Síða 1 af 1

Leigandin hefur allt vald?

Sent: Mið 02. Okt 2024 12:17
af Semboy
Ég er að legja bílskúr sem geymslupláss.
Og ég fer í ferðlag í 4vikur, kem tilbaka.
Og þá sé ég 2 einstaklingar komnir með rúm og eru farin að búa þarna inni,
leigandin sjálfur er ekki til staðar, held hann er í útlöndum. Eitt er vist hann er tengdur þeim.
Ég hringi á lögregluna og löggan segir þetta er einkamál semsagt ég þarf lögmann.
Ætla að heyra í rvk borg og sjá hvað þau segja.

Mig langar að fá þetta lið úr skúrnum undir eins!
hef ekkert áhuga að tala við leigandan sjálfa.

Hvað lögmannastofu er gott að hafa samband við, varðandi svona?
hvað gæti þetta kostað mig.
Á leiðini þarf ég að láta útbúa leigusamning fyrir aðraeign sem ég er með.

Re: Leigandin hefur allt vald?

Sent: Mið 02. Okt 2024 12:31
af Oddy
Neita þessir 2 einstaklingar að fara?

Re: Leigandin hefur allt vald?

Sent: Mið 02. Okt 2024 12:52
af Semboy
Oddy skrifaði:Neita þessir 2 einstaklingar að fara?

Það átti engin að vera þarna inni til að sofa.
Vona þeir gera eithvað
Mynd

Ég er allavega fegin að þessi hausverkur kom fyrir.
Er að læra mikið á minna kostnað.

Re: Leigandin hefur allt vald?

Sent: Mið 02. Okt 2024 13:03
af vesi
segja upp leigunni, henda gaurunum út og skipta um lása.

Re: Leigandin hefur allt vald?

Sent: Mið 02. Okt 2024 13:18
af Oddy
Semboy skrifaði:
Oddy skrifaði:Neita þessir 2 einstaklingar að fara?

Það átti engin að vera þarna inni til að sofa.
Vona þeir gera eithvað
Mynd

Ég er allavega fegin að þessi hausverkur kom fyrir.
Er að læra mikið á minna kostnað.

Nei en þeir eru samt þar. Þú getur beðið þá að fara og taka allt draslið með sér. Ef enginn leigusamningur er í gildi þá myndi ég skilja þetta þannig að þetta sé innbrot. Ég er ekki lögfræðingur en ef munnlegur samningur er brotinn þá er það sama og uppsögn, allavega má skilja það þannig.

Re: Leigandin hefur allt vald?

Sent: Mið 02. Okt 2024 13:35
af Semboy
Oddy skrifaði:

hah núna nennir lögreglan að gera eithvað. Þar sem ég sagði 'tellst þetta ekki sem innbrot?'
Takk Oddy

Re: Leigandin hefur allt vald?

Sent: Mið 02. Okt 2024 17:05
af KristinnK
Mér finnst stórfurðulegt að lögreglan hafi ekki brugðist strax við. Þetta eru einstaklingar sem eru inni í þinni húseign án leyfis. Það er ekki beinlínis flókið. En ég er feginn að þeir hafi tekið sönsum og verða vonandi fljótir að drösla þessum mönnum út.

Re: Leigandin hefur allt vald?

Sent: Mið 02. Okt 2024 17:33
af mikkimás
KristinnK skrifaði:Mér finnst stórfurðulegt að lögreglan hafi ekki brugðist strax við. Þetta eru einstaklingar sem eru inni í þinni húseign án leyfis. Það er ekki beinlínis flókið. En ég er feginn að þeir hafi tekið sönsum og verða vonandi fljótir að drösla þessum mönnum út.

Ég má skrá lögheimili mitt heima hjá þér að þér forspurðum og valsa inn þegar það er ólæst.

Og þegar löggan kemur get ég einfaldlega bent þeim á að þetta sé mitt lögheimili. Hvar annars staðar á ég að vera?

Löggan getur svo ekki hent mér út bara sísona eins og ég væri venjulegur innbrotsþjófur. Það þarf rannsóknarvinnu og mögulega dómsúrskurð, sem tekur tíma (að því gefnu að þú sért ekki núverandi ráðherra eða annað merkikerti).

Svona er Ísland í dag.

Re: Leigandin hefur allt vald?

