Síða 1 af 1

Dýr bjór

Sent: Fim 25. Júl 2024 23:15
af Tóti
https://www.dv.is/frettir/2024/7/25/bjo ... bjorkorti/
Þetta er ekki í lagi eða hvað finnst ykkur?
Egils Gull kostar 469 í vínbúðinni

Re: Dýr bjór

Sent: Fim 25. Júl 2024 23:37
af ABss
Nei, alls ekki. Mæli með brew.is

Re: Dýr bjór

Sent: Fös 26. Júl 2024 09:11
af rostungurinn77
Tóti skrifaði:https://www.dv.is/frettir/2024/7/25/bjorinn-reykjavik-dyrastur-evropu-fjordi-dyrasti-heiminum-samkvaemt-bjorkorti/
Þetta er ekki í lagi eða hvað finnst ykkur?
Egils Gull kostar 469 í vínbúðinni


Hvað er ekki í lagi?

Að selja bjór á 1500 kr á bar?

Re: Dýr bjór

Sent: Fim 01. Ágú 2024 21:51
af Tóti

Re: Dýr bjór

Sent: Fös 02. Ágú 2024 01:04
af einarhr
Tóti skrifaði:https://www.visir.is/g/20242603169d/bjorinn-a-rum-lega-tvo-thusund-kronur-i-erfidum-rekstri
Bla Bla aldrei


Brugghúsið Húsavík Öl er að selja bjórinn sinn á 1500kr, þeir voru einnig að selja Jajadingdong bjór en hætti að þjónusta barinn þar sem hann borgaði aldrei reikningana. Það eru fleiri að selja bjór á svæðinu á töluvert betra verði en 2250kr. Þetta er bara græðgi og ílla rekið fyrirtæki.

Re: Dýr bjór

Sent: Fös 02. Ágú 2024 17:29
af Graven
Uhmm, ok ekki kaupa Egils Gull þá, fullt af öðrum mun ódýrari bjór í ÁTVR.
En er 469 kr samt dýrt? Ég myndi ekki kaupa þetta þar sem að það eru full af bjórtegundum á undir 400 kall fyrir 500ml.

Svo auðvitað er hægt að fá fínasta Landa fyrir 1500 kall líterinn, gerir það sama.

Allir sem kaupa dýra bjóra og þykjast vera eitthvað eru bara að plata sjálfa sig, þetta er bara etanól í mismunandi dýrum umbúðum.

Skál!

Re: Dýr bjór

Sent: Fös 02. Ágú 2024 17:50
af ABss
Sama með mat. Ekkert til sem heitir góður matur, bara sjálfsblekking. Fita, prótein, kolvetni og annað smotterí, bara í mismunandi formi.

Re: Dýr bjór

Sent: Fös 02. Ágú 2024 22:13
af SolidFeather
ABss skrifaði:Sama með mat. Ekkert til sem heitir góður matur, bara sjálfsblekking. Fita, prótein, kolvetni og annað smotterí, bara í mismunandi formi.


Ég borða sko ekki neitt nema soylent green, það er sko herramannsmatur.