Síða 1 af 1

SMS verification code frá Facebook

Sent: Lau 16. Nóv 2024 16:06
af hagur
Sælir,

Er að reyna að endurstilla lykilorð hjá pabba gamla á Facebook. Er með mitt símanúmer og hans símanúmer skráð, en fæ engan fjandans verification code sendan í SMS, sama hvort númerið ég vel. Búinn að reyna nokkrum sinnum og bíða í meira en klst. Kannist þið við þetta, er þetta eitthvað þekkt issue? Eitthvað trix sem er hægt að gera kannski? Ótrúlegt að risa batterí eins og FB geti ekki haft svona basic hlut í lagi ](*,)

Re: SMS verification code frá Facebook

Sent: Lau 16. Nóv 2024 16:30
af olihar
Er ekki bara búið að breyta info víst hann missti profile. Eða afhverju er verið að breyta lykilorði?

Ekki það, það á að banna SMS sem 2 factor. Óöruggast I heiminum.

Re: SMS verification code frá Facebook

Sent: Lau 16. Nóv 2024 16:47
af hagur
Hann amk loggaðist út, gæti hafa rekist í logout og man auðvitað ekki pwd. Ég sé samt símanúmerin sem verið er að senda á, þau eru rétt en svo kemur ekki neitt.

Re: SMS verification code frá Facebook

Sent: Lau 16. Nóv 2024 16:49
af olihar
Spurning hvort þetta hafi eitthvað sem íslensku simafelögin að gera, þar sem þvílíka aldan af scami er í gangi hvort þeir hafi hert eitthvað filterana á svona sms sendingum sem koma inn.

Fyrsta sem sá sem kemst yfir account gerir er að logga öll tæki út. Svo kannski vert að skoða, var búið að setja up recovery account tengingu? (Sem er tenging yfir á annan FB account)

Re: SMS verification code frá Facebook

Sent: Lau 16. Nóv 2024 17:54
af ABss
Er +354 til staðar?

Re: SMS verification code frá Facebook

Sent: Lau 16. Nóv 2024 18:17
af hagur
ABss skrifaði:Er +354 til staðar?


Já á báðum númerunum.

Re: SMS verification code frá Facebook

Sent: Lau 16. Nóv 2024 18:48
af Hizzman
fékk sms tilkynningu frá postinum fyrir nokkrum dögum, góðum sólarhring eftir að hún var send

Re: SMS verification code frá Facebook

Sent: Lau 16. Nóv 2024 21:08
af Viktor
Þetta hættir að virka reglulega. Einhver spam filter einhversstaðar á leiðinni geri ég ráð fyrir.

Re: SMS verification code frá Facebook

Sent: Mán 18. Nóv 2024 20:04
af hagur
Haha, haldiði ekki að SMS kóðinn hafi verið að berast núna áðan, c.a 2 sólarhringum seinna og hann virkaði til að resetta pwd. Málið leyst :sleezyjoe

Re: SMS verification code frá Facebook

Sent: Mán 18. Nóv 2024 21:29
af olihar
Vá, það er ömurlega óöruggur kóði, svona kóðar eiga að renna út asap.

Re: SMS verification code frá Facebook

Sent: Mán 18. Nóv 2024 22:14
af hagur
olihar skrifaði:Vá, það er ömurlega óöruggur kóði, svona kóðar eiga að renna út asap.


Já það kom mér mjög á óvart að hann væri enn virkur.