Sent: Mið 02. Okt 2024 17:42
af einarhr
Nágranni minn lenti í vandræðum með leigjanda, það var alltaf partý og mikið dóp og innbrot í geymslur. Það var ekkert gert í því fyrir en að leigandinn fór erlendis og lét bróðir sinn og félaga hans hafa hana og þeir voru sama pakk og leigandinn.

Þeim var hent út þar sem þeir gátu ekki sýnt fram á leigusamning, hann var við þann sem var fluttur erlendis.

Ps það er mjög algengt í td Svíþjóð þar sem ég bjó að fólk leigir í aðra hönd en þá þarf leigutaki að semja um það við eiganda

Re: Leigandin hefur allt vald?

Sent: Mið 02. Okt 2024 22:26
af rostungurinn77
mikkimás skrifaði:
KristinnK skrifaði:Mér finnst stórfurðulegt að lögreglan hafi ekki brugðist strax við. Þetta eru einstaklingar sem eru inni í þinni húseign án leyfis. Það er ekki beinlínis flókið. En ég er feginn að þeir hafi tekið sönsum og verða vonandi fljótir að drösla þessum mönnum út.

Ég má skrá lögheimili mitt heima hjá þér að þér forspurðum og valsa inn þegar það er ólæst.

Og þegar löggan kemur get ég einfaldlega bent þeim á að þetta sé mitt lögheimili. Hvar annars staðar á ég að vera?

Löggan getur svo ekki hent mér út bara sísona eins og ég væri venjulegur innbrotsþjófur. Það þarf rannsóknarvinnu og mögulega dómsúrskurð, sem tekur tíma (að því gefnu að þú sért ekki núverandi ráðherra eða annað merkikerti).

Svona er Ísland í dag.

Þetta er nú ekki alveg svona í dag. Lögunum var breytt 2019 til þess að koma í veg fyrir svona lagað.

4. gr.
Þinglýstir eigendur fasteigna.

Þinglýstir eigendur skulu hlutast til um rétta skráningu lögheimilis einstaklinga sem hafa fasta búsetu í húsnæði hans.

Nú verður þinglýstur eigandi var við eða hefur grun um að einstaklingur sé skráður með lögheimili í fasteign hans án þess að hafa þar fasta búsetu og skal hann eins fljótt og kostur er tilkynna það til Þjóðskrár Íslands.

https://www.stjornarradid.is/efst-a-bau ... -aramotin/

Í fyrsta lagi er gerð sú krafa til þinglýsts eiganda fasteignar að hann hlutist til um að skráning lögheimilis einstaklinga sem hafa fasta búsetu í húsnæði hans sé rétt. Gert er ráð fyrir að þinglýstur eigandi fái senda tilkynningu í pósthólf sitt á Ísland.is um þá sem skrá lögheimili sitt í fasteign í hans eigu. Vanræki eigandi fasteignar ofangreindar skyldur getur það varðað sektum.

Re: Leigandin hefur allt vald?

Sent: Mið 02. Okt 2024 22:32
af rapport
rostungurinn77 skrifaði:

En ræður Þjóðskrá við að skrá lögheimili niður á fasteignanúmer í fjölbýlishúsum?

Re: Leigandin hefur allt vald?

Sent: Mið 02. Okt 2024 22:34
af rostungurinn77

Ef þú átt fasteign þá geturðu farið inn á island.is til þess að fletta því upp hverjir eru með lögheimili í þinni fasteign.

Uppflettingin nær bara til fasteignanúmersins, ekki heimilisfangs.

Re: Leigandin hefur allt vald?

Sent: Mið 02. Okt 2024 22:37
af rostungurinn77
https://www.visir.is/g/20242532104d/her ... inni-i-bud

„Hver býr í eigninni minni?“ kallast átak sem Þjóðskrá Íslands hefur hleypt af stað í því skyni að leiðréttar rangar lögheimilisskráningar. Eigendur húseigna geta núna í gegnum heimasíðu Þjóðskrár flett upp á því hverjir eru skráðir þar til heimilis og tilkynnt um ranga skráningu.

Re: Leigandin hefur allt vald?

Sent: Fös 04. Okt 2024 00:40
af daremo
Þetta hljómar kunnuglega. Voru þetta innflytjendur frá Venúsúela eða Palestínu?
Hef mikið heyrt um þetta undanfarið.. Semsagt mjög sjarmerandi innflytjandi sem leigir íbúðina af þér. Hann talar smá íslensku og segist vera að leita að íbúð fyrir sig og íslensku kærustuna sína, en svo kemstu að því seinna að það eru 4-5 flóttamenn sem búa í íbúðinni þinni. Þeir segjast svo allir vera "bræður".

