Síða 1 af 1

Könnun - Trúverðugleiki og traust til framboða í væntanlegum kosningum

Sent: Fim 14. Nóv 2024 17:04
af rapport
Mig langar að kanna hvaða framboð það eru sem fólk hefur einhverja trú á?

Það má velja allt að 10... en bara setja hak við þáu framboð sem þú heldur að muni "walk the walk" ef þau komast til valda.

Ekki setja hak við framboð sem þú heldur að muni bara vera "free-rider" í ríkisstjórn.

Re: Könnun - Trúverðugleiki og traust til framboða í væntanlegum kosningum

Sent: Fim 14. Nóv 2024 17:49
af svanur08
10 flokkar á svona litlu landi. Væru 4 ekki nóg?

Re: Könnun - Trúverðugleiki og traust til framboða í væntanlegum kosningum

Sent: Fös 15. Nóv 2024 00:41
af netkaffi
svanur08 skrifaði:Væru 4 ekki nóg?
Nei, takk.

Re: Könnun - Trúverðugleiki og traust til framboða í væntanlegum kosningum

Sent: Fös 15. Nóv 2024 00:58
af Henjo
svanur08 skrifaði:10 flokkar á svona litlu landi. Væru 4 ekki nóg?

Og hafa hlutina eins og þeir voru fyrir 20 árum? já nei takk.

Re: Könnun - Trúverðugleiki og traust til framboða í væntanlegum kosningum

Sent: Fös 15. Nóv 2024 08:33
af GuðjónR
Henjo skrifaði:
svanur08 skrifaði:10 flokkar á svona litlu landi. Væru 4 ekki nóg?

Og hafa hlutina eins og þeir voru fyrir 20 árum? já nei takk.

Get ekki sagt að það sé eitthvað betra núna en 4 árum fyrir bankahrun.

Re: Könnun - Trúverðugleiki og traust til framboða í væntanlegum kosningum

Sent: Fös 15. Nóv 2024 08:49
af rapport
Ég vil bara minna á að tilgangur könnunarinnar er í raun að kanna hvort það séu einhver framboð sem fólk hreinlega treystir ekki til að koma stefnu sinni í framkvæmd.

Persónulega hef ég misst trú á Pírötum eftir þeirra innanhúsfíaskó og það sem ég hef upplifað sem stefnuleysi hjá borginni + frambjóðendurnir um landið virðast sumir varla hafa trú á eigin framboði.

Sósíalistar, held að þeir séu bara með stefnu sem enginn annar vill styðja og geta ekki breytt neinu einir.

Miðflokkurinn, það er eins og þeir vilji ekki að ég kjósi þá, þeir stuða mig alveg svakalega og ég get ekki tekið þá alvarlega. Eins og þeir séu þáttastjórnendur í einhverjum kvöldþætti á RÚV... sem á að vera í samkeppni við Gísla Martein og er í fýlu því þeir eru að tapa svo svakalega að þeir gera hvað sem er fyrir athygli.

xD, úff... trúi þeim til að skaða samfélagið enn meira ef þeir komast til valda.

xS, sama og xD

VG, efast um að flokkurinns´emeð grænt bókhald þó að hann vilji að allir aðrir séu með það... trúa líklega ekki á eigin áherslur.

Flokkur fólksins, Þau gúdderuðu þingmann sem fór til Tælands að sofa hjá 45kg stelpum án smokks... og hrósaði sér af því á Facebook við vini sína. mUn aldrei kjósa þau, aldrei.

Re: Könnun - Trúverðugleiki og traust til framboða í væntanlegum kosningum

Sent: Fös 15. Nóv 2024 09:17
af fhrafnsson
rapport skrifaði:Ég vil bara minna á að tilgangur könnunarinnar er í raun að kanna hvort það séu einhver framboð sem fólk hreinlega treystir ekki til að koma stefnu sinni í framkvæmd.

Persónulega hef ég misst trú á Pírötum eftir þeirra innanhúsfíaskó og það sem ég hef upplifað sem stefnuleysi hjá borginni + frambjóðendurnir um landið virðast sumir varla hafa trú á eigin framboði.

Sósíalistar, held að þeir séu bara með stefnu sem enginn annar vill styðja og geta ekki breytt neinu einir.

Miðflokkurinn, það er eins og þeir vilji ekki að ég kjósi þá, þeir stuða mig alveg svakalega og ég get ekki tekið þá alvarlega. Eins og þeir séu þáttastjórnendur í einhverjum kvöldþætti á RÚV... sem á að vera í samkeppni við Gísla Martein og er í fýlu því þeir eru að tapa svo svakalega að þeir gera hvað sem er fyrir athygli.

xD, úff... trúi þeim til að skaða samfélagið enn meira ef þeir komast til valda.

xS, sama og xD

VG, efast um að flokkurinns´emeð grænt bókhald þó að hann vilji að allir aðrir séu með það... trúa líklega ekki á eigin áherslur.

