Síða 1 af 1

Nýjir hátalarar

Sent: Fös 27. Sep 2024 19:48
af emil40
Sælir félagar.

Enn einn pósturinn frá mér ... Ég gafst upp á jbl quantum duo hátölurunum og skellti mér á Microlab B-77BT frá Kísildal. Fínt sound í þeim og fallegir hátalarar sem voru á góðu verði. Núna er komið nóg í uppfærsludótinu í bili og verður ekkert meira gera fyrr en skjákortin koma næsta vor :)


Nýju hátalarnir.jpg
Nýju hátalarnir.jpg (314.77 KiB) Skoðað 1265 sinnum

Re: Nýjir hátalarar

Sent: Þri 01. Okt 2024 08:29
af worghal
næsta uppfærsla ætti að vera mús og lyklaborð, kanski músamotta líka :D

Re: Nýjir hátalarar

Sent: Þri 01. Okt 2024 13:21
af TheAdder
Ég myndi mæla með Logitech Powerplay mottu/sendi og mús frá þeim sem passar. Það er þvílíka snilldin að vera með þráðlausa mús sem maður þarf aldrei að pæla í hleðslunni á.

Re: Nýjir hátalarar

Sent: Þri 01. Okt 2024 16:53
af emil40
worghal skrifaði:næsta uppfærsla ætti að vera mús og lyklaborð, kanski músamotta líka :D


vandamálið í því er bara eitt .... ég er með flogaveiki og blikkandi ljós geta hugsanlega komið flogi af stað en ekkert 100 % með það. Þess vegna þurfti ég að láta leikjalyklaborðið og razer músina frá mér. Þetta er helvíti hvimleitt.

Re: Nýjir hátalarar

Sent: Þri 01. Okt 2024 19:13
af olihar
emil40 skrifaði:
worghal skrifaði:næsta uppfærsla ætti að vera mús og lyklaborð, kanski músamotta líka :D


vandamálið í því er bara eitt .... ég er með flogaveiki og blikkandi ljós geta hugsanlega komið flogi af stað en ekkert 100 % með það. Þess vegna þurfti ég að láta leikjalyklaborðið og razer músina frá mér. Þetta er helvíti hvimleitt.



Mæli með Logitech G502 x (S.s. Ekki plus þá, þar sem hún er með RGB)
https://www.logitechg.com/en-us/product ... R9-0A_1U0L

Re: Nýjir hátalarar

Sent: Þri 01. Okt 2024 22:18
af TheAdder
emil40 skrifaði:
worghal skrifaði:næsta uppfærsla ætti að vera mús og lyklaborð, kanski músamotta líka :D


vandamálið í því er bara eitt .... ég er með flogaveiki og blikkandi ljós geta hugsanlega komið flogi af stað en ekkert 100 % með það. Þess vegna þurfti ég að láta leikjalyklaborðið og razer músina frá mér. Þetta er helvíti hvimleitt.

Það er valmöguleiki á að slökkva alveg á ljósunum á bæði músinni og mottunni, í Logitech G HUB forritinu.