e5cf150d-33a7-11e6-80c7-005056bc217f&newsid=cb682436-c787-11eb-813a-005056bc8c60