Flokkur fólksins, Þau gúdderuðu þingmann sem fór til Tælands að sofa hjá 45kg stelpum án smokks... og hrósaði sér af því á Facebook við vini sína. mUn aldrei kjósa þau, aldrei.

Athyglisvert take, sammála mörgu þarna en er forvitinn um rökin þín gagnvart xS. Hvað finnst þér um Viðreisn og Framsókn? Ég er líka forvitinn um þetta Tælands mál, áttu nokkuð link á það fyrir mig?

Re: Könnun - Trúverðugleiki og traust til framboða í væntanlegum kosningum

Sent: Fös 15. Nóv 2024 09:49
af rapport
fhrafnsson skrifaði:

Athyglisvert take, sammála mörgu þarna en er forvitinn um rökin þín gagnvart xS. Hvað finnst þér um Viðreisn og Framsókn? Ég er líka forvitinn um þetta Tælands mál, áttu nokkuð link á það fyrir mig?[/quote]

https://www.visir.is/g/20222253981d/tom ... i-tailandi

Gleymdi xB...

Sigurður Ingi var ráðherra þessa stuttu stund sem ég vann hjá HMS, lofaði góðu en svo kom óvæntur 10% niðurskurður á fjárlögum og allir lausráðnir fengu að fjúka... líka ég.

En svipað viðhorf og til xS og xD.

xC... gleymdi þeim líka, ótrúlegt en satt þá mun ég líklega setja mitt x við C... en strika yfir kandídata sem mér finnst ekki eiga að fara á þing.

Re: Könnun - Trúverðugleiki og traust til framboða í væntanlegum kosningum

Sent: Fös 15. Nóv 2024 10:39
af GuðjónR
Ég hélt að Sjálftökuflokkurinn væri einn um að vilja einkavinavæða ríkiseignir. En auðvitað er Viðrekstur og Sjálfsserðisflokkurinn bara sitthvor vasinn á sömu buxunum.

Re: Könnun - Trúverðugleiki og traust til framboða í væntanlegum kosningum

Sent: Fös 15. Nóv 2024 10:52
af worghal
GuðjónR skrifaði:Ég hélt að Sjálftökuflokkurinn væri einn um að vilja einkavinavæða ríkiseignir. En auðvitað er Viðrekstur og Sjálfsserðisflokkurinn bara sitthvor vasinn á sömu buxunum.

það er eitt að selja pabba sínum banka á afslætti og vilja svo ekki nýta fjármagnið í eitthvað gott og annað að reyna að fá topp verð fyrir vöruna og setja það í það sem við almúgurinn erum búin að vera að byðja um að sé gert, setja fjármagn í heilbrigðiskerfið.

Re: Könnun - Trúverðugleiki og traust til framboða í væntanlegum kosningum

Sent: Fös 15. Nóv 2024 11:06
af GuðjónR
worghal skrifaði:

Af hverju að selja gullgæsina? Hvað næst, Landsvirkjun?
Manstu þegar Síminn var seldur þá átti heldur betur að byggja hátæknisjúkrahús og sundabraut.
20 árum seinna er hvorugt komið.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2005 ... olu_siman/

Re: Könnun - Trúverðugleiki og traust til framboða í væntanlegum kosningum

Sent: Fös 15. Nóv 2024 11:12
af worghal
GuðjónR skrifaði:

og þarna talar fyri verkum Davíð nokkur Oddsson, einn alræmdasti sjálfstæðismaður allra tíma, að einhver hafi trúað því sem lak úr þeim belg :lol:
hvað þá í samvinnu við framsókn :sleezyjoe
svo hjálpar ekki að þetta var nokkrum árum fyrir hrun =D>

Re: Könnun - Trúverðugleiki og traust til framboða í væntanlegum kosningum

Sent: Fös 15. Nóv 2024 11:38
af rapport
Ég held að það sé gott mál að selja bankana því að þá geta þingmenn tekið ákvarðanir sem snerta bankana með hlutlausum hætti.

Það er líka mjög skrítið að reka banka í samkeppni við ríkið, rétt eins og það er skrítið að reka malbikunarstöð í samkeppni við Reykjavíkurborg.

Þær auðlindir, tæki, tól og þekking sem þarf til að standa undir skyldum ríkisins á að vera hjá ríkinu, annað á að vera á einkamarkaði.

