Ísland að afla sér orðspors
Sent: Mið 09. Okt 2024 21:03
af jonfr1900
Þetta kemur mér ekkert á óvart enda er flest brotið á Íslandi og þá sérstaklega í kringum hluti sem tengjast internetinu og þá alvarlega glæpi sem þar er að finna. Það er bara spurning um tíma hvenær Bandaríkin fara að enda ofan í hálsmálið á íslenskum stjórnvöldum með þetta mál. Ef það er ekki byrjað nú þegar, sem er líklega ástæðan fyrir þessari fréttagrein í New York Times.
Ísland sagt „heimili vefþrjóta og einkennisþjófnaðar“ (Vísir.is)
Re: Ísland að afla sér orðspors
Sent: Fim 10. Okt 2024 16:21
af Nariur
Ég er stoltur af því að við höfum svo sterk persónuverndarlög að við verðum fyrir valinu sem miðstöð sem stendur vörð um friðhelgi persónuupplýsinga.
Það má alltaf reyna að ramma það inn sem að við gerum ekkert annað en að verja glæpamenn, en þetta ver friðhelgi allra, ekki bara glæpamanna. Fyrir mér mega þeir Orwellian fasistar sem hafa eitthvað á móti því fokka sér.
Edit: autocorrect
Re: Ísland að afla sér orðspors
Sent: Fim 10. Okt 2024 16:31
af depill
Mér finnst alltaf "I disapprove of what you say, but I will defend to the death your right to say it." frábær setning.
Heimurinn er alltof mikið að breytast í ritskoðun vegna þess að það þurfi að hjálpa eða vernda einhverja hópa. Bretar fremstir í því.
Mér er alveg sama hvað ég þarf að gefa eftir, ef ég held áfram að mega segja hvað sem mig langar að segja.