Síða 1 af 1
remote tengingar
Sent: Fös 13. Des 2024 22:10
af emil40
Sælir félagar.
hvaða forrit notið þið fyrir remote tengingar í staðinn fyrir teamviewer ? Teamviewer er alltaf af og til að koma með að að ég sé að nota fyrir commerical use. Er ekki til eitthvað einfalt forrit í staðinn til þess að tengjast öðrum og vinna í tölvunni þeirra ?
Re: remote tengingar
Sent: Fös 13. Des 2024 22:58
af olihar
Parsec ber höfuð og herðar yfir aðra, nota þetta daglega.
https://parsec.app/
Re: remote tengingar
Sent: Lau 14. Des 2024 13:29
af CendenZ
Styð Parsec
Eini ókosturinn er að það vantar app í IOS
Re: remote tengingar
Sent: Lau 14. Des 2024 13:35
af olihar
CendenZ skrifaði:Styð Parsec
Eini ókosturinn er að það vantar app í IOS
Já þeir eru búnir að lofa iOS appi lengi en ekkert að frétta.
Re: remote tengingar
Sent: Lau 14. Des 2024 15:57
af hfwf
Tailscale.
Re: remote tengingar
Sent: Lau 14. Des 2024 19:22
af olihar
hfwf skrifaði:Tailscale.
Er Tailscale með Remote Desktop forrit? Er þetta ekki bara tunnelling þjónusta?
Re: remote tengingar
Sent: Lau 14. Des 2024 20:57
af hfwf
olihar skrifaði:hfwf skrifaði:Tailscale.
Er Tailscale með Remote Desktop forrit? Er þetta ekki bara tunnelling þjónusta?
Býr til VPN og þú getur notað RDP í windows svo, mjög þægilegt, parsec gerir það sama held ég.
Frítt.
Re: remote tengingar
Sent: Sun 15. Des 2024 10:51
af olihar
Parsec er mörgum sinnum betra en RDP, þarft ekki Tailscale þar heldur.
Re: remote tengingar
Sent: Sun 15. Des 2024 17:55
af hfwf
olihar skrifaði:Parsec er mörgum sinnum betra en RDP, þarft ekki Tailscale þar heldur.
Þarf að kíkja á það á næstunni.
Re: remote tengingar
Sent: Mán 10. Feb 2025 03:16
af lyfsedill
Er parsec bara mögulegt gegnum app eða er það líka hægt að nota í t.d fartölvu í browser?
Re: remote tengingar
Sent: Mán 10. Feb 2025 10:52
af olihar
lyfsedill skrifaði:Er parsec bara mögulegt gegnum app eða er það líka hægt að nota í t.d fartölvu í browser?
Getur notað í gegnum browser, en auðvitað virkar best í appinu.
Re: remote tengingar
Sent: Mán 10. Feb 2025 10:56
af worghal
Getur líka opnað á remote desktop út á netið ef þú þorir og svo notað Duo mfa fyrir two factor authentication

Re: remote tengingar
Sent: Mán 10. Feb 2025 12:14
af lyfsedill
Er svona að reyna þetta, kann bara ekkert á þetta. Veit að t.d á teamwiever þarf maður að dl forritinu bæði í tölvu sem á að tengjast en þarf ég að dl forritinu hér líka í tölvunni sem ég ætla að tengjast frá? Vil síður nota app því vil hafa stóran skjá þegar ég tengist tölvunni heima.
búin að kíkja á þetta video finnst það ekki hjálpa mikið :
https://www.youtube.com/watch?v=hazsmZ7QKaseinhver sem getur hjalpað?
Re: remote tengingar
Sent: Mán 10. Feb 2025 12:29
af olihar
Þú keyrir Parsec full screen a stórum skjá ef þú vilt, þú tekur ekki einu sinni eftir því að þú sért að nota tölvu á öðrum stað en fyrir framan skjáinn hjá þér.
