Síða 1 af 1
Here we go...
Sent: Mán 18. Nóv 2024 22:43
af GuðjónR
mbl.is skrifaði:Sæstrengur rofinn og grunur um skemmdarverk.
https://www.mbl.is/frettir/erlent/2024/ ... mmdarverk/mbl.is skrifaði:Svíar og Finnar hvattir til að búa sig undir stríð
https://www.mbl.is/frettir/erlent/2024/ ... dir_strid/
Re: Here we go...
Sent: Mán 18. Nóv 2024 22:58
af rapport
Þetta er síðan í morgun, DW var með frétt um hádegisbil.
Re: Here we go...
Sent: Mán 18. Nóv 2024 23:15
af Snorrmund
Re: Here we go...
Sent: Mán 18. Nóv 2024 23:27
af olihar
Darn it…
Re: Here we go...
Sent: Þri 19. Nóv 2024 08:06
af brain
Re: Here we go...
Sent: Þri 19. Nóv 2024 08:11
af GuðjónR
Og allt okkar í gegnum sæstrengi, öll greiðslumiðlun, Klappið og það nýjasta, Mentor. Það verður eitthvað þegar okkar strengir verða klipptir í sundur.
Þetta reddast...
Re: Here we go...
Sent: Þri 19. Nóv 2024 08:31
af brain
Nú væri gott að hafa Skyggni enn á sínum stað :p
Re: Here we go...
Sent: Þri 19. Nóv 2024 11:18
af Morphy
Að jafnaði skemmast 100-150 sæstrengir á ári. Nú virðast menn halda að slíkir atburðir séu svo sjaldgæfir að það hljóti að vera skemmdaverk. Best að bíða með yfirlýsingar þar til endanlegar upplýsingar liggja fyrir. Reyndar getur orðið bið á því m.v. að hver þjóðin á fætur annarri gefst upp á að rannsaka NordStream málið, sem er þó mun alvarlegra en einn sæstrengur.
Re: Here we go...
Sent: Þri 19. Nóv 2024 11:35
af GuðjónR
Morphy skrifaði:...hver þjóðin á fætur annarri gefst upp á að rannsaka NordStream málið, sem er þó mun alvarlegra en einn sæstrengur.
Var ekki löngu vitað að Úkraína stóð á bak við það?
https://www.mbl.is/frettir/erlent/2024/ ... m_malsins/
Re: Here we go...
Sent: Þri 19. Nóv 2024 11:50
af gnarr
Ég hef ekki miklar áhyggjur af þessu. Ef Rússland gerir árás á Finnland eða Svíþjóð, þá verða það Norður Kóreskir láns hermenn og fangar, á hestvögnum með molotov kokteila, teygjubyssur og skóflur sem vopn. Þeir eiga ekkert eftir af hermönnum og búnaði eftir stríðið í Úkraínu.
Re: Here we go...
Sent: Þri 19. Nóv 2024 18:15
af GuðjónR
Re: Here we go...
Sent: Mið 20. Nóv 2024 08:20
af halipuz1
Ef við hræðumst þetta þá er Putin að vinna. Finnst að við ættum að collectively að hunsa hann ef ég leyfi mér að sletta.
Re: Here we go...
Sent: Mið 20. Nóv 2024 08:32
af B0b4F3tt
Veit ekki hversu oft Pútín er búinn að hóta að beita kjarnavopnum í Úkraínu stríðinu en það hefur aldrei orðið neitt af því. Hann er bara bully og það þarf að taka á honum þannig.
Re: Here we go...
Sent: Mið 20. Nóv 2024 09:12
af worghal
B0b4F3tt skrifaði:Veit ekki hversu oft Pútín er búinn að hóta að beita kjarnavopnum í Úkraínu stríðinu en það hefur aldrei orðið neitt af því. Hann er bara bully og það þarf að taka á honum þannig.
Putin á enga vini og fáa bandamenn og ef það fer í kjarnorkunotkun þá verður hann allslaus á þeim sviðum.
Og þeir fáu vinir og bandamenn sem hann hefur kemur allt í gegnum ótta og hreðjatök og bráðlega mun það fjara út.
Re: Here we go...
Sent: Mið 20. Nóv 2024 09:17
af Jón Ragnar
Líður eins og Putin hafi ekki verið barinn nóg í æsku
Re: Here we go...
Sent: Mið 20. Nóv 2024 09:31
af Moldvarpan
Rússar mega sprengja upp það sem þeim sýnist... en ef einhver sendir sprenju á þá... að þá á að nuka þá?
Þeir haga sér eins og þeir séu þeir einu með nukes.
Ok þá verða þeir nukaðir tilbaka. Þetta er ekki að fara gerast.
Re: Here we go...
Sent: Mið 20. Nóv 2024 15:28
af Jón Ragnar
Moldvarpan skrifaði:Rússar mega sprengja upp það sem þeim sýnist... en ef einhver sendir sprenju á þá... að þá á að nuka þá?
Þeir haga sér eins og þeir séu þeir einu með nukes.
Ok þá verða þeir nukaðir tilbaka. Þetta er ekki að fara gerast.
Hefur þú lesið um MAD?
https://en.wikipedia.org/wiki/Mutual_as ... estruction
Re: Here we go...
Sent: Mið 20. Nóv 2024 15:33
af oliuntitled
GuðjónR skrifaði:Og allt okkar í gegnum sæstrengi, öll greiðslumiðlun, Klappið og það nýjasta, Mentor. Það verður eitthvað þegar okkar strengir verða klipptir í sundur.
Þetta reddast...
Ísland er með varasambönd yfir gervihnetti, afkastagetan er brotabrot af afköstum sæstrengjanna en getur sinnt því nauðsynlegasta.
Ég efa þó að Klappið myndi fá straum þar í gegn, ódýrara að gefa bara frítt í strætó í staðinn
En hlutir einsog greiðslumiðlun og basic samskipti erlendis myndu haldast uppi þangað til hægt væri að redda hinu.
https://www.ruv.is/frettir/innlent/2024 ... inn-402805
Re: Here we go...
Sent: Mið 20. Nóv 2024 16:24
af Moldvarpan
Jón Ragnar skrifaði:Moldvarpan skrifaði:Rússar mega sprengja upp það sem þeim sýnist... en ef einhver sendir sprenju á þá... að þá á að nuka þá?
Þeir haga sér eins og þeir séu þeir einu með nukes.
Ok þá verða þeir nukaðir tilbaka. Þetta er ekki að fara gerast.
Hefur þú lesið um MAD?
https://en.wikipedia.org/wiki/Mutual_as ... estruction
Jubb, þetta er vitað. Þess vegna sjá allir hversu galið þetta er. Eina sem hægt er að gera, er að nota þetta sem hótun.
Leið og fyrsta bomban springur, þá tapa allir.
Re: Here we go...
Sent: Mið 20. Nóv 2024 19:21
af Hrotti
https://www.tiktok.com/@cpscott15/video/7146409587896356138Þessi er helvíti magnaður í að útskýra hernað og veit hvað hann er að segja, þarna um kjarnorkustríð við rússa.