Síða 1 af 1
Benchmark fyrir örgjörva
Sent: Lau 21. Sep 2024 23:44
af emil40
Sælir félagar.
Hvað mynduð þið segja að væri besta benchmarkið fyrir örgjörva í dag. Ég var að uppfæra biosinn í 3.08 núna í dag og langaði að prófa hvað 9950x örrinn minn fær út úr benchmarki.
Re: Benchmark fyrir örgjörva
Sent: Sun 22. Sep 2024 00:28
af nonesenze
alltaf það sama. cinebench. það hugsar ekkert um minni. annars ná sér í benchmate tool og skoða það og það sem er í því
Re: Benchmark fyrir örgjörva
Sent: Sun 22. Sep 2024 10:14
af olihar
CineBench R23
Ættir að fá sirka 42.000-43.000 í multi og 2.200-2.300 í Single stock.
Hæsta sem ég hef séð so far er 55.327 í multi.
Re: Benchmark fyrir örgjörva
Sent: Sun 22. Sep 2024 10:52
af rapport
Er ég sá eini sem nota passmark ?
Re: Benchmark fyrir örgjörva
Sent: Sun 22. Sep 2024 10:56
af olihar
Re: Benchmark fyrir örgjörva
Sent: Mán 23. Sep 2024 13:18
af emil40
olihar skrifaði:CineBench R23
Ættir að fá sirka 42.000-43.000 í multi og 2.200-2.300 í Single stock.
Hæsta sem ég hef séð so far er 55.327 í multi.
Ég fékk 40.889 pts í multi core og 2.267 pts í single core
Re: Benchmark fyrir örgjörva
Sent: Mán 23. Sep 2024 14:37
af olihar
Væntanlega með allskonar drasl keyrandi á Windows, eða kælingu sem ræður ekki við CPU. Svo þetta er bara normal score.
Re: Benchmark fyrir örgjörva
Sent: Mán 23. Sep 2024 14:40
af olihar
Þetta er mitt score með PBO.
- IMG_9306.png (31.8 KiB) Skoðað 1245 sinnum
Re: Benchmark fyrir örgjörva
Sent: Mán 23. Sep 2024 19:00
af emil40
Vinur minn sem er góður í þessu kom og tweakaði tölvuna aðeins til
- Cinebench_16x23_46777_1x2313.png (809.04 KiB) Skoðað 1199 sinnum
Re: Benchmark fyrir örgjörva
Sent: Mán 23. Sep 2024 19:05
af olihar
Stable?
Re: Benchmark fyrir örgjörva
Sent: Mán 23. Sep 2024 19:11
af emil40
já, við erum að keyra hana á aðeins minna núna -0.40 undervolt með OCCT stability testing og svo annað forrit til að vera öryggir yfir nóttina.
Re: Benchmark fyrir örgjörva
Sent: Mán 23. Sep 2024 19:16
af emil40
Það er ekki eins og ég hafi mikið annað að gera með heilsuna í drasli og þarf að nota rafmagnshjólastólinn hérna heima ....
Eins gott að taugalæknirinn minn gefi mér einhverjar fréttir eftir rúmann mánuð.
Annar kötturinn minn dó eftir bílslysi fyrir 9 dögum síðan, fínt að dreifa huganum við eitthvað. Mér finnst eiginlega það versta að bílstjórinn stakk af án þess að láta vita en hann Snúður minn notaði seinustu kraftanna í að koma heim til mín. Hann vildi greinilega deyja heima hjá sér en ekki aleinn einhverstaðar úti. Það var farið með hann til dýralæknis en hann var of mikið slasaður til þess að það væri hægt að bjarga honum ...
- Snúður3.jpg (40.58 KiB) Skoðað 1191 sinnum
Re: Benchmark fyrir örgjörva
Sent: Þri 24. Sep 2024 08:53
af ekkert
9900X, PBO off, -20mV, DDR5-6400, Ubuntu 24.04
Re: Benchmark fyrir örgjörva
Sent: Þri 24. Sep 2024 09:29
af olihar
LOL undirskrift…..
“ AMDip boii “
Re: Benchmark fyrir örgjörva
Sent: Þri 24. Sep 2024 17:16
af emil40
soldið óheppileg undirskrift miðað við örrann sem hann er með
Re: Benchmark fyrir örgjörva
Sent: Mið 25. Sep 2024 02:55
af nonesenze
af hverju ekki að taka þatt í time spy?
edit: enginn amd örri 9xxx eitthvað þar inni
Re: Benchmark fyrir örgjörva
Sent: Mið 25. Sep 2024 09:49
af olihar
nonesenze skrifaði:af hverju ekki að taka þatt í time spy?
edit: enginn amd örri 9xxx eitthvað þar inni
Timespy virkar einstaklega illa með 2 CCD örgjörvum.
Re: Benchmark fyrir örgjörva
Sent: Mið 25. Sep 2024 12:02
af gnarr
emil40 skrifaði:Annar kötturinn minn dó eftir bílslysi fyrir 9 dögum síðan, fínt að dreifa huganum við eitthvað. Mér finnst eiginlega það versta að bílstjórinn stakk af án þess að láta vita en hann Snúður minn notaði seinustu kraftanna í að koma heim til mín. Hann vildi greinilega deyja heima hjá sér en ekki aleinn einhverstaðar úti. Það var farið með hann til dýralæknis en hann var of mikið slasaður til þess að það væri hægt að bjarga honum ...
Ég samhryggist :'( Það er erfitt að missa kött. Snúður var fallegur köttur <3
Re: Benchmark fyrir örgjörva
Sent: Mið 25. Sep 2024 16:48
af emil40
Snúður var einstakur köttur. Ég hef aldrei kynnst jafn gæfum ketti. Ég ákvað að leyfa honum að fara í sumarlandið svo að hann þyrfti ekki að upplifa óþarfa sársauka. Ég gerði allt sem að var hægt og þetta var því miður það besta fyrir hann úr því sem að komið var