Síða 1 af 1
Hvernig lærið þið? :)
Sent: Fös 12. Jan 2024 22:18
af falcon1
Ég er dáldið forvitinn að vita hvernig ykkur finnst/fannst best að læra. Lesið þið bara bókina yfir og munið allt eða eruð þið að glósa í tætlur?
Svo t.d. stærðfræðiformúlur, hvernig finnst ykkur best að leggja þær á minnið án þess að byrja að rugla þeim saman?
Hjá mér er það helst sjónrænt þ.e. mér finnst ég muna betur ef ég get teiknað upp það sem ég þarf að muna eða hafa séð það á myndbandi.
Re: Hvernig lærið þið? :)
Sent: Fös 12. Jan 2024 22:30
af appel
Lærir alltaf best með því að gera hlutina.
Þegar ég hugsa til baka finnst mér glósur hafa bara truflað frekar en hitt. Ég ákvað í framhaldsskóla að glósa lítið og hlusta meira.
Ef þú ert að spurja fyrir nám, próf, og þvíumlíkt, þá er þetta alltaf bara að hafa áhuga og læra jafnóðum.
En fyrir mig, þegar ég var í HR þá gerði ég þetta að kortleggja hvenær prófin eru, dreift yfir kannski 7 daga tímabil, svo lesa alla bókina fyrir próf og jafnóðum skrifa niður í glósubók orð fyrir orð það sem var merkilegt. Þetta er svakalega strangt, en virkar. Að lesa kannski 400 bls flókna námsbók á 2 dögum. Maður mætti oft ósofinn í próf.
Þú lærir aldrei stærðfræðiformúlur nema að svindla eða að gera þær 1000x skipti. Fáránlegt að láta nemendur muna stærðfræðiformúlur, þetta er ekki 19. öldin lengur.
Yes, it is commonly attributed to Albert Einstein that he said, "Never memorize something that you can look up" or "I never commit to memory anything that can easily be looked up in a book".Sep 3, 2019
Svo lengi sem maður veit hvar hlutirnir liggja, þá á það að vera nóg.
Nemendur eiga að geta tekið próf með öllum gögnum sem það vill. Prófin eiga að vera nægilega góð.
Re: Hvernig lærið þið? :)
Sent: Fös 12. Jan 2024 22:37
af Klemmi
Til að læra undir próf?
Ef svo er, þá les og handskrifa aðalatriðin, endurorðað í mín eigin orð.
Svo les ég yfir þessar glósur aftur og aftur, best ef ég er í næði og get lesið sumt upphátt, þá festist það betur.
Stærðfræði formúlur er svo annað. Ef ég get skilið þær, þá hjálpar það, svo sem flatarmál/rúmmálsreikningar eða eðlisfræðiformúlur sem einfalt er að átta sig á.
En á seinni stigum náms, þá fékk maður annað hvort formúlublað, eða mátti útbúa sitt eigið fyrir prófið. Finnst bilun að fólk eigi að leggja formúlur á minnið, þegar það er komið útfyrir það sem þú átt að geta "skilið" og munað út frá því.
Re: Hvernig lærið þið? :)
Sent: Fös 12. Jan 2024 22:40
af appel
Man einu sinni þegar ég fékk að hafa námsbókina meðferðis í lokapróf, fannst einsog ég væri að svindla.
En auðvitað á þetta að vera normið.
Próf á að prófa skilning, ekki minni.
Re: Hvernig lærið þið? :)
Sent: Lau 13. Jan 2024 00:22
af cocacola123
OneNote
Handskrifa allar glósur (með ipad eða 360 laptop) og smelli inn öllum glæru pdf í Onenote.
Categorise-a allt þannig að maður er eldsnöggur að fletta upp.
Re: Hvernig lærið þið? :)
Sent: Lau 13. Jan 2024 00:28
af G3ML1NGZ
Ég læri langbest ef ég hef smá hands on experience og fer svo að lesa mér til um efnið. Þannig hef ég mikið meiri tengingu við lesefnið og átta mig betur á því.
Re: Hvernig lærið þið? :)
Sent: Lau 13. Jan 2024 03:33
af Cozmic
Glósa eins og motherfucker. Sérstaklega stærðfræði, og reyna glósa á blaði ekki skrifa á lyklaborði, festist betur í minninu þannig fyrir mig.
Re: Hvernig lærið þið? :)
Sent: Lau 13. Jan 2024 09:28
af rapport
Ég verð að glósa með penna (remarkable) til að hlutirnir festist, svo fer ég sárasjaldan djúpt í glósurnar.
Ég tek öll verkefni, ritgerðir og kynningar mjög alvarlega og geri fáránlegustu hluti til að hópverkefni séu skemmtileg og fólk involved sbr. kaupa logo fyrir ímynduð fyrirtæki eða vörur á fiverr eða af listakonu sem ég þekki. In the old days létum við prenta forsíður verkefna "blæðandi" s.s. á oversized pappir sem svo var skoriðaf svo útprentunin vlri akveg út á brún, notuðum lúxus pappír.
