Síða 1 af 2

Allt sem getur verið hentugt, sniðugt og gott að vita...

Sent: Lau 31. Ágú 2024 12:25
af rapport
Uppáhalds að gera undanfarið:

cmd og winget upgrade --all

Re: Allt sem getur verið hentugt, sniðugt og gott að vita...

Sent: Lau 31. Ágú 2024 12:34
af GuðjónR
rapport skrifaði:Uppáhalds að gera undanfarið:

cmd og winget upgrade --all

Sá þetta á TikTok fyrir stuttu og ætlaði alltaf að prufa en gleymdi, takk fyrir ábendinguna!

Re: Allt sem getur verið hentugt, sniðugt og gott að vita...

Sent: Lau 31. Ágú 2024 20:37
af gnarr
Interface fyrir winget, sem getur séð um að uppfæra forritin þín sjálfvirkt.

https://github.com/marticliment/UniGetUI

Re: Allt sem getur verið hentugt, sniðugt og gott að vita...

Sent: Lau 31. Ágú 2024 23:18
af G3ML1NGZ
ég notaði win10 debloater með góðum árangri.

Einnig er ninite.com classic. vanalega first stop hjá mér þegar ég set upp nýja tölvu

Re: Allt sem getur verið hentugt, sniðugt og gott að vita...

Sent: Sun 01. Sep 2024 05:29
af Climbatiz
besti forritari af alskyns tólum sem hægt er að leikja sér með

https://www.nirsoft.net/

Re: Allt sem getur verið hentugt, sniðugt og gott að vita...

Sent: Sun 01. Sep 2024 06:33
af Hausinn
Mitt uppáhalds trix sem ég fann út nýlega fyrir Windows 11: ef að þú breytir útgáfunni á Windows yfir í Windows 11 Enterprise með t.d. MassGravel og ferð síðan í Group Policy Editor > Computer Configuration > Administrative templates > Start Menu and Taskbar og setur "Remove Recommended section from Start Menu" í Enabled þá losnar þú við þennan leiðinlega "Recommendations" flipa neðst í start.

Samanburður:

07rCwJ4tQRFWTf6XREUS061-14.png
07rCwJ4tQRFWTf6XREUS061-14.png (742.26 KiB) Skoðað 2021 sinnum

Re: Allt sem getur verið hentugt, sniðugt og gott að vita...

Sent: Sun 01. Sep 2024 10:13
af rapport
OK, þetta er kannski of easy til að eiga skilið að vera á þessum þræði... en... ég er endalaust að kenna fóki að nota "sync" hnappinn í Sharepoint/teams og kenna fólki að stilla Teams á að opna skjaöl í appinu en eki Teams eða vafra.

Er hægt að stilla þetta fyrir fyrirtæki með polices s.s. að opna skjöl í appi? (það mundi auðvelda líf margra og staðla hvernig fólk vinnur með skjölin).

En fólk grætur sáran að hafa misst skjalasvæðin sín yfir í sharepoint en fattar ekki að ef það syncar þau þá birtast þau í explorer og þá hægt að nota leitina þar o.þ.h. (líka hægt að stilla allt, sumt eða ekkert á að vera geymt locally inn á tölvunni).

Að gera þetta ekki finnst mér draga stórlega úr notagildi Office 365 = stórt atriði að kenna fólki að stilla eins og því hentar best.

Re: Allt sem getur verið hentugt, sniðugt og gott að vita...

Sent: Þri 03. Sep 2024 02:48
af thrkll
rapport skrifaði:Uppáhalds að gera undanfarið:

cmd og winget upgrade --all

Einhver ástæða fyrir mig að hætta að nota chocolatey og byrja að nota winget?

Re: Allt sem getur verið hentugt, sniðugt og gott að vita...

Sent: Þri 03. Sep 2024 07:28
af rapport
thrkll skrifaði:
rapport skrifaði:Uppáhalds að gera undanfarið:

cmd og winget upgrade --all

Einhver ástæða fyrir mig að hætta að nota chocolatey og byrja að nota winget?

