Síða 1 af 3

Banatilræði á Trump

Sent: Sun 14. Júl 2024 02:55
af Langeygður
https://www.mbl.is/frettir/erlent/2024/ ... r_skotinn/

Trump búinn að vinna kostningarnar.

Donald og Ronald 15811

Sent: Sun 14. Júl 2024 03:14
af Stuffz
Donald og Ronald 15811

15811 dagar síðan idolið hans Donalds lenti í því sama þarna úti.
Mynd

Re: Banatilræði á Trump

Sent: Sun 14. Júl 2024 04:25
af Moldvarpan
Langeygður skrifaði:https://www.mbl.is/frettir/erlent/2024/07/14/eg_var_skotinn/

Trump búinn að vinna kostningarnar.


Sammála. Nú verður Biden að draga framboð sitt tilbaka og hleypa yngri kandídat að, svo demókratar eigi einhvern sjens á að vinna þetta.

Re: Banatilræði á Trump

Sent: Sun 14. Júl 2024 04:34
af Langeygður
Þetta entist ekki vel, vel þroskuð mjólk.

https://www.theatlantic.com/ideas/archive/2024/05/trump-biden-assassination-fbi/678476/

Hér er ágætis video um þetta.

Re: Banatilræði á Trump

Sent: Sun 14. Júl 2024 06:48
af appel
Svakalegt. Alveg svakalegt.

Byssukúla strýkur hægra eyrað á Trump. Byssumaðurinn í um 100 metra fjarlægð skv. fréttum ("200 - 300 yards"). Tæknilega hæfði höfuðið á honum en vá hvað þetta var stutt frá því að drepa hann, nokkrir sentímetrar. Líklega um margar byssukúlur sem þutu þarna.

Þetta á eftir að hafa mikil áhrif á forsetakosningarnar. Þetta gæti gjörbylt stöðunni. Biden getur varlað talað né gengið lengur, og Trump lifir af svona árás.

Það hefur alltaf verið þannig að frambjóðandi sem lifir af svona "assassination attempt" í bandaríkjunum þá fær hann mörg "samúðaratkvæði" eða fær aukið fylgi því bandaríkjamenn vilja yfirleitt styðja við þá sem ráðist er á.

Þannig að Trump gæti sigrað kosningarnar í Nóvember með miklum mun, bara 4 mánuðir í þetta c.a.

En maður hugsar... hvað ef hann hefði verið myrtur þarna. Það gæti verið kveikjan að borgarastyrjöld í BNA. Trump stuðningsmenn myndu ekki láta það óátalið.

úff...

Re: Banatilræði á Trump

Sent: Sun 14. Júl 2024 08:05
af rapport
Mér er illa við Trump sem forseta en eftir kappræðurnar þá snúast kosningarnar um að kjósa á milli tveggja gamalmenna, annað er heilabilað og hitt er siðblindur glæpamaður...

Að þessar aðstæður séu komnar upp er svo sorglegt að það nær engri átt, að besti möguleikinn í stöðunni sé að kjósa siðblindan mann semforseta USA.

Eina vonin er að Trump sé það siðblindur að hann veigri sér eki við að svíkja kjósendur sína, sem hann gerði reyndar seinast líka í stórum málum en hélt allskonar gúddí gúddís háværa fundi um veggi á landamærum o.þ.h. til að halda athygli almennings á öðrum málum.

En getur verið að í öllum bandaríkjunum þá sé enginn annar frambærilegur kandídat sem hefur trú og getu til að leiða þetta land seinustu kjörtímabilin áður en það fer í gjaldþrot?

Re: Banatilræði á Trump

Sent: Sun 14. Júl 2024 08:22
af rostungurinn77
rapport skrifaði:annað er heilabilað og hitt er siðblindur glæpamaður...


Af því að þú sagðir siðblindur glæpamaður þá veit ég ekki hvor er hvor.

Re: Banatilræði á Trump

Sent: Sun 14. Júl 2024 08:43
af rapport
rostungurinn77 skrifaði:
rapport skrifaði:annað er heilabilað og hitt er siðblindur glæpamaður...


Af því að þú sagðir siðblindur glæpamaður þá veit ég ekki hvor er hvor.


