Síða 1 af 1

Rúv hætti gervihnattaútsendingum

Sent: Mið 03. Júl 2024 17:49
af jonfr1900
Þann 1. Júlí hætti Rúv gervihnattaútsendingum yfir Thor á 0.8W. Þetta var tilkynnt með mjög litlum fyrirvara. Fólki sem notaði þessa þjónustu var sagt að skipta yfir í IPTV. Það virðist ekki hafa tekist, þar sem mörg skip eru víst ekki með þennan búnað sem þarf til þess að ná interneti yfir gervihnött svo vel sé.

Íris segir RÚV henda blautri og kaldri tusku í and­lit sjó­manna (Vísir.is)

Biðla til Áslaugar um 20 milljónir fyrir sjónvarp (mbl.is)

Ísland er núna eina norðurlandaþjóðin sem sendir ekki sjónvarp út um gervihnött.

Re: Rúv hætti gervihnattaútsendingum

Sent: Mið 03. Júl 2024 19:14
af brain
"Ísland er núna eina norðurlandaþjóðin sem sendir ekki sjónvarp út um gervihnött."

Ætli Ísland sé ekki eina norðurlandaþjóðin sem sé fátæt líka !

Re: Rúv hætti gervihnattaútsendingum

Sent: Mið 03. Júl 2024 21:58
af jonfr1900
Það er búið að ákveða að halda gervihnattaútsendingum áfram. Degi eftir að þeim var hætt.

RÚV hefji gervihnattaútsendingar að nýju (mbl.is)

Re: Rúv hætti gervihnattaútsendingum

Sent: Fim 04. Júl 2024 13:22
af jonfr1900
Þá eru gervihnattaútsendingar Rúv byrjaðar á ný.

Re: Rúv hætti gervihnattaútsendingum

Sent: Fim 04. Júl 2024 21:25
af russi
jonfr1900 skrifaði:Þá eru gervihnattaútsendingar Rúv byrjaðar á ný.

Er hún ennþá á Thor? Veistu á hvaða transponder, er ekki að sjá neitt um rásina á helstu síðunum sem ég nota

Re: Rúv hætti gervihnattaútsendingum

Sent: Fim 04. Júl 2024 22:36
af jonfr1900
russi skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:Þá eru gervihnattaútsendingar Rúv byrjaðar á ný.

Er hún ennþá á Thor? Veistu á hvaða transponder, er ekki að sjá neitt um rásina á helstu síðunum sem ég nota


Rúv er á sama transponder eins og síðast. Hérna er Rúv skráð inn. Það tekur smá tíma fyrir þessar vefsíður að uppfærast.