Þetta gerir námið skemmtilegra.
Verkefnavinna í skóla er dull ef það er ekki farið í extremes þegar það er hægt sbr. að taka viðtöl við stjórnendur og sérfræðinga fyrirtækja ef hægt er, að reyna alltaf að búa til nýtt eða betrumbæta það besta m.t.t. aðstæðna o.þ.h.
Þegar ég vann hjá RVK þá bauð ég kennaranum og bekknum í Enterprise Architecture að fá kynningu á hvernig borgin sinnti þessu. Held að þap hafi orðið til þess að einn úr EA teymi RVK sé núna alltaf með kynningu þegar þetta fag er kennt.
Ég s.s. læri með því að gera sem mest úr náminu en ekki eltast við að ná lágmarkinu. Þarf fyrir vikið ekki að stressa mig mikið fyrir próf.
Re: Hvernig lærið þið? :)
Sent: Lau 13. Jan 2024 11:24
af Hjaltiatla
Ef ég er að lesa bók þá er það yfirleitt í Kindle sem ég nota Highlight fídusinn og exporta glósum og færi glósur inní Notion.
Ef ég er að læra fyrir próf þá fer ég yfir efni og glósa að einhverju leyti eða kaupi mér aðgang að góðum glósum með áhersluatriðunum. Finnst best að nota krossapróf og Flashcards með réttum svörum (Active recall , spaced repetition). Í dag er yfirleitt til tilbúin krossapróf og flashcards í því efni sem ég er að læra en ég get búið til Flashcards handvirkt með hugbúnaði eins og ANKI.
Re: Hvernig lærið þið? :)
Sent: Lau 13. Jan 2024 15:42
af Semboy
Ég les allt upphátt 2x, þótt ég skil ekkert ég held bara áfram. Þegar ég er búinn að full lesa 1200 blaðsiður tvísvar sinnum eða whatever þessi tala gæti verið. Eftir það, þá fer ég að að skoða próftöfluna og fer að renna yfir bókina hratt. Ég á svo síma template forrit sem ég sjálfur bjó til, þetta er eins og 'Viltu vinna milljón?'. Þar sem ég filli inn spurningar og svör við því.
Re: Hvernig lærið þið? :)
Sent: Lau 13. Jan 2024 23:22
af falcon1
appel skrifaði:Man einu sinni þegar ég fékk að hafa námsbókina meðferðis í lokapróf, fannst einsog ég væri að svindla.
En auðvitað á þetta að vera normið.
Próf á að prófa skilning, ekki minni.
já, kannast við þetta þegar ég var að taka mín fyrstu próf í langan tíma síðastliðið haust. Fannst ég vera að svindla að fá að hafa gögn meðferðis, t.d. formúlublað í stærðfræði og glósur í öðrum áföngum.
Þegar ég var í skóla í gamla daga þá þurfti maður að muna allt.
Re: Hvernig lærið þið? :)
Sent: Lau 13. Jan 2024 23:24
af falcon1
cocacola123 skrifaði:OneNote
Handskrifa allar glósur (með ipad eða 360 laptop) og smelli inn öllum glæru pdf í Onenote.
Categorise-a allt þannig að maður er eldsnöggur að fletta upp.
Ég er að nota OneNote, er hægt að leita í handskrifuðum glósum? Hvernig flokkarðu þetta hjá þér?
Re: Hvernig lærið þið? :)
Sent: Lau 13. Jan 2024 23:25
af falcon1
Cozmic skrifaði:Glósa eins og motherfucker. Sérstaklega stærðfræði, og reyna glósa á blaði ekki skrifa á lyklaborði, festist betur í minninu þannig fyrir mig.
Sammála þessu með lyklaborðið, mér finnst ég muna betur það sem ég handskrifa eða teikna upp en ef ég pikka eitthvað á lyklaborðið.
Re: Hvernig lærið þið? :)
Sent: Lau 13. Jan 2024 23:28
af falcon1
Semboy skrifaði:Ég á svo síma template forrit sem ég sjálfur bjó til, þetta er eins og 'Viltu vinna milljón?'. Þar sem ég filli inn spurningar og svör við því.
Þannig að þú gerir spurningaleik úr því sem þú ert að læra?
Re: Hvernig lærið þið? :)
Sent: Sun 14. Jan 2024 01:00
af cocacola123
falcon1 skrifaði:cocacola123 skrifaði:OneNote
Handskrifa allar glósur (með ipad eða 360 laptop) og smelli inn öllum glæru pdf í Onenote.
Categorise-a allt þannig að maður er eldsnöggur að fletta upp.
Ég er að nota OneNote, er hægt að leita í handskrifuðum glósum? Hvernig flokkarðu þetta hjá þér?
Sko ég hef heyrt að í GoodNotes glósu forritinu sé hægt að gera search úr öllum handskrifuðum glósum en hef ekki prufað og það forrit kostar.