Sorry, hefði ég þurft að segja "siðblindur glæpamaður sem hefur hlotið dóm" til að kveikja á fattaranum hjá þér?

Re: Banatilræði á Trump

Sent: Sun 14. Júl 2024 09:07
af rostungurinn77
rapport skrifaði:
rostungurinn77 skrifaði:
rapport skrifaði:annað er heilabilað og hitt er siðblindur glæpamaður...


Af því að þú sagðir siðblindur glæpamaður þá veit ég ekki hvor er hvor.


Sorry, hefði ég þurft að segja "siðblindur glæpamaður sem hefur hlotið dóm" til að kveikja á fattaranum hjá þér?


Eða bara velta fyrir þér af hverju þetta aðgreinir þá ekki.

Lítill munur á kúk og skít.

P.s. ef fólk sem þykist ætla að láta taka sig alvarlega vísar í Trump sem glæpamann eftir þessi sýndarréttarhöld þá þarf viðkomandi að opna augun fyrir því hvaða afleiðingar það hefur að ætla að nota réttarkerfið gegn pólitískum andstæðingum.

Re: Banatilræði á Trump

Sent: Sun 14. Júl 2024 09:40
af jonsig
rapport skrifaði:
rostungurinn77 skrifaði:
rapport skrifaði:annað er heilabilað og hitt er siðblindur glæpamaður...


Af því að þú sagðir siðblindur glæpamaður þá veit ég ekki hvor er hvor.


Sorry, hefði ég þurft að segja "siðblindur glæpamaður sem hefur hlotið dóm" til að kveikja á fattaranum hjá þér?


Skýring :Sá sem er ekki komma lufsa er venjulega siðblindur glæpamaður ,nasisti eða hægri öfga.

Re: Banatilræði á Trump

Sent: Sun 14. Júl 2024 09:53
af rapport
Biden hefur ekki verið dæmdur... og hver er aftur grunnforsenda réttarríkisins?

Re: Banatilræði á Trump

Sent: Sun 14. Júl 2024 09:57
af Trihard
Þetta allt er voða sus, örugglega engin þjóð/fyrirtæki á bak við þetta til að koma honum á forsetastólinn.

Re: Banatilræði á Trump

Sent: Sun 14. Júl 2024 09:58
af jonsig
rapport skrifaði:Biden hefur ekki verið dæmdur... og hver er aftur grunnforsenda réttarríkisins?


Hún er bara sú að ef þú ert hluti af elítunni eða vinnur fyrir hana þá þarftu ekki að hafa áhyggjur að vera hundeltur með mörg hundruð manns að reyna grafa upp skít um þig eða jafnvel búa hann til.

Ég gæti trúað því að hann sé í charakter og finnst hann algert smug ,en hann er óvinur óvina minna. Margir sem kjósa hann útaf því líka.

Mynd

Re: Banatilræði á Trump

Sent: Sun 14. Júl 2024 10:39
af ribs
Bandaríkin tommu frá borgarastyrjöld.

Re: Banatilræði á Trump

Sent: Sun 14. Júl 2024 10:50
af Graven
Þetta hefur dregið margt fram í sviðsljósið, margir vinstri menn sem eru mjög vonsviknir með að Trump hafi ekki verið drepinn, opinberlega gert grín að þessum atburði og sagt ýmsa hræðilega ómanneskjulega hluti. Kemur svo sem ekki á óvart, þetta vinstri lið er stórhættulegt og mun ekki veigra sér yfir því að drepa venjulegt fólk þegar það fær tækifæri til þess, eins og sagan hefur sýnt okkur aftur og aftur.

Biden gaf skipunina, augljóst. Hugsanlega manchurian candidate, en við munum sennilega aldrei vita sannleikann eins og venjulega í kringum svona stóra atburði, líkt og JFK, RFK og JFK jr morðin, Reagan tilraunin, 11.september.

Það er hræðilegt að þurfa að mæta í vinnu á mánudegi og vinna við hliðinna á fólki sem mun grínast með þetta, og vill drepa þig.

