Síða 1 af 1

Detti mér allar dauðar lýs úr höfði

Sent: Mið 09. Okt 2024 09:17
af rapport
https://www.visir.is/g/20242631929d/sag ... -konu-sina

Hvað var ég að lesa?

TL;DR

Í meira en 10 ár hefur maður þóst vera annar maður OG í 10 ár Í NAFNI LÁTINNAR MANNESKJU verið að búa í félagslegu húsnæði á vegum ReykajvíkurborGAR, og verið að hirða bætur hennar frá Tryggingastofnun, OG verið að taka út lyfin hennar...

Og læknir hefur fengið greitt fyrir viðtöl við látnu manneskjuna á þessum tíma...

Re: Detti mér allar dauðar lýs úr höfði

Sent: Mið 09. Okt 2024 09:31
af CendenZ
Því miður ekki nýtt vandamál, þjónustuveitandi nennir ekki veseni og erlendur einstaklingur talar bjagaða ensku bæði til að villa fyrir og til að gera allt mikið erfiðara til að getað skrimmtað
Þá er rosalega einfalt að segja bara ,,já ok redda þessu"

ábyrgðin er að fullu hjá öllum þeim sem lúffuðu fyrir honum. Það ætti að kæra alla þá, alveg sama hvort það sé pétur eða séra pétur. Allt frá lækninum sem skrifaði upp á pillur, til strákana í tölvudeildinni sem redduðu honum. Annars breytist þetta ekki og viðhorfið heldur áfram. Kerfið er gallað og líka þeir sem búa til kerfið sjálft. Hér þýðir ekkert að þykjast ekki vita neitt O:) :lol:

Ég er nokkuð viss um að lögfræðingurinn hans muni redda honum, þetta er nefnilega allt saman misskilningur og pínu lost in translation dæmi. Þess vegna þýðir ekkert annað en að fara gegn þeim sem lúffuðu. Hann verður off the hook áður en við vitum ;)

Re: Detti mér allar dauðar lýs úr höfði

Sent: Mið 09. Okt 2024 10:20
af Moldvarpan
Ég held að það sé meira um þetta en þig grunar. Þeas að einhver sé að þykjast lifa lífi einhvers annars.

Sérstaklega erlendis, þar sem samfélögin eru stærri, þá er í raun auðveldar að komast upp með þetta.

Ég hallast soldið á þá samsæriskenningu að þetta sé tebolli rússa. Þeir stunda þetta mikið.

Re: Detti mér allar dauðar lýs úr höfði

Sent: Mið 09. Okt 2024 10:32
af rapport
Moldvarpan skrifaði:Ég held að það sé meira um þetta en þig grunar. Þeas að einhver sé að þykjast lifa lífi einhvers annars.

Sérstaklega erlendis, þar sem samfélögin eru stærri, þá er í raun auðveldar að komast upp með þetta.

Ég hallast soldið á þá samsæriskenningu að þetta sé tebolli rússa. Þeir stunda þetta mikið.


Vissi að þetta væri hægt erlendis en á Íslandi með öll þessi rafrænu skilríki og endalausar auðkenningar þá hélt ég að þetta væri ekki hægt.

Mér finnst mest crazy að læknir hafi átt nokkur viðtöl við þessa látnu manneskju, hugsanlega var einhver önnur kona sem mætti...

En þetta finnst mér kalla á að fólk auðkenni sig með skilríkjum og helst rafrænum þegar það mætir á heilsugæsluna.

Re: Detti mér allar dauðar lýs úr höfði

Sent: Mið 09. Okt 2024 11:07
af Hizzman
rafræm skilríki eru bara 4 tölustafir og símanúmer, ef þú afhendir einhverjum þetta er viðkomandi orðinn ÞÚ!

Re: Detti mér allar dauðar lýs úr höfði

Sent: Mið 09. Okt 2024 11:37
af Oddy
Hizzman skrifaði:rafræm skilríki eru bara 4 tölustafir og símanúmer, ef þú afhendir einhverjum þetta er viðkomandi orðinn ÞÚ!


Þess fyrir utan þá er margt eldra fólk með allt sitt skrifað niður á blað, þar með talið allt með rafræn skilríki.

Re: Detti mér allar dauðar lýs úr höfði

Sent: Mið 09. Okt 2024 12:13
af TheAdder
Læknirinn er nú aldeilis búinn að fá skellinn, búið að svipta hann starfsleyfi.

Re: Detti mér allar dauðar lýs úr höfði

Sent: Mið 09. Okt 2024 13:39
af vesi
TheAdder skrifaði:Læknirinn er nú aldeilis búinn að fá skellinn, búið að svipta hann starfsleyfi.


Hann er nú samt að reyna fá leyfið aftur,, eins og sagt var - bara einn stór misskilningur! -
"Læknirinn, sem er kominn vel á áttræðisaldur, hefur samkvæmt heimildum fréttastofu ekki gefist upp í baráttu sinni við ráðuneytið í kjölfar sviptingar á leyfinu."

Re: Detti mér allar dauðar lýs úr höfði

Sent: Fim 10. Okt 2024 08:47
af rapport
Hizzman skrifaði:rafræm skilríki eru bara 4 tölustafir og símanúmer, ef þú afhendir einhverjum þetta er viðkomandi orðinn ÞÚ!


Þetta er góður punktur, það þarf eitthvað að bæta áreiðanleika þessarar auðkenningar.

En þjónustuaðilar á Íslandi þurfa að fara passa sig betur á að vera ekki naive í sinni þjónustuveitingu, þetta er alveg fatalt.

Hvernig er þetta gert úti í heimi, hvernig er passað upp á svona?

Held það sé óþarfi að Ísland fari að finna upp hjólið í þessum efnum, við virðumst alltaf vera 10+ árum á eftir.

Re: Detti mér allar dauðar lýs úr höfði

Sent: Fös 11. Okt 2024 18:31
af Moldvarpan

Re: Detti mér allar dauðar lýs úr höfði

Sent: Fös 11. Okt 2024 23:11
af jonfr1900
rapport skrifaði:
Hizzman skrifaði:rafræm skilríki eru bara 4 tölustafir og símanúmer, ef þú afhendir einhverjum þetta er viðkomandi orðinn ÞÚ!


Þetta er góður punktur, það þarf eitthvað að bæta áreiðanleika þessarar auðkenningar.

En þjónustuaðilar á Íslandi þurfa að fara passa sig betur á að vera ekki naive í sinni þjónustuveitingu, þetta er alveg fatalt.

Hvernig er þetta gert úti í heimi, hvernig er passað upp á svona?

Held það sé óþarfi að Ísland fari að finna upp hjólið í þessum efnum, við virðumst alltaf vera 10+ árum á eftir.


Til þess að setja upp appið þá þarf vegabréf og NFC eða mæta á þjónustumiðstöð. Til þess að setja upp á sim korti þarf að mæta á þjónustumiðstöð. Ég held að gildistími auðkenningar á símanúmeri sé aðeins fimm ár en ekki lengra en það. Þessi maður notaði íslykilinn sem er að fara að detta úr notkun núna á þessu eða næsta ári. Þannig er möguleiki á því að hann hafi komist upp með þetta. Síðan er Ísland ekki með neina samninga við Úkraínu um örokubætur ef fólk býr þar. Þannig að augljóslega hefur heimilisfang konunnar sem dó í Úkraínu verið á Íslandi, annars þarf að fylla út lífsvottorð.

Þetta er greinilega flókið svindl hjá þessum manni en hann notaði allar holunar á íslenska kerfinu.