Í Onenote hef ég verið að vinna með að flokka mjög skipulagt í side-barinu.
Set mynd af einni önninni (kann ekki að pósta mynd sjáum hvort það virki hahah)
Re: Hvernig lærið þið? :)
Sent: Sun 14. Jan 2024 08:44
af Hjaltiatla
Google Lens appið er mjög gott að Copy-a texta af myndum sem maður tekur á símann. Hægt að breyta handskrifuðum glósum yfir í texta.
Re: Hvernig lærið þið? :)
Sent: Mán 15. Jan 2024 19:25
af Tesli
Ég lærði það allt of seint í mínu námi hvað það er öflugt að skrifa hlutina niður aftur og aftur til að festa í minni. Ef þú skrifar stærðfræði formúlur niður 50 sinnum þá festist það í hausnum á þér. Ég skrifaði upp 4+ bls, þétt formúlu blað aftur og aftur í sirka 2-4 klst þegar ég var í masternum, þar sem mátti ekki taka með sér nein gögn, ég náði svo að eyða fyrstu 10min í prófinu að skrifa upp allar 4bls aftur eftir minni og massa prófið. Ég er by the way ekki neinn límheili, þetta virkar bara.
Re: Hvernig lærið þið? :)
Sent: Þri 16. Jan 2024 22:43
af GunZi
* Stærðfræði almennt: Í háskólanáminu þá fannst mér best að reikna dæmi. Eins mörg og hægt er. Og alltaf á blaði eða tússtöflu. Fann yfirleitt lausnirnar á netinu til að tékka mig af. Ef markmiðið er að ná lokaprófinu þá var þetta lang besta leiðin að mínu mati.
* Myndbönd eins og á Khan Academy. Ef kennslubókin er óskýr með eitthvað þá hjálpar að leita annað á netinu, jafnvel til að sjá sama efni og maður er að reyna læra útskýrð á annan hátt.
* Gott að skrifa niður glósur jafnóðum og ég les kennslubækur. Sérstaklega á blaði. Gera það jafnóðum yfir önnina. Ekki mjög ítarlegar glósur en mér fannst hjálpa að skrifa eitthvað niður… ég las þessar glósur yfirleitt ekki aftur
* Hef verið að skoða
https://obsidian.md/ þessa dagana til að glósa í tölvu. En hef ekki alveg náð að koma mér inní það ennþá.
* Til að læra tungumál þá hef ég notað Quizlet til að auka Ensku kunnáttu. Notaði mikið Kindle bækur til að fiska upp áhugaverð orð sem ég þekkti ekki.
Re: Hvernig lærið þið? :)
Sent: Mið 17. Jan 2024 08:48
af Black
Eyði steam útúr tölvunni hjá mér
Loka á alla truflun, les bækurnar og handskrifa glósur sem er ekki hægt að lesa aftur því ég er með svo lélega handskrift.
Hefur reynst mér vel
Finnst samt alltaf jafn áðdáunarvert að sjá svona vel skipulagðar og flottar glósur eins og hjá Cocacola123 hérna fyrir ofan.
Vildi óska að ég væri með þann metnað
Re: Hvernig lærið þið? :)
Sent: Sun 19. Maí 2024 12:47
af falcon1
Aðeins að endurvekja þennan þráð.
Var í lokaprófi í stærðfræðiáfanga í vikunni og finnst ég ekki vera nógu öruggur með mig í stærðfræðinni þannig að ég ætla að vinna í því í sumar. Hvaða vefsíður mælið þið með að nota til að bæði rifja upp og læra nýtt stærðfræðiefni. Ég hef verið að nota Khanacademy til að hjálpa mér í þessum áfanga en það eru nú örugglega fleiri góðar síður til.
Ps. ég er núna í Háskólabrú Keilis þannig að þetta er framhaldsskólastærðfræði að ég held.
Re: Hvernig lærið þið? :)
Sent: Sun 19. Maí 2024 15:18
af Njall_L
falcon1 skrifaði:Aðeins að endurvekja þennan þráð.
Var í lokaprófi í stærðfræðiáfanga í vikunni og finnst ég ekki vera nógu öruggur með mig í stærðfræðinni þannig að ég ætla að vinna í því í sumar. Hvaða vefsíður mælið þið með að nota til að bæði rifja upp og læra nýtt stærðfræðiefni. Ég hef verið að nota Khanacademy til að hjálpa mér í þessum áfanga en það eru nú örugglega fleiri góðar síður til.
Ps. ég er núna í Háskólabrú Keilis þannig að þetta er framhaldsskólastærðfræði að ég held.
Ég hef töluvert nýtt undirbúningsefni HÍ í raungreinum í þessum tilgangi
Stærðfræði:
https://edbook.hi.is/undirbuningur_stae/Eðlisfræði:
https://edbook.hi.is/undirbuningur_edl/Efnafræði:
https://edbook.hi.is/undirbuningur_edl/