Hvernig virkar chocolatey?

Hef aldrei heyrt af þessu áður.

Re: Allt sem getur verið hentugt, sniðugt og gott að vita...

Sent: Þri 03. Sep 2024 07:48
af Moldvarpan
https://rafland.is/lg-48-oled-evo-sjonvarp.html

Þetta tæki er á 180k. Gæti verið hentugt fyrir þá sem eru að spá í OLED. Smá útúrdúr, en flott tilboð :)

Re: Allt sem getur verið hentugt, sniðugt og gott að vita...

Sent: Þri 03. Sep 2024 08:01
af thrkll
rapport skrifaði:
thrkll skrifaði:
rapport skrifaði:Uppáhalds að gera undanfarið:

cmd og winget upgrade --all

Einhver ástæða fyrir mig að hætta að nota chocolatey og byrja að nota winget?

Hvernig virkar chocolatey?

Hef aldrei heyrt af þessu áður.

Þetta er bara package manager, svipaður og winget eftir því sem ég kemst næst (eða apt-get, pacman etc.) nema hefur verið til lengur og það er stuðningur við meiri hugbúnað síðast þegar ég vissi.

Bara

Kóði: Velja allt

choco install nodepad++ java winamp

og þú ert good to go :8)

Re: Allt sem getur verið hentugt, sniðugt og gott að vita...

Sent: Þri 03. Sep 2024 12:08

OK, er winget s.s. ekki windows feature?

Ég hélt að þetta væri eitthvað bakdyra App store hja´Windows...

Re: Allt sem getur verið hentugt, sniðugt og gott að vita...

Sent: Þri 03. Sep 2024 15:58
af gnarr
rapport skrifaði:OK, er winget s.s. ekki windows feature?

Jú, winget er open-source pakkastjórnunarkerfi sem er hannað af Microsoft og er innbyggt í Windows 11.

Re: Allt sem getur verið hentugt, sniðugt og gott að vita...

Sent: Þri 03. Sep 2024 16:47
af Henjo
Á góðan félaga sem dislikar linux rosalega mikið, allt svona terminal dæmi hræðir hann rosalega mikið. Sem langtíma linux notandi sjálfur þá hélt ég að ég væri að fá heilablóðfall þegar hann var að sýna mér þetta winget dæmi og hvað honum fannst þetta vera frábært og yndislegt.

Hann vildi meina að pakkarnir væri downlodaðir beint af netinu, það er vlc er installað frá vlc.com. Er þetta ekki downlodað frá repository sem microsoft heldur uppi?

Re: Allt sem getur verið hentugt, sniðugt og gott að vita...

Sent: Þri 03. Sep 2024 18:48
af ABss
Þetta er rosa fínt, gerir windows örlítið þolanlegra.

Edit: Góður þráður!

Re: Allt sem getur verið hentugt, sniðugt og gott að vita...

Sent: Þri 03. Sep 2024 19:20
af rapport
Endilega, ef það er eitthvað meira sniðugt sem maður ætti að vita.. share it...

Re: Allt sem getur verið hentugt, sniðugt og gott að vita...

Sent: Þri 03. Sep 2024 23:48
af kornelius
Nota reyndar ekki windows, en ég nota Ansible til að uppfæra allar Linux vélar

Ansible er til fyrir windows https://docs.ansible.com/ansible/latest ... usage.html og virkar í gegnum SSH

Einhver sem hefur pufað Ansible fyrir windows?

K.

Re: Allt sem getur verið hentugt, sniðugt og gott að vita...

