Síða 1 af 1

Spennandi starf - Upplýsingatæknistjóri HSS

Sent: Þri 02. Júl 2024 12:51
af rapport
Þetta starf var að detta í birtingu.

HSS er góður vinnustaður sem hefur starfað í krefjandi umhverfi undanfarin misseri, ár og jafnvel áratugi.

Fyrir aðila sem er að leita sér að traustu en krefjandi starfsumhverfi þá er þetta eitthvað sem vert er að skoða.

https://island.is/starfatorg/x-38393

Re: Spennandi starf - Upplýsingatæknistjóri HSS

Sent: Þri 09. Júl 2024 08:03
af rapport
Ef einhver hefur áhuga og mundi vilja kynna sér málin eitthvað betur þá er sjálfsagt að senda mér PM.

Re: Spennandi starf - Upplýsingatæknistjóri HSS

Sent: Þri 09. Júl 2024 13:45
af emmi
:-k Veistu hvað launin eru sirka?

Re: Spennandi starf - Upplýsingatæknistjóri HSS

Sent: Þri 09. Júl 2024 16:21
af rapport
emmi skrifaði::-k Veistu hvað launin eru sirka?

Það verða rétt laun fyrir réttan aðila, s.s. launin mótast af einstaklingnum sem verður ráðinn en ekki ákveðin fyrirfram.

Þar sem kröfurnar snúa ekki að menntun (hæfi) heldur meira hversu vel fyrri reynsla og geta (hæfni) passar við starfið og starfsumhverfið, þá væri í raun vitlaust að pæla í laununum fyrst.

Það mundi bara takmarka vilja öflugra aðila til að sækja um.

Eins og ég sé fyrir mér ferlið

Þeir 3-5 umsækjendur sem skora hæst við yfirlestur umsókna verður boðið í viðal og svo reynt að semja við þann sem kemur best út úr viðtölunum m.t.t. hvað hann/hún hefur að bjóða í starfið og til stofnunarinnar.

Ef það gengur ekki þá yrði reynt að semja við næsta en það yrði þá á öðrum forsendum, hvað hann/hún hefur að bjóða... og svo koll af kolli.

Tilboðin frá okkur yrðu líklega alltaf svolítið sérsniðin að aðstæðum hvers og eins, hvaða stéttafélag og samningar gilda fyrir viðkomandi og hvaða persónulegu áherslur viðkomandi er með o.þ.h.

Það erfiðasta við starfið er líklega að þurfa þola mig sem notanda í tölvuumhverfinu :fly

Re: Spennandi starf - Upplýsingatæknistjóri HSS

Sent: Þri 09. Júl 2024 16:58
af emmi
Ahh, ert þú að vinna hjá HSS í Keflavík í dag?

Ástæðan fyrir því að ég spyr um laun, well, er í raun bara það að það sem ég hef heyrt varðandi margar ríkisstofnanir er að vel hæft fólk endist ekki í vinnu þar því einkageirinn býður oftast langtum betri laun en ríkið hefur hingað til getað boðið. Kannski hef ég rangt fyrir mér. :)

Re: Spennandi starf - Upplýsingatæknistjóri HSS

Sent: Þri 09. Júl 2024 20:52
af rapport
emmi skrifaði:Ahh, ert þú að vinna hjá HSS í Keflavík í dag?

Ástæðan fyrir því að ég spyr um laun, well, er í raun bara það að það sem ég hef heyrt varðandi margar ríkisstofnanir er að vel hæft fólk endist ekki í vinnu þar því einkageirinn býður oftast langtum betri laun en ríkið hefur hingað til getað boðið. Kannski hef ég rangt fyrir mér. :)

Held að starfsaldur í IT hjá hinu opinbera sé almennt hærri en í einkageiranum, sérstaklega hjá stjórnendum.

Hvort það sé endilega gott er svo önnur spurning.

En jebbz, er kominn til HSS og loving it, það er virkilega gott að vera kominn í heilbrigðisgeirann aftur og þessi stofnun er að ná vopnum sínum aftur eftir erfiða tíma, þá bæði í öllum rekstri en einnig þetta ongoing áfall sem lokun Grindavíkur er.

Re: Spennandi starf - Upplýsingatæknistjóri HSS

Sent: Fös 12. Júl 2024 19:29
af Póstkassi
Get vel mælt með HSS sem vinnustað, sérstaklega tölvudeildinni, vann þarna 2 sumur í Covid og það var mjög lærdómsríkt. Mötuneytið er líka geggjað!

Re: Spennandi starf - Upplýsingatæknistjóri HSS

Sent: Mán 22. Júl 2024 14:16
af rapport
Póstkassi skrifaði:Get vel mælt með HSS sem vinnustað, sérstaklega tölvudeildinni, vann þarna 2 sumur í Covid og það var mjög lærdómsríkt. Mötuneytið er líka geggjað!

Mötuneytið hér á HSS er geggjað en líka góður andi í fólki og mikið á döfinni sbr. að opna heilsugæslusel í Sangerði og Vogum. Vonandi verður svo byggð ný heilsugæslustöð í Njarðvík skv. útboði sem farið var í í lok árs 2023.