Re: Leigandin hefur allt vald?

Sent: Fös 04. Okt 2024 15:11
af 2ndSky
daremo skrifaði:Þetta hljómar kunnuglega. Voru þetta innflytjendur frá Venúsúela eða Palestínu?
Hef mikið heyrt um þetta undanfarið.. Semsagt mjög sjarmerandi innflytjandi sem leigir íbúðina af þér. Hann talar smá íslensku og segist vera að leita að íbúð fyrir sig og íslensku kærustuna sína, en svo kemstu að því seinna að það eru 4-5 flóttamenn sem búa í íbúðinni þinni. Þeir segjast svo allir vera "bræður".

Ég lenti í nákvæmlega þessu árið 2018. Var að leigja íbúð og það kom erlendur maður sem talaði smá ísl með "ísl" kærustunni sinni.

Ég leigði þeim íbúðina í 1 ár og það voru yfir 5 manns í íbúðinni og oft verið að kvarta undan gras reykingum.

Það var að vísu alltaf borgað leigu á réttum tíma og þau fóru út þegar leigusamningur rann út.

Re: Leigandin hefur allt vald?

Sent: Fös 04. Okt 2024 17:34
af Minuz1
https://island.is/utburdur-ur-fasteign

Skemmtu þér konunglega, þetta er mjög langt ferli.

Re: Leigandin hefur allt vald?

Sent: Fös 04. Okt 2024 17:46
af Oddy
Minuz1 skrifaði:https://island.is/utburdur-ur-fasteign

Skemmtu þér konunglega, þetta er mjög langt ferli.

Eru allir bílskúrar með sér fasteignanúmer? Spyr sá sem ekki veit

Re: Leigandin hefur allt vald?

Sent: Fös 04. Okt 2024 19:10
af rostungurinn77
Oddy skrifaði:
Minuz1 skrifaði:https://island.is/utburdur-ur-fasteign

Skemmtu þér konunglega, þetta er mjög langt ferli.

Eru allir bílskúrar með sér fasteignanúmer? Spyr sá sem ekki veit

Ef skilyrðið þitt er "allir" þá er svarið nei. Bílskúr telst væntanlega yfirleitt hluti fasteignar og er inni í fermetratölunni.

Annars finnst mér svolítið menn vera að blanda saman löglegum leigjendum og hústökufólki sem er nær því sem Semboy er að eiga við.

Löglegir leigjendur eru með samning og búa í löglegu íbúðahúsnæði. Leigjendur hafa ákveðinn rétt og það er ferli fyrir leigusala að losna við þá ef svo ber undir.

Eitthvað fólk sem mætir með dýnu og leggur hana á gólfið er ekki leigjendur og njóta ekki þess lagalega réttar sem leigjendur hafa.

Re: Leigandin hefur allt vald?

Sent: Lau 05. Okt 2024 19:56
af Semboy
Þetta er leyst. Lögreglan sagði að láta þeim vita, ef ég þarf aðstoð.
einstaklingarnir komnir út og leigandin heldur áfram að legja þetta sem geymslurými.

Re: Leigandin hefur allt vald?

Sent: Þri 08. Okt 2024 22:43
af Semboy
Heilbrigðiseftirlitið var að svara mér núna.
og þau einfaldlega sögðu, þetta er þitt einkamál.

Ég skrifaði bara til baka 'Þessu máli er lokið, takk"
Ég er svo hissa að fá þetta svar eftir allt sem við heyrum í þessum samfélagi varðandi mannsal.

Re: Leigandin hefur allt vald?

Sent: Þri 08. Okt 2024 22:44
af olihar
Er þetta eitthvað sem Heilbrigðiseftirlitið hefur með að gera?

Re: Leigandin hefur allt vald?

Sent: Þri 08. Okt 2024 23:04
af Semboy
Ég man ekki sá sem ráðlagði mig að hafa samband við þá. Það er eitt af þessum HMS,Lögreglan eða Eldvarnareftirlit.

Re: Leigandin hefur allt vald?

Sent: Mið 09. Okt 2024 08:25
af Prentarakallinn
Er ekki bara hægt að taka hurðir/glugga af skúrnum og loka á rafmagn og hita fyrst það er ekki ætlast til þess að neinn búi þarna? Frekar viss um að svoleiðis má ekki ef þetta er íbúð sem er búið ólöglega í en fyrst þetta er bílskúr/geymsla þá kannski má það