Sent: Mið 04. Sep 2024 08:11
af Hjaltiatla
1. WSL ef þú ert Windows notandi , getur þá notað Linux CLI:https://learn.microsoft.com/en-us/windows/wsl/install

2. Sysinternals Utilities: https://learn.microsoft.com/en-us/sysinternals/downloads/

Uppáhalds Sysinternals tólin
Process Monitor
Tcpview
Process Explorer
Autoruns

3. Windows Terminal: https://apps.microsoft.com/detail/9n0dx20hk701?hl=en-US&gl=US
Hentar ljómandi vel þegar maður notar cmd,powershell, Ubuntu etc... og hefur þæginlegt aðgengi að öllum tólum

Re: Allt sem getur verið hentugt, sniðugt og gott að vita...

Sent: Mið 04. Sep 2024 08:16
af Hjaltiatla
thrkll skrifaði:
rapport skrifaði:Uppáhalds að gera undanfarið:

cmd og winget upgrade --all

Einhver ástæða fyrir mig að hætta að nota chocolatey og byrja að nota winget?

Sýnist allt stefna í að Winget fari að ráða ríkjum ef þú býrð í Microsoft landi og verði einfaldara að elta Winget vagninn en chocolatey tólið.

Re: Allt sem getur verið hentugt, sniðugt og gott að vita...

Sent: Fim 05. Sep 2024 10:16
af Snaevar
Microsoft Powertoys er ansi sniðugt concept.
M.a. innbyggður Hex color picker, Power rename, Fancyzones fyrir window management, screen ruler, text extractor og helling í viðbót.
Gerir Windows lífið töluvert betra, allavega fyrir mig :)

https://learn.microsoft.com/en-us/windows/powertoys/

Getur sótt Powertoys á Microsoft Store m.a.

Re: Allt sem getur verið hentugt, sniðugt og gott að vita...

Sent: Fim 05. Sep 2024 11:35
af worghal
Snaevar skrifaði:Microsoft Powertoys er ansi sniðugt concept.

winget install microsoft.powertoys ;)

Re: Allt sem getur verið hentugt, sniðugt og gott að vita...

Sent: Fim 05. Sep 2024 11:58
af Snaevar
worghal skrifaði:

Það minnir mig á, ef þú vilt vita hver package name er á forriti, þá geturðu athugað á https://winget.run/ ;)

Re: Allt sem getur verið hentugt, sniðugt og gott að vita...

Sent: Fim 05. Sep 2024 12:09
af worghal
Snaevar skrifaði:
worghal skrifaði:
Snaevar skrifaði:Microsoft Powertoys er ansi sniðugt concept.
M.a. innbyggður Hex color picker, Power rename, Fancyzones fyrir window management, screen ruler, text extractor og helling í viðbót.
Gerir Windows lífið töluvert betra, allavega fyrir mig :)

https://learn.microsoft.com/en-us/windows/powertoys/

Getur sótt Powertoys á Microsoft Store m.a.

winget install microsoft.powertoys ;)

Það minnir mig á, ef þú vilt vita hver package name er á forriti, þá geturðu athugað á https://winget.run/ ;)

getur líka gert "winget search" og leitað að pökkum :D

Re: Allt sem getur verið hentugt, sniðugt og gott að vita...

Sent: Fim 05. Sep 2024 18:25
af G3ML1NGZ
ég notapowertoys mikið í vinnunni. ég tek mikið af myndum og það borgar sig ekki alltaf að nota 8mb myndir í skýrslugerð.

image resizer er snilld
bý til möppu og kalla hana "minni"
Vel myndirnar og dreg þær alltar í nýju möppuna með hægri músartakkanum "resize images here" og vel svo bara stærðina. virkar hratt og þarf ekki að spá í því meira en 3 músarklikk yfir kannski hundruðir mynda

Re: Allt sem getur verið hentugt, sniðugt og gott að vita...

Sent: Fös 06. Sep 2024 05:19
af halldorjonz
Moldvarpan skrifaði:https://rafland.is/lg-48-oled-evo-sjonvarp.html

Þetta tæki er á 180k. Gæti verið hentugt fyrir þá sem eru að spá í OLED. Smá útúrdúr, en flott tilboð :)

48” kaupir eitthver undir 65” i dag :fly