En það eru einhver kaflaskil núna með tilkomu nýrrar slysa- og bráðamóttöku og nýrrar sjúkradeildar, það er mikil uppbygging í gangi, eitthað um ný kerfi ofl. sem setur meiri áherlsu á UT og skipulag og uppbyggingu í allri UT umsjón og rekstri.

p.s. hver vill ekki getað rifist í mér í persónu.

Re: Spennandi starf - Upplýsingatæknistjóri HSS

Sent: Mið 31. Júl 2024 23:46
af rapport

Re: Spennandi starf - Upplýsingatæknistjóri HSS

Sent: Fös 02. Ágú 2024 06:40
af 2ndSky
Fór í atvinnuviðtal fyrir þetta starf 2016 en fékk ekki því miður, Þessi Kjartan sem tók mig í viðtal var samt alveg 10/ náungi og vinnustaðurinn leit vel út

Re: Spennandi starf - Upplýsingatæknistjóri HSS

Sent: Fös 02. Ágú 2024 08:16
af rapport
2ndSky skrifaði:Fór í atvinnuviðtal fyrir þetta starf 2016 en fékk ekki því miður, Þessi Kjartan sem tók mig í viðtal var samt alveg 10/ náungi og vinnustaðurinn leit vel út

Þessi Kjartan a.k.a. rapport byrjaði bara í apríl :megasmile

Um að gera að sækja aftur um, nú er planið að setja meira fútt í UT hjá HSS.

Re: Spennandi starf - Upplýsingatæknistjóri HSS

Sent: Fös 02. Ágú 2024 08:55
af Le Drum
rapport skrifaði:
p.s. hver vill ekki getað rifist í mér í persónu.

Verður þú með starfstöð í 245 Suðurnesjabæ? Ef svo er þá skal ég koma og rífast við þig. Eða þú getur bara skroppið yfir ;)

Re: Spennandi starf - Upplýsingatæknistjóri HSS

Sent: Fös 02. Ágú 2024 11:56
af rapport
Le Drum skrifaði:
rapport skrifaði:
p.s. hver vill ekki getað rifist í mér í persónu.

Verður þú með starfstöð í 245 Suðurnesjabæ? Ef svo er þá skal ég koma og rífast við þig. Eða þú getur bara skroppið yfir ;)

Við erum að fara opna heilsugæslusel og lyfjaafgreiðslu í Suðurnesjabæ... en það er hugsanlega einhver svona sálfélagsleg þjónusta að bjóða upp á tappa af fólki reiðinni 1:1 :-k

Re: Spennandi starf - Upplýsingatæknistjóri HSS

Sent: Fös 02. Ágú 2024 16:35
af jonsig
Ráðningar fyrirkomulagið er væntanlega sterkt DEI og sömuleiðis vinnustaðurinn ekki satt ?

Re: Spennandi starf - Upplýsingatæknistjóri HSS

Sent: Fös 02. Ágú 2024 17:59
af 2ndSky
rapport skrifaði:
2ndSky skrifaði:Fór í atvinnuviðtal fyrir þetta starf 2016 en fékk ekki því miður, Þessi Kjartan sem tók mig í viðtal var samt alveg 10/ náungi og vinnustaðurinn leit vel út

Þessi Kjartan a.k.a. rapport byrjaði bara í apríl :megasmile

Um að gera að sækja aftur um, nú er planið að setja meira fútt í UT hjá HSS.

Ahh þetta var þegar þú varst:

Kjartan Kjartansson - Hópstjóri
Þjónustumiðstöð HUT
Landspítali - Heilbrigðis- og upplýsingatæknideild

Eiríksgata 5, 101 Reykjavík, Iceland

Re: Spennandi starf - Upplýsingatæknistjóri HSS

Sent: Lau 03. Ágú 2024 10:10
af rapport
2ndSky skrifaði:

Jamm, þekkjumst við kannski líka í kjötheimum?

Re: Spennandi starf - Upplýsingatæknistjóri HSS

Sent: Lau 03. Ágú 2024 22:35

Því miður ekki :( deildum einu vape session eftir viðtalið samt :megasmile

Re: Spennandi starf - Upplýsingatæknistjóri HSS

Sent: Mán 12. Ágú 2024 08:03
af rapport
Jæja, seinasti dagur til að sækja um í dag :-)

Tilvalið fyrir fólk sem vil láta til sín taka, bæði í uppstokkun og rekstri á local heilbrigðis- og upplýsingatækni sem og vera í forystu í samstarfi við aðrar heilbrigðisstofnanir, ráðuneytið og Landlækni um framtíðarhögun UT mála í heilbrigðiskerfinu.

HSS var einna fyrst í hagnýtingu á afurðum í heilbrigðistækni sem skapaðar voru með og er viðhaldið með LLM (erlendis) og hagnýta þannig gervigreind við greiningarvinnu. https://www.vf.is/frettir/augnskimun-med-gervigreind-hafin-a-hss

https://island.is/starfatorg/x-38393

Re: Spennandi starf - Upplýsingatæknistjóri HSS

Sent: Þri 13. Ágú 2024 14:16
af Mossi__
jonsig skrifaði:Ráðningar fyrirkomulagið er væntanlega sterkt DEI og sömuleiðis vinnustaðurinn ekki satt ?

Höfnun er ekkert samasem nepótismi.

Yfirleytt er það almenn framkoma og orðsporið sem kemur manni áfram eða heldur aftur að manni.

Ágætt að hafa það í huga, knúsmundur. Aldrei of seint :)