Ríkið á svo að skapa ramma fyrir þennan rekstur svo að hann fari ekki úr böndunum í arðgreiðslum o.þ.h.

Tökum bara sem dæmi, einföld lausn á vanda bankanna og heimilanna...

"Hámarks greiðsla neytenda til lánveitanda af verðtryggingu húsnæðislána er jafngild launakostnaði lánveitanda. Ef greiðslur til lánvetanda vegna verðtryggðra húnsæðislána fara umfram launakostnað lánveitanda, þá skal sú uppæð endurgreidd inn á höfuðstól lána neytenda út frá hlutfalli láns af lánasafni húsnæðislána til neytenda hjá lánveitanda".

Af hverju á lánveitandi að fá í vasann alla þessa verðtryggingu þegar hann hefur engin rekstrarútgjöld sem hækka út frá vísitölu.

Þá á þessu klásúla bara við neytendur. Fyrirtæki sem "fagfjárfestar" eiga ekki þennan rétt og þetta á einungis að eiga við eina eign pr. íbúa.

Re: Könnun - Trúverðugleiki og traust til framboða í væntanlegum kosningum

Sent: Fös 15. Nóv 2024 12:02
af olihar
Hvernig fór þetta mál aftur?

Re: Könnun - Trúverðugleiki og traust til framboða í væntanlegum kosningum

Sent: Fös 15. Nóv 2024 13:52
af GuðjónR
olihar skrifaði:Hvernig fór þetta mál aftur?

Gullfiskarnir gleymdu því, rétt eins og Bjarni Ben gleymdi 50 milljónum á Panama reikningi.
Það er svo flókið að eiga peninga á Íslandi.

Svo koma kosningar og fólk heldur að það geti breytt einhverju með atkvæðinu sínu. :face

Re: Könnun - Trúverðugleiki og traust til framboða í væntanlegum kosningum

Sent: Fös 15. Nóv 2024 14:00

Fólk verður nefnilega að vera virkt og reyna að rugga bátnum...

Málið er að það er miklu auðveldara að ná til fólksins sem er bara nokkuð sama með kózý slagorðum eins og "Er ekki bara best að kjósa framsókn?"

Mikill meirihluti fólks nennir ekki að setja sig of mikið inn í alla þessa pólitík og er ekki með svakalega kröfur, bara að vatn og rafmagn virki...

Re: Könnun - Trúverðugleiki og traust til framboða í væntanlegum kosningum

Sent: Fös 15. Nóv 2024 14:23
af GuðjónR
Átti kilómetragjaldið ekki að fara í lagfæringu á vegakerfinu?

Re: Könnun - Trúverðugleiki og traust til framboða í væntanlegum kosningum

Sent: Fös 15. Nóv 2024 14:25
af olihar
LOL, hafa skattar á ökutæki einhvertíman farið bara í vegina? Hefur þú keyrt bara hvar sem er á landinu.

Re: Könnun - Trúverðugleiki og traust til framboða í væntanlegum kosningum

Sent: Fös 15. Nóv 2024 14:38
af GuðjónR
olihar skrifaði:LOL, hafa skattar á ökutæki einhvertíman farið bara í vegina? Hefur þú keyrt bara hvar sem er á landinu.

Nope....enda var þetta kaldhæðni...

Re: Könnun - Trúverðugleiki og traust til framboða í væntanlegum kosningum

Sent: Mán 18. Nóv 2024 08:42
af rapport
Er þetta málið 4 realz?

Treysta vaktarar Viðreisn best?

Re: Könnun - Trúverðugleiki og traust til framboða í væntanlegum kosningum

Sent: Mán 18. Nóv 2024 09:02
af B0b4F3tt
EIna ástæðan fyrir því að ég stefni á að kjósa Viðreisn er hugsanleg Evrópusambandsaðild. Við Íslendingar ættum að vera komin með nóg af þessum tilraunum með íslensku krónuna. Þetta er ekki að virka fyrir pöbulinn. Það er íslenska krónan sem er langdýrust fyrir okkur, ekki flóttafólk.

Re: Könnun - Trúverðugleiki og traust til framboða í væntanlegum kosningum

Sent: Mán 18. Nóv 2024 09:47
af rostungurinn77
https://www.ft.com/content/80ace07f-3ac ... b4a44fd8d9

The US economy is now considerably richer and more dynamic than the EU or Britain — and the gap is growing. That will have an impact well beyond relative living standards. Europe’s dependence on the US for technology, energy, capital and military protection is steadily undermining any aspirations the EU might have for “strategic autonomy”.

Evrópa er að verða á eftir og merkjanlega svo.