Temu spurning ?

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 5106
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 930
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Temu spurning ?

Pósturaf jonsig » Mið 17. Júl 2024 21:31

Nýlega var "RÚV" að höfða til samvisku minnar og voru að reyna gaslýsamig frá því að verzla við barnaþræla í kína sem ógna innlendri okurverzlun.

Allavegana missti ég mig smá og keypti uþb 15 vörur fyrir uþb 17þkr.
Vandamálið er að nú fæ ég tilkynningu á mail´ið mitt um að það séu ca.7 sendingar á leiðinni til mín.. sem þýðir 7x 1500kr toll umsýslugjald..

Hvernig redda ég þessu ?




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4192
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1322
Staða: Ótengdur

Re: Temu spurning ?

Pósturaf Klemmi » Mið 17. Júl 2024 22:25

Sendir reikning á RÚV, augljóslega er þeirra ábyrgð rík í þessu máli.

Eða þú veist, viðurkennir fyrir sjálfum þér að þetta hafi verið mistök, lærir af þeim og ert reynslunni ríkari í dag en í gær?



Skjámynd

nidur
/dev/null
Póstar: 1444
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 16:50
Reputation: 226
Staðsetning: In the forest
Staða: Ótengdur

Re: Temu spurning ?

Pósturaf nidur » Mið 17. Júl 2024 22:38

pantaði 39 hluti og þeir komu í 5 pökkum, fer bara eftir þyngd og umfangi.



Skjámynd

Höfundur
jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 5106
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 930
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Temu spurning ?

Pósturaf jonsig » Fös 26. Júl 2024 12:01

Þetta fór ekkert illa. Megnið af dótinu komið eftir 9-10 daga.

Keypti dót til að gera upp mótorinn á rafhjólinu mínu. Allskonar tangir og dót sem kostar 6000kr stykkið hérlendis.
Einangraðir toppar til að taka felgurnar af bílnum með herslulykli.
topp á pústskynjarann ofl.
Síðast breytt af jonsig á Fös 26. Júl 2024 12:02, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7387
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1117
Staða: Tengdur

Re: Temu spurning ?

Pósturaf rapport » Fös 26. Júl 2024 12:14

Er búinn að vera panta undanfarið og er að lenda í að tveir pakjar = tvö afgreiðslugjöld þó það sé einn reikningur og ein afhending.



Skjámynd

Höfundur
jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 5106
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 930
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Temu spurning ?

Pósturaf jonsig » Fös 26. Júl 2024 12:42

Þyrftum að gera þráð hérna sem menn láta vita þegar þeir eru að panta eitthvað drasl í magni og menn geti sameinast um sendingar ?

t.d. ég myndi pósta að ég ætlaði að kaupa allar þykktir af thermalpads sem kostar ekki neitt á temu ,en kostar augun úr hérna fyrir þá sem eru að re-padda skjákortin eða nvme diskana.

eða einhver ætlaði að kaupa einhver verkfæri fyrir hjólið sitt sem kostar $$$$ hérna en kannski 500kr á temu ?

svona alvöru hópkaup, bara með engri yfirbyggingu og óhagnaðardrifið :D

Ein kaup væru kannski ein færsla á þræðinum sem einhver segir "ætla kaupa eitthvað X sem kostar 9000kr stk. á íslandi en fæ þetta í 10stk pakningu á 5000kr á síðu Y"
Með að joina´ pottinn gefur þú færslunni like og tekur þá hlutfallslegan þátt í að borga tollinn og vöruna .
Síðast breytt af jonsig á Fös 26. Júl 2024 12:45, breytt samtals 2 sinnum.



Skjámynd

rostungurinn77
has spoken...
Póstar: 160
Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
Reputation: 69
Staða: Ótengdur

Re: Temu spurning ?

Pósturaf rostungurinn77 » Fös 26. Júl 2024 13:20

rapport skrifaði:Er búinn að vera panta undanfarið og er að lenda í að tveir pakjar = tvö afgreiðslugjöld þó það sé einn reikningur og ein afhending.


Var inni á pósthúsi um daginn að sækja pakka. Þar var einhver kona að sækja einhverja sendingu sem var að koma frá Temu eða einhverju sambærilegu.

Pakkinn sem hún var að sækja innihélt 5 hluti af 39 sem hún hafði pantað.

Fimmföld umsýslugjöld :fly



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7387
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1117
Staða: Tengdur

Re: Temu spurning ?

Pósturaf rapport » Fös 26. Júl 2024 13:34

Einhver benti mér á að hægt væri að senda strax á flutningsaðila reikning og biðja um tollun, áður en pakkarnir fara af stað = ein umsýsla.

Eðlilega fara tveir pakkar tvisvar í gegnum umsýsluferli þegar það er unnið eftirá en ef öll innkaupin eru tolluð strax þá er bara ein umsýsla og svo afgreiðslur.



Skjámynd

rostungurinn77
has spoken...
Póstar: 160
Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
Reputation: 69
Staða: Ótengdur

Re: Temu spurning ?

Pósturaf rostungurinn77 » Fös 26. Júl 2024 13:51

Grunar samt að pósturinn taki sínar 4-600 krónur af hverri sendingu.