Re: Banatilræði á Trump

Sent: Sun 14. Júl 2024 11:13
af rapport
Graven skrifaði:Þetta hefur dregið margt fram í sviðsljósið, margir vinstri menn sem eru mjög vonsviknir með að Trump hafi ekki verið drepinn, opinberlega gert grín að þessum atburði og sagt ýmsa hræðilega ómanneskjulega hluti. Kemur svo sem ekki á óvart, þetta vinstri lið er stórhættulegt og mun ekki veigra sér yfir því að drepa venjulegt fólk þegar það fær tækifæri til þess, eins og sagan hefur sýnt okkur aftur og aftur.

Biden gaf skipunina, augljóst. Hugsanlega manchurian candidate, en við munum sennilega aldrei vita sannleikann eins og venjulega í kringum svona stóra atburði, líkt og JFK, RFK og JFK jr morðin, Reagan tilraunin, 11.september.

Það er hræðilegt að þurfa að mæta í vinnu á mánudegi og vinna við hliðinna á fólki sem mun grínast með þetta, og vill drepa þig.


Fólk er bara fólk, í dag alveg eins og 1980. Það er jafnvel minna um hryðjuverk og múgæsing en oft áður.

Heimurinn er ekki að farast... no worries.

Re: Banatilræði á Trump

Sent: Sun 14. Júl 2024 12:32
af mikkimás
Búið spil. Óranski viðbjóðurinn verður forseti. Sorgardagur fyrir hinn vestræna heim.

Re: Banatilræði á Trump

Sent: Sun 14. Júl 2024 12:49
af GuðjónR
Svolítið sérstakt að þetta séu þeir einu sem koma til greina í 350.000.000 manna þjóð.
America finest.

Re: Banatilræði á Trump

Sent: Sun 14. Júl 2024 12:51
af moreno
Graven skrifaði:Biden gaf skipunina, augljóst. Hugsanlega manchurian candidate, en við munum sennilega aldrei vita sannleikann eins og venjulega í kringum svona stóra atburði, líkt og JFK, RFK og JFK jr morðin, Reagan tilraunin, 11.september.
.


Væriru til i að i að utskyra þetta aðeins betur? Af hverju er það svona augljost eða er þetta kaldhæðni, getur verið erfitt að lesa hana a netinu.

Re: Banatilræði á Trump

Sent: Sun 14. Júl 2024 12:57
af agnarkb
Graven skrifaði:Biden gaf skipunina, augljóst. Hugsanlega manchurian candidate, en við munum sennilega aldrei vita sannleikann eins og venjulega í kringum svona stóra atburði, líkt og JFK, RFK og JFK jr morðin, Reagan tilraunin, 11.september.


Já, einmitt, akkúrat.
Biden og hans cronies réðu tvítugan redneck frá Bumfuck, PA til að ráða Donald Trump af dögum.

Re: Banatilræði á Trump

Sent: Sun 14. Júl 2024 13:07
af GuðjónR
Þessi er með áhugaverðar pælingar varðandi staðsetningu og öryggisgæslu þegar þetta gerðist.

https://vm.tiktok.com/ZGetPdabh/

Re: Banatilræði á Trump

Sent: Sun 14. Júl 2024 13:34
af Graven
GuðjónR skrifaði:Þessi er með áhugaverðar pælingar varðandi staðsetningu og öryggisgæslu þegar þetta gerðist.

https://vm.tiktok.com/ZGetPdabh/


Þetta er allt mjög skrýtið, ætti ekki að geta gerst nema með vilja.
Yfirmaður öryggismála fyrir Trump var skipaður af Biden stjórninni og hefur enga reynslu af svona málum, vann síðast við að sinna gæslu yfir pepsidósum. Svo voru beiðnir um aukna gæslu hundsaðar, ekki neitað heldur hundsað, svo þeir geta núna sagt að þeir hafi ekki neitað.

Re: Banatilræði á Trump

Sent: Sun 14. Júl 2024 13:35
af SolidFeather
Cui bono...

Re: Banatilræði á Trump

Sent: Sun 14. Júl 2024 14:29
af GuðjónR
Trump er ekki í neinu uppáhaldi en Biden er löngu týndur.

Re: Banatilræði á Trump

Sent: Sun 14. Júl 2024 14:40
af Semboy
Þessi leyniþjónusta öskrar á mig. Þú færð vinnu af því þú ert svartur, kona, mexicani