Re: remote tengingar
Sent: Mán 10. Feb 2025 12:55
af lyfsedill
ok þarf ég að búa til tvo aðganga, einn í tölvuna sem ég ætla að tengjast og annan í þeirri tölvu sem ég tengist frá?
Re: remote tengingar
Sent: Mán 10. Feb 2025 13:31
af olihar
Nei sami aðgangurinn fyrir allar tölvurnar.
Re: remote tengingar
Sent: Mán 10. Feb 2025 14:05
af halipuz1
Ég nota bara remote desktop gamla góða á netinu heima.
Re: remote tengingar
Sent: Þri 11. Feb 2025 23:53
af lyfsedill
olihar skrifaði:Nei sami aðgangurinn fyrir allar tölvurnar.
hmm ég er alveg út ur kú hér, Logga ég mig inn á tveim tölvum með sama aðgang?
er að prófa það en kemur villa fyrir backup code sem maður þarf alltaf að fylla.
Einhver sem notar þetta forrit og getur hjálpað?
Re: remote tengingar
Sent: Mið 12. Feb 2025 10:59
af olihar
2 factor?
Re: remote tengingar
Sent: Sun 16. Feb 2025 23:42
af Televisionary
@olihar takk fyrir að benda á þetta. Er að prófa þetta hjá mér, á eftir að sjá hvernig reynist en ég er með macOS, Linux, Windows.
Ég var að vandræðast með að setja þetta upp hjá mér á debian 12 fartölvunni þannig að ég endaði á því að henda í Ansible playbook til að geta sett þetta upp endurtekið ef til þess kæmi. Það kom alltaf einhver villa útaf einhverju libjpeg library. En þessi playbook vinnur sig í kringum það.
Henti þessu á Github:
https://github.com/sillkongen/ansible-playbooks/tree/main/debian-12-parsec
Re: remote tengingar
Sent: Mán 17. Feb 2025 10:17
af RanzaR
Hef verið að nota
Guacamole.
Hendir þessu upp á server, og ef þú nennir getur þú hent þessu á bakvið eitthvað subdomain, man ekki hvort að það þurfi eða ekki, ég hef alltaf gert það þegar ég set þetta upp.
Þegar ég hugsa um það þá hljómar það eins og það þurfi þess, annars gefur maður enga leið til að accessa þetta.
Þá ertu kominn með remote desktop gegnum browser og getur accessað tölvuna hvaðan sem er, nota þetta aðallega í vinnunni, sem blockar teamviewer.
Tek fram að þetta var fyrsta VM og linux server projectið mitt, svo að ég fór í þetta vitandi 0% um servera og linux en gat fengið þetta til að virka.
Er currently ekki að nota þetta af því ég skemmdi óvart ubuntu VM- vélina og hef ekki tekist að laga hana ennþá
Re: remote tengingar
Sent: Mán 17. Feb 2025 17:03
af Dropi
Ég nota Parsec til að spila tölvuleiki yfir netið þegar ég er að heiman

nota svo Tailscale / RDP líka til að endurræsa og uppfæra Parsec. Síðan er ég með sýndarvél sem er bæði á Parsec og tailscale netinu til að local remota mig inn á aðrar vélar heima ef þess þarf.
Mér finnst algjört must að hafa hvoru tveggja. Í símanum er miklu þægilegra að nota RDP clientinn heldur en parsec.
Moonshine / Sunlight er líka eitthvað sem ég nota til að spila Steam leiki á Xbox One S. Moonlight clientinn er í Microsoft store sem app. Steam launchar svo í big picture mode á xbox og detectar strax controllerana. Mjög næs.
Re: remote tengingar
Sent: Lau 22. Feb 2025 05:40
af kornelius
Er þetta ekki eitthvað? frítt og allt.
https://rustdesk.com/Open Source Self Hosted Teamviewer Replacement:
https://www.youtube.com/watch?v=FIEcTNjFZNA&t=198sUppfært: gengur á nánast öll stýrikerfi.
K.