Síða 1 af 1

Áhugavert upplífun í dag.

Sent: Lau 31. Ágú 2024 16:30
af Semboy
Var með hagkaup poka sem var ábyggilega 30ára+.
var að taka til uppi rísi. Og rakst á þennan poka og ég bara sweet
get notað það sem rusla poka. Ég rétt svo kom við hann og pokin fór í sundur í mörg þúsund molar.
Og molarnir sjálfir fóru í sundur í enn minni molar, Rýksugan var eina leiðin, ekki hægt að sópa þessu upp.

Re: Áhugavert upplífun í dag.

Sent: Lau 31. Ágú 2024 16:39
af olihar
Já þetta er það sem kemur fyrir plast á endanum. Enda ekkert nema microplast útum allt í öllu.

Re: Áhugavert upplífun í dag.

Sent: Sun 01. Sep 2024 15:26
af Henjo
Yeap, og þetta brotnar niður í mícróplast sem er það lítið að þú sérð það ekki, þú andar þessu inn og drekkur þetta þegar þú færð þér vatnsopa úr krananum.

Síðan þarf maður að hlusta á gamla karla haga sér eins og smábörn því það er verið að biðja þá um að flokka, nota fjölnotapoka og reyna skilja afhverju það eru ekki notuð plaströr lengur.

Re: Áhugavert upplífun í dag.

Sent: Sun 01. Sep 2024 16:01
af einarhr
Henjo skrifaði:Yeap, og þetta brotnar niður í mícróplast sem er það lítið að þú sérð það ekki, þú andar þessu inn og drekkur þetta þegar þú færð þér vatnsopa úr krananum.

Síðan þarf maður að hlusta á gamla karla haga sér eins og smábörn því það er verið að biðja þá um að flokka, nota fjölnotapoka og reyna skilja afhverju það eru ekki notuð plaströr lengur.


Var að hlusta á líklega morgunverkin með Andra Frey fyrir ca 10 árum og það var Tuðhorn. Kona hringdi inn og sagði að það væri kjaftæði að það tæki plastpoka 300 ár að brotna niður í náttúrunni þar sem þeir hafa bara verið til 50-60 ár :sleezyjoe :sleezyjoe :sleezyjoe :sleezyjoe

Re: Áhugavert upplífun í dag.

Sent: Sun 01. Sep 2024 22:13
af Semboy
Ég er með nokkra Jordan skór, ætli þetta sé ekki bara tilganglaust að geyma.

Re: Áhugavert upplífun í dag.

Sent: Mán 02. Sep 2024 18:41
af Semboy

Re: Áhugavert upplífun í dag.

Sent: Mán 02. Sep 2024 19:45
af TheAdder
Semboy skrifaði:Ég er með nokkra Jordan skór, ætli þetta sé ekki bara tilganglaust að geyma.

Tilgangurinn, eins og með öll söfn, er takmarkaður frá upphafi, hvort sem það eru myntir, skór, hattar, eða skór. :happy

Re: Áhugavert upplífun í dag.

Sent: Þri 03. Sep 2024 06:37
af Minuz1
https://www.nioz.nl/en/news/fungus-brea ... nvironment.

Fungus breaks down ocean plastic

Publication date: Monday 03 June 2024
A fungus living in the sea can break down the plastic polyethylene, provided it has first been exposed to UV radiation from sunlight. Researchers from, among others, NIOZ published their results in the scientific journal Science of the Total Environment. They expect that many more plastic degrading fungi are living in deeper parts of the ocean.

Náttúran lagar sig að aðstæðum, það er engin orka látin vera ónotuð til langs tíma.

Re: Áhugavert upplífun í dag.

Sent: Þri 03. Sep 2024 08:39
af Stutturdreki
Minuz1 skrifaði:Náttúran lagar sig að aðstæðum, það er engin orka látin vera ónotuð til langs tíma.


Frábært, þangað til plast-étandi-örverur eyðileggja alla kaplana í tölvunni minni.

Svona þróun mun hugsanlega bjarga okkur frá öllu þessu plasti sem við skiljum eftir í náttúrunni en hugsanlega líka gera plast, eins og við þekkjum það í dag, ónothæft. Sem stuðlar svo sem líka að því að bjarga okkur frá plastmenguninni.

Re: Áhugavert upplífun í dag.

Sent: Þri 03. Sep 2024 09:03
af Climbatiz
er með nótu um bókkaup fyrir framhaldsskóla frá árinu '01 held ég sem er ekki ritað með laser og því ekki búið að þurkast út á 3mánuðum einsog nótur í dag :Þ er með allskyns "rusl" sem er minn